Samtök skattgreiðenda
Skattaspjallið
Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.
Author
Samtök skattgreiðenda
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#6 - Mælaborð Samtaka skattgreiðenda: Hvert hafa 25.000 milljarðar farið undanfarin 20 ár? 25.06.2025 24:17
Í þættinum ræðir Sigurður Már við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hjá Samtökum skattgreiðenda um nýtt mælaborð samtakanna. Mælaborðið sýnir ríkisreikning frá árinu 2004 til 2023 niður á bókhaldslykil, eða með öðrum orðum; hvert peningar skattgreiðenda hafa farið undanfarin 20 ár. Á verðlagi dagsins í dag nemur sú fjárhæð sem mælaborðið sýnir um 25 þúsund milljörðum. Arnar tekur fjögur d...
#5 - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 11.06.2025 53:24
Eru ríkisútgjöld í hagkerfum nútímans dæmd til að vaxa með ósjálfbærum hætti? Oftast virðast stjórnmálamenn áhugalitlir um hagræðingu og aðhald og hugsa aðeins um að auka útgjöld ríkisins til alls konar hluta. Skattgreiðendur sitja að endingu uppi með reikninginn. Gestur Skattaspjallsins í dag er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Sigmundur er þekktur fyrir að nálgast hlutina með...
#4 - Bókhaldsskekkjur og leyndarhyggja 28.05.2025 40:43
Sigurður Már Jónsson ræðir við Róbert Bragason, hjá Samtökum skattgreiðenda, um bókhaldsskekkjur og leyndarhyggju í bókhaldi ríkissjóðs. Vandamálið virðist útbreitt og Róbert nefnir í þættinum dæmi frá Dómsmálaráðuneytinu, Háskóla Íslands og Alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Hægt að er að fylgjast með starfi samtakana á skattgreidendur.is eða með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X. Hægt er að st...
#3 - Óli Björn Kárason 14.05.2025 57:17
Í þættinum ræðir Sigurður Már Jónsson við Óla Björn Kárason, fv. þingmann, sem hefur látið sig skattamál varða í gegnum tíðina.
#2 - Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson segja frá starfinu 30.04.2025 49:38
Í öðrum þætti af Skattaspjallinu, hlaðvarpi Samtaka skattgreiðenda, ræðir Sigurður Már Jónsson við Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson sem hafa á undanförnum mánuðum starfað í sjálfboðavinnu fyrir samtökin. Þeir ræða um hvernig starfið hefur gengið og nefna m.a. dæmi um hvernig hefur gengið að fá starfsmannafjölda hins opinbera og ótrúlegan slóðaskap við ársreikningaskil stofnanna. Hægt að er...
#1 - Skafti Harðarson og Sigurður Már Jónsson kynna hlaðvarpið 16.04.2025 24:58
Í þessum fyrsta þætti af Skattaspjallinu, hlaðvarpi Samtaka skattgreiðenda, ræðir Sigurður Már Jónsson við Skafta Harðarson sem er formaður Samtaka skattgreiðenda. Samtökin fagna 13 ára afmæli í dag, en þau voru stofnuð þann 16. apríl 2012. Undanfarið hálft ár hefur mikið starf verið unnið hjá samtökunum í því að greina hvert skattpeningarnir eru að fara, kanna ýmis formsatriði hjá hinu opinbera s...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.