Reynir Garðar
Vínvarpið
Fljótandi ferðalag um veröld víns og veiga. Rætt er við aðila úr vín- og veitingageiranum um vín frá þekktustu vínlöndum heimsins. Við kynnumst vínum, vínfræðum og fólkinu úr geiranum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#08 Rioja og Priorat 02.05.2026 51:58
Í þessum þætti förum við í ferðalag um tvö virtustu vínhéruð Spánar: DOCa Rioja og DOQ Priorat. Þetta eru einu svæðin á Spáni sem hafa hlotið hæsta gæðastimpil spænska vínkerfisins þrátt fyrir það að vera gjörólík í stíl, landslagi og víngerð. Við ræðum sögu og þróun svæðanna, þrúgurnar og stílinn, jarðveg og landslag og opnum með spjallinu flösku af Burgo Viejo Reserva frá DOCa Rioja ásamt flösku...
#07 Dóri DNA og náttúruvínin 14.11.2025 55:02
Hver er munurinn á lífrænt ræktuðu víni og náttúruvíni? Eru til fleiri aðferðir sem byggja á svipaðri aðferðarfræði? Í þessum þætti skoðum við þessi mál með áherslu á náttúrvínin. Við ræðum hvernig þau eru framleidd og hvað það er sem gerir þau frábrugðin öðrum vínum. Til að kynnast þessu betur fáum við vínvin okkar í heimsókn hann Halldór Laxnes Halldórsson, eða Dóra DNA, og spjöllum við hann um...
#06 Heiðrún vínkona og Corpinnat 31.10.2025 1:06:04
Í þessum þætti tölum við um vínkynningar. Við fáum til okkar vínkonuna, Heiðrúnu Mjöll Jóhannesdóttur, sem er vel þekkt fyrir vínkynningar en hún stofnaði fyrirtækið Vínvísar einmitt í þeim tilgangi að fræða fólk um vín á mannamáli. Með spjallinu gæðum við okkur á flösku af Llopart Corpinnat og lærum allt um Corpinnat og hvað það er sem gerir það frábrugðið Cava.
#05 Vínsmökkun og dómar 17.10.2025 1:03:18
Hvað gerir vín að góðu víni, og er til vont vín? Hverju erum við í raun að leita að þegar við smökkum vín, og hvernig ber maður sig að í vínsmökkun? Í þessum þætti kynnum við okkur helstu hugtök og aðferðir vínsmökkunar og fáum til okkar vínvin sem þekkir þetta betur en flestir, hann Þorra Hringsson. Hann leiðir okkur í gegnum ferlið á lifandi og skiljanlegan hátt, á meðan við gæðum okkur á einstö...
#04 Bragð í Barselóna 03.10.2025 57:38
Í þessum þætti fáum við Sóleyju Björk Guðmundsdóttir, vínfræðing og vínvin, í heimsókn til að ræða um spænsk vín og vínhéruð. Sóley hefur hefur lokið WSET Level 2 og 3 og sérhæft sig í vínum frá Spáni, þar sem hún hefur bæði lært og starfað til margra ára. Við ræðum um spænska vínmenningu og víngerð, tölum um vín allt frá Kanarí til DOQ Priorat og kynnumst um leið Sóleyju og hvernig áhugi hennar á...
#03 Fiskmarkaðurinn, Kampavín og Riesling 19.09.2025 1:00:48
Í þessum þætti fáum við Styrmi Bjarka Smárason vínvin í heimsókn og förum aðeins yfir ferilinn hans. Við ræðum um reksturinn, Kampavínsfélagið, samstarfið, rekstarumhverfið og svo margt fleira. Með spjallinu opnum við flösku af Riesling Ried Klostersatz frá Weingut F.X. Pichler og fræðumst aðeins meira um Riesling þrúguna og framleiðandann.
#02 Vínmenning á Íslandi 05.09.2025 1:12:11
Í þessum þætti fáum við Gissur Kristinsson vínvin í heimsókn og förum létt yfir vínsögu Íslands, Áfengisverslun Ríkisins og hvernig vínmenning landsins hefur þróast í gegnum árin. Á meðan við spjöllum um vínsöguna, vínmenningu okkar íslendinga og margt fleira þá opnum við flösku af Hugel Riesling Grossi Laue frá Alsace í Frakklandi og fræðumst aðeins um Riesling þrúguna og samtök sem kölluðu sig A...
#01 Óþekkti Gústi á Grillmarkaðnum 22.08.2025 47:58
Í dag kynnum við Vínvarpið til sögunnar og ræðum við Ágúst Reynisson, alla jafna þekktur sem Gústi á Grillmarkaðnum, um vín og veitingar. Með spjallinu opnum við flösku af Torres Mas La Plana frá D.O. Penedes sem á sér merkilega sögu og spilaði skemmtilegt hlutverk í einum af veitingastöðum Gústa í góðærinu á meðan við ræðum um upphafið og ferilinn hans Gústa, kynnumst persónunni og hvað það er se...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.