RÚV Hlaðvörp

Silfrið

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Auteur

RÚV Hlaðvörp

Catégorie

News

Site du podcast

shows.acast.com

Dernier épisode

9 juin 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android 5 M+ de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum? 09.06.2026

Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdót...

35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið 05.06.2026

Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga  í Evrópusambandið. Gestir þáttarins: Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr Viðreisn Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar 18.05.2026

Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga. Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus 12.05.2026

Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu 05.05.2026

Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir: Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu Sýnar Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi Í seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hosted...

31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf 28.04.2026

Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflo...

30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi 21.04.2026

Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðari...

29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin 14.04.2026

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála. Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Gestir: Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more info...

28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt 01.04.2026

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdótti...

27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin 24.03.2026

Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur...

26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi 19.03.2026

Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar Í seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og v...

25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar 10.03.2026

Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og...

24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum 03.03.2026

Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða 25.02.2026

Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir: Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HR Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/priva...

22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum 17.02.2026

Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir...

21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins 10.02.2026

Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður r...

20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum? 03.02.2026

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samningan...

19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá 27.01.2026

Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins. Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga...

18. þáttur: Harðnandi deila um Grænland 20.01.2026

Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins. Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða. Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð. Hosted on Acast. See a...

17. þáttur: Prófkjörsslagur í Samfylkingunni og nýr ráðherra situr fyrir svörum 13.01.2026

Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

16. þáttur: Varnir Íslands og Venesúela 06.01.2026

Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

15. þáttur: Formenn flokkanna pústa í hálfleik 16.12.2025

Þetta er síðasta Silfur fyrir jól og þingið er á lokametrunum fyrir þinghlé. Formenn flokkanna á Alþingi koma og fara yfir stöðuna eins og hún horfir við þeim á miðjum þingvetri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

14. þáttur: Staða Íslands í nýrri heimsmynd og umdeild samgönguáætlun 11.12.2025

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir stöðu Íslands í breyttri heimsmynd eftir að Hvíta húsið birti nýja þjóðaröryggisstefnu fyrir helgi. Í síðari hluta þáttarins koma þau Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Hildur Þórisdóttir bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Stefán Pálsson sagnfræðingur til að ræða stjórnmálaumræðu undanfarinna daga, meðal annars um samgöngumálin....

13.þáttur: Fullveldi Íslands 02.12.2025

Mál sem varða fullveldi Íslands hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Evrópusamvinna Íslendinga, varnarsamstarf, stafrænt fullveldi og tungumálið er meðal þess. Leggja allir sama skilning í hugtakið fullveldi? Halldór Benjamín Þorbergsson stjórnarformaður Almannaróms, Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði við HÍ, Ragnhildur Helgadóttir rektor HR og Lóa Björk Björnsdóttir dagskrárg...

12. þáttur: Kólnandi hagkerfi og hlýnandi jörð 25.11.2025

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP30, var haldin í vikunni sem leið í fjarveru Bandaríkjanna. Í lokayfirlýsingu hennar var samþykkt að ríkari þjóðir myndu þrefalda fjármagn til að aðstoða þjóðum sem hafa orðið verst fyrir barðinu á hlýnun jarðar. Engin samstaða náðist hins vegar um að draga úr jarðefnaeldsneyti. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, er gestur Silfur...

Écoute le podcast Silfrið sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics