Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#212 Grand Theft Auto: Hafnarfjörður 21.01.2022

Hlustendaverðlaunin (zzz), listamannalaun, Kommúnistaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn, stækkun swampsins og báknsins, Vopnaburður hafnfirskra ungmenna, the collective pain body, spilling og stöðugleiki. Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur. Auðveldara en þú heldur! https://kjarninn.is/skodun/frelsid-til-ad-standa-kyrr-og-breyta-engu/

#211 The Master of Male Misery 14.01.2022

Hlustaðu í fullri lengd á Patreon! Www.patreon.com/skodanabraedur Epíkin er hafin. Fyrsti þáttur Skoðanabræðra með Jóhanni  í frontlínunni. Þykkur og þéttur þáttur um hot sauce smokkana hans Drake, nýja plötu the master of male misery The Weeknd, fall íslenskra valdmanna í kjölfar viðtals við hina 24 ára Vitalíu,  bólusetningar Möggu Friðriks, nýja mynd Adam McKay „Don't Look Up“ og nýtt...

#210 Síðustu skoðanir Snorra Mássonar (í bili) 07.01.2022

Snorri Másson kveður Skoðanabræðralagið í bili. Jóhann Kristófer Stefánsson gengur inn í hans stað. Þetta fyrirkomulag er rætt - ásamt öðru; Fox News, kommentakerfið, David Foster Wallace, samfélagsmiðlarnir góðu og framtíð Skoðanabræðra; sem er epísk. Guð blessi ykkur kæru hlustendur. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

#209 Skoðanir Nökkva Fjalars Orrasonar 31.12.2021

Nökkvi Fjalar Orrason athafnamaður mætir í Egilsstofu og factar hlutina. Ferðalag hetjunnar; Bóluefni, psychedelics, sársauki, sannleikur og tilgangur.  Öllu þessu eru gerð ítarleg skil, njótið! www.patreon.com/skodanabraedur

#208 Árið 2021 kvatt 28.12.2021

Nýliði ársins: Tommi Steindórs. Þú færð ekki að vita meira - við förum yfir allt árið með mjög samviskusamlegum hætti hér rétt undir lokin. Hver er maður ársins? Klúður ársins? Viðburður ársins? Comeback ársins? Farðu á Patreon!

#206 Skoðanir Ísaks Hinrikssonar 24.12.2021

www.patreon.com/skodanabraedur Ísak Hinriksson leikhúsmaður og king kemur sér vel fyrir í Egilsstofu og ræðir það sem skiptir máli við Skoðanabræður; áróður skólakerfisins, hinn toxíska Halldór Laxness, að fara til útlanda, að vera eða ekki vera, Þórólf kaupfélagsstjóra, gellurnar í LHÍ, tilgangsleysi og frelsi.

#205 Sænska leiðin/sænsku gengin 21.12.2021

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Covid takmarkanir og róttækar skoðanir á þeim komnar frá jaðrinum inn í meginstrauminn... loksins.. staða mála í Svíþjóð (glæpir, morð, byssur, Einár).. The Godfather, Sopranos, Goodfellas og drill tónlist.. skötur í heimahúsum (ætti að vera bannað).. hin klámsjúka Billie Eilish..

#204 Skoðanir Braga Páls Sigurðssonar 17.12.2021

Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur var að gefa út skáldsöguna Arnaldur Indriðason deyr. Sá titill pirrar suma. Hneyksli, og við gerum það upp. Að öðru leyti kóngur og blaðamaður og pistlahöfundur og aumingi árum saman. Vinstrivillingur en faðirinn Miðflokksmaður. Margt í þessu... En byrjum hér: Íslendingar eru að uppistöðu Írar, ekki Norðmenn, eins og haldið hefur verið fram. Hér fer Bragi yfir rök...

#203 „Ungar konur í blóma lífsins“ 14.12.2021

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Mánudagsmorgun í Egilsstofu! Stemning eins og vanalega. Það sem er talað um m.a er; Picasso, hlutverk ungra kvenna í bókmenntun, fjölskyldur, bólusetningar, Joe Rogan, Hverfisgata og jólin.

