Landsbankinn

Umræðan

Business IS ↓ 68 episodes

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Author

Landsbankinn

Category

Business

Podcast website

www.landsbankinn.is

Latest episode

Jun 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Salan á Íslandsbanka, Gamestop og verðbréfamarkaðurinn 04.02.2021

Í þættinum er farið yfir sölu ríkisins á Íslandsbanka og muninn á stóru bönkunum þremur.  Auk þess er farið yfir þróun mála í Bandaríkjum hvað varðar Gamestop og svipuð fyrirtæki. Þórunn Björk Steingrímsdóttir verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum kíkir í heimsókn og ræðir um markaðinn og hennar vegferð í heim verðbréfamiðlara. 

Af hverju hækkuðu hlutabréf og fasteignir í heimsfaraldri? 14.01.2021

Í þættinum er fjallað um hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismarkaðinn á árinu 2020. Rætt er um það sem mörgum kann að koma spánskt fyrir sjónir, að hlutabréfamarkaðir hækkuðu í miðjum heimsfaraldri. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn ræðir þróunina á þeim markaði á árinu 2020 og horfurnar.

Fjármálamarkaðir, vinnumarkaðurinn og ríkisfjármál. 16.12.2020

Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. Einnig er farið yfir þróunina í nýskráningum í Bandaríkjanum þar sem sérstaklega er litið til eins fyrirtækis með íslenska tengingu. Auk þess er rætt við Ara Skúlason frá Hagfræðideild Landsbankans um stöðuna á íslenska vinnumarkaðnum og ríkisfjármál.

Krónan, gjaldeyrismarkaðurinn og óvænt vaxtaákvörðun Seðlabankans 03.12.2020

Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í nóvember, nýjustu verðbólgutölur frá Hagstofunni, hagvaxtartölur á þriðja fjórðungi og síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Að auki er rætt við Stefni Kristjánsson hjá gjaldeyrisviðskiptum Landsbankans um gjaldeyrismarkaðinn og þróunina á íslensku krónunni að undanförnu.

Sjálfbærni og græn fjármál 27.11.2020

Í þættinum er fjallað um sjálfbær fjármál frá ýmsum hliðum. Hvað eru græn skuldabréf og regnbogafjármögnun? Hver eru raunveruleg umhverfisáhrif fjármálafyrirtækja og hver er þróunin í ábyrgum fjárfestingum? Rætt er við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum og  Reyni Smári Atlason, sérfræðing bankans í sjálfbærni.

Hagspá Landsbankans og fasteignamarkaðurinn 21.10.2020

Í þættinum er rætt við Daníel Svavarsson, forstöðumann Hagfræðideildar og Unu Jónsdóttur sérfræðing, um nýja hagspá Landsbankans. Farið er yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum og sérstaklega rætt um fasteignamarkaðinn. Ný þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2020 -2023 var birt þann 20. október.

Ungir fjárfestar: Sparnaður og fjárfestingar – að byggja upp eignasafn 19.10.2020

Í þessu hlaðvarpi er fjallað um fjárfestingar út frá sjónarhorni ungs fólks.  Hvernig byrjar maður að fjárfesta og af hverju ungt fólk ætti að huga að sparnaði. Meðal annars er rætt um mikilvægi eignardreifingar, hvernig megi fjárfesta með ábyrgum hætti og að ekki megi missa sjónar af áhættunni. 

Efnahagsáfall aldarinnar - ný hagspá Hagfræðideildar 15.05.2020

Arnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson fjalla um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans sem gefin var út 15. maí. Samkvæmt spánni mun landsframleiðsla dragast saman um tæplega 9% á árinu 2020 en við taki hægur bati. Mikil óvissa sé þó um efnahagshorfur.

Áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslífið 11.03.2020

Arnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Sveinn Þórarinsson í Hagfræðideild Landsbankans ræða um áhrif COVID-19 á hlutabréfamarkaði og efnahagslíf hér á landi og erlendis. Rætt er um aðgerðir sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa kynnt til að sporna gegn samdrætti, uppnámið sem varð á olíumörkuðum, áhrif á gengi krónunnar og fleira.

