Stéttarfélagið

Stéttir Landsins

Hvað gera leikarar á virkum dögum? Hvernig er stemningin í vinnunni hjá útfararstjóra? Fyrir hverja er ljósmæðranám? Get ég orðið atvinnudansari eftir þrítugt? Er hagfræði hin döpru vísindi? Við skyggnumst inn í hin ýmsu störf Íslendinga og fáum að vita hvernig blákaldur veruleikinn lítur út. Þökkum fyrir samveruna í vetur og hlökkum til að mæta á ný í seríu 3! Samstarfsaðili þáttarins: 🔍 Alfreð & Giggó --- 📅 Miðvikudagar 📷 @stettirlandsins 📩 stettirlandsins@gmail.com 🎙️ Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.buzzsprout.com

Autor

Stéttarfélagið

Kategoria

Business

Strona podcastu

www.buzzsprout.com

Ostatni odcinek

11 mar 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Sería 2 - Litið yfir farinn veg 11.03.2026

Í vetur höfum við fengið 16 starfsstéttir í heimsókn til okkar, allt frá sóknarprests til stjörnuspekings.  Við félagarnir fengum okkur uppáhelling og fórum yfir seríuna, hringdum meðal annars í bókasafnsfræðing til að heyra hvað væri að frétta úr bókasöfnum landsins. Slóum einnig stuttlega á þráðinn til hlustenda til að fá hugmyndir fyrir næstu seríu. Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum kærle...

#33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson 04.03.2026

Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi.  Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík? Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nál...

#32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir 25.02.2026

Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir sýndi okkur miskunn þegar við viðurkenndum nýlegar stöðumælasektir og við fórum yfir sviðið með henni í klukkustund eða svo. Við fórum um víðan völl: afglæpavæðingu fíkniefna, innflytjendamál og þróun glæpa á Íslandi og á Norðurlöndum, vopnaburð ungmenna, áhrif CSI á hennar feril, hvað einkennir svæði með háa glæpatíðni og að sjálfsögðu sjálft fagið og n...

#31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir 18.02.2026

Dýrahjúkrunarfræðingurinn Eva Rún er sannarlega öflugur talsmaður gæludýra landsmanna og talaði þeirra máli í þætti vikunnar. Við fórum víða um sviðið og ræddum meðal annars lífstílssjúkdóma dýra, umræðuhópa á samfélagsmiðlum, gullfiskaæðið í upphafi 21. aldar, samband dýrahjúkrunarfræðinga og dýra, hetjuleg augnablik á skurðstofunni, smitsjúkdóma tengda leðurblökum og hundaæði. Að sjálfsögðu fóru...

#30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson 11.02.2026

Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar. Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu. Síðan var snert á a...

#29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir 04.02.2026

Sjúkraliðarnir síkátu, Elísa Finnsdóttir og Saga Ólafsdóttir, gáfu okkur innsýn í starf og umhverfi sjúkraliða á Íslandi. Sjúkraliðar ganga með marga hatta innan heilbrigðiskerfisins og var komið víða við. Félagslíf og virkni eldri borgara var í brennidepli, opnar skurðaðgerðir, heldri menn með mótþróa, samskipti við skjólstæðinga, boccia, hvernig á að taka á því þegar einstaklingar eru á síðustu...

#28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir 28.01.2026

Fornleifafræðingurinn Hildur Gestsdóttir lagði múrskeiðina til hliðar og spjallaði við okkur. Það var farið aftur til fortíðar og meðal annars rætt um mannabeinarannsóknir en Hildur sérhæfir sig í þeirri áhugaverðu undirgrein fornleifafræðarinnar. Það var rætt m.a. um merka uppgrefti, tæki og tól fornleifafræðinga, umhverfi fornleifafræðinga á Íslandi, gömul sverð, myntasöfnun, fallega bæjarhóla,...

#27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson 21.01.2026

Íþróttafréttamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson er iðulega staðsettur í Efstaleiti hjá Ríkisútvarpi allra landsmanna. Hann leit við hjá okkur í spjall og fór yfir landslagið í sportinu.  Handboltinn tröllríður umræðunni í dag og við fórum aðeins yfir stöðu handboltans á alþjóðavísu og fyrirkomulag stórmóta.  Auðvitað var ekki hægt að tala um íþróttir án þess að ræða uppgang krullunnar, en einnig var...

