Þröstur Helgason
Útvarp Bændablaðið
Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
20. þáttur Guðrún Hafsteinsdóttir, Pawel Bartozek, Þórarinn Ingi Pétursson. 03.07.2026 47:09
Í þessum þætti ætlum við að ræða áhrif Evrópusambandsaðildar á íslenskan landbúnað, matvöruverð, Evrópuumræðuna og stöðuna nú tæplega tveimur mánuðum fyrir kosningar. Gestir þáttarins eru Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, en hún situr í atvinnuveganefnd Alþingis, Pawel Bartozek, þingmaður Viðreisnar og formaður Utanríkisnefndar, og Þórarinn Ingi Pétursson, varaformaður þingflo...
19. þáttur Margrét Gísladóttir og Benedikt S Benediktsson 19.06.2026 42:32
Í þessum þætti er rætt um matvöruverð á Íslandi og þann samanburð við matvöruverð í Evrópu sem Samkeppniseftirlitið setti fram í umræðuskjali svokölluðu fyrir skömmu. Við spyrjum um áhrif undanþágu afurðastöðva frá samkeppnislögum á matvöruverð, áhrif milliliðanna á matvöruverð, hvaða áhrif hugsanleg Evrópusambandsaðild myndi hafa á þessa hluti og sitthvað fleira.
18. þáttur Ásdís Hlökk Theodórsdóttir og Ingvi Stefánsson 04.06.2026 37:32
Rætt er um nýja skýrslu um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi. Meginefni hennar fjallar um það hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli. Í skýrslunni koma fram forvitnilegar niðurstöður um eignarhald á landbúnaðarlandi en þar segir meðal annars að mikill hluti lögbýla er ekki í virkri landbúnaðarnotkun. Í seinni hluta þáttar snúum við okkur svo...
17. þáttur Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands og blómabóndi á Espiflöt. 07.05.2026 45:32
Gestur þáttarins er Axel Sæland blómabóndi á Espiflöt í Reykholti. Rætt er um Gróðrarstöðina Mörk í Reykjavík en ef ákvörðun Reykjavíkurborgar gengur eftir þarf Mörk að víkja af lóð sinni í Fossvogsdalnum fyrir frekari uppbyggingu á vegum knattspyrnufélagsins Víkings. Við ætlum einnig að skoða mögulega ranga tollflokkun á innfluttum sumarblómum sem kemur innflytjendum hjá því að greiða stykkjagjal...
16.þáttur Guðmundur Vernharðsson 22.04.2026 30:50
Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík en nú eru komnar fram hugmyndir um að hún víki fyrir uppbyggingu á aðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Víking í Fossvogsdalnum. Við fáum að heyra um sögu og rekstur Markar sem hefur verið í Fossvogsdalnum frá því hún var stofnuð árið 1967 og samskiptunum við Reykjavíkurborg um flutning starfsseminnar.
15. þáttur Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands. 09.04.2026 48:17
Í þessum þætti ætlum við að ræða um Sláturfélag Suðurlands sem er samvinnufélag í eigu bænda og hefur þann tilgang samkvæmt samþykktum félagsins að að annast slátrun, úrvinnslu og sölu á framleiðslu félagsmanna. Félagið flytur einnig inn vörur og stundar aðra verslun eftir því sem það styrkir sölu á framleiðslu félagsins. Við ætlum að forvitnast um starfsemi félagsins, eignarhald þess, afkomuna, h...
14.þáttur Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskinsgrænmetis og Stefán Bragi Birgisson, sauðfjárbóndi á Galtastöðum Ytri 19.03.2026 46:04
Rætt er við tvo unga bændur sem hafa verið í uppbyggingu í sinni búgrein og að vissu leyti farið sínar eigin leiðir, Höllu Sif Svansdóttur Hölludóttur, garðyrkjubónda og eiganda Sólskins grænmeti, og Stefán Braga Birgisson, sauðfjárbónda á Galtastöðum Ytri í Hróarstungu á Austurlandi.
