RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Kvikuinnskot, bankahagnaður, afkoma bænda. loftslag og Brim 26.10.2023

26. október 2023. Kvikuinnskot gæti verið að myndast undir Fagradalsfjalli og mikil jarðskjálftavirkni er þar enn. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega að ekki liggi fyrir hvað taki við, þegar ívilnanir vegna kaupa á rafbílum falla niður um áramót. Á meðan taki fólk dýr bílalán á hærri vöxtum en dráttarvextir voru fyrir fáum misserum Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um samtals 60 millja...

Jörð skelfur norðan við Grindavík og þrýstingur á fjárlaganefnd 25.10.2023

25. október 2023 Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu sem hófst norðan við Grindavík í nótt. Ekki er að sjá merki um gosóróa en um margt minnir hrinan á aðdraganda fyrri gosa. Bæjarstjóri í Grindavík segir að bæjarbúar hafi fundið vel fyrir skjálfta upp á 4,5 í morgun en séu öllu vanir. Bændasamtök Íslands telja neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði, afkomubrestur sé í flestum...

Kvennaverkfall, örvænting á Gaza, Rannís og ESB samstarf 24.10.2023

24. október 2023 Samstöðufundir vegna kvennaverkfallsins voru á dagskrá um allt land í dag. Fjölmennasti viðburðurinn var á Arnarhóli í Reykjavík, þar sem lögregla áætlar að á milli sjötíu til hundrað þúsund karlar, konur og kvár hafi komið saman. Heyrðist í Freyju Steingrímsdóttur, Ingu Straumland, Sigfríði Þorsteinsdóttur, Rögnu S. Óskarsdóttur, Örnu Sif Bjarnadóttur, Guðbjörgu Pálsdóttur, Sylwi...

Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft 23.10.2023

23. október 2023 Fjármálaráðuneytið vanmat breytingar sem fylgdu heildarsamningi við Microsoft fyrir fimm árum, og væntingar um hátt í sex milljarða króna árlegan sparnað gengu ekki eftir. Þetta er meðal niðurstaðna í úttekt Ríkisendurskoðunar. Héraðsdómur verður að dómi Landsréttar að taka hryðjuverkamálið til efnislegrar umfjöllunar þó að ákæru hafi verið vísað frá í tvígang. Gengi bréfa í Marel...

Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu 20.10.2023

20. október 2023 Skortur er farinn að sverfa að á Gaza og enn hefur flutningabílum sem bíða með hjálpargögn við landamæri Egyptalands ekki verið hleypt í gegn. Hamas sagðist hafa sleppt tveimur bandarískum gíslum af mannúðarástæðum síðdegis. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í morgun við undirskriftum meira en tvö þúsund manns sem hvetja stjórnvöld til að fordæma stríðsglæpi Ísraelshers og...

Hjálpargögn komast ekki inn á Gaza, víða stríð í heiminum og loðnan 19.10.2023

19. október 2023 Miklar hörmungar vofa yfir íbúum Gaza fáist ekki neyðaraðstoð sem enn situr föst við landamærin. Rafmagnslaust er á mörgum sjúkrahúsum og erfitt eða ómögulegt að sinna særðum. Bandaríkjastjórn biður Bandaríkjamenn um allan heim að vera á varðbergi vegna andúðar í garð Bandaríkjanna. Útreikningar benda til að breytingar á hafstraumum við Norðaustur-Grænland gætu orðið allmiklar inn...

Gaza, morðvopn, önnur sýruárás, áhrif loftslagsbreytinga á lífið 18.10.2023

18. október 2023 Sextíu tonn af hjálpargögnum eru á leið á Gaza eftir að Ísraelar tilkynntu að þeir stæðu ekki í vegi fyrir að aðstoð kæmist þangað í dag. Utanríkisráðherra fordæmir árás á spítala í gær. Eiginkona og dóttir mannsins, sem var myrtur í Drangahrauni í Hafnarfirði í sumar, fundu blóðugan hníf við tiltekt í íbúðinni í fyrradag. Vopnið hafði ekki fundist í rannsókn lögreglu. Stíflueyði...

Árás á sjúkrahús, sýruárás á barn, Svíþjóð, Pólland 17.10.2023

17. október 2023 Palestínumenn segja um 500 manns hafa fallið í loftárás á sjúkrahús á Gaza. Betur fór en á horfðist þegar stíflueyðisdufti var kastað í andlit tólf ára stúlku. Yfirmaður öryggismála hjá sænska knattspyrnusambandinu varar stuðningsfólk landsliðsins við því að klæðast treyjum liðsins erlendis. Harkalegu ofbeldi er æ oftar beitt í kynlífi þannig að leiði til ákæru. Hjúkrunarrýmum í S...

