RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Löggjöf um sjávarútveg, aldinn utanríkisáðherra allur og slúður 30.11.2023 20:00
30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta...
Stuðningur vegna launagreiðslna í Grindavík, Gaza og COP28 29.11.2023 20:00
29. nóvember 2023 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma frumvarp stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. Stuðningurinn getur numið allt að 633 þúsund krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð og gildir út febrúar. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur segir töluvert um að fólk hringi á skrifstofuna í leit að svörum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar se...
NATO vill lengra vopnahlé, tryggja þarf almenningi orku, tóbakslög 28.11.2023 20:00
Leiðtogar og utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna hafa kallað eftir að hlé á átökum á Gaza verði framlengt og fleiri gíslar leystir úr haldi. Fundur utanríkisráðherra NATO hófst í Brussel í morgun og óþreyja er meðal marga vegna aðildarumsóknar Svía. Rætt er við Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra. Eftirspurn eftir raforku er meiri en framboðið og lagabreytinga er þörf til að tryggja að almenningur...
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir, landarmæri Finna og Rússa og popúlismi 27.11.2023 20:00
27. nóvember 2023 Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt að enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega að jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður. F...
Íbúðakaup fyrir Grindvíkinga, ungir afbrotamenn, föstudagurinn svarti 24.11.2023 20:00
Stjórnvöld ætla að kaupa allt að 210 íbúðir til að útvega Grindvíkingum húsnæði og styðja þá tímabundið vegna kostnaðar við leigu. Þrátt fyrir að staða á húsnæðismarkaði hafi verið þröng eru þessar íbúðir til og endurmeta verður svo hvort þörf sé á frekari stuðningi. Kári Friðriksson, hagfræðingur hjá Arionbanka, telur að kaupin hafi ekki áhrif á fasteignaverð, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn....
COP28 byrjar senn og bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla 23.11.2023 20:00
Þúsundir stjórnmála- og embættismanna, vísindamanna, fulltrúa hagsmunaaðila, umhverfissamtaka að ógleymdum herskara fjölmiðlafólks flykkjast brátt á 28.loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um mánaðamótin. Finnur Ricart Andrason, forseti ungra umhverfissinna segir þetta mikilvægan vettvang en bara eitt tól af mörgum. VR stóð í dag fyrir fundi um leiksk...
Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir 22.11.2023 20:00
22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögu...
Flókin atburðarás við Svartsengi og samið um gísla Hamas 20.11.2023 20:00
20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgei...
Launagreiðslur til Grindvíkinga, þjónustumiðstöð, Úkraína 17.11.2023 20:00
17. nóvember 2023 Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt að leggja fram frumvarp um tímabundnar launagreiðslur til Grindvíkinga. Gert er ráð fyrir að heildargreiðslur geti numið allt frá einum að einum og hálfum milljarði á mánuði. Reiknað er með greiðslunum út febrúar. Linda Blöndal ræddi við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur fjármáalráðherra og Guðmu...
Íslensk tunga, ljósleiðari sem jarðskjálftamælir, stórveldafundur 16.11.2023 20:00
16. nóvember 2023 Íslenska er mál málanna á Íslandi í dag eins og alla aðra daga - en alveg sérstaklega í dag, á degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar síðan 1996. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigurrós Eiðsdóttur, formann Félags íslenskukennara, um íslenskukennslu og -áhuga skólabarna og stöðu íslenskunnar. Ljósleiðari er nú líkega í fyrsta...
Tilfinningar og kaffi í Tollhúsi, búið ofan á kvikugangi í Kelduhverfi 15.11.2023 20:00
Það eru allar tilfinningar eðlilegar á þessum tímapunkti að sögn Aðalheiðar Jónsdóttir hjá Rauða krossinum. Hún segir að fólk bregðist misjafnlega við áföllum eins og því sem Grindvíkingar ganga í gegnum núna. Sumir verða reiðir, aðrir verða dofnir, svo dæmi séu tekin. Í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga, sem var opnuð í gamla Tollhúsinu í Tryggvagötu í Reykjavík í dag, verður bæði hægt að fá sér...
Sprungur í Grindavík og víðar, samkomustaður fyrir Grindvíkinga 14.11.2023 20:00
Víða má finna sprungur á Reykjanesskaga og á austasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Sprungur gætu leynst undir húsum á fleiri stöðum en í Grindavík. Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur kortlagt sprungur. Hún segir að sprungan sem liggur i gegnum Grindavík hafi verið þekkt og telur að gliðnunin geti haldið áfram í nokkrar vikur. Stjórnsýsla Grindavíkur hefur fengið aðstöðu í Ráðhúsi Reykj...
Jarðhræringar, bresk stjórnmál og íslensk sumargotssíld 13.11.2023 20:00
Spegillinn 13. nóvember 2023 Landsmenn - og þá sérstaklega Grindvíkingar auðvitað - hafa fylgst náið með atburðarásinni suður með sjó, þar sem allt hefur leikið á reiðiskjálfi undanfarnar vikur og sjaldan eða aldrei meira en allra síðustu daga, þótt dagurinn í dag hafi verið með rólegria móti. Gos hefur verið talið yfirvofandi á hverri stundu síðan föstudagskvöld og enn eru taldar meiri líkur en m...
Aðstæður á Gaza, stytt nám til stúdentsprófs, Taylor Swift 10.11.2023 20:00
Föstudagur 10. nóvember 2023 Aðstæður á Gaza eru hryllilegar og eiga eftir að versna áður en þær skána, segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins. Egeland, sem eitt sinn stýrði hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að tíma ekki að aðstoða fólk í neyð. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við hann. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Er þriggja ára framhal...
Áhyggjur af stigmögnun hefndaraðgerða, stress út af málvillum 09.11.2023 20:00
Reglulegar hnífstungur, bensínsprengjur og skotárásir. Á undanförnum misserum hefur alvarlegum ofbeldisverkum fjölgað hérlendis. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að upp undir 15 skipulögð glæpasamtök starfi hér á landi Hún vill ekki tala um gengi eða gengjastríð í sambandi við skotárásina í Úlfársárdal á dögunum, heldur að hópar séu í átökum og svo stigmagnist átökin og hefnd...
Stækkun ESB, líforkuver á Dysnesi, Rafah landamærastöðin 08.11.2023 20:00
Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að...
Vill varnargarð við Svartsengi. Ofbeldi á Vesturbakka. Fjármál borgar. 07.11.2023 20:00
7.nóvember 2023 Ef það fer að gjósa við orkuverið í Svartsengi stefnir HS Orka að því að sprauta niðurdælingarvatni á hraunjaðra til að hægja á hraunrennsli og nýta efni úr hól í næsta nágrenni í bráðavarnargarð. Það er að segja ef hraun ógnar orkuverinu. Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri framleiðslu telur æskilegt að reistur verði varanlegur varnargarður við virkjunina. Á sama tíma og hernaðara...
Jarðhræringar á Reykjaneshrygg, Úkraína, loftslag og samfélag 06.11.2023 20:00
6. nóvember 2023 Ef gera á allt sem hægt er - til að verja orkuverið í Svartsengi og þar með Grindavíkurbæ þarf að reisa háa og áberandi varnargarða, segir Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir að nú þurfi að ákveða hvort ráðast eigi í það verkefni og vill að það verði skoðað alvarlega að reisa varnargarða við orkuverið í Svartsengi. Ragnhildur Thorlacius ræd...
Ástandið á Gaza, íslenskur jarðvegur, þjóðtrú á undanhaldi 03.11.2023 20:00
3. nóvember 2023 Antony Blinken, utanríkmisráðherra Bandaríkjanna, lagði að ráðamönnum Í Ísrael að fylgja alþjóðlegum mannúðarlögum í stríði þeirra við Hamas hryðjuverkasamtökin og heimila neyðaraðstoð til íbúa Gazasvæðisins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Fjallað var um áhrif þeirrar miklu hlýnunar sem orðin er á norðurslóðum á íslenskan jarðveg. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Bjarna Diðrik Sigurðsson...
Skotárás og átök glæphópa, óveðurslægðin Ciaran og 3. orkupakkinn 02.11.2023 20:00
2. nóvember 2023 Skotárás var gerð í Úlfarsárdal í Reykjavík og maður skotinn en útkrifaður af sjúkrahúsi síðdegis, nokkrum skotum var hleypt af og eitt fór í íbúð fólks sem tengdist málinu ekkert. Lögregla talar um átök milli hópa en hefur lítið látið uppi frekar. Viðbúnaður lögreglu var aukinn á meðan leit var gerð að árásarmanni. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir skiljanlegt að slí...
Neyðarástand á Gaza, komandi kjarasamningar og sund 01.11.2023 20:00
1. nóvember 2023 Tímamót urðu í dag í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs þegar Rafah landamærastöðin milli Egyptalands og Gaza var opnuð um tíma. Yfir eitt hundrað létu lífið þegar Ísraelsher gerði árás á Jabalia flóttamannabúðirnar í gær. Önnur árás var gerð í dag. Þegar skrifað var undir samninga í fyrra var mikið rætt um óvissu í efnahagsmálum, verðbólga og vextir voru á uppleið; samið til skam...
Kvikuhlaup við Grindavík, saumafólk mótmælir, 100 tonn af graskerjum 31.10.2023 30:00
Jarðskjálftahrina norðan við Grindavík í dag er merki um kvikuhlaup. Engin merki eru um gosóróa. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir allt benda til þess að virknin sé á 3-4 km dýpi. HS orka fer yfir viðbragðsáætlanir og Fannar Jónasson bæjarstjóri segir að íbúafundur verður haldinn í Grindavík á fimmtudag klukkan 17:30. Gaza er orðinn grafreitur þúsunda barna og hætta er á að fleiri börn l...
Hvernig verja á innviði í eldgosi? Loftslag, landbúnaður og ræktun 30.10.2023 30:00
Síðasta sólarhring hefur Ísraelsher gert árásir á 600 skotmörk á Gaza. Forsætisráðherra Ísraels sagði í dag að árangur væri að nást gegn Hamas. Forsætisráðherra Íslands vissi ekki að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um vopnahlé á Gaza fyrr en eftir að fundur um hana hófst. Tölvupóstur þess efnis var sendur starfsmanni forsætisráðuneytisins ellefu mínútum áður en fundurinn hófs...
Hvammsvirkjun, lögregluaðgerðir í Grafarvogi, netsamband rofið á Gaza 27.10.2023 9:40
27. október 2023 Landsvirkjun stefnir enn að því að byggja Hvammsvirkjun þótt framkvæmdaleyfi fyrir henni hafi verið ógilt, segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til sín alla hlutaðeigandi til að fara yfir verklag vegna lögregluaðgerðar í Grafarvogi í fyrrakvöld í tengslum við forsjármál. Nánast allt netsamband hefur verið rofið á Gazas...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.