#26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir 14.01.2026

Flugumferðarstjórinn Diljá Mjöll steig úr flugturninum og leit við til okkar í stúdíóið.  Við ræddum námið hjá Isavia og hið daglega starf flugumferðarstjóra, allt frá samskiptum, ákvarðanatöku og öllu sem starfinu fylgir.  Einnig bar á góma flugvélalingóið, óvænt atvik í háloftunum, áhrif veðurfars, flugvöllinn á Gjögur, mikilvægi rýmisgreindar í starfi flugumferðarstjóra, listflug í steggjunum o...

#25 - Fangavörður - Heiðar Smith 07.01.2026

Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða. Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu...

#24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann 31.12.2025

Stjörnuspekingurinn Guðrún Bergmann er með marga hatta og einn þeirra er stjörnuspekin.  Nýtt ár er í vændum og því tímabært að rýna í stjörnukortin og kanna hvað þau segja um það sem fram undan er.  Við ræddum hvort stjörnuspeki geti nýst við að velja réttu lottótölurnar, taka skynsamlegar ákvarðanir á fasteignamarkaði og í lífi og leik. Guðrún dró upp persónuleg stjörnukort fyrir okkur félagana...

#23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir 21.12.2025

Jólasveinninn gjafmildi, Bjúgnakrækir, hélt að hann væri á leið á jólaball þegar hann sparkaði upp hurðinni á stúdíóinu. Við fengum hann þó til að setjast niður með okkur á þessum háannartíma. Það var rætt um þennan fjölskyldubransa og mikla eftirspurn í desember, kjarasamninga jólasveina, hvort Kertasníkir væri uppfullur af sjálfum sér, og þá gagnrýni sem Gluggagægir hefur sætt undanfarin ár.  Bj...

#22 - Lýtalæknir - Þórdís Kjartansdóttir 17.12.2025

Lýtalæknirinn Þórdís Kjartansdóttir er alla jafna með skurðhnífinn á lofti hjá DeaMedica, en að þessu sinni settist hún niður með okkur og fór yfir þennan áhugaverða bransa.  Í þætti vikunnar er komið víða við, allt frá bótoxi og til Simon Cowell, andlitslyftinga, BBL, hárígræðslna, calf implants, nýjustu tískubólur og margt fleira.  Þórdís, sem hefur starfað sem lýtalæknir um árabil, fékk misgáfu...

#21 - Tölvuleikjaframleiðandi - Halldór Snær Kristjánsson 10.12.2025

Tölvuleikjaframleiðandinn, Halldór Snær Kristjánsson, stofnaði Myrkur Games ásamt tveimur félögum sínum úr HR. Þó nokkrum árum síðan og talsverðri mikilli vinnu er leikurinn þeirra, Echoes of the End, loks kominn út. Við félagarnir vorum að vanda forvitnir um hvernig svona ferli gengur fyrir sig og Halldór fræddi okkur um það hvernig hægt er að taka bjartsýna hugmynd úr háskóla og fylgja henni eft...

#20 - Brúðkaupsplanari - Alína Vilhjálmsdóttir 03.12.2025

Brúðkaupsplanarinn skipulagði, Alína Vilhjálmsdóttir, gaf okkur nokkur góð ráð fyrir stóra daginn. Við fórum yfir allt litrófið í brúðkaupsplaneríi og getum sagt að við séum skrefi nær því að verða tilbúnir að ganga í það heilaga.  Hvernig á að tækla langar og leiðinlegar ræður, litapallettur og smekksatriði, kostnað, hversu mörgum gestum á að bjóða, furðulegar hefðir og auðvitað starfið sjálft va...

#19 - Veðurfræðingur - Einar Sveinbjörnsson 26.11.2025

Veðurfræðingurinn vinalegi, Einar Sveinbjörnsson, kom í heimsókn og leit með okkur til veðurs eins og honum einum er lagið.  Veðrið er okkur hugleikið á hverjum degi og því lá ekki á spurningunum. Við fórum yfir helstu spálíkön, ræddum hvort það væri á einhvern hátt skynsamlegt að flytja höfuðborgina miðað við veðurfar, hvernig það reynir á sálartetrið að spá fyrir heilli þjóð og rýndum í helstu v...

#18 - Prestur - Guðmundur Karl Brynjarsson 23.11.2025

Sóknarpresturinn síungi, Guðmundur Karl Brynjarsson, hefur gengið Guðs veg síðan á tíunda áratug síðustu aldar. Guðfræðin kallaði þó ekki sterkt til hans á æskuárum og kom mörgum á óvart þegar hann gerðist prestur.  Gummi Kalli þjónar hjá Lindakirkju í Kópavogi og hefur getið sér góðs orðs sem sóknarprestur. Hann ræddi við okkur um ýmislegt sem tengist trúnni, meðal annars hvort það væri rými til...