Eldflaugum rignir yfir Ísreael og heilbrigðiskerfið á Gaza hrynur 16.10.2023

16. október 2023 Vígasveitir Hamas-samtakanna hafa varpað fjölda eldflauga á Tel Aviv og Jerúsalem síðustu klukkustundir. Samtökin segja árásirnar svar þeirra við árásum Ísraela á saklausa borgara. Þó nokkrir bjuggu í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík sem kviknaði í síðdegis. Einn var fluttur á sjúkrahús. Maður sem bjó í húsinu hljóp út þegar hann heyrði í brunabjöllu. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar segir...

Hernaður Ísraela og Hamas, fundur stjórnarflokkanna, kvennaverkfall 13.10.2023

13. október 2023 Samstaða var með stjórnarflokkunum á sameiginlegum vinnufundi þeirra á Þingvöllum í dag, segja Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, forystumenn flokkanna. Kvikugangur er að myndast undir Fagradalsfjalli að mati vísindamanna Veðurstofunnar. Það sýnir hröðun á landrisi undanfarið. Fyrirskipun Ísraelshers um að 1,1 milljón íbúa Gazaborgar komi sér suð...

Kosningar í Póllandi og vangaveltur um ríkisstjórn 12.10.2023

12. október 2023 Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Ísraels í dag og ítrekaði skilyrðislausan stuðning Bandaríkjastjórnar við ísraelsku þjóðina. Hlýrra loftslag og hopun jökla hefur aukið framleiðslugetu Landsvirkjunar umtalsvert á undanförnum tíu árum. Nýjum samráðsvettvangi lögreglu, sveitarfélaga, heilbrigðistofnana, skóla og fleiri er ætlað að vaka yfir samfélaginu og skipuleggja átaksver...

Afsögn fjármálaráðherra, stríð í Ísrael og umhverfisglæpir 11.10.2023

11. október 2023 Afsögn fjármálaráðherra var lítið rædd í þingsal Alþingis en þeim mun meira á göngum þess. Magnús geir Eyjólfsson þingfréttamaður segir frá stemmningunni á þingi og Linda H. Blöndal ræðir við stjórnarandstöðuþingmennina Guðmund Inga Kristinsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Jóhann Pál Jóhannsson. Fimm sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum hafa verið myrtir í stríðinu milli Ham...

Afsögn Bjarna Benediktssonar og áhrif á ríkisstjórn 10.10.2023

10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flókn...

Flugskeytaárásir á Gaza og brotalamir í heilbrigðiskerfi 09.10.2023

9. október 2023 Á annað þúsund hafa fallið frá því að stríð braust út á laugardag milli stjórnarhersins í Ísrael og palestínskra vígamanna Hamas frá Gaza-svæðinu. Ísraelsher skaut helmingi fleiri flugskeytum yfir til Gaza í dag en um helgina. Kona frá Palestínu sem búið hefur á Íslandi lengi segir að Hamas-samtökin séu frelsishreyfing. Ræðismaður Íslands í Ísrael segir hins vegar að þau þrífist á...

Aðbúnaður á vöggustofum, ópíóíðafaraldur, veiðitímabil rjúpu í haust. 06.10.2023

06.10.2023 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að stjórnvöld geri margt til að bregðast við ópíóíðafaraldrinum en mættu gera betur. Fjölga þurfi plássum í afeitrun til að stytta biðtíma sem nú er á sjöunda mánuð. Urður Örlygsdóttir ræddi við hann. Umhverfisáðherra hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verði frá 20. október til 21. nóvember í ár. Heimilt verður að stunda veiðarnar allan dag...

Ill meðferð vöggustofubarna, Freedom aflýst, áhugalausir Alþingismenn 05.10.2023

Hvítir veggir, hvítir sloppar og börn í hvítum rúmum; þau skorti örvun og umhyggju á vöggustofum Reykjavíkur. Foreldrarnir fengu ekki að snerta þau og varla að heimsækja þau. Þetta hafði oft varanleg áhrif á líf og heilsu barnanna. Þau sættu illri meðferð að dómi nefndar sem hefur rannsakað starfsemina. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur hefur aflýst fundi með tyrkneska körfuboltamanninum Enes Kan...