Hlutdeildarlán, kaup TM á Lykli og fjarskiptamarkaðurinn 17.12.2019

Í þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson við Unu Jónsdóttur um Hlutdeildarlán á fasteignamarkaði. Stjórnvöld hafa boðað frumvarp um hlutdeildarlán, að breskri fyrirmynd, sem er ætlað að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast íbúð. Einnig er fjallað um kaup TM á Lykli og þróun skráðra félaga á fjarskiptamarkaði. Auk þess sem áskoranir í rekstri eru ræddar og rýnt inn...

Lucinity og baráttan gegn peningaþvætti 10.12.2019

Í þættinum ræða Arnar og Sveinn við Guðmund Rúnar Kristjánsson stofnanda Lucinity um peningaþvætti og hvaða leiðir eru færar í baráttunni gegn því. Lucinity er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í notkun hjálpargreindar í baráttunni gegn peningaþvætti.

Staða og horfur hjá Icelandair 21.11.2019

Í þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson um þróun í rekstri Icelandair undanfarin ár. Þeir velta fyrir sér verðlagningu félagins, áskorunum í rekstri og líta inn í framtíðina.

Þjóðhagsspá Hagfræðideildar og fasteignamarkaðurinn 04.11.2019

Rætt er við Unu Jónsdóttur í Hagfræðideild Landsbankans um fasteignamarkaðinn á Íslandi, stöðu og horfur. Einnig fræðir Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, okkur um þjóðhagsspá Hagfræðideildar sem birtist miðvikudaginn 30. október.

Smásala, eldsneyti og stýrivextir 24.10.2019

Í þættinum er fjallað um smásölumarkaðinn á Íslandi og eldsneytismarkaðinn. Rætt er um yfirvofandi orkuskipti og áhrif þeirra á skráð félög á markaði. Auk þess er farið yfir nýlegar stýrivaxtaákvarðanir og horfur næstu misseri Markaðsumræðan er vettvangur fyrir verðbréfagreinendur í Hagfræðideild Landsbankans til að koma á framfæri skoðunum sínum og greiningum á félögum á hlutabréfamarkaði og hver...

Ungt fólk og íbúðamarkaðurinn 11.01.2019

Íbúðamál geta virst algjör frumskógur við fyrstu sýn. Er betra fyrir ungt fólk að leigja, búa með vinum, í foreldrahúsum eða kaupa íbúð? Ef tekin er ákvörðun um íbúðarkaup, hvernig safnar maður þá fyrir útborgun? Landsbankinn í samstarfi við Útvarp 101 fékk Pétur Kiernan, 22 ára háskólanema, til að kynna sér íbúðamál ungs fólks, kosti þess að leigja og kaupa, húsnæðissparnað og viðbótarlífeyrisspa...

Iceland Airwaves 20 ára 31.10.2018

Iceland Airwaves er 20 ára í ár - eldri en margir sem koma fram á hátíðinni. Enda er hún fyrst og fremst hátíð nýjabrumsins í íslenskri tónlist, tækifæri fyrir unga listamenn til að opna bílskúrshurðina, lofta út og hleypa ljósinu inn. Í hlaðvarpi Umræðunnar að þessu sinni ræðir Atli Bollason m.a. sögu Iceland Airwaves, áhrif hennar á íslenska tónlistarmenningu, þróun hátíðarinnar og tækifærin fyr...

Fjármál stúdenta: Atvinnumál og atvinnuleit 16.10.2018

Háskólamenntað fólk hefur alltaf haft mjög góðan aðgang að vinnumarkaði. En nú er staðan orðin erfiðari og atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra hefur aukist. Í þessu hlaðvarpi er m.a. fjallað um hvernig stúdentar geta undirbúið sig fyrir vinnumarkaðinn og hvað getur mögulega gefið þeim forskot.

Fjármál stúdenta: Húsnæðismálin 11.10.2018

Í þessu hlaðvarpi Umræðunnar er rætt um húsnæðismál stúdenta og ungs fólks, fyrstu kaup, leigumarkaðinn og fleira. Unnið í samvinnu Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Landsbankans.

Listen to the Umræðan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.