Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#236 Nýtt Ísland með techno í eyrunum og draslið í blóðinu 15.07.2022

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og styddu frjálsa fjölmiðlun inn á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrri hluti þáttarins fer í hefðbundin umræðuefni á borð við Elon Musk, forfeður, OnlyFans og Twitter en síðan er snögglega skipt um gír og Skoðanabræður ræða upplifun sína af rave-i í Gufunesi, Grafarvogi, þar sem þeir tóku báðir inn sveppi og MDMA. Að lokum er grein um Halldór Laxness í New Yorker...

#235 Hugvíkkandi hlaðvarp (ásamt Ara Mássyni) 08.07.2022

Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Ari Másson blóðbróðir Skoðanabræðra mætir aftur í Egilsstofu eftir þriggja ára fjarveru. Nú er hann snúinn aftur heim til Íslands eftir tíu ára flakk um heiminn og sestur á skólabekk. Hugvíkkandi efni, hvað þau eru, hvað þau gera, og hver framtíð þeirra er, er hér helst til umræðu. Sömuleiðis er talað um hugleiðslu, Wim Hof, ferðalag...

#234 Hver er munurinn á R. Kelly og Michael Jackson? (ásamt Sigurbjarti Sturlu) 01.07.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Þegar stórt er spurt - reyna Skoðanabræður að svara. Tekst það? Hlustaðu til þess að komast að því. Einnig er farið ofan í Jordan Sketerson á Íslandi og áhrif hans á unga karlmenn. Menn búnir að skipta um skoðun þar. Að lokum er farið ofan í komandi borgarastyrjöld í Bandaríkjunum, Trump og syni hans og Brandon.

#233 Að bjarga heiminum (ásamt Héðni Unnsteinssyni) 24.06.2022

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Héðinn Unnsteinsson er sérfræðingur í stefnumótun hjá Forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar. Stjórn landsins og andleg heilsa þjóðarinnar er tekin fyrir hér. Getum við bjargað heiminum? Hlustaðu til þess að komast að því.

#232 Slæmar mæður (ásamt Kolfinnu Nikulásdóttur) 17.06.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - og styddu frjálsa fjölmiðlun í leiðinni! Kolfinna Nikulásdóttir leikhúskona mætir aftur í Egilsstofu eftir tiltölulega langa fjarveru. Í þetta skiptið ræðum við móðurhlutverkið, Johnny Depp & Amber Heard, samskipti kynjanna og fullt af öðru stöffi.

#231 Nýr meirihluti Jordans Peterson 10.06.2022

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Nýja báknið, sameining swampsins, þéttur kafli um nýja tónlist, Kendrick Lamar plata, Northman, Ruben Ostlund, koma Jordan Petersons til landsins, Eckhart Tolle, Birnis tónleikar í Gufunesi OFL!

#230 Íþróttir í Egilsstofu (ásamt Pavel Ermonlinskij) 03.06.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Pavel Ermolinski er fyrsti karlmaður vikunnar sögunnar til þess að vera íþróttamaður. Þetta eru tíðindi og þetta er vibe shift. Pavel er einn besti körfuboltamaður landsins og neitar fyrir það að vera „þenkjandi“ íþróttamaður. Hann kemur íþróttahreyfingunni til varnar, sem hefur almennt ekki fengið góða umfjöllun hér í frjálsasta og frems...

#229 Sál þjóðarinnar (ásamt Sæunni Kjartansdóttur) 27.05.2022

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir ræðir fyrstu þúsund daga í lífi barns, tengsl almennt, foreldra og streitu, sálgreiningu, sannleika, Freud, Háskóla Íslands, sálgreiningarnámið og margt annað. Skylduhlustun!

#228 Ræsum fram mýrina (ásamt Snorra Mássyni) 20.05.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Leitað aftur í ræturnar: RÚV, swampið og mýrin, Þriðja Heimsstyrjöldin, Elon Musk, libbarnir á Twitter og Jordan Peterson.

#227 Small talk með rapparanum Birni 13.05.2022

Styddu fremsta hlaðvarp landsins inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er auðveldara en þú heldur. Birnir tónlistarmaður og rappari snýr aftur til Skoðanabræðra eftir þriggja ára fjarveru. Það hefur margt breyst - en á sama tíma ekkert. Útgáfutónleikar Bushido, samskipti og small talk, borgarstjórnarkosningar, lærdómur, Kaupmannahöfn og danski drillarinn, það sem ekki er hægt að tala um - og m...

#226 Dóri NDA (ásamt Dóra DNA) 06.05.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er auðveldara og ódýrara en þú heldur! Dóri DNA rífur í mækinn í Egilsstofu enn á ný. NoFap, skrifa bækur og handrit, mikilmennskudraumar, the endgame. Þetta og allskonar annað!

#226 Báknið burt, í nafni Guðs (ásamt Davíð Þór Jónssyni) 29.04.2022

Davíð Þór Jónsson prestur og fyrrum skemmtikraftur mætir í Egilsstofu vopnaður heilögum anda og kryfur þjóðarsálina. Hið andlega og hið pólitíska tvinnast saman. King Shit Only.

