Samtök skattgreiðenda
Skattaspjallið
Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.skattgreidendur.is
Author
Samtök skattgreiðenda
Category
Podcast website
Latest episode
Nov 15, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#38 - Skafti og fjárlögin 15.11.2026 26:44
Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 er núna til umfjöllunar í fjárlaganefnd eftir 1. umræðu á Alþingi. Varla er hægt að segja að það örli á miklu aðhaldi eða sparnaði af hálfu stjórnarliða. Á sama tíma hækka skattar og gjöld. Til að ræða fjárlagagerðina og hvaða hættur steðja nú að skattgreiðendum á haustmánuðum kemur Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í Skattaspjallið til Sigurð...
#37 - Á ríkissjóður að erfa fólk? 04.11.2026 18:11
Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts á Alþingi fyrir stuttu. Hún segir að það sé tímabært að afnema erfðafjárskatt enda sé hér um að ræða mjög óréttláta tvísköttun á fólk. Eðlilegt sé að spyrja hvort það sé sanngjarnt að skattleggja sömu tekjurnar tvisvar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát. Af öllum fjárverðmætum er...
#36 - Hvert stefnir í útgjaldaþróun ríkisins? 25.10.2026 18:12
Hvaða tölum getum við treyst í fjárlagaumræðunni og hvað vita skattgreiðendur landsins í raun og veru um útgjöld og útgjaldaþróun? Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er furðu hirðulaust um að greina og meta þróun tiltekinna útgjaldaflokka eins og kemur fram í Skattaspjallinu í dag þar sem Sigurður Már Jónsson ræðir við þá Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson gagnasérfræðinga Samtaka skattgreiðend...
#35 - Skattlaust ár komið til að vera? 02.10.2026 21:51
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Skattaspjallsins að þessu sinni. Fyrir stuttu kom út ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Óli Björn víkur eðli málsins samkvæmt að skattheimtu og fyrirkomulagi hennar. Í viðtalinu er farið yfir það en Óli Björn setur fram nýjar hugmyndir á ýmsum sviðum skattker...
#34 - Hvað borgar þú í skatta? 20.09.2026 21:30
Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson...
#33 - Loftslagsskattar í ógöngum 24.08.2026 23:14
Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumál...
#32 - Skattar og efnahagsleg farsæld 31.07.2026 25:12
Það er ekki alltaf svo að hækkun á sköttum leiði til efnahagslegrar farsældar. Þvert á móti geta slíkar hækkanir haft margar óæskilegar hliðarverkanir. Verst er að þær geta svipt samfélagið framtíðarhagnaði sem byggist á því að einstaklingar noti fjármuni til skynsamlegra og arðbærra fjárfestinga. Tap á tækifærum í framtíðinni verður aldrei metið til fjár. Erlendur Magnússon bankamaður og fjárfest...
#31 - Erlendur kostnaður menntakerfisins 06.07.2026 29:18
Greining Samtaka skattgreiðenda á kostnaði vegna íbúa af erlendum uppruna heldur áfram. Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að því hver áhrif íbúa af erlendum uppruna séu á kostnað íslenska menntakerfisins. Í nýlegri greiningu þeirra Arnars Arinbjarnarsonar, Kristins Sv. Helgasonar og Róberts Bragasonar er reynt að áætla slíkan kostnað með tilliti til fjögurra stiga skólakerfisins: leik-, grunn...
#30 - Skattar og gjöld ferðaþjónustunnar 14.06.2026 20:08
Ferðaþjónustan er sú grein sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið eða um 650 milljörðum króna á ári. Um leið er skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar króna. Enn er greinin í uppbyggingar- og fjárfestingarfasa en á sama tíma dynja skattahækkanir og ný gjöld á greininni. Til að ræða þetta kemur Bjarnheiður Hallsdóttir í Skattaspjallið til okkar en hún lét af störfum sem formaður Sam...
#29 - Hvað kostar sveitarfélagið þitt? 29.05.2026 22:30
Samtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á...
#28 - Sveitastjórnir og samsærið gegn skattgreiðendum 29.04.2026 22:10
Sveitarstjórnarkosningar eru fram undan en víðast hvar eru skattstofnar keyrðir í botni. Hvergi þó eins og í stærsta sveitarfélaginu, sjálfri höfuðborginni. Kjartan Magnússon hefur áratugareynslu af setu í borgarstjórn Reykjavíkur og þekkir vel sögu skattahækkana og útþenslu borgarbáknsins. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag. Eiga skattgreiðendur einhverja möguleika þegar kjörnir stjórnmálamenn...
#27 - Velferðarkerfið á krossgötum 16.04.2026 25:55
Í dag renna um 53 prósent allra ríkisútgjalda til velferðarmála, svo sem örorku- og atvinnuleysisbóta, málefna fjölskyldna og aldraðra, auk heilbrigðisþjónustu, en þetta hlutfall var um 46 prósent í upphafi aldarinnar. Slík útgjöld eru líkleg til að vaxa hratt á næstu árum vegna öldrunar þjóðarinnar sem og vegna aukinnar þátttöku íbúa af erlendum uppruna í hinum ýmsu bótaflokkum velferðarkerfisins...
