Stefán Atli
Gervigreindarklúbburinn
Í hlaðvarpi Gervigreindarklúbbsins rýnum við í áhrif gervigreindar á heiminn, vinnuna og lífið sjálft. Hér mætast forvitni og framtíðarsýn þegar við tölum við sérfræðinga, frumkvöðla og skapandi hugsuði sem eru að móta nýja stafræna öld. Við skoðum hvernig tæknin breytir samfélaginu – ekki með ótta, heldur með áhuga og innsæi. Hvort sem þú vinnur í nýsköpun, menntun, listum eða einfaldlega vilt skilja heiminn sem er að verða til, þá er þetta þinn vettvangur til að vera á undan.
Author
Stefán Atli
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
40. Gervigreind og stjórnmál 4 - Jónas Már 07.07.2026 36:10
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og Eignaskanni.is Hvar á gervigreind heima í sveitarfélögum — og hvar eigum við að draga mörkin? Í þessum þætti ræðum við við Jónas Má Torfason um AI í opinberri þjónustu, lýðræðislega ábyrgð, gagnavinnslu og ákvarðanatöku. Getur gervigreind hjálpað bæjarfélögum að vinna betur úr gögnum, greina þjónustuþörf og undirbúa betri ákvarðanir — eða er hætta á að við...
39. Gervigreind og bókhald 2 - Erla hjá Bella Books 30.06.2026 23:05
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli í heimsókn Erlu Símonardóttur , stofnanda Bella Books AI , sem er að þróa gervigreindarlausn sem sjálfvirknivæðir bókhald fyrir eldri bókhaldskerfi. Erla segir frá rúmlega 20 ára reynslu sinni úr bókhaldi og fjármálastjórnun, meðal annars hjá Deloitte, sem rekstraraðili eigin bókhaldsstofu og sem fjá...
38. Gervigreind og langtímahugsun - Hlöðver hjá APRÓ 23.06.2026 23:11
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán við Hlöðver , framkvæmdastjóra hjá APRÓ , um stöðu gervigreindar á Íslandi, raunverulegt virði tækninnar og hvers vegna fyrirtæki þurfa að hugsa stærra en bara að nota AI til að skrifa tölvupósta eða taka saman texta. Hlöðver segir frá því hvernig APRÓ er að byggja upp nútímalegt upplýsingatæknifyrirtæki me...
37. Gervigreind og Stjórnmál 3 - Einar Jóhannes Guðnasson (M) 11.06.2026 47:04
Gervigreind í sveitarfélögum, stjórnmálum og skólamálum með Einari Jóhannesi Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán Atli við Einar Jóhannes, oddvita Miðflokksins í Kópavogi , um hvernig gervigreind getur haft áhrif á sveitarfélög, stjórnsýslu, skólamál og stjórnmál á Íslandi. Einar deilir sýn sinni á tækifærin sem felast í sjálfvirknivæðingu, gagnadrifinni stjórnsýslu og betri nýting...
36. Gervigreind og leiðtogarnir sem missa af lestinni - Gísli Rafn Ólafsson 26.05.2026 1:01:17
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín Gísla Rafn Ólafsson – tæknisérfræðing, fyrrverandi 5. varaforseta Alþingis og höfund bókarinnar The AI Fluent Leader . Þeir ræða hvernig gervigreind er ekki bara tæknibreyting heldur algjör hugarfarsbreyting fyrir fyrirtæki, stjórnendur og samfélagið allt. Gísli segir frá bókinni sinni og hvers v...
35. Gervigreind og markaðsmál 4 - Einar BIEN 19.05.2026 50:05
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín markaðsmanninn og stofnanda BIEN, Einar Ben, í opið og djúpt spjall um markaðsmál, vörumerki og hvernig gervigreind er að umbreyta skapandi greinum hraðar en flestir átta sig á. Einar segir frá ferðalagi sínu úr lögfræði og sálfræði yfir í markaðsmál, hvernig hann byggði upp eigið auglýsingafyrir...
34. Gervigreind og framtíð vinnunnar - Hjörtur frá Mynstra 12.05.2026 50:37
Þátturinn er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is 🎙️ Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín Hjört Sigurðsson, byggingarverkfræðing og stofnanda Mynstru, fyrirtækis sem sérhæfir sig í hagnýtingu gervigreindar, sérstaklega innan byggingariðnaðarins. Hjörtur segir frá vegferð sinni úr hefðbundnum verkfræði- og stjórnunarstörfum yfir í gervigreindarævintýrið. Hann lýsir því hv...