#225 The Death of Einlægni 22.04.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - það er ódýrara og einfaldara en þú heldur. Fyrri hluti: The Police og The Government - fuck em! Seinni hluti: Nánd, skömm og varnarkerfi - sannleikur vs einlægni.

#224 Ayahuasca á Alþingi 15.04.2022

Komdu í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur - Það er auðveldara en þú heldur. Þú munt græða á því. Hvernig færðu Alþingismann til þess að hætta að vera klámsjúkur lúser? Þú býður honum pening til þess að fara í ayahuasca retreat eða hugleiðslubúðir. Don’t nothing move but the money. Spillingarmál síðastliðna vikna rædd og lausnir boðaðar. 50 ára ríkið Ísland. Uppljómun Inc. Will Smith og Elon...

#223 Sjö podcöst um skömm (ásamt Tyrfingi Tyrfingssyni) 08.04.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - komdu í áskrift, það er auðveldara en þú heldur.  Tyrfingur Tyrfingsson, the realest leikskáld in the game right now, mætir í höfuðstöðvar íslenskrar sjálfsvorkunnar og skammar, Egilsstofu, og rokkar mækinn.  Staða leikhússins, karlmennskan, geðlækningar og Amsterdam eru meðal umræðuefna.

#222 TikTok heilar (ásamt Göggu Jónsdóttur) 01.04.2022

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona mætir í Egilsstofu til þess að ræða þetta helst: Internetið, samfélagsmiðla, alkohólisma, ofbeldi og sjónvarpsþætti.

#221 Sannleikurinn í sænskum skógi (ásamt Snorra Ásmundssyni) 25.03.2022

Hlustaðu í fullri lengd, 90mínútur, inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri Ásmundsson myndlistarmaður hefur boðið sig fram til forseta, beefað við bankamenn, keyrt áfram hina og þessa gjörninga og lent í ótal andlegum upplifunum. Epískur þáttur sem fjallar um allt þetta sem skiptir máli. Mælt með djúphlustun.

#220 Uppljómun íslensku lögreglunnar 18.03.2022

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur The male millennial zetgeist: ÍSTÓN, löggan og norska aðferðin, Eurovision, Kanye mál, Godfather, Power of Now.

#219 Áhrifavaldar Anonymous (ásamt Pétri Kiernan) 11.03.2022

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - þú trúir því ekki hvað það er einfalt að koma í áskrift. Fyrsti karlmaður vikunnar snýr aftur þremur árum seinna. Hvað er búið að breytast? Margt og mikið. Í rauninni allt. Gamlir tímar gerðir upp og horft til framtíðar. Metta Sport head huncho Pétur Kiernan tyllir sér í Egilsstofu og lætur gamminn geysa. Athyglisbrestur sem konsept. Á...

#218 Veni, Vidi, Vici/Kremlin, Kronik, Kanye 04.03.2022

Styddu fremsta hlaðvarp landsins á www.patreon.com/skodanabraedur Stríðið í Úkraínu, Islamistar, Robbi Kronik í borginni, Kommúnístaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn, Euphoria, Kanye West heimildasería og annað kingshi rætt.

#217 Þriðja Heimsstyrjöldin (ásamt Blaz Roca) 25.02.2022

Barnaefni, kapítalismi, Ísland, Rússland, Kína, Bandaríkin. Þrír klukkutímar af þessu fentanýl-gasi. Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

#216 Kynferðisleg bæling íslenskra karlmanna (ásamt Vigdísi Howser) 18.02.2022

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti sex positive þáttur í sögu Skoðanabræðra! Tímamót. Vigdís Howser ferskasti podcastari landsins mætir í Egilsstofu. Opin sambönd, þrekantur inná Berghain, Reykjavíkurdætur í Eurovision, stríð við 101 Boys, MDMA, weed, sveppir, kynferðisleg bæling íslenskra karlmanna, Berlínarlífið og skömm foreldra.

#215 Endurkoma Isis og Snorra Mássonar 11.02.2022

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Snorri kíkir í heimsókn! Isis snúnir aftur, Sleepy Joe kallar blaðamann son of a bitch, skólasund, Hanna vs. Sigga Dögg í Kastljósinu, póstfemínisminn, NoFap laun ríkisins ofl ofl ofl.

#214 Guð í hinu góða (ásamt Bríet Isis Elfar) 04.02.2022

Www.patreon.com/skodanabraedur Söngkonan Bríet fær sér sæti í Egilsstofu og reynt er að komast að því afhverju hún er eins og hún er. Einnig er talað um; Guð, tengslakerfi, edrúmennsku, hipsterahroka, náttúruna, uppeldi, the collective pain body, samfélagsmiðla, cancelanir og margt fleira.

#213 Menningararfurinn áframseldur til barnaníðinga? 28.01.2022

Hlustaðu í fullri lengd í gegnum www.patreon.com/skodanabraedur Hvor er meiri kóngur: Neil Young eða Joe Rogan? Er borgarastyrjöld í aðsigi í Bandaríkjunum? Er sala Öldu Music á íslenskri tónlist landráð? Öllu þessu eru svarað. Núanseruð umræða eins og ávallt. Leggist við hlustir! https://stundin.is/grein/14584/er-borgarastrid-i-uppsiglingu-i-bandarikjunum-mjog-sennilega-segir-i-nyrri-bok/

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.