Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Author
Sölvi Tryggvason
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 5, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#72 Gerður Arinbjarnar með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:24:26
Gerður Arinbjarnardóttir hefur á fáeinum árum farið frá því að selja kynlífstæki úr skúffum heiman frá sér yfir í að velta hálfum milljarði á ári. Þessi unga kona á stórmerkilega sögu. Fann sig ekki í hefbundnum skóla, en vissi að hún hefði vit á viðskiptum. Fór til London á námskeið með Tony Robbins og eftir það var teningunum kastað. Í viðtalinu ræða Gerður og Sölvi um viðskipti, ferðalög í fram...
#71 Halli Hansen með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:48:23
Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér.
#70 Evert Víglunds með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:35:32
Evert Víglundsson er stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavíkur. Hann hefur í áraraðir unnið við heilsu og hreysti og er leitun að meiri viskubrunni á því sviði. Í þættinum ræða Evert og Sölvi um hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt fleira.
#69 Steinar Fjeldsted með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:23:09
Steinar Fjeldsted er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Quarashi, sem náði vinsældum um allan heim. Þegar Steini stofnaði sveitina í kringum tvítugt óraði hann líklega ekki fyrir því sem framundan var. Stórir plötusamningar, ferðalög um allan heim, tónleikahald fyrir tugi þúsunda aftur og aftur. Í þættinum fara Steinar og Sölvi yfir Quarashi ævintýrið, tómleikann sem tók við eftir að því lauk og...
#68 Jóhann Sigurðarson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:09:03
Jóhann Sigurðarson, stundum kallaður Jói stóri, er einn ástælasti leikari Íslands. Hann byrjaði í leiklist þegar tækifærin voru mun færri en nú og hefur því haldið mörgum boltum á lofti í gegnum tíðina. Rödd hans er líklega ein sú þekktasta á landinu, enda hefur hann lesið inn á ógrynni bóka og sjónvarpsefnis í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sölvi og Jói yfir ferilinn, sönginn, sögur úr bransanum...
#67 Eldur Egilsson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:10:02
Eldur Egilsson er 13 ára gamall frændi Sölva og þar með langyngsti vidmælandi podcastsins hingað til. Í þættinum ræða Eldur og Sölvi um lífið og tilveruna, skólakerfið, hvað fullordna fólkið gæti gert ödruvísi og margt fleira.
#66 Simmi Vill með Sölva Tryggva 01.01.2022 2:17:03
Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um d...
#65 Veiga Grétarsdóttir með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:15:46
Veiga Grétarsdóttir gekk í gegnum gífurlega erfiðleika og feluleik áður en hún ákvað loks að þora að koma út úr skápnum og fara í kynleiðréttingarferli. Fljótlega eftir það tók hún ákvörðun um að fara beinlínis gegn straumnum þegar hún varð fyrst allra til að róa hringinn í kringum Ísland rangsælis. Í þættinum segir Veiga ótrúlega sögu sína, sorgir og sigra og hvernig hún stendur nú uppi hamingjus...
#64 Annþór með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:21:17
Annþór Kristján Karlsson var lengi þekktur fyrir að vera einn alræmdasti glæpamaður Íslands. Hann hefur ekki komist í kast við lögin í talsverðan tíma og segist staðráðinn í að halda sér réttu megin við línuna. Í þættinum gefur Annþór innsýn inn í hugarheim einstaklings sem leiðist á þessa braut og lýsir því hvernig afbrot hans byrjuðu strax í barnæsku. Hann segir margt við glæpaheiminn á Íslandi...
#63 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:34:01
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkar...
#62 Geir Ólafs með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:02:04
Geir Ólafs kom inn á svið íslenskrar tónlistar svo eftir var tekið. Í fyrstu voru ekki allir sáttir við hann, en með mikilli elju, góðu hugarfari og náungakærleik er í dag erfitt að finna manneskju sem ekki þykir vænt um Geir. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um tengingarnar við Kolombíu, söng fyrir Pútín Rússlandsforseta, ofsjónir eftir mikla drykkju og fleira og fleira.