33. Gervigreind og pólitík/samgöngumál/forritun - Eyþór Máni Steinarsson 05.05.2026 34:03
Þátturinn er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is. Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín Eyþór Mána Steinarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Hopp, í líflegt samtal um gervigreind, samgöngur, nýsköpun, pólitík og það hvernig einstaklingar geta haft raunveruleg áhrif á samfélagið. Eyþór segir frá því hvernig forritun varð hans fyrsta leið til að móta heiminn í kringum sig...
32. Gervigreind x Bíófíklar 28.04.2026 58:54
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og HBHF Í þessum sérstaka samstarfsþætti leiða Gervigreindarklúbburinn og BÍÓfíklar hesta sína saman á Podcaststöðinni. Strákarnir kafa djúpt ofan í heim gervigreindar í kvikmyndum — allt frá klassískum hrollvekjum til hjartnæmra framtíðarsýna. Stefán Atli, Tómas og Kjartan ræða helstu stórvirkin sem hafa mótað hugmyndir okkar um vélar, meðvitund og framtíð m...
31. Gervigreind og Heimsendir - Stefán Þór Þorgeirsson 21.04.2026 50:04
Þátturinn er í boð chatgptnamskeid.is & hbhf.is. Í þessum samstarfsþætti með HEIMSENDA tekur Stefán Atli á móti gamla æskuvini sínum Stefáni Þór Þorgeirssyni — leikara, leiðsögumanni og hlaðvarpsstjóra Heimsenda. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þeir voru tíu ára gamlir og gerðu stuttmyndir undir merkjum M5 Studios í Flataskóla. Þeir ræða hvernig leiklistin og Japan mótuðu Stefán Þór, leik...
30. Gervigreindin ChatGPT mætir í spjall 14.04.2026 21:14
Þessi þáttur er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is . Í þættinum fær Stefán Atli sjálft ChatGPT í heimsókn í skemmtilegt, forvitnilegt og óvenjulegt spjall um gervigreind, framtíðina og samband manns og vélar. Velt er upp þeirri spurningu hvort gervigreind geti nokkurn tímann „skilið“ heiminn á sama hátt og manneskja, hvaða hættur og tækifæri felast í þróuninni og hvernig fólk getur nýtt gervigre...
29. Gervigreind og Heimspeki/Stjórnmál - Arnar Þór Jónsson 09.04.2026 59:55
Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín lögmanninn og fyrrverandi forsetaframbjóðandann, Arnar Þór Jónsson, í djúpt og opið samtal um gervigreind, samfélag og framtíð mannkyns. Arnar Þór ræðir um hættuna sem hann telur felast í því að einstaklingar og þjóðir afsali sér ábyrgð – hvort sem það er gagnvart stjórnmálum, alþjóðastofnunum eða tæknifyrirtækjum. Hann dregur upp myn...
28. Gervigreind og tónlist 4 - Andri Þór Hjartarson 03.03.2026 25:43
Þátturinn er í boði HBHF.is Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán Atli við tónlistarmanninn Andra Þór Hjartarsson um tónlistarferðalagið hans – frá því að fá gítar 12 ára, taka sjö ára hlé frá tónlist og snúa svo aftur með fullum krafti, yfir í að verða eftirsóttur skemmtikraftur og söngvari í hljómsveitinni Alles Okei. Andri segir frá fyrst...
27. Gervigreind og skapandi hátækniiðnaður - Gísli Konráðsson 23.02.2026 38:13
Þátturinn er í boði HBHF.is Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti ræðir Stefán Atli við Gísla Konráðsson, tæknistjóra og leikjahönnuð með yfir 20 ára reynslu í leikjaiðnaðinum. Gísli segir frá því hvernig hann hóf feril sinn hjá EVE Online hjá CCP Games , vann sig upp í stærri hlutverk og starfaði síðar erlendis, meðal annars í Kína. Hann kom einnig að þróun dansa og tjáningar í...
26. Gervigreind og Netöryggi - Skúli Bragi Geirdal 10.02.2026 51:24
Í þættinum fer Skúli Bragi yfir gervigreindarlæsi , félagslegt netöryggi og áhrif gervigreindar á lýðræði, þjóðaröryggi og upplýsingaumhverfið . Hann útskýrir hlutverk Netvís , Safer Internet Center Íslands, sem sinnir fræðslu, vitundarvakningu og rannsóknum – bæði meðal barna, ungmenna og fullorðinna. Ein meginniðurstaðan er að fólk ofmetur oft eigin hæfni til að greina djúpfalsanir og rangar upp...
