Javelin AI
Gervigreind
Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið 05.05.2026 1:28:58
Mythos finnur zero-day veikleika, Hermes tekur við af OpenClaw og reikniaflsstríðið er komið í alvöru gír. Apríl var mánuðurinn þar sem áherslan færðist endanlega frá líkönunum yfir á það sem er í kringum þau, og þar sem reikniaflsstríðið milli stóru fyrirtækjanna varð raunverulegt. Í þættinum er farið yfir: Erindrekarnir á fararbroddi: Hermes, OpenClaw, „skills" og hvernig þú gefur erindreka...
#18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira 31.03.2026 1:19:34
Tímamót hjá Javelin, TurboQuant og baráttan um besta líkaniðÍ þessum þætti ræðum við breytingar hjá Javelin og nýjustu vendingar í gervigreindarheiminum. Við veltum fyrir okkur hvort nýjustu líkönin séu í raun stóra fréttin eða hvort umgjörðin og tólin í kringum þau skipti orðið sköpum. Í þættinum er farið yfir:Framtíð Javelin: Pétur tilkynnir Fenra.is, sem mun nýta gervigreind fyrir byggingargeir...
#17 - Fréttaþáttur: Gervigreindir vinna saman og Elon Musk í sókn 17.02.2026 1:06:17
Fréttir síðustu vikna! Sverrir Heiðar og Pétur Már fara yfir það helsta sem hefur gerst í gervigreindarheiminum það sem af er ári. Í þættinum er farið yfir: Fjármögnun & sókn hjá Elon xAI sækir gríðarlegt fjármagn og staðsetur sig sem alvöru keppinaut. Umræða um samruna við SpaceX og uppbyggingu á risavöxnum innviðum. OpenAI í nýjum fasa Samstarf um hraðari inference, nýjar vörur og auglýsinga...
#16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það? 27.01.2026 58:29
Hugbúnaðargerð getur verið dýr, flókin og tímafrek. En hvað gerist þegar lítil teymi geta skyndilega afkastað jafn miklu og heilu deildirnar hjá stóru tæknifyrirtækjunum? Í þessum þætti ræðir Pétur Már Sigurðsson við þá Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson , stofnendur Test 13 . Þeir settu LinkedIn á hliðina nýverið þegar þeir buðu öllum sem höfðu fengið tilboð frá stóru hugbúnaðarhúsunum (ein...
#15 - Vibe coding og vibe working 21.01.2026 47:12
Vibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreind Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku. Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“. S...
#14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot 12.01.2026 49:12
Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í eina áhugaverðustu tilraun sem gerð hefur verið með sjálfstæða gervigreind í raunheimum. Við ræðum Project Vend, samstarfsverkefni Anthropic og Andon Labs, þar sem gervigreindinni Claude (undir nafninu Claudius) var fengið það verkefni að reka sjálfsala á skrifstofu gervigreindarsérfræðinga. Hvað gerist þegar tölva þarf að ákveða vöruúrval, verðleggja sn...
# 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar 05.01.2026 1:00:48
Nám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna) Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða. Við ræðum „bleik...
#12 - 2026: Okkar spár fyrir komandi ár 31.12.2025 1:00:27
Gervigreindarspár 2026: "Bingóspjald" framtíðarinnar Í þessum þætti kíkja Sverrir og Pétur í glerkúluna og búa til „bingóspjald“ fyrir árið 2026. Við greinum nýjustu gögnin frá Epoch AI um sjálfbæran vöxt vs. eyðslutrend í tækniheiminum og veltum fyrir okkur hvenær þróun gervigreindar gæti staðnað. Erum við að fara að sjá líkön sem kosta meira en milljarð dollara í þjálfun eða munu tæknilegir flös...
#11 - Árið 2025 í gervigreind 29.12.2025 1:14:24
2025 var stærsta ár í gervigreind til þessa Við förum yfir það besta, versta og það sem kom mest á óvart Í þættinum er farið yfir: • Flopp ársins: Hver átti versta árið? Pétur tilnefnir Microsoft og Copilot fyrir að lofa öllu en standa ekki undir væntingum, á meðan Sverrir ræðir „gervigreind“ sem reyndist vera mannauður í dulargervi. • GPT-5 og væntingarnar: Var þetta árið sem OpenAI hætti að heil...