#61 Ólafur Már með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:23:55
Ólafur Már Björnsson augnlæknir hefur látið mikið til sín taka í náttúruvernd og hefur vakið athygli fyrir stórbrotnar myndir og myndbönd af íslenskri náttúru. Ólafur var frumkvöðull í laseraðgerðum á augum hér á landi, sem nú þykja nokkuð sjálfsagður hlutur. Í þættinum ræða Ólafur og Sölvi um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi, náttúruvernd, ferðalög og mikilvægi þess að finna ástríðu í áhugamá...
#60 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:31:33
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur á vettvangi stjórnmálanna fyrir að þora að viðra óvinsælar skoðanir. Hann hefur gengið lengst íslenskra Alþingismanna í að gagnrýna aðgerðir vegna Covid faraldursins. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og til dæmis hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjó...
#59 Jakob Frímann með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:14:38
Jakob Frímann Magnússon er maður sem hefur marga fjöruna sopið. Ungur var hann kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Ein af aðalsprautunum í Stuðmönnum, Miðborgarstjórinn, formaður Stefs og svo framvegis og svo framvegis. Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril og magnaðar sögur, lykilinn að því að halda sér ungum í an...
#58 Sara Piana með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:31:32
Sara Piana hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, einkum og sér í lagi eftir að hún giftist vaxtarræktarkappanum Rich Piana og af þeim birtust reglulega fréttir. Sara hefur hingað til ekki farið í viðtöl í íslenskum fjölmiðlum, en fannst tími til kominn að segja sögu sína, einkum og sér í lagi þar sem hún er nú alfarið flutt til landsins og ætlar að hefja hér næsta kafla í sínu lífi. Í þætti...
#57 Tobba Marínós með sölva Tryggva 19.12.2021 1:23:43
Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, kom með hvelli inn á sjónarsvið íslenskra fjölmiðla eftir að hafa menntað sig í fjölmiðlafræði erlendis. Eftir stutt starf í blaðamennsku var henni kippt inn í sjónvarp og síðan þá hefur þessi kjarnakona gert allt milli himins og jarðar. Skrif á bókum, stjórnun í fyrirtækjum, framleiðsla á matvörum og svo auðvitað meira sjónvarp og...
#56 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva 19.12.2021 2:07:33
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari hefur leikið fjölda hlutverka bæði hér heima og erlendis á farsælum ferli. Nýlega lék Guðmundur lykilhlutverk í tölvuleiknum Assassins Creed Valhalla, sem er á stærðargráðu sem fæstir gera sér grein fyrir. Í þættinum ræða Sölvi Og Gummi um leiklistina, stöðu ungra karlmanna í samfélaginu, fíknisjúkdóma, hvað það er sem einkennir okkur sem þjóð og margt margt flei...
#55 Elísabet Guðmundsdóttir með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:23:37
Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir, sem á 20 ára feril í faginu í Svíþjóð kom nýverið til Íslands til að starfa á Landsspítalanum. Hún hefur undanfarið talað opinskátt gegn sóttvarnaraðgerðum vegna Covid, sem hún segir að gangi of langt. Elísabet stóð einnig að undirskriftasöfnun um þá kröfu að framhaldsskólar verði opnaðir aftur. Hún vill meina að heilmargt sé hægt að gera til að verjast því...
#54 Reynir Trausta með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:44:46
Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira.
#53 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:30:15
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar talað er um 80´s tímabilið kemur nafn hans strax í huga fólks. Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, sögur úr jailinu, bóksölu fyrir tugi milljóna og margt margt fleira.
#52 Ragga Ragnars með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:27:46
Ragnheiður Ragnarsdóttir var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Olympíuleika. Fyrir nokkrum árum venti hún kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta...
#51 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:29:16
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti sjónvarpsmaður Íslands og hefur verið nær sleitulaust á skjám landsmanna síðan á upphafsárum Stöðvar 2. Hann hefur með árunum lært að njóta þess betur að lifa í núinu og taka allar lífsins gjafir inn að hjartarótum. Í þættinum segir Sigmundur frá eftirminnilegustu viðmælendunum, ferðum í aðrar heimsálfur, lífshættulegum flugferðum með Ómari Ragnarssyni o...
#50 Herra Hnetusmjör með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:16:58
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira.
#49 Bríet með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:02:13
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira.
#48 Sigga Kling með Sölva Tryggva 19.12.2021 1:14:23
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.