Samorka
Lífæðar landsins
Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Orkan í efnahagsljósi 25.06.2026 40:51
Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa 19.12.2025 30:06
Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yf...
Vestfirðir eru heitur reitur 10.11.2025 45:07
Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orku...
Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig 10.10.2025 19:06
Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn He...
Hreint vatn er ekki heppni 02.10.2025 30:42
Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðs...
Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku 06.08.2025 27:16
Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi. Í þættinum fara þær Arngun...
Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum 16.07.2025 35:48
Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverke...
Vaðölduver verður til 04.07.2025 25:06
Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig. Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er...
Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands 23.06.2025 28:17
Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy) sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma. „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræði...
Snjöll samvinna er sterkasta vopnið 28.05.2025 9:19
Netárásum á mikilvæga inniviði hefur fjölgað mikið sem kallar á öflugar varnir um tæknibúnað. Kristrún Lilja Júlíusdóttir, forstöðukona hjá Orkuveitunni, ræddi við Svein Helgason á Samorkuþingi 2025 um öryggismál og hvernig samtal, traust og samvinna getur skipt sköpum í að verja innviði á Íslandi. Sveinn og Kristrún Lilja ræða saman á Samorkuþingi 2025.
Öryggi og áfallaþol innviða 26.05.2025 16:06
Karl Steinar Valsson yfirlögreglustjónn hjá ríkislögreglustjóra var annar frummælenda í lokamálstofu Samorkuþings 2025 þar sem fjallað var um áfallaþol mikilvægra innviða hér á landi og orkuöryggi í ljósi þróunar í Evrópu. Í viðtali við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samtarfs hjá Samorku, leggur Karl Steinar m.a. áherslu á virkt samtal og samvinnu milli lögreglu og orku- og veitugeirans ti...
REMIT: Hvað er það? 11.04.2025 30:37
REMIT er umfjöllunarefni í nýjasta hlaðvarpsþætti Samorku. Þar ræðir Katrín Helga, lögfræðingur Samorku, við þær Hönnu Björgu Konráðsdóttur og Ninnu Ýr Sigurðardóttur hjá Raforkueftirlitinu, um nýjar reglur sem munu taka gildi á næstunni um viðskipti á raforkumarkaði. Þær fjalla um tilurð reglnanna og uppruna þeirra í Evrópu og hvaða þýðingu þær hafa fyrir íslenskar aðstæður. Frá upptöku þáttarin...
Áhrif loftslagsbreytinga á veituinnviði 21.01.2025 40:04
Veituinnviðir og þá sérstaklega fráveituinnviðir eru viðkvæmir fyrir flóðum, aukinni rigningu og öðrum loftslagsbreytingum. Í þættinum heyrum við dæmi um nýleg áhlaup á fráveitur vegna öfga í veðurfari, fræðumst við um þær aðgerðir sem verið er að ráðast í til að aðlagast eða draga úr áhrifum loftslagsbreytinga, heyrum um mikilvægi þess að styrkir til fráveituframkvæmda verði áfram veittir og virk...
Kosið um græna framtíð 01.11.2024 48:20
Orku- og veitumálin verða sennilega í brennidepli fyrir alþingiskosningarnar í lok mánaðarins, enda mörg brýn verkefni í málaflokknum á borði stjórnvalda. Kosningabaráttan mun snúast um hver hefur grænu sýnina, sýnina sem leggur grunninn að næsta vaxtarskeiði fyrir Ísland, því orka er súrefni atvinnulífsins og forsenda allrar verðmætasköpunar. Þetta segja þau Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku o...
Jarðhræringar III: Upplýsingamiðlun þegar mikið liggur við 16.07.2024 46:56
Þegar fyrirtæki glíma við krísur er mikilvægt að réttar og ábyrgar upplýsingar komist hratt og vel til hagaðila, fjölmiðla og almennings. Það getur verið krefjandi í mikilli óvissu og undir miklu álagi eins og í jarðhræringunum á Reykjanesi og hvað þá þegar allir eru orðnir sín eigin fréttastofa með snjallsíma í vasanum. Upplýsingafulltrúarnir Birna Lárusdóttir hjá HS Orku, Sigrún Inga Ævarsdóttir...
Jarðhræringar II: Hamfarir fyrir fólk og fyrirtæki 16.07.2024 44:21
Jarðhræringar á Reykjanesi hafa reynt gríðarlega á orku- og veituinnviði þjóðarinnar, en hafa ekki síður reynt á fólkið sem staðið hefur í ströngu við að halda þeim gangandi. Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri HS Orku er gestur þáttarins og ræðir hún við Lovísu Árnadóttur um mannleg áhrif hamfaranna á starfsfólkið og á daglegan rekstur fyrirtækisins.
Jarðhræringar I: Þegar verstu sviðsmyndir raungerast 16.07.2024 47:09
Góður undirbúningur fyrir jarðhræringar skipti sköpum þegar eldgos á Reykjanesskaga hófust. Enginn átti þó von á að verstu sviðsmyndirnar myndu raungerast. Í þættinum er farið yfir þá miklu vinnu sem farið hefur í undirbúning, viðbragð og lausnir til að verja mikilvæga orku- og veituinnviði á fyrsta eldgosatímabili í þúsundir ára. Viðmælendur eru þeir Guðmundur Helgi Albertsson verkstjóri á rafmag...
Ný tækifæri til orkuöflunar 03.07.2024 40:35
Er eitthvað vit í að nýta sólarorku á Íslandi? Hvað er vindorka á smærri skala? Munu heimili og fyrirtæki í framtíðinni hafa eitthvað hlutverk í nýrri orkuöflun? Þetta eru nokkrar spurningar sem starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherrra tókst á við í nýrri skýrslu sem út kom fyrr á árinu. Í þessum þætti Lífæða landsins eru niðurstöður skýrslunnar ræddar við Ásmund Friðriksson þin...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.