Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.

Education IS ↓ 8 episodes

Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar, framleitt af samson.is og í umsjón Steindórs Þórarinssonar og Jóns K. Við ræðum við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og þegar færi gefst fólk í ábyrgðarstöðum. Við leitum ekki að hávaða heldur skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð og greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er óljóst. Milli þátta er Nonni á gólfinu og Steindór að fara yfir gögn, skrifa pistla og halda umræðunni á lofti í minningu barna sem fóru of snemma frá okkur. Tekið upp í stúdíóinu Raddir.

Author

Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sería 2 #1 Þáttur - Það er auðvelt að tala um börnin fyrst. 26.06.2026

Týndu Strákarnir eru mættir aftur. Beittari, ákveðnari og með minni þolinmæði fyrir fallegum orðum sem breyta engu. Í fyrsta þætti Seríu 2 fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jackopssen yfir stöðuna eftir stutt hlé, hvað hefur gerst síðustu vikur og hvert verkefnið stefnir næst. Rætt er um börn með fjölþættan vanda, barnavernd, fósturheimili, Lækjarbakka, Týndu börnin, samfélagsmiðla, slæmar fyrir...

Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt 25.04.2026

Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum. Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna. Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veg...

Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka 16.04.2026

Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu. Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri. Í dag helga...

Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást 10.04.2026

Þáttur #4 af Týndu Strákunum fjallar um það sem gerist þegar barn biður um hjálp en fær í staðinn þögn, fordóma, lyf og kerfi sem virðist hvorki hlusta né grípa. Við ræðum við ungan mann sem hefur verið eitt af týndu börnunum, er nú kominn yfir 18 ára aldur og fastur á milli kerfa sem eiga að taka við, en skilja fólk of oft eftir á jaðrinum. Í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að vera í umh...

Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann 02.04.2026

Í þriðja þætti Týndu Strákanna ræðum við við Rósu Ólöfu Ólafíudóttur, systur Lalla Johns, um bókina sem hún hefur skrifað um bróður sinn, tengsl þeirra systkina og sögu sem varpar hörðu ljósi á kerfi sem brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans. Í þættinum förum við yfir sláandi gögn og skýrslur um Lalla John, þar sem orðalag, mat og framsetning bera með sér fordóma, gaslýsingu og val...

Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi 25.03.2026

Í þessum þætti segir Sævar Hlynur Jónsson frá því hvernig hann var dæmdur snemma af skólakerfinu sem vandræðaunglingur og hvernig sú stimplun ýtti honum síðar inn í neyslu, heimilisleysi og líf á ystu brún. Þetta er ekki bara saga um einn mann heldur líka um fjölskyldu sem brotnar með honum, foreldra sem standa úrvinda eftir og móður sem á einum stað í örvæntingu veltir því fyrir sér hvort best sé...

AUKAÞÁTTUR: Bruninn á Stuðlum og stjórnkerfið 20.03.2026

Í þessum aukaþætti fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen beint í skýrslu HMS um brunann á Stuðlum 19. október 2024, sem birt var 18. mars 2026. Farið er í það sem stendur í skýrslunni, það sem hún varpar ljósi á, það sem enn vantar svör við og upplifun Jóns af kvöldinu sem breytti öllu. Þetta er ekki snyrt útgáfa. Ekki mýkt. Ekki þynnt. Í þættinum ræðum við ábyrgð, afleiðingar, spurningarna...

Þáttur 1: Hvað við erum að gera 18.03.2026

Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is. Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson aka ADHD pabbi og Jón K. Jacobsson, Nonni Lobo , um hvað þetta verkefni er, hvað er verið að gera í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bakvið tjöldin, og af hverju við leggjum svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð. Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri P...

Listen to the Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um. podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.