#202 Skoðanir Frosta Logasonar og Mána Péturssonar 10.12.2021

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Skeggfestival í Egilsstofu þetta laugardagseftirmiðdegið. Harmageddon bræður líta við og tala um allt sem er gaman að tala um; lúserana á þingi, endalok þáttarins, kreppuna, pólitísku þróun sína, góða fólkið, radíkalíseringu, samskipti við valdhafa, svívirðingar, skammir ofl ofl ofl.

#202 Léttasta vinna í heimi 07.12.2021

Hver er léttasta vinna í heimi? Hér er sett fram alvarleg kennning. Og það er alvarleg stemning á sunnudagsmorgni. Hvort mótar þinn heila, hlaðvörp eða útvarp? Skiptar skoðanir. Skoðanabræður hvetja Gísla Martein til að íhuga framboð. Styttist í kosningar. Issi nýr rappari: „Ég ætla að taka yfir.“ Viturleg orð fyrir upprennandi einstakling. Er það vel. Hvað annað? Tesla er það öðrum rafbílum sem i...

#201 Skoðanir Fríðu Ísberg 03.12.2021

www.patreon.com/skodanabraedur Fríða Ísberg skáld og rithöfundur fær sér sæti í Egilsstofu og ræðir pólaríseringu, samkennd, ritstörfin, gagnrýni, success, stjórnmálin almennt, spítaladvöl sína, nýju skáldsögu sína Merkingu og allskonar annað epískt.

#200 Stóri þátturinn um fíkn 30.11.2021

Í vikulegum þætti er rætt um grasfíkn, áfengisfíkn, lögleiðingu í Þýskalandi, þráhyggjur, gerðar upp sakir við Fortuna Invest og hinir óumflýjanlegu fjórir kostir hvers karlmanns; I. að verða að föður sínum; II. að ganga í herinn; III. að gera konseptlist; eða IV. að deyja í skóginum.  Og auk þess leggjum við til að ÁTVR verði lögð í eyði. Farið á Patreon!

#199 Skoðanir Kjartans Þórissonar 26.11.2021

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Kjartan Þórisson er king frumkvöðull og hefur sett nokkur fyrirtæki á stofn í gegnum tíðina. Við förum yfir startup heiminn í viðu samhengi - á skemmtilegan hátt. Geðsjúka peningamaskínan Google, Noona, heilsukvíði, Guð, Zuckerberg, Game A & Game B, framtíðin, ethics, hnignandi heimsveldi, peningar, sýn, stefnur, samfélög og stjórmál!

#198 Auðvitað kennum við leiðinlegt shit en ekki gagnlegt drasl 23.11.2021

Veður eru válynd… nóvember. Þetta gerist ekki verra, segir Bergþór, en það er jákvætt. Þetta er þess vegna bókstaflega ekki að fara að verða verra. Til umræðu í vikunni eru að sjálfsögðu einkum skilaboð kvennanna í Fortuna Invest til þjóðarinnar: Lánveitingar skipta meiru máli en helgur menningararfur. Það er svosem hægt að fallast á það í svona praktískum skilningi. En málið er flóknara, eins og...

#197 Skoðanir Níels Thibaud Girerd 19.11.2021

Sælir, Nilli, og nú er hann mættur í Skoðanabræður, öllum þessum árum síðar. Hann er útskrifaður leikari, hefur verið lykilmaður í Íslensku óperunni um árabil og kann bíómyndina uppúr Kristnihaldi undir jökli utan að. Persónulegt viðtal við Niels, sem er sérstaklega mikill kóngur, verður að segjast. Og auðvitað, óhjákvæmilega, eru gerð upp þau miklu eftirmál sem urðu af sakleysislegu freestyle-i N...

#196 Rotnandi Líkami Joe Bidens 16.11.2021

Hlustaðu í  fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Stemningin var gífurleg í Egilsstofu þetta mánudagskvöldið. Epískur þáttur og epískar umræður um Joe Biden og hægðirnar hans, Verzló Vælið, hvort það sé í lagi að hringja sig inn veikan, Viðreisnarlibba, Dave Chapelle & Þórdís Kolbrún & transfólk, Spánn, heilbrigðiskerfið og íslenska vinstrið.

