RÚV Hlaðvörp
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
11. þáttur: Inga Sæland og breytt landslag í efnahags- og Evrópumálum 18.11.2025 44:08
Það harðnar á dalnum samkvæmt nýrri þjóðhagsspá og Ísland kann að standa úti í kuldanum gagnvart Evrópusambandinu. Hvaða áhrif hefur þetta á kjör landsmanna og hvernig eiga stjórnvöld að bregðast við? Þingmennirnir Bergþór Ólason (M), Dagur B. Eggertsson (S) og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (D) ræða málin. Þá verður Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, í...
10. þáttur: Húsnæðismarkaður í flækju 04.11.2025 45:20
Hvernig greiðum við úr óvissunni á íbúðalánamarkaði? Hvaða gagn gerir fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar sem var kynntur í síðustu viku? Svo eru það áfrom Reykjavíkurborgar um að bjóða einkaaðilum að fjárfesta í byggingu grunninnviða í boðuðu hverfi á Höllum í Úlfarsárdal. Gestir eru Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, Már Wolfgang Mixa dósent við viðski...
9. þáttur: Bylmingshögg á atvinnulífið og lánamarkaður í klemmu 28.10.2025 45:10
Bilun í verksmiðju Norðuráls kemur líklega til með að valda búsifjum. Óvíst er hversu mikil áhrifin verða fyrir þjóðarbúið, sem hefur þegar sýnt merki þess að vera farið að kólna. Þá eru húsnæðislánamarkaður í uppnámi: í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólöglega skilmála á óverðtryggðum lánum hafa bankarnir þrengt lánakjör sín og Landsbankinn ætlar að hætta að veita verðtryggð lán nema fyrir fyrstu kau...
8. þáttur: Sundrar Sundabraut eða sameinar? 21.10.2025 46:31
Silfrið heldur sig á innlendum vettvangi þessa vikuna. Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra setja samgöngur úr skorðum, viðskiptabankar gera hlé á veitingu verðtryggðra lána meðan þeir ná áttum eftir vaxtadóm Hæstaréttar, og Sigurður Ingi Jóhannsson hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér aftur sem formaður Framsóknarflokksins. Við förum yfir þessi mál og fleiri með þingmönnunum Ásu Berglindi...
7. þáttur: Rússneskur stjórnarandstæðingur og hvað svo þegar vopnahlé er komið á Gaza? 14.10.2025 45:11
Við ræðum við Vladirmir Kara-Murza, sem er rússneskur stjórnarandstæðingur. Hann hefur lifað af tvær eitranir og fékk 25 ára fangelsisdóm í öryggisfangelsi í Síberíu fyrir að gagnrýna innrás Rússa í Úkraínu. Hann fékk frelsi í fangaskiptum í fyrra. Þá eru margar spurningar um framhaldið þegar vopnahlé er komið á, á Gaza. Til að ræða það mál koma Hallgrímur Indriðason fréttamaður, Magnea Marinósdót...
6. þáttur: Kólnandi spá í efnahagskortunum, Trump á yfirsnúningi 07.10.2025 45:46
Við byrjum á vettvangi dagsins. Ýmis teikn benda til að hagkerfið sé að kólna, vinnumálastofnun var tilkynnt um fimm hópuppsagnir í september, fyrir utan gjaldþrot Play. Þá hefur ríkisstjórnin boðað sérstaka atvinnustefnu og lætur í skína að nú sé liðinn sá tími að hagvöxtur sé fyrst of fremst borinn uppi af innfluttu vinnuafli. Gestir Silfursins eru Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Jón...
5. þáttur: Borgarstjóri situr fyrir svörum og fall Play 30.09.2025 45:21
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í viðtali um ýmis mál sem hefur verið deilt um í borginni að undanförnu. Þá ræða Hörður Ægisson ritstjóri Innherja, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri íslenska ferðaklasans og Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair um fall Play. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
4. þáttur: Gervigreindarkapphlaupið - möguleikar og ógnir 23.09.2025 44:47
Gervigreind er farin að setja mark sitt á samfélagið svo um munar. Hún greinir fyrir okkur gögn, velur fyrir okkur tónlist - eða semur hana ef því er að skipta - og tekur jafnvel ákvarðanir sem áður voru á mannanna höndum. En tilvist hennar vekur líka stór og mikil álitamál, bæði praktísk og siðferðisleg um orkuöflun, atvinnulíf, jöfnuð, lýðræði og jafnvel sjálfa mennskuna. Gestir Silfursins eru H...
3. þáttur: Menningarstríðið blossar upp 16.09.2025 46:30
Við ætlum að tala um menningarstríðið svonefnda, sem hefur blossað rækilega upp í kjölfar morðsins á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk fyrir helgi, auk þess sem fjölmenn mótmæli gegn flóttafólki voru í Bretlandi um helgina. Við freistum þess að henda reiður á stöðu mála með þeim Ingvari Smára Birgissyni lögmanni, Maríu Rut Kristinsdóttur alþingismanni, Kolbeini Stefánsyni, dósent í félagsráðg...
2. þáttur: Þvingunaraðgerðir gegn Ísrael og fjárlög næsta árs 09.09.2025 45:07
Þingmennirnir Sigríður Á. Andersen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Pawel Bartoszek og Guðmundur Ari Sigurjónsson ræða þvingunaraðgerðir stjórnvalda gegn Ísrael og fjárlagafrumvarp næsta árs. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
1. þáttur: Mótmæli í Háskóla Íslands og verkefni vetrarins 02.09.2025 43:52
Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands ræðir um atvik í síðasta mánuði, þar sem hætt var við fyrirlestur ísraelsks fræðimanns vegna mótmæla gegn framferði Ísraelsmanna á Gaza. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar, Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur og Gylfi Magnússon hagfræðingur ræða verkefni vetrarins framundan; sveitarstjórnarmálin, efnahagsmálin og ókyrrð og væringar á alþjó...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.