#26 - Þversögn í sölu ríkisins á áfengi 01.04.2026 26:18
Skattgreiðendur landsins hljóta stöðugt að spyrja sig hvar verkefni ríkisins eigi að vera og hvort réttlætanlegt sé að greiða niður starfsemi sem einkaaðilar geta sinnt, oft með það á vörum að það sé „skynsamlegt“ fyrirkomulag eða stutt „lýðheilsusjónarmiðum“. Það á sannarlega við um sölu ríkisins á áfengi í gegnum verslunarrekstur ÁTVR sem í dag rekur 53 smásöluverslanir með áfengi, allar með tap...
#25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti? 18.03.2026 20:08
Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins ( opnirreikningar.is ). K...
#24 - Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis 04.03.2026 25:19
Hver heldur hagsmunum skattgreiðenda á lofti í sölum Alþingis þegar flestir flokkar styðja aukna útþenslu ríkisins og skattahækkanir? Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna en ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðari...
#23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði? 18.02.2026 31:15
Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera á vinnumarkaði? Niðurst...
#22 - Peningar skattgreiðenda út í loftið 04.02.2026 22:40
Tekjur af sköttum tengdum loftslagsmálum aukast jafnt og þétt, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu. Í haust fékk þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason svar við fyrirspurn þar sem hann spurði um þá fjármuni sem veitt er til loftslagsmála árlega. Svarið sem Karl Gauti fékk var á margan hátt ófullnægjandi en þó eru ýmsar tölur þar sláandi. Upplýst var að á tímabilinu 2017 til 2024 hefðu runnið 144 mil...
#21 - Hættumerki í velferðarkerfinu 21.01.2026 24:13
Miklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar. Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum...
#20 - Áramótaglaðningur til skattgreiðenda 07.01.2026 28:58
Stjórnendur í atvinnulífinu fá gjarnan glaðning frá skattayfirvöldum um áramót þegar skattar og gjöld hækka og nýr veruleiki blasir við. Hermann Guðmundsson, forstjóri og stofnandi verslunarfyrirtækisins Kemi, er einn harðasti talsmaður einkaframtaksins hér á landi. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag og ræðir aukna skattheimtu, vaxandi ríkisumsvif og þverrandi mátt í atvinnulífinu. Hermann telu...
#19 - Guðspjall skattgreiðenda 24.12.2025 37:54
Skattgreiðendur fengu sannarlega kartöflu í skóinn þegar fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna og ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast um 82 milljarða á næsta ári. Því má...
#18 - Hitinn hækkar hjá skattgreiðendum 16.12.2025 31:55
Grænir skattar hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og skattheimta undir merkjum loftslagsmála hvílir þungt á einstaklingum og atvinnulífinu. Um leið rísa stofnanir og félagasamtök verða til sem taka við þessum fjármunum, oft undir heldur óljósum formerkjum. Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur hefur gefið út bókina Hitamál sem hefur vakið mikla athygli. Hann er gestur Skattspjallsins í dag...
#17 - Loftslagsskattar út í bláinn og börn án blóðbanda 27.11.2025 24:36
Hvað kosta loftslagsskattar og -gjöld skattgreiðendur landsins? Það er eins og enginn viti það almennilega og þegar fyrirspurnum er beint að ríkinu verður fátt um svör. Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson, sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, í settið. Ætlunin er að setja á stofn loftslagshóp Samtaka skattgreiðenda og því beina þeir til þeirra hlustenda sem hafa áhu...
#16 - Stærð ríkisins og þjáning skattgreiðandans 14.11.2025 29:14
Hver eru mörk ríkisútgjalda og hvað eiga einstaklingar að fá að halda eftir af sjálfsaflafé sínu. Þegar einhver andhæfir gegn útgjöldum hins opinbera er sá hinn sami gjarnan spurður hvort hann vilji ekki mennta börnin, lækna sjúka eða sinna öldruðum. Því er þá gjarnan bætt við að menn eigi ekki að láta peningana taka völdin þegar aðrir eru að reyna að byggja upp manneskjulegt samfélag. Oftast er þ...
#15 - Skaflajárn á skattgreiðendur? 04.11.2025 15:08
Enn á ný ræðum við hvað skattgreiðendur fá fyrir peninginn! Nýlega skall á íbúa höfuðborgarsvæðisins mikill snjóstormur og til að umferðin gangi áfallalaust fyrir sig þurfti að ryðja götur og moka snjó. Getur verið að kostnaður við snjómokstur hafi margfaldast á föstu verðlagi hjá einstaka sveitarfélögum? Finnst fólki að það skili sér í betri þjónustu? Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason o...
#14 - Er bíllinn þarfasti skattgreiðandinn? 15.10.2025 25:22
Er bíllinn þarfasti skattgreiðandinn? Það er erfitt að segja en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, skildi eftir 8 milljarða króna gat þegar fjárlögin voru kynnt sem að bílaeigendum er ætlað að brúa. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, er gestur Skattspjallsins í dag en FÍB hefur gagnrýnt áform fjármálaráðherra harðlega og telur að sem fyrr sé v...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.