Þroskaþjálfafélag Íslands
Þroskaþjálfinn
Hlaðvarp á vegum Þroskaþjálfafélags Íslands. ÞÍ er fag- og stéttarfélag þroskaþjálfa. Tilgangurinn með hlaðvarpinu er að varpa ljósi á starfshætti, starfsumhverfi og ólík störf þroskaþjálfa. Þroskaþjálfar eru eftirsóttir fagaðilar sem standa vörð um réttindi og velferð einstaklinga. Þeir starfa í fjölbreyttum störfum á ólíkum sviðum samfélagsins, með einstaklingum á öllum aldursskeiðum með ólíkar þarfir. Þroskaþjálfar stuðla að aukinni valdeflingu, bættri líðan, inngildingu, sjálfræði og fullri samfélagsþátttöku einstaklinga. Heimasíða félagsins er www.throska.is Auður Björk Kvaran þroskaþjál...
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Þroskaþjálfafélag Íslands
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 21, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 8 - Þema þáttarins er staða einhverfra einstaklinga meðáfengis- og vímuefnavanda. 21.10.2026 35:41
Auður fékk til sín Huldu Margréti Eggertsdóttur til að ræða BA verkefni hennar og Erlu Kolbrúnardóttur frá því í vor 2026 en það hlaut viðurkenningu Þroskahjálpar sem framúrskarandi hagnýtt lokaverkefni. En það fjallar um stöðu einhverfra einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda og aðkomu þroskaþjálfa. Verkefninu fylgir jafnframt hlaðvarp þar sem viðmælendur varpa ljósi á reynslu og áskoranir í...
Þáttur 7 - Þema þáttarins er valnámskeið um einhverfu 25.09.2026 51:16
Þroskaþjálfarnir Ragnhildur Jónsdóttir eða Ranka og Sara Kristjánsdóttir komu í viðtal til Auðar og ræddu lokaverkefni sitt "Valnámskeið um einhverfu - Um einhverfu frá einhverfum". Verkefnið þeirra hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi lokaverkefni í þroskaþjálfafræði árið 2025. Þær Ranka og Sara sóttu innblásturinn í hugmyndafræðina Ekkert um okkur án okkar og miðar að inngildandi o...
Þáttur 6 - Þema þáttarins er heitið þroskaþjálfi 30.01.2026 45:44
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk til sín þroskaþjálfana Friðrik Sigurðsson, Sunnu Líf Kristjánsdóttur og Særúnu Ósk Böðvarsdóttur til að ræða starfsheitið á stéttinni. Þráðurinn var tekinn upp frá afmælisþingi félagsins sem haldið var 2. október 2025.
Þáttur 5 - þema þáttarins er þroskaþjálfasystur 11.09.2025 43:38
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk loks til sýn systurnar Salóme, Hildi og Þóru Þórisdætur. Allar eru þær þroskaþjálfar og fáum við að heyra söguna af hverju þær urðu þroskaþjálfar og margt fleira. Ætli þær tali eingöngu um þroskaþjálfun þegar þær hittast? Við sem þekkjum þær systur vitum að þær búa yfir mikilli visku og aldrei er lognmolla í kringum þær. Ef ykkur langar að fá vitneskju um h...
Þáttur 4 - Þema þáttarins er málefni barna af erlendum uppruna. 02.07.2025 43:35
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk til sín þroskaþjálfana Katarzyna „Kasia“ Beata Kubiś, Helgu Andrésdóttur og Herdísi Ingibjörgu A. Svansdóttur í samtal um málefni barna af erlendum uppruna. Þær starfa hjá Þroskahjálp, Ráðgjafar- og greiningarstöðinni og leikskóla Hjallastefnunnar í Reykjanesbæ og hafa allar starfað með börnum af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra. Þroskaþjálfinn Þórunn...
Þáttur 3 - Þema þáttarins er öldrunarmál 30.05.2025 42:09
Auður Björk fékk til sín þroskaþjálfana Sigrúnu Broddadóttur (ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks) Bjarghildi Pálsdóttur (forstöðuþroskaþjálfa) og Sólborgu Baldursdóttur (forstöðuþroskaþjálfa). Kveikjan að umræðuefninu er samtal Auðar og Bjarghildar á fræðsludögum um þjónustu við aldrað fatlað fólk. Auður Björk hefur ekki starfað með þessum hópi og kom henni mikið á óvart hvað þjónustan breytist við...
Þáttur 2 - Þema þáttarins er framhaldsskólinn 02.05.2025 43:01
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk Önnu Björk Sverrisdóttur þroskaþjálfa og doktor og lektor við HÍ, Hrönn Erlingsdóttur , þroskaþjálfa í framhaldsskóla og Þórunni Guðrúnu Einarsdóttur, þroskaþjálfa í grunnskóla á unglingastigi í samtal um framhaldsskólamál.
Fyrsti þáttur í tilefni fræðsludaga sem haldnir voru í Hveragerði í byrjun febrúar 2025 02.04.2025 53:28
Í fyrsta þætti, fær Auður Björk Kvaran þroskaþjálfi og hlaðvarpsstjóri ÞÍ, samtal við Laufeyju Elísabetu Gissurardóttur, formann ÞÍ og Jóhönnu Margréti Einarsdóttur þroskaþjálfa og fulltrúa fagráðs sem og afmælisnefndar ÞÍ í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Í þættinum verða fræðsludagarnir gerðir upp. Þroskaþjálfinn er í mótun og á eftir að gera ýmsar breytingar á komandi þáttum, eins og að setj...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.