#10 - Tilvistarkreppa á tímum gervigreindar 18.12.2025 18:45
Hver er ég ef ekki starfið mitt? Sverrir fær til sín Vagn, heimspeking og Bolvíking, til að ræða hliðar gervigreindar sem sjaldnar er talað um: Þá mannlegu, sálfræðilegu og heimspekilegu. Við ræðum „verufræðilegt áfall“ (e. ontological shock) og hvernig við bregðumst við þegar heimsmyndin okkar brotnar. Hvað stendur eftir þegar gervigreindin leysir verkefnin okkar af hólmi? Í þættinum er farið yfi...
#9 - Gagnaver í geimnum 16.12.2025 27:29
Er „skýið“ að fara út í geim? Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í eina villtustu hugmynd tæknigeirans í dag: Að flytja gagnaverin út fyrir gufuhvolfið. Við ræðum verkefni á borð við Project Suncatcher og Project Natick og veltum fyrir okkur hvort þetta sé raunhæft eða bara sci-fi draumar ríkustu manna heims. Í þættinum er farið yfir: Gagnaver í geimnum: Hver...
#8 - Gervigreind sem boðar heimsendi eða útópíu 08.12.2025 1:10:37
Er gervigreind að fara að taka yfir heiminn? Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í stærstu spurninguna af öllum: Hvert er gervigreindin að stefna? Erum við á leiðinni í útópíu eða dystópíu – eða verður þetta kannski bara „fínt“? Við ræðum muninn á AGI (Artificial General Intelligence) og ASI (Artificial Super Intelligence) og skoðum þrjár ólíkar sviðsmyndir se...
#7 - Eru listamenn búnir að vera? Myndsköpun með gervigreind 01.12.2025 1:32:48
Bylting í myndsköpun og Nano Banana Myndir segja meira en þúsund orð, en hvað gerist þegar tölvur búa þær til? Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í heim myndsköpunar með gervigreind. Þeir ræða ótrúlega þróun síðustu ára, allt frá fyrstu tilraunum DALL-E til nýjustu tækni Google sem ber hið stórfurðulega nafn „Nano Banana“.Það er áhugavert að sjá hvernig bilið...
#6 - Google eru bestir í Gervigreind 20.11.2025 1:28:57
Google er leiðandi í AI-kapphlaupinu. Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í það sem gerðist í fyrradag þegar Google gaf út Gemini 3 og kom sér vel fyrir á toppinum þegar kemur að bestu gervigreindarlíkönunum. Það er fátt jafn skemmtilegt og þegar tæknirisi tjaldar öllu til - og það var einmitt að gerast. Í þættinum er farið yfir: Gemini 3 og hvers vegna þetta...
#5 - Nýjustu fréttir: AI bólan, SlopTok, AgentKit & Orðrómar 20.10.2025 1:14:30
Er gervigreind bara bóla? Í fimmta þætti hlaðvarpsins Gervigreind ræða Sverrir og Pétur um nýjustu vendingarnar í heimi gervigreindar. Í þættinum fara þeir m.a. yfir: - Erum við stödd í gervigreindarbólu? - ChatGPT Apps: Ný leið til að leyfa ChatGPT að tengjast ytri þjónustum - Sora 2 : Nýr AI samfélagsmiðill sem hefur fengið viðurnefnið “SlopTok” - AgentKit: verkfæri til að smíða sín eigin verkfl...
#4 - Mýtur og misskilningur 01.10.2025 1:17:33
Gervigreind er á allra vörum en skiljum við hana í raun og veru? Velkomin í fjórða þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind! Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um algengar mýtur og misskilning varðandi gervigreind. Í þættinum ræða þeir meðal annars um: - Er ChatGPT að læra af samtölunum þínum og hefur það áhrif á svörin sem þú færð? - Af hverju skýr og góð samski...
#3 - Erindrekar 02.09.2025 53:21
Hefur þú velt því fyrir þér hvernig framtíðin með gervigreind mun líta út þegar hún fer sjálf að vinna verkefni fyrir okkur? Velkomin í þriðja þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind! Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um erindrekar (e. Agents). Í þættinum ræða þeir meðal annars um: - Hvað erindrekar eru og af hverju þeir eru orðnir svona heitt umræðuefni - Hver...
#2 - Gervigreind fyrir foreldra 18.08.2025 54:48
Hvað á ég að ráðleggja börnum mínum að gera eða læra í skóla með tilkomu gervigreindar? Hvernig geta foreldrar nýtt sér gervigreind í uppeldi barna? Velkomin í annan þátt af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind! Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um gervigreind fyrir foreldra. Í þættinum ræða þeir meðal annars um: Leiðir til að nýta gervigreind hvort sem þú ert með unga...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.