Mannvit
Samtal um sjálfbærni
Sérfræðingar á sínu sviði teknir tali og áhugaverð viðfangsefni skoðuð frá sjónarhóli umhverfis, samfélags og tækninýjunga. Þættirnir varpa ljósi á ýmislegt sem við leiðum ekki hugann að þegar kemur að uppbyggingu á sviði verkfræði sem snertir okkur á einn eða annan hátt.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Jasper Kyndi: Spennandi framtíðartækifæri á Íslandi. 10.11.2023 25:37
Í maí 2023 keypti alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið COWI Mannvit en fyrirtækin hafa átt í farsælu samstarfi undanfarin ár. Jasper Kyndi, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá COWI í Danmörku, situr hér fyrir svörum og fer m.a. yfir markmiðin, verkefnin, vegferðina og það sem er framundan með Maríu Stefánsdóttur, umhverfisverkfræðing hjá Mannvit. Jasper segir að Ísland búi yfir mikilli sérstöðu hvað varðar e...
Valgeir Kjartansson „Sjávarútvegurinn sýnir gott fordæmi í umhverfismálum” 29.05.2023 20:14
Á Austurlandi hefur sjávarútvegurinn sýnt gott fordæmi í umhverfismálum. Valgeir segir okkur hvernig hlutirnir hafa tekið stakkaskiptum á mörgum sviðum umhverfismála í sjávarútvegi. Að sögn Valgeirs er starfsfólk Mannvits og ekki síst starfsfólkið á Austurlandi ansi fært í Mikado. Hvað á hann við með því? Valgeir Kjartansson, starfsstöðvarstjóri hjá Mannvit á Austurlandi í áhugaverðu spjalli.
Kristín Steinunnardóttir: „Erum við nýta jarðhitatækifæri í Afríku?“ 30.03.2023 18:16
Hvernig er að vinna að jarðhitaverkefnum í Austur Afríku. Hvað þýðir þetta fyrir fólkið sem býr á þessu svæðum? Hvar eru þessi verkefni og hvernig er staðan? Kristín Steinunnardóttir vélaverkfræðingur á jarðhitasviði hjá Mannvit sat fyrir svörum í áhugaverðu spjalli í hlaðvarpi Mannvits.
Alma Dagbjört: „Af hverju Svansvotta og fyrir hverja?” 06.09.2022 18:35
Vottanir bygginga hafa verið að ryðja sér til rúms á Íslandi sem og erlendis. En hvað er Svansvottun og fyrir hverja hentar vottunin? Hver eru fyrstu skrefin og hvað felst í Svansvottun? Hver er ávinningurinn af slíkri vottun? Alma Dagbjört Ívarsdóttir, fagstjóri hjá Mannviti í upplýsandi spjalli.
Brynjólfur Björnsson: „Hvernig stöndum við okkur í fráveitu?” 11.07.2022 18:55
Fráveitumál eru gríðarlega mikilvægir innviðir í samfélagi okkar. Hvernig erum við að standa okkur í fráveitumálum? Hvað eru nágrannaríki okkar að gera? Hvernig stöndum við í dag og hvað eru fituhlunkar? Brynjólfur Björnsson, fagstjóri og sérfræðingur í veitum mætti í skemmtilegt spjall.
Sigurður Páll: „Orkuskipti - hænan eða eggið?” 21.01.2022 20:27
Hvað er átt við með orkuskiptum? Þarf mitt fyrirtæki að huga að orkuskiptum? Hvar stöndum við í orkuskiptum í dag? Sigurður Páll Steindórsson, vélaverkfræðingur á sviði vélbúnaðar og efnaferla hjá Mannvit sat fyrir svörum í upplýsandi og áhugaverðu spjalli við Maríu Stefánsdóttur, umhverfisverkfræðing í hlaðvarpi Mannvits.
Sandra Rán: „Þurfa fyrirtæki að huga að sjálfbærni?” 09.12.2021 16:24
Hvernig má innleiða aukna sjálfbærni í rekstur fyrirtækja og stofnana? Hverjir eru megin hvatar fyrirtækja til að huga að sjálfbærni? Hvað gerist ef fyrirtæki huga ekki að sjálfbærni? Eru íslensk fyrirtæki á Íslandi að gera áhugaverða hluti og erum við í stakk búin til þess að takast á við loftlagsáhættu? Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sérfræðingur í umhverfi- og sjálfbærni hjá Mannviti situr fyrir svö...
Rúnar og Dúna: „Vindorka, umhverfi og samfélag” 30.09.2021 34:44
Hér á landi hefur vindorka ekki verið nýtt að neinu marki þrátt fyrir meira en nóg sé af íslenska rokinu. Hvers vegna höfum við ekki beislað vindorku hér á landi? Hver eru samfélagsáhrifin? Hver eru möguleg áhrif á samgöngur og uppbyggingu á svæðinu? Hvað í umhverfinu verður fyrir áhrifum af vindorkuveri? Hvert er ferlið og af hverju er það svona langt? Rúnar D. Bjarnason fagstjóri við umhverfismá...
Christian & Einar: "Micro algae and blue beer to the rescue?" 02.06.2021 32:55
Micro algae and the future of food production is the subject of our first English podcast episode about VAXA Impact Nutrition. What are algae and what can they use it for? Why is it important to our planet? Can you actually make a healthier blue beer from algae? Why is the plant located in Iceland? We talked to Christian Schröter, PM and Einar P. Einarsson, Electrical Engineer from Mannvit about t...
