Landsbankinn

Umræðan

Business IS ↓ 68 episodes

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Author

Landsbankinn

Category

Business

Podcast website

www.landsbankinn.is

Latest episode

Jun 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hvert fara stýrivextir og hvað er að gerast á íbúðamarkaði? 03.02.2023

Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir fyrstu stýrivaxtaákvörðun ársins miðvikudaginn 8. febrúar. Verðbólgan hefur hjaðnað hægar en búist var við og samsetning hennar hefur breyst á síðustu mánuðum. Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi og ýmis merki eru um kröftuga íbúðauppbyggingu. Kann að vera að verið sé að byggja of mikið?  Í þættinum spá hagfræðingarnir Una Jónsdóttir...

Verslun og þjónusta: Ferðaþjónusta á flugi en vaxta- og verðhækkanir bíta fast 08.12.2022

Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þurft að aðlagast sveiflukenndu rekstrarumhverfi á síðasta áratugnum. Ferðamannabylgja, heimsfaraldur og hvað svo? Horfurnar virðast góðar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu en róðurinn hugsanlega þyngri fyrir þau sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði. Í þættinum er fjallað um stöðu verslunar og þjónustu á Íslandi. Þar spjalla saman þær Una Jónsdóttir, f...

Hækkandi stýrivextir og ábyrgð fjármálageirans gagnvart loftslagsvandanum 24.11.2022

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær, enda hafa verðbólguhorfur versnað lítillega á síðustu vikum. Hvað þýðir að kjölfesta verðbólguvæntinga hafi veikst og hvenær getur Seðlabankinn slakað á taumhaldinu? Hvernig getur fjármálageirinn brugðist við loftslagsvandanum og hver er ábyrgð hans? Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í nýjasta hlaðvarpsþættinum. Þátturinn er tvískip...

Kólnandi íbúðamarkaður og breytt lánaumhverfi 03.11.2022

Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný.  Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði...

Hagspáin – hver er staðan og hvert stefnum við? 21.10.2022

Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni. Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist...

Vaxtahækkanir á enda? 06.10.2022

Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli? Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í...

Ekki nóg að huga bara að fjárhagnum 28.09.2022

Það er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki  að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins. Tjeerd annast m...

Staðan versnar áður en hún batnar - James Ashley frá Goldman Sachs 07.09.2022

Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi. Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu J...

Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkun? 24.08.2022

Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samf...

Hagvöxtur í skugga verðbólgu 19.05.2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýj...

Af hverju eru stýrivextir að hækka? 05.05.2022

Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræð...

Íbúðauppbygging á tímum verðhækkana. Hvert stefnum við? 07.04.2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka, og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksf...

Hækkandi fasteignaverð og salan á Íslandsbanka 24.03.2022

Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

Efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu 10.03.2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu, viðskiptaþvinganir og þróunina á hlutabréfamarkaði hér heima og erlendis. Mikil óvissa ríkir, sveiflur á mörkuðum, olíuverð er  í hæstu hæðum og verðbólguhorfur versna. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, og hagfræðingarnir Ari Skúlason og Gústaf Steingrímsson taka þátt í umræðunum ásamt Rún In...

Efnahagshorfur og stýrivaxtahækkun 10.02.2022

Í hlaðvarpinu er fjallað um þróunina á hlutabréfamarkaði, verðbólgu hér heima og erlendis og  stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands um 0.75 prósentustig. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Gústaf Steingrímsson hagfræðingur, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá ba...

Hækkandi fasteignaverð og yfirvofandi vaxtahækkanir í BNA 27.01.2022

Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, áhrif vaxtahækkana í Bandaríkjunum, hækkandi fasteignaverð, atvinnumarkaðinn og efnahagshorfur. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Una Jónsdóttir, okkar helsti sérfræðingur um fasteignamarkaðinn, taka þátt í umræðunum ásamt Rún...

Áhrif Ómíkron og nýtt fjárlagafrumvarp 02.12.2021

Í hlaðvarpinu fjöllum við um áhrif nýs afbrigðis af kórónuveirunni á fjármálamarkaði, nýtt fjárlagafrumvarp, nýjar upplýsingar um hagvöxt og fleira. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum og dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og  samskiptadeild bankans.

Góð uppgjör og loftslagsráðstefnan í Glasgow 04.11.2021

Í hlaðvarpinu fjöllum við um lofstlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow og hlutverk fjármálageirans í baráttunni við loftslagsbreytingar. Auk þess tölum við um þróunina á fjármálamörkuðum, góð uppgjör hérlendis og erlendis og fleira. Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, og Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur,...

Ný þjóðhagsspá: Kröftugur efnahagsbati hafinn 21.10.2021

Í hlaðvarpinu er ítarlega fjallað um nýja þjóðhagsspá Hagfræðdeildar Landsbankans. Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti 2021 og 2022. Ferðaþjónustan er vöknuð úr dvala, horfur eru á sérstaklega góðri loðnuvertíð og atvinnuleysi heldur áfram að minnka. Töluverðar áskoranir eru í ríkisfjármálum og kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga munu knýja á um tölu...

Jákvæð tíðindi af sjávarútvegi og ferðaþjónustu 14.10.2021

Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt. Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og...

Efnahagshorfur og hækkun fasteignaverðs 01.10.2021

Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsvið...

Ítarleg umfjöllun um nýja þjóðhagsspá 27.05.2021

Í hlaðvarpinu er farið yfir nýja þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar 2021-2023. Gert er ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist fyrr en áður var spáð og að landsframleiðslan vaxi um tæp 5% á árinu. Góður gangur í bólusetningum, bæði innanlands og í helstu viðskiptalöndum, bendir til þess að ferðaþjónustan taki fyrr við sér en áður var reiknað með.

Hvað er að gerast á fasteignamarkaði? 29.04.2021

Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. M.a. er rætt um verðbólguhorfur og aukna bjartsýni vegna bólusetninga. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn, ræðir ítarlega um þróunina á þeim markaði. Hún bendir á að eftirspurn sé ekki sama og þörf. Íbúðaþörf hafi í raun dregist saman þótt eftirspurn sé mik...

Efnahagshorfur, vaxtahækkanir í BNA og aukinn áhugi á hlutabréfum 19.03.2021

Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í stuttu máli. Rætt er við Dr. Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson frá Hagfræðideild Landsbankans, um horfur í þjóðarbúskapnum á þessu ári. Einnig er farið yfir hvernig árinu 2020 lauk miðað við upphaflegar spár. Við ræðum hækkandi vexti í Bandaríkjunum og hugsanleg áhrif á alþjóðavettvangi. Að lokum skoðum við aukinn áhuga almen...

Hvernig á að byrja að spara og fjárfesta? 19.02.2021

Hvenær og hvernig er best að byrja að spara eða fjárfesta? Hvar liggja tækifærin? Hvernig er hægt að fá betri ávöxtun og meta áhættuna? Elín Dóra Halldórsdóttir, viðskiptastjóri Eignastýringar Landsbankans, ræðir við Ægi Örn Gunnarsson, starfandi forstöðumann Eignastýringar og Guðnýju Erlu Guðnadóttur, sjóðstjóra hjá Landsbréfum.

Listen to the Umræðan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.