13.þáttur Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar og Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir. 05.03.2026 49:26
Í fyrri hluta þáttarins er rætt um landrækt á Íslandi, stöðu hennar og framtíð, en í seinni hlutanum er umfjöllunarefnið innflutningur lifandi dýra og samningsmarkmið sem um slíkan innflutning þyrfti hugsanlega að setja í mögulegum viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
12. þáttur Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og Torfi Jóhannesson, ráðgjafi hjá Nordic Insights. 20.02.2026 51:17
Í tólfta þætti Útvarps Bændablaðsins er rætt við Björgu Evu Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, og Torfa Jóhannesson, ráðgjafa hjá Nordic Insights og höfund skýrslu um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu.
11.þáttur Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Steinþór Logi Arnarsson, formaður samtaka ungra bænda. 22.01.2026 45:49
Gestir þáttarins eru tveir, Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og formaður Samtaka ungra bænda, Steinþór Logi Arnarsson.
10.þáttur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. 08.01.2026 47:18
Gestur þáttarins að þessu sinni er Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. Umræðuefnin eru orkumál og loftslagsmál en einnig verður komið inn á umhverfismál.
9.þáttur Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. 27.11.2025 39:58
Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra er gestur þáttarins í dag. Rætt er um stöðu íslensks landbúnaðar í dag og þróun hans síðustu áratugi. Pólitíkin kemur einnig við sögu.
8.þáttur Ragnheiður Björk Halldórsdóttir umhverfis- og sjálfbærnisérfræðingur. 13.11.2025 41:11
Gestur þáttarins er Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, sjálfstæður ráðgjafi á sviði sjálfbærni með fyrirtækið sporin.is. Rætt um sjálfbærni og umhverfismál, nákvæmnisbúskap og loftslagsmál.
7.þáttur Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. 30.10.2025 43:22
Gestur þáttarins að þessu sinni er Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Rætt er við hann um frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum og stöðu búvörusamninga.
6.þáttur Rafn Bergsson, Erna Bjarnadóttir og Jóhannes Hr. Símonarson. 16.10.2025 32:47
Rætt um drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingu á búvörulögum, einkum hvað varðar mjókurvinnslu. Frumvarpið er kynnt sem tilraun til að styrkja stöðu frumframleiðenda en margir innan greinarinnar óttast að breytingarnar kunni í reynd að veikja stöðu íslenskra kúabænda og gera starfssemi á mjólkurmarkaði enn erfiðari, bæði fyrir framleiðendur og vinnslu. Gestir þáttarins að þessu sinni e...
5.þáttur Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri TerraForming Life og Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri First Water. 05.09.2025 31:55
Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir, þau Gyða Pétursdóttir, verkefnisstjóri TerraForming Life hjá Bændasamtökum Íslands, og Sigurður Trausti Karvelsson sem er verkefnastjóri hjá First Water og fer með yfirumsjón verkefnisins Terraforming LIFE.
4.þáttur Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb. 21.08.2025 45:18
Gestur þáttarins að þessu sinni er Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb sem er markaðsstofa sem vinnur að því að auka virði sauðfjárafurða með markaðssetningu þeirra erlendis og til erlendra ferðamanna.
3.þáttur Erna Bjarndóttir, hagfræðingur MS og Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri SAFL. 04.07.2025 35:11
Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir, Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Mjólkursamsölunnar, og Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
2.þáttur Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra. 19.06.2025 51:47
Rætt við Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra, um landbúnaðarstefnu, afurðastöðvamál, skjól af EES-samningnum, tolla á innfluttar landbúnaðarvörur, búvörusamninga og aðild að ESB.
1.þáttur Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. 04.06.2025 36:49
Rætt við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hæstaréttardóm um breytingar á búvörulögum, nýja búvörusamninga, stöðuna í landbúnaðinum og ætlun ráðherra í málaflokknum.
Útvarp Bændablaðið kynningarstikla 03.06.2025 1:08
Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.