Spegillinn 4.10.23 Loðnubrestur, fiskeldi, Svíþjóð, Súdan og sveitin 04.10.2023

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart. Villti laxastofninn á að njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum að stefnu um lagareldi. Heimildir til sjókvíaeldis gætu orðið að engu, hafi reglulegt strok úr kvíum mikil áhrif á villta laxinn. Matvælaráðherra segir stefnt á að hækk...

Verndun lax í ólagi, vargöld á Haítí og kommúnistarapp 03.10.2023

Maður á sextugsaldri sem fannst látinn í heimahúsi í Bátavogi í austurborg Reykjavíkur á laugardagskvöld fyrir einni og hálfri viku var myrtur. Fimm flokka þyrfti til að mynda ríkisstjórn án Samfylkingarinnar miðað við niðurstöður Þjóðarpúls. Kaupmáttur dróst saman í fyrra, en jókst ekki eins og Hagstofa hafði áður greint frá. Búist er við að Seðlabankinn tilkynni á morgun um fimmtándu stýrivaxtah...

Ákæruliðum vísað frá í hryðjuverkamáli og framtíð heilbrigðisþjónustu 02.10.2023

2. október 2023 Ákærum um undirbúning hryðjuverka var í dag öðru sinni vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Verjandi segir rannsókn hryðjuverkamálsins hafa miðað að því að sanna kenningar sem lögregla setti fram á blaðamannafundi. Nærri fimmtíu ungmenni hafa fallið í átökum glæpagengja í Svíþjóð undanfarin ár, yfir þrjú hundruð hafa verið myrtir á sjö árum. Samfylkingin boðar breytingar á skattkerf...

Venesúelabúum vísað úr landi. Færanlegt sjúkrahús til Úkraínu. 29.09.2023

29.09.2023 Útlendingastofnun mátti synja Venesúelabúum um alþjóðlega vernd, að mati kærunefndar útlendingamála. Á annað þúsund manns frá Venesúela geta búist við að vera send úr landi á næstunni. Ari Páll Karlsson sagði frá. Sænska hernum verður falið að aðstoða lögregluna við að ráða niðurlögum glæpagengja sem hafa orðið ellefu manns að bana í þessum mánuði. Vísbendingar eru um tengsl íslenskra g...

Framtíð frétta, banvæn árás í Rotterdam og ágreiningur ráðherra. 28.09.2023

28. september 2023. 32 ára karlmaður var handtekinn í Rotterdam í Hollandi síðdegis eftir banvænar skotárásir í íbúð og á sjúkrahúsi. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir lokuð búsetuúrræði ekki geta leyst vanda sem upp sé kominn vegna fólks sem fengið hafi endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Dómsmálaráðherra er ósátt við nýjan samning ríkisins við Rauða krossinn um neyðaraðstoð fyrir þennan hó...

Samskip í hart, blekkingar Trumps, kynjaðir samfélagsmiðlar unglinga 27.09.2023

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablönd...

Spegillinn 26.9.'23. Húsnæðislán, háþrýstingur, loftslags- og skólamál 26.09.2023

Það getur verið dýrkeypt að gera ekki samaburð á þeim kjörum sem bjóðast við endurfjármögnun á húsnæðislánum, segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Fólk þarf að vera meðvitað um hve ódýrt það er að endurfjármaga lánin. Of hár blóðþrýstingur er vangreindur og vanmeðhöndlaður sjúkdómur sem getur leitt til nýrna-, hjarta- og heilasjúkdómum, segir Emil Lárus Sigurðsson prófessor við Háskóla Ís...

Litla-Hraun verður rifið, 54 gefa skýrslu, hjúkrunarheimili tefst 25.09.2023

Kona hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudags, vegna rannsóknar á andláti karls í Reykjavík á laugardag. Skipulagsmál hjá borginni urðu til þess að bygging hjúkrunarheimilis í Grafarvogi hefur tafist um tvö ár. Borgin segist tilbúin. Enn bætir í straum flóttamanna frá Nagorno-Karabakh til Armeníu. 54 gefa skýrslu í réttarhöldunum sem kennd eru við Bankastræti Club og hófust í dag. 40%...

22.9.2023 Kynþroska strokulaxar, Landsbankinn farinn úr Austurstræti, 22.09.2023

Flestir strokulaxarnir sem Hafrannsóknarstofnun hefur greint, voru kynþroska. Þetta er óvenjulegt, en í laxeldi er kynþroska laxa seinkað til þess að auka gæði fiskanna. Valur Grettisson ræddi við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun. Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá danska karlmenn í tengslum við umfangsmikið smygl á hundrað fimmtíu og sjö kílóum af hassi. Þeir voru handteknir...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.