Stéttarfélagið

Stéttir Landsins

Business IS ↓ 35 episodes

Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru vísindi? Við skyggnumst inn í hin ýmsu störf Íslendinga og fáum að vita hvernig blákaldur veruleikinn lítur út. Þökkum fyrir samveruna í vetur og hlökkum til að mæta á ný í seríu 3! Samstarfsaðili þáttarins: 🔍 Alfreð & Giggó --- 📅 Miðvikudagar 📷 @stettirlandsins 📩 stettirlandsins@gmail.com 🎙️ Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

Author

Stéttarfélagið

Category

Business

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Mar 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#10 - Töframaður - Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal 05.03.2025

Töframaðurinn dulræni, Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal, er vægast fjölhæfur skemmtikraftur. Lalli hefur töfrað og skemmt fyrir unga jafnt sem aldna.  Þrátt fyrir að Lalli megi ekki gefa upp hvernig helstu töfrabrögð eru framkvæmd þá leysti hann úr skjóðunni um margt annað sem tengist töframannasenunni hér á landi. Upphaf töfraferilsins, töframannafélagið, hvort hann hefði töfrað á fyrsta stefnumó...

#9 - Fréttamaður - Kristín Ólafsdóttir 26.02.2025

Fréttakonan orðheppna, Kristín Ólafsdóttir, stendur á tímamótum um þessar mundir en hún lagði blaðamannapennann á hilluna á dögunum, í bili allavega. Hún ræddi við okkur um starf fréttamanns og var af nægu að taka. Hún lýsti því hvernig hún endaði fyrir algjöra tilviljun sem fréttamaður á Vísi, hvers vegna hún á það til að flytja fréttir úr sundlaugum landsins, sviðsljósið og vinabeiðnir á Faceboo...

#8 - Garðyrkjubóndi - Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir 19.02.2025

Garðyrkjubóndinn glaðbeitti, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, brá sér frá bændastörfum á Flúðum og fór yfir það helsta með okkur. Það kennir ýmissa grasa í garðyrkjunni hjá Höllu en hún rekur meðal annars Sólskins vörumerkið og ræktar tómata, gúrkur, sellerí og fleira til. Í þættinum var meðal annars farið yfir hvernig maður eignast allt í einu stærðarinnar garðyrkjustöð á Flúðum, hækkandi rafor...

#7 - Listamaður - Almar „í kassanum“ Atlason 12.02.2025

Listamaðurinn fjölhæfi, Almar Steinn Atlason, er flestum landsmönnum kunnugur eftir stórbrotinn gjörning á göngum Listaháskólans árið 2015. Almar dvaldi nakinn í glerkassa í viku og hreif alþjóð með hug og djörfung í listsköpun sinni. Hann hefur gert margt fleira en setið í kassa og ræddi við okkur um hin ýmis verk og ævintýri ásamt athyglinni sem fylgdi kassanum. Almar tjaldaði í nokkrar vikur á...

#6 - Útfararstjóri - Frímann Andrésson 05.02.2025

Útfararstjórinn yfirvegaði, Frímann Andrésson, ræddi við okkur um lífið, veginn og dauðann. Starf útfararstjóra getur tekið á sálartetrið eins kom fram í spjalli okkar. Við ræddum um hvaða viður væri vinsælastur fyrir líkkistu, hvort að almenningur mætti keyra um á líkbíl og bestu smáréttina í erfidrykkju. Frímann er einnig plötusnúður en spilar ekki hvaða tónlist sem er. Hann á það til að þeyta s...

#5 - Ljósmóðir - Hulda Viktorsdóttir 29.01.2025

Ljósmóðirin ljúfa, Hulda Viktorsdóttir, ræðir við okkur um heima og geima og allt sem við kemur starfi ljósmæðra.   Það var kafað ofan í uppruna orðsins, rætt um vinsældir heimafæðinga á undanförnum árum, hvort það væri samkeppni milli vakta að taka á móti fyrsta barni ársins og hvort að ljósmæðranám væri fyrir alla, konur og kalla.  Samstarfsaðili þáttarins:  🔍Alfreð & Giggó  ---  📷@huldavi...

#4 - Grínisti - Bolli Már Bjarnason 22.01.2025

Grínistinn glæsilegi, Bolli Már Bjarnason, er mörgum kostum gæddur. Það er ávallt stutt í grínið hjá kauða og einnig er hann með silkimjúka útvarpsrödd. Það liggur beinast við hjá Bolla að starfa við uppistand og vera í morgunútvarpi allra landsmanna. Það var farið yfir víðan völl í þættinum, stóra stökkið þegar Bolli ákvað að snúa sér alfarið að uppistandinu, hvernig það er að vera í 20 klukkustu...

#3 - Hagfræðingur - Jónas Atli & Þórunn Helgadóttir 15.01.2025

Hagfræðingarnir hagsýnu, Jónas Atli Gunnarsson og Þórunn Helgadóttir, hafa sérhæft sig í hinum döpru vísindum, hagfræðinni. Þau eiga margt sameiginlegt, þau eru bæði hagfræðingar og einnig í hjúskap. Hins vegar starfa þau á ólíkum sviðum innan hagfræðinnar. Jónas Atli starfar hjá hinu opinbera hjá HMS á meðan Þórunn snýr hjólum atvinnulífsins hjá fjárfestingarbankanum Fossum. Þau hafa búið víða um...

#2 - Dansari - Elín Signý 08.01.2025

Dansarinn geðugi, Elín Signý Ragnarsdóttir, starfar hjá Íslenska dansflokknum og við spurðum hana spjörunum úr. Við ræddum um hvernig það er að vera dansari að atvinnu og fórum yfir ferilinn á léttu nótunum. Einnig var farið yfir hinar alræmdu skandinavísku mjaðmir og hvort það væri of seint fyrir miðaldra karlmenn að hefja sinn dansferil. Elín er ævintýrakona mikil og undir lok þáttar fórum við y...

#1 - Leikari - Aron Már Ólafsson 07.01.2025

Leikarinn litríki, Aron Már Ólafsson, ræðir við okkur um leikarastarfið.  Aron lauk leiklistarnámi á sex árum og má segja að hann sé sprenglærður leikari fyrir vikið. Við ræðum við hann um skrautlegan námsferil, framandi listgjörninga og hápunkt ferilsins þegar hann fékk sinn eigin bílstjóra og trailer á setti. 📷@aronmola 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

Listen to the Stéttir Landsins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.