Sería 1 - Litið yfir farinn veg 19.05.2025

Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí. Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst. Gleðilegt sumar ☀️ Samstarfsaðili þáttarins:  🔍Alfr...

#17 - Bráðatæknir - Höskuldur Friðriksson 07.05.2025

Bráðatæknirinn reynslumikli, Höskuldur Sverrir Friðriksson, hefur starfað sem sjúkraflutningamaður og bráðatæknir í tæp 40 ár. Hann hefur sannarlega upplifað ýmislegt og séð tímana tvenna. Höskuldur fór um víðan völl og sagði okkur meðal annars frá starfi sínu í Bandaríkjunum, Nígeríu og Líbanon. Þar upplifði hann skotárásir og sinnti störfum á jarðsprengjusvæðum. Starfsferill hefur ekki alltaf ve...

#16 - Kokkur - Snædís Xyza 30.04.2025

Kokkurinn kraftmikli, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af kokkalandsliðinu um árabil. Við spjölluðum meðal annars um trendin í matarmenningu Reykjavíkur, fáum góð ráð um hvernig á að elda fisk, kíkjum á bakvið tjöldin hjá íslenska kokkalandsliðinu og ræðum fyrir hverja kokkanámið er. Matur, menning og metnaður í þætti vikunnar.  Samstarfsaðili...

#15 - Ljósmyndari - Þráinn Kolbeinsson 27.04.2025

Ljósmyndarinn ævintýragjarni, Þráinn Kolbeinsson, hefur lent í ýmsum ævintýrum á ferli sínum sem ljósmyndari. Hann flakkar um landið og á fjarlægar slóðir til að grípa besta mögulega augnablikið. Allt frá því að mynda reiðhjólakappa á Vestfjörðum til ísbjarna á Baffin-eyjum í Kanada. Hann fór meðal annars yfir það hvernig hann skipti úr stöðugri vinnu á sálfræðistofu yfir í óútreiknanlegt líf sem...

#14 - Þáttastjórnandi - Arnar Þór Ólafsson 02.04.2025

Þáttastjórnandinn geðþekki, Arnar Þór Ólafsson, er með marga bolta á lofti í sjónvarpi og hlaðvarpsheimum. Eftir að hafa verið í atvinnuleit eftir heimsfaraldur stökk hann um borð á hlaðvarpsvagninn og hefur það leitt af sér eitt og annað. Við ræddum við hann um hans helstu verkefni, flest fjármálatengt afþreyingarefni, líkt og Pyngjuna og Viltu Finna Milljón? á Stöð 2.  Við vildum vita hvernig fy...

#13 - Miðill - Sigríður Elín Olsen 26.03.2025

Miðillinn og heilarinn, Sigríður Elín Olsen, ræddi við okkur um andleg málefni og deildi því með okkur, hvað býr í fólkinu að handan. Við fengum ýmis svör, heyrðum um okkar verndarverur og hvernig orku við búum yfir. Við ræddum starf miðilsins, hvernig skilaboðin berast frá þeim liðnu, hvort það sé erfitt að vera sjáandi í margmenni, og hvað taki við eftir jarðneska tilveru. Við fórum einnig yfir...

#12 - Förðunarfræðingur - Rakel María Hjaltadóttir 21.03.2025

Förðunarfræðingurinn fótfimi, Rakel María Hjaltadóttir, fór yfir heims- og tískumálin með okkur. Það var tekinn 360 gráðu greining á heitustu trendunum í förðunarbransanum í dag, hvað væri heitt og hvað væri kalt. Rakel er hlaupari mikill og við ræddum um hið stórmerkilega hlaup sem er kennt við Bakgarðinn. Við vildum forvitnast hvað færi í gegnum hausinn á hlaupurum eftir næstum sólarhring á hlau...

#11 - Óperusöngvari - Kristján Jóhannesson 12.03.2025

Óperusöngvarinn tónelski, Kristján Jóhannesson, er gullbarki með meiru. Þrátt fyrir að vera ekki nema rétt rúmlega þrítugur hefur hann lært og starfað sem óperusöngvari víða um Evrópu um árabil. Kristján sagði okkur frá hinum litla en harða heimi óperunnar í Evrópu og hinu rólega lífi í svissneskum smábæ. Við vorum meðal annars forvitnir að vita hvort hann væri stöðvaður út á götu til þess að gefa...

Słuchaj podcastu Stéttir Landsins w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS