Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Author
Sölvi Tryggvason
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 5, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#275 Svali Kaldalóns með Sölva Tryggva 19.05.2024 1:31:34
Svali Kaldalóns er einn reyndasti útvarpsmaður Íslands. Hann hafði starfað í áratugi í fjölmiðlum þegar hann skipti um takt og flutti með allri fjölskyldunni til Tenerife til að elta óvissuna og drauminn um nýtt líf. Í þættinum ræða Sölvi og Svali um fjölmiðla, heilsu, samfélagsmál, Tenerife-ævintýrið, krísuna við að verða miðaldra og margt fleira.
#274 Arnar og Hrafnhildur með Sölva Tryggva 15.05.2024 1:30:57
Hjónin Arnar Þór Jónsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir standa þétt saman í báráttunni í kosningunum um forseta Íslands. Í þættinum ræða þau mikilvægi þess að tengjast innsæinu og finna hugrekkið til að standa með eigin sannleika. Stöðuna í heiminum, andlega vakningu og margt margt fleira.
#273 Kári Stefánsson snýr aftur 13.05.2024 1:20:24
Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum ræða Kári og Sölvi um átökin í heiminum, forsetakosningarnar, hugvíkkandi efni, tilvist guðs, Covid tímabilið og margt fleira.
#272 Laufey Karítas með Sölva Tryggva 08.05.2024 1:30:30
Laufey Karítas Einarsdóttir er yogakennari, margföld móðir og fyrrverandi yfirmaður á framabraut, sem skipti algjörlega um takt eftir að lífið tók í taumana. Hún fékk heilablóðfall eftir áraraðir af streitu og kapphlaupi við að þóknast öðrum en sjálfri sér. Á einu augabragði sá hún hvað var mikilvægt í lífinu og gjörbreytti öllu.
#271 Einar Ágúst með Sölva Tryggva 05.05.2024 1:15:20
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta hljómsveit Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður þegar hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu...
#270 Höddi Magg með Sölva Tryggva 01.05.2024 1:32:09
Hörður Magnússon er einn reyndasti íþróttafréttamaður Íslands sem hefur verið á skjám landsmanna í áraraðir. Í þættinum ræða Sölvi og Hörður um feril Harðar, fjölmiðla, samfélagsmiðla hitann í íþróttum, hjarðhegðun, rétttrúnað og margt margt fleira.
#269 Linda Pé með Sölva Tryggva 29.04.2024 1:02:00
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar mögnuðu konu, heilsu, sigra, sorgir og margt fleira.
#268 Guðni Gunnars Snýr aftur 24.04.2024 1:02:31
Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.
#267 Steinunn Ólína með Sölva Tryggva 21.04.2024 1:02:36
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á að baki magnaðan feril og lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Steinunn um sorgir, sigra, samfélagsmál, forsetaembættið og margt fleira.
#266 Ásdís Rán snýr aftur 17.04.2024 47:17
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur verið ein umtalaðasta manneskja Íslands um árabil. Henni skaut hratt upp á sjónarsviðið þegar hún var ung að aldri og síðan hefur hún meira og minna verið í sviðsljósinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um forsetaframboðið árin í Búlgaríu, dularfulla sögur úr fyrirsætubransanum og margt fleira.
#265 Jón Gnarr með Sölva Tryggva 14.04.2024 1:10:38
Jón Gnarr hefur víða komið við og á stórmerkilegt lífshlaup. Utanveltu í skóla og hélt að allar dyr væru lokaðar, en svo fann hann leiklistina og grínið. Eftir fjölmörg farsæl ár skipti hann svo um takt og fór í stjórnmál og varð á endanum borgarstjóri. Nú gefur hann kost á sér á Bessastaði. Í þættinum fara Sölvi og Jón yfir magnaðan feril Jóns, grín, stjórnmál, forsetaembættið og margt fleira.
#264 Gummi Emil snýr aftur 09.04.2024 1:09:05
Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og heilsufrömuður sem er ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, þar sem hann fer oft ótroðnar slóðir og leggur línurnar fyrir heilsusamlegan lífsstíl.
#263 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 2) 09.04.2024 1:02:35
Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt f...
#262 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 1) 07.04.2024 50:29
Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt f...
#261 Arnar Þór með Sölva Tryggva 01.04.2024 1:01:50
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur sem nýlega bauð sig fram til forseta. Hann hefur á undanförnum árum ekki hikstað við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, forsetaemættið, stöðu ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.
#260 Árni Pétur með Sölva Tryggva 24.03.2024 1:19:31
Árni Pétur Guðjónsson er leikari og leiðsögumaður sem hefur átt viðburðarríkt lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Árni um stórmerkilega sögu Árna, árin í kommúnum, leiklistina, réttrúnað og margt fleira.
#259 Kristján Gilbert með Sölva Tryggva 17.03.2024 1:02:13
Kristján Gilbert er yogakennari, húðflúrari og markþjálfi sem fer sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um Matrixið, faldar leiðir til heilsueflingar, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni og margt fleira.
#258 Frosti og Sölvi 13.03.2024 1:43:02
Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir til Frosta og þeir ræða á mannamáli um slaufunarmenningu, bók Sölva, viðtalið við Pútín, samfélagsmál og fleira.
#257 Gunnar Ársæll með Sölva Tryggva 10.03.2024 1:25:06
Gunnar Ársæll Ársælsson er fyrrverandi afreksmaður í sundi og keppandi í vaxtarrækt. Hann lýsir í þættinum mögnuðu lífshlaupi, tímum á ystu nöf notkun efna og svo lygilegu ferli andlegrar vakningar þar sem fólkið í kringum hann var sannfært um að hann væri að missa vitið.
#255 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva 03.03.2024 56:48
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis, en rekur nú fyrirtækið ,,Á heildina litið". Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.
#254 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva 25.02.2024 1:33:32
Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, stjörnuspeki og margt fleira.
#253 Nicolai Engelbrecht snýr aftur 20.02.2024 1:17:34
Nicolai Engelbrecht var í áraraðir fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, þar sem hann var á tímabili nær dauða en lífi með stórhættulega menn á eftir sér. En eftir að hafa náð botninum fann hann leiðina út. Hann ferðaðist í kjölfarið víðs vegar um heiminn og lærði öndun, bardagalistir, hugleiðslu og margt fleira af fólki í öllum heimsálfum. Í dag kennir hann bæði föngum og öðru fólki allar þær a...
#252 Arnór Sveinsson með Sölva Tryggva 18.02.2024 1:15:51
Arnór Sveinsson er sérfræðingur í öndunar- og kuldaþjálfun sem hefur undanfarin ár eingöngu unnið við að aðstoða fólk við að koma taugakerfinu og líkamanum í betra stand. Arnór skipti algerlega um takt í lífinu eftir að hafa misst frænda sinn og náinn vin í hræðilegu slysi. Hann hafði í áraraðir verið sjómaður og djammaði mikið á milli túra. En eftir slysið leitaði hann á önnur mið og ferðaðist ví...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.