Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Author

Sölvi Tryggvason

Category

Education

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#250 Davíð Bergmann með Sölva Tryggva 11.02.2024

Davíð Bergmann hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum í vanda og brennur fyrir málaflokkinn. Honum var sjálfum hafnað af skólakerfinu og segist sjá sjálfan sig í krökkunum sem hann vinnur með. Í þættinum ræða Sölvi og Davíð um sögu Davíðs, afbrot, undirheima, leiðir til úrbóta og margt fleira.

#249 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva 06.02.2024

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki, skrifa fjölda bóka og margt fleira. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, samfélagsmál, fjölmiðla, samsæriskenningar og margt fleira.  

#248 Gunnlaugur Guðmundsson með Sölva Tryggva 04.02.2024

Gunnlaugur Guðmundsson er reyndasti stjörnuspekingur Íslands og á magnaða sögu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stjörnuspeki, hvað er að gerast í heiminum, árin þar sem Gunnlaugur flakkaði um og leitaði að tilgangnum og margt fleira.

#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaður 31.01.2024

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við.  Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira.

#246 Kristján Gíslason - Ég klökkna enn þegar ég hugsa um þau 28.01.2024

Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað Kristján Gíslason að tími ævintýranna væri runninn upp. Árið 2014 fór hann hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og margt fleira. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að s...

#245 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 23.01.2024

Brynjar Níelsson er lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður,  innflytjendamál, réttrúnað og margt margt fleira.

#244 Sveinn Kjartansson með Sölva Tryggva 22.01.2024

Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari greindist með HIV veiruna á fyrri hluta níunda áratugarins. Hann lýsir því í þættinum hvernig var að ganga með þessa handsprengju innanklæða á tíma þar sem útskúfunin var algjör. Neyslunni sem kom í kjölfarið og endaði á að fara með hann alla leið á botninn og svo upprisunni og fegurðinni í lífi hans í dag.

#243 Heimir Hannesson með Sölva Tryggva 16.01.2024

Heimir Hannesson er blaðamaður og frumkvöðull sem talar tæpitungulaust. Í þættinum ræða Sölvi og Heimir um fjölmiðla, stjórnmál, stöðuna í samfélaginu, ferðalög og margt fleira.

#242 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 15.01.2024

Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, hugvíkkandi efni, lífsstílssjúkdóma, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.

#241 Sölvi hjá götustrákum 10.01.2024

Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir í viðtal hjá Götustrákum og fer yfir ferilinn, slaufunina og margt fleira.

#240 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva 07.01.2024

Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, karlmennsku, sannleikann, lífið...

#239 Sigurjón Ernir með Sölva Tryggva 03.01.2024

Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður sem lætur ekkert stoppa sig og hefur framkvæmt ótrúlega hluti í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, magnaða vegferð Sigurjóns, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.

#238 Eva Katrín með Sölva Tryggva 01.01.2024

Eva Katrín Sigurðardóttir er læknir sem keyrði sig gjörsamlega í þrot eftir að hafa haldið of mörgum boltum á lofti of lengi. Eftir langa þrautagöngu endaði hún á að finna lausnina í kuldaþjálfun og öndun. Í þættinum ræða Sölvi og Eva um magnaða sögu Evu, heilsu, kulda, öndun og margt margt fleira.

#237 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva 26.12.2023

Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt, aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Í þættinum ræða Sölvi og Kjartan um þetta magnaða lífshlaup, leiðirnar til að finna sátt og hamingju, ný ver...

#236 Simmi Vill með Sölva Tryggva 17.12.2023

Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um h...

#235 Sigga Kling með Sölva Tryggva 10.12.2023

Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segir sjálf að ferill hennar sé ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt fleira...

#234 Arnar Þór Jónsson með Sölva Tryggva 05.12.2023

Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir að hika ekki við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, stöðu ríkisins, sögu ógnarstjórna, mikilvægi hugrekkis í nútímanum og margt fleira.

#233 Bergþór Másson með Sölva Tryggva 04.12.2023

Bergþór Másson er hlaðvarpsstjórnandi, umboðsmaður og meistaranemi. Í þættinum ræða Sölvi og Bergþór um samfélagsmál, heimspeki, listir og margt fleira.

#232 Valdimar Flygenring með Sölva Tryggva 27.11.2023

Valdimar Örn Flygenring er leikari og tónlistarmaður sem hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum fara Sölvi og Valdimar yfir magnað lífshlaup Valdimars, hollywood, neysluna, ábyrgð, ástríðu og margt fleira.

#231 Erna Ýr með Sölva Tryggva 22.11.2023
#230 Þórarinn Hjartarson með Sölva Tryggva 19.11.2023

Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir rétttrúnað, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira.

#229 Axel Pétur með Sölva Tryggva 14.11.2023

Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru mjög langt fyrir utan boxið. Í seinni tíð hefur margt af því sem Axel hefur talað um raungerst. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta og nýjasta í samsæriskennigum og stöðuna í heiminum.

#228 Frosti Logason með Sölva Tryggva 12.11.2023

Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að ræða málin tæpitungulaust og hefur í gegnum tíðina hleypt öllum röddum að í viðtöl. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um útskúfunarmenningu, mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.

#227 Rannveig Borg með Sölva Tryggva 05.11.2023

Rannveig Borg er lögfræðingur og rithöfundur sem er búsett og starfar í Sviss. Í þættinum ræða Sölvi og Rannveig um sögu Rannveigar, ástríðu, fíknir, ADHD, samfélagsmál og margt fleira.  

#226 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva 31.10.2023

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, karlmennsku, upplýsingaflæði, vakningu í heiminum og margt fleira.

Listen to the Sölvi Áskriftarþættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.