Guðbjartur og Sandra: „Hvað er græn fjármögnun og hvað þarf til?" 27.01.2021 18:03
Mikil aukning hefur orðið í grænni fjármögnun samhliða áherslum á sjálfbærari nýtingu auðlinda og aukinni áherslu á verndun umhverfis okkar. Hvað þýðir græn fjármögnun og hverjum stendur hún til boða? Hvaða vottanir þarf til þess að verkefni fái grænan stimpil? Hvað er vottað húsnæði? Er hægt að votta allt húsnæði og fá þannig hagstæða græna fjármögnun? Hver er kostnaðurinn og ábatinn? Geta rekstr...
Ólöf Kristjánsdóttir: „Hvernig leysum við samgöngur í borg á sjálfbæran hátt?“ 30.11.2020 10:22
Við könnumst öll við umræðu um umferðarmál og höfum ólíkar skoðanir á hvernig sé best að leysa umferðarvandann. En hvernig horfa þessi mál við þeim sem þekkja þessi fræði? Hverjar eru réttu lausnirnar? Hvaða máli skiptir samspil samgangna og skipulags? Þurfum við að fara að hugsa skipulagið upp á nýtt með það í huga hvernig við komum miklum fjölda fólks á milli staða á sjálfbæran hátt til framtíða...
Guðmundur Ólafsson: „Metanið – hvernig nýtum við það?“ 16.06.2020 13:27
Flokkunar- og sorpmál hafa verið ofarlega á baugi síðastliðin ár og varla nokkur sem hefur farið varhluta af því að þurfa að læra að flokka heima hjá sér. Hvað verður svo um sorpið okkar þegar það fer frá okkur? Guðmundur Ólafsson vélaverkfræðingur fræðir okkur um sorpmál og endurvinnslu. Hvað fer fram í nýju gas- og jarðgerðarstöðinni GAJA og almennt um framleiðsluna á metani og notagildi þess fy...
Hrönn Scheving Hallgrímsdóttir: „Deilisamgöngur, snjallsamgöngur og þróun á Íslandi“ 16.06.2020 12:52
Deilisamgöngur eru sagðar ferðamáti framtíðarinnar og jafnvel er talað um að við munum ekki þurfa okkar eigin bíl í framtíðinni. Þýðir það að allir munu ferðast með strætó eða verða farveitur á borð við Uber og Lyft leyfðar hér á landi? Tekur hugtakið deilisamgöngur á fleiri samgöngumátum en almenningssamgöngum og einkabílnum? Hrönn Karólína Hallgrímsdóttir samgönguverkfræðingur og sérfræðingur í...
Ólöf Kristjánsdóttir: „Hvaða þýðingu hefur vistvottun fyrir notendur hverfisins?“ 16.06.2020 14:21
Vistvottuð byggð er það nýjasta í byggingargeiranum. Urriðarholtið í Garðabæ og Sundhöll Reykjavíkur eru dæmi um byggð og bygginu sem hafa fengið þessa vottun. Hver er ávinningurinn fyrir byggingaraðila og sveitarfélög að byggja slík hverfi og byggingar? Í hverju felst þetta? Fer það eftir efnisvali á steypu, timbri og gluggum eða hönnun á húsi út frá hita og birtu? Ólöf Kristjánsdóttir byggingarv...
Alma D. Ívarsdóttir: „Getur inniloftið okkar verið mengað ?“ 18.03.2020 19:03
Hvernig getum við tryggt að loftgæði séu í lagi og hvernig eigum við að hugsa um híbýli okkar svo öllum líði sem best. Hvað í innra umhverfinu getur haft áhrif á heilsu okkar ? Hvað þarf að hafa í huga varðandi barnaherbergi ? Geta ýmsar vörur sem við notum verið skaðlegar ? Alma Dagbjört Ívarsdóttir sérfræðingur í innivist hjá Mannvit fræðir okkur um inniloftið sem við öndum að okkur og hvað bera...
Teitur Gunnarsson: „Er Ísland með lausn við útblástursvandanum í heiminum?“ 11.03.2020 13:23
Er Ísland með lausn við útblástursvandanum í heiminum? Verða jarðhitavirkjanir á Íslandi brátt kolefnishlutlausar? Hvað með kolefnishlutlaust Ísland? Er hægt að taka aðra mengun og breyta í bergtegund í stórum stíl? Þarf að skoða notkun kjarnorku að nýju? Teitur Gunnarsson efnaverkfræðingur hjá Mannviti ræðir við Björgheiði Albertsdóttur um Carbfix verkefnið á Hellisheiðinni þar sem verið er að br...
Gunnar Páll Stefánsson: „Grænna“ hótel mun vart finnst á Íslandi í bráð. 04.03.2020 12:49
Í Lóni, rétt austan við Hornafjörð mun á næstunni rísa eitt flottasta lúxushótel landsins þar sem sjálfbærni og virðing við umhverfið er í fyrirrúmi. Hótelkeðjan, sem heitir Six Senses, er með ævintýraleg hótel í Asíu, Miðausturlöndum og frönsku Ölpunum til að nefna þau nokkur. Mannvit hefur fengið það verkefni að finna út hvernig hægt sé á bestan máta að byggja þetta hótel á sjálfbæran hátt án mi...
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir: „Sandur er undirstaða velmegunar“ 13.02.2020 14:24
Sandur er gríðarlega mikilvægur í nútímasamfélagi. Hann er sannarlega nauðsynlegur og nýttur miklu víðar en við áttum okkur á. Sandur er auðlind sem Íslendingar þurfa að huga og fara vel með, en skortur á honum getur skapað ýmis vandamál. Aðgengi og framboð af sandi er gríðarlega mikilvægt fyrir Íslendinga. Í raun er sandurinn grunnurinn að velmegun okkar, eins og Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, jarðver...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.