Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Author

Sölvi Tryggvason

Category

Education

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#97 Kári Stefáns snýr aftur 01.01.2022

Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum fara Kári og Sölvi yfir Covid tímabilið, hve lengi er hægt að halda áfram að grípa inn í líf fólks, mikilvægi þess að óvinsælar raddir fái að heyrast og margt fleira.

#96 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva 01.01.2022

Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, ástríðu í lífinu og margt fleira.

#95 Pétur Guðmundssson með Sölva Tryggva 01.01.2022

Pétur Kristján Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Hann neitaði að gefast upp, þrátt fyrir að læknar hafi sagt honum að hann myndi aldrei geta staðið upp aftur. Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann...

#94 Héðinn Unnsteinsson með Sölva Tryggva 01.01.2022

Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Héðinn, sem starfaði um árabil hjá Alþjóða Heilbrigðisstofnunninni, hefur síðastliðin 25 ár unnið að geðheilbrigðismálum. Í þættinum ræða Héðinn og Sölvi um geðlækningar, mannlegt eðli, baráttu Héðins við geðhvarfasýki og margt margt fleira.

#93 Svanhildur Hólm með Sölva Tryggva 01.01.2022

Svanhildur Hólm Valsdóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona Íslands og starfaði um árabil við þáttagerð og ritstjórn á bæði RÚV og Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Svanhildur um feril Svanhildar, stöðuna í íslenskum fjölmiðlum, störfin í stjórnmálum og margt fleira.

#92 Jón Ásgeir með Sölva Tryggva 01.01.2022

Jón Ásgeir Jóhannesson er einn þekktasti viðskiptamaður Íslandssögunnar. Á árunum fyrir hrun var Baugur Group fyrirtæki hans með meira en 50 þúsund starfsmenn. Svo kom hrunið, og allt það sem á eftir fylgdi. Í þættinum ræða Sölvi og Jón um feril Jóns, eitt hatrammasta tímabil Íslandssögunnar, dómsmálin, seinni hálfleik og margt fleira.

#91 Róbert Wessman með Sölva Tryggva 01.01.2022

Róbert Wessman er stofnandi Alvotech og Alvogen. Í þættinum ræða Sölvi og Róbert um feril Róberts, hjólreiðar, alvarlegt slys sem Róbert varð fyrir, eftirmálana af því, Covid tímabilið og margt margt fleira.

#90 Einar Hansberg með Sölva Tryggva 01.01.2022

Einar Hansberg er stórmerkilegur maður sem hefur slegið fleiri en eitt heimsmet í þágu góðra málefna. Nýjasta metið var að lyfta meira en 520 tonnum í réttstöðulyftu á einum sólarhring. 500 kílómetra róður, sund í tvo sólarhringa samfleytt og sitthvað fleira er einnig á afrekaskrá Einars, sem sjálfur segist ofur venjulegur maður, sem vill leggja sitt að mörkum til að gera heiminn aðeins betri.

#89 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 01.01.2022

Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um hugvíkkandi efni, sem Haraldur segir stærstu byltingu í sögu geðlæknisfræðinnar. Þá fara þeir líka yfir stöðu læknisfræðinnar árið 2021, lífsstílssjúkdóma og margt fleira.

#88 Erna Kristín með Sölva Tryggva 01.01.2022

Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd. Hún hefur undanfarið rætt við mikinn fjölda barna og unglinga og ætlar að halda því áfram. Í þættinum fara Sölvi og Erna yfir sögu Ernu, kosti og galla samfélagsmiðla og margt margt fleira.

#87 Stelpurnar í Aþenu 01.01.2022

Mikil umræða hefur skapast um körfuboltaliðið Aþenu og þær þjálfunaraðferðir sem þar eru notaðar. En í allri umræðunni í samfélaginu hefur lítið sem ekkert heyrst frá stelpunum sjálfum. Hér stíga þær fram og segja söguna alla eins og hún blasir við þeim.

#86 Ásmundur Einar með Sölva Tryggva 01.01.2022

Ásmundur Einar Daðason er barnamálaráðherra Íslands. Fyrir nokkru síðan varð kúvending í lífi hans þegar hann ákvað að opna á áföll í æsku, sem höfðu legið eins og steinn í maganum á honum í gegnum allt lífið. Í þættinum talar hann opinskátt um aðstæður sínar í barnæsku og það hvernig hann segist allt eins hafa getað endað á Litla Hrauni miðað við aðstæður. Hann fer líka yfir ástríðuna fyrir málef...

#85 Brynjar Karl með Sölva Tryggva 01.01.2022

Brynjar Karl Sigurðsson er umdeildasti þjálfari Íslands. Hann hefur undanfarin ár þjálfað ungar stúlkur í körfubolta, sem spila nú með íþróttafélaginu Aþenu. Kvikmyndin ,,Hækkum Rána" sem nýverið kom út og fjallar um ferðalag Brynjars og stúlknanna hefur vakið gífurlegt umtal í samfélaginu. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um allt ferlið í kringum kvikmyndina og þjálfunina, feril Brynjars og aðfer...

#84 Birgir Hákon með Sölva Tryggva 01.01.2022

Rapparinn Birgir Hákon vakti mikla athygli þegar hann kom fram á sjónarsviðið með sannar og hispurslausar lýsingar og myndbönd á íslenskum undirheimum og lífsstíl sem fæstir þekkja vel. Eftir að hafa verið djúpt sokkinn í glæpi og neyslu sneri Birgir við blaðinu. Í þættinum ræða Sölvi og Birgir um rappið, glæpaheiminn á Íslandi, nýjan lífsstíl Birgis og margt fleira.

#83 Páll Óskar með SölvaTryggva 01.01.2022

Páll Óskar Hjálmtýsson er poppstjarna Íslands. Hann hefur í áratugi verið einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Páll Óskar um magnaðan feril Páls, tímabilið þegar HIV veiran vofði eins og draugur yfir samkynhneigðu fólki, mannréttindabaráttu, andlega heilsu og margt margt fleira.

#82 Sara María með Sölva Tryggva 01.01.2022

Sara María Júlíudóttir hefur komið víða við í gegnum tíðina. Hún starfaði lengi sem fatahönnuður og rak meðal annars Nakta Apann og seldi síðar fiskleður á alþjóðamarkað frá Sauðárkróki. Á síðstu árum hefur hún tekið alveg nýja beygju í lífinu eftir ferð til Mið-Ameríku og vinnur nú að því að kaupa hótel í Guatemala. Í þættinum ræða Sölvi og Sara um magnaða vegferð Söru, meðvirkni, leiðir til að s...

#81 Heiðar Logi með Sölva Tryggva 01.01.2022

Heiðar Logi Elíasson er fyrsti atvinnubrimbrettamaður Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Heiðar Logi upplifað margt og lifað fjölbreyttu lífi. Í þættinum ræða Sölvi og Heiðar um ,,Sörfið", lífsháska, erfiða æsku, sérstaka skólagöngu og margt fleira.

#80 Kristín Sif snýr aftur 01.01.2022

Kristín Sif Björgvinsdóttir snýr aftur í podcastið. Kristín Sif er afreksíþróttakona og útvarpsmaður og þekkt fyrir að sigrast á alls kyns hindrunum og mótlæti. Í þættinum ræða Kristín og Sölvi um ástríðurnar, jaðarsport, fara yfir lygilega hluti sem mannfólk gerir og margt fleira.

#79 Einar Carl með Sölva Tryggva 01.01.2022

Einar Carl Axelsson er fyrrverandi landsliðsmaður í Taekwondo, sem skipti um takt í lífinu eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum í skíðaslysi í frönsku ölpunum. Hann þurfti að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega aftur og eftir margra ára ferðalag stofnaði hann líkamsræktarstöðina Primal Iceland. Þar kennir hann fólki að fá frelsi í eigin líkama með samblandi af hreyfingu, öndun, kæli...

#78 Helga Braga með Sölva Tryggva 01.01.2022

Helga Braga Jónsdóttir hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að ákveða að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast. Eftir árin í fóstbræðrum og leikhúsinu vann Helga Braga um árabil sem flugfreyja og hefur ferðast um víða veröld. Í þættinum fara Sölvi og Helga yfir magnaðan feril Helgu, andlega ferðalagið, árin hjá W...

#77 Fjölnir Tattoo með Sölva Tryggva 01.01.2022

Fjölnir Bragason er löngu orðinn þjóðþekktur á Íslandi og er sannkölluð goðsögn í húðflúrsheiminum. Fjölnir er órjúfanlegur partur af íslenskri Tattoo-menningu og hefur verið samferða algjörri byltingu sem hefur átt sér stað á undanförnum áratugum. Í þættinum ræða Sölvi og Fjölnir um magnað lífshlaup Fjölnis, ótrúlegar sögur, þróun og sögu húðflúra og margt margt fleira.

#76 Aron Mola snýr aftur 01.01.2022

Aron Mola mætir aftur til að hafa yfir samsæriskenningar með Sölva. Var allt við 11. september eins og okkur var sagt? Hverjir eru Rothchild? Hvað gerist á Bilderberg fundinum og í Bohemian Grove? Eru valdamiklir aðilar að gera hluti á bak við tjöldin sem aldrei fá að líta dagsljósið? Í þættinum fara Aron og Sölvi yfir allt það helsta í heimi samsæriskenninga.

#75 Rafn Franklín með Sölva Tryggva 01.01.2022

Rafn Franklín Johnson er einkaþjálfari sem hefur kafað dýpra en flestir ofan í allt sem snýr að heilsu. Hann hóf að æfa lyftingar sem unglingur og át þá allt sem að kjafti kom og hugsaði um lítið annað en að verða sterkari. En á ákveðnum punkti áttaði hann sig á því að hann var á leiðinni í óheilbrigða átt og breytti alveg um takt. Rafn gaf nýverið út sýna fyrstu bók: ,,Borðum Betur". Í þættinum r...

#74 Klara Elías með Sölva Tryggva 01.01.2022

Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þæt...

#73 Jóhannes Haukur með Sölva Tryggva 01.01.2022

Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna.

Listen to the Sölvi Áskriftarþættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.