#195 Skoðanir Glódísar Guðgeirsdóttur 12.11.2021

Glódís Guðgeirsdóttir er fyrrverandi fimleikakona, jarðfræðingur og leikmaður í leiknum. Hérna er farið yfir allt það sem er gaman að hlusta á fólk tala um í podcasti: Lyftingar, Twitter, Fimleikasambandið, borgarskipulag, Vatnsenda, Flateyri, djammið og bíla.

#194 Er ásættanlegt að klæðast Ralph Lauren? 09.11.2021

Snorri á Spáni, Bergþór í borg kvíðans. These are dark times, there is no denying. But you can't fight this war on your own, Mr. Potter… segir á einum stað. Þetta á líka við núna, og um hlustendur Skoðanabræðra – þið þurfið á þessu að halda. Ýtið á play og hlustið á vitrænar samræður um allt frá nýju nýlendustefnunni til hins syfjaða einstaklings í Hvíta húsinu. Hvað gerir maður þegar Frakkarnir t...

#193 Skoðanir Joey Christ og Tatjönu Dísar 05.11.2021

Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís eru að sitja upp leiksýninguna Sýningin Okkar í Þjóðleikhúsinu. Skoðanabræður höfðu svo gaman af sýningunni að þeir vildu ræða hana frekar og fengu kings í þáttinn. Joey ætti að vera bræðralaginu kunnur - þetta er tíunda framkoma hans í Skoðanabræðrum, en annars er hann sviðshöfundur og rappari. Tatjana er sviðshöfundur og raftónlistarkona. Hérna er talað...

#192 Skeggjuð sambönd stórstjarnanna 02.11.2021

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Í þessum kóngalega bræðralagsþætti er farið um heima og geima en hinum hreina þræði haldið þéttum í gegn eins og vanalega. Umræðuefni eru meðal annars; hrekkjavökur í Hlíðunum, poppstjörnur, tæknimenntað fólk, Kim Kardashian, Pete Davidson, Nóvember, Freud fjölskyldan og The Century of the Self, Simmi Vill og nýja félagið hans, aðdragandi...

#191 Skoðanir Hjörvars Hafliðasonar 29.10.2021

Velkomin í hlaðvarp ungra jafnaðarmanna. Hjörvar Hafliðason er stór í leiknum, það liggur fyrir. Hér á nýjum vettvangi, nefnilega mættur í 101 og þurfti að kaupa nýjan bol á leiðinni í þáttinn til að falla örugglega í kramið.  Skoðanabræður vildu óska þess að þeir kynnu að meta snilligáfu hans á sviði fótboltans. Því er ekki að heilsa og því er grafið eftir snilligáfu á öðrum sviðum, sem reynist e...

#190 Einkaskoðanir Jóhannesar Hauks 26.10.2021

Farðu á Patreon fyrir heildarupplifunina. Það kostar í alvöru mjög lítið. Það er talað um poetic justice í enskumælandi löndum... að fá Jóhannes Hauk til að gagnrýna ráðstafanir Skoðanabræðra í auglýsingamálum, en um leið nota viðtalið við hann til að fjölga áskrifendum að sama kerfi og gerir þeim kleift að stunda umræddar brellur. Brellur er ákveðin leið til þess að orða þetta og að mínu mati óma...

#189 Skoðanir Sögu Garðarsdóttur 22.10.2021

Saga Garðarsdóttir.. hún vildi ræða „samskipti kynjanna“ – rangt podcast! Skoðanabræður eru sex-negative en einhvern veginn leiðist umræðan út á þessar slóðir. Það er þó sannarlega ekki verið að ræða einstök mál heldur almennt um eðli málaflokksins. Annað rætt; grínið, rétttrúnaðurinn, lífið og leigumarkaðurinn. Einkum er til umfjöllunar ákveðin íslensk kvikmynd. Sögu blöskraði þegar hún las annan...

#188 Sérstakur Succession-þáttur, seinni hluti 19.10.2021

Í heild sinni inni á Patreon: Í seinni þætti Skoðanabræðra um Succession, bestu sjónvarpsþáttaseríu allra tíma, greinum við karakterana, þættina sjálfa, tónlistina, handritin, leikarana og aðra seríu í heild sinni! Sérfræðingar og góðvinir þáttarins kallaðir inn; Hákon Jóhannesson leikari og Jóhann Kristófer Stefánsson sviðshöfundur. Epic epic epic epic.

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.