25. Gervigreind og tónlist 3 - Maggi Mix 05.02.2026 17:16
Gervigreindarklúbburinn: Maggi Mix og tónlist framtíðarinnar Þátturinn er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is . Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán við Magga Mix , gleðigjafa þjóðarinnar, sem hefur skapað sér einstaka stöðu með gervigreindartónlist, húmor og óvæntum vinsældum á netinu. Maggi segir frá upphafi ferilsins – allt frá einföldum Facebook-myndböndum á gamla upptökuvél y...
24. Gervigreind og borgarmálin - Einar Þorsteinsson 29.01.2026 21:31
Þátturinn er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti fær Stefán Atli Rúnarsson, Einar Þorsteinsson til sín í Gervigreindarklúbbinn í ítarlegt og framtíðarmiðað samtal um gervigreind, tækni og samfélagsbreytingar. Gestur þáttarins er Einar Þorsteinsson , fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og oddviti Framsóknar í borginni. Hann segir stuttlega frá sjálfum sér, fer yfir feril sinn í fjö...
23. Gervigreind og stjórnmál 2 - Ingibjörg Isaksen 27.01.2026 36:10
Þátturinn er í boði HBHF.is og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins ræðir Stefán Atli við Ingbjörg Isaksen , þingflokksformann Framsóknarflokksins og þingmann Norðausturkjördæmis, um hagnýta notkun gervigreindar í þingstörfum . Ingbjörg lýsir því hvernig gervigreind nýtist fyrst og fremst til tímasparnaðar : að draga saman frumvörp, greina breytingar milli framlagninga, flokka...
22. Gervigreind og menning - Arnar Eggert Thoroddsen 22.01.2026 25:58
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán Atli við Arnar Eggert Thoroddsen , kennara við Háskóla Íslands, blaðamann og tónlistargagnrýnanda, um áhrif gervigreindar á menningu, fjölmiðla og tónlist. Arnar deilir reynslu sinni af því að nota gervigreind í ritstörfum, meðal annars við gerð bókar sinnar um sögu íslensks...
21. Gervigreind og jafnréttismál - Sæunn Gísladóttir 20.01.2026 27:13
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins ræðir Stefán við Sæunni Gísladóttur, sérfræðing hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, um gervigreind frá sjónarhorni rannsókna, jafnréttis og sköpunar. Sæunn segir frá starfi sínu við gagnadrifnar rannsóknir og hvernig gervigreind er þegar farin að breyta vinnuferlum í akademíu — allt...
20. Gervigreind og markaðsmál 3 - Þóranna Jónsdóttir 13.01.2026 43:06
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins ræðum við við Þórönnu Jónsdóttur um gervigreind frá yfirveguðu, jarðbundnu og mannlegu sjónarhorni. Í stað þess að falla í gryfju tæknilegrar ofurhype-frásagnar, beinist samtalið að því hvernig gervigreind birtist í raunveruleikanum: í starfi, við ákvarðanatöku, í ábyrgð og í daglegu lífi...
19. Gervigreind og hugbúnaðargerð - Atli Már frá HBHF.is 06.01.2026 30:47
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli til sín Atla Már Guðfinnsson, meðstofnanda Hugbúnaðarhúss framtíðarinnar , í djúpt og einlægt samtal um gervigreind, sjálfvirkni og framtíð íslenskra fyrirtækja. Þeir fara yfir hvernig þeir kynntust (Fortnite, auðvitað), hvernig áhugi Atla á tækni og markaðsmálum þróaðist...
18. Gervigreind og markaðsmál 2 - Úlfar Konráð 18.12.2025 24:26
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is. Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán til sín frænda sinn og vin úr viðskiptafræðinni, Úlfar Konráð Svansson. Úlfar hefur unnið sig upp í markaðsstarfinu, allt frá vöruhúsi og búðargólfi yfir í vörumerkja- og markaðsstjórnun hjá Artasan. Þeir ræða hraðann sem einkennir dagvöruheiminn, hvernig hann mótar markaðshu...
17. Gervigreind og Miðeind (máltækni) - Linda Heimisdóttir 16.12.2025 48:18
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is. Í þessum þætti spjallar Stefán við Lindu Heimisdóttur, framkvæmdastjóra Miðeindar – stærsta máltæknifyrirtækis Íslands. Linda fer yfir ferðalag sitt frá málvísindum og doktorsnámi í Cornell yfir í það að leiða fyrirtæki sem hefur mótað framtíð íslenskrar máltækni. Hún útskýrir hvernig Miðeind þróar vörur eins og Málstað, býr...
16. Gervigreind og Digital Nomads - Aron Atli Gunnarsson 11.12.2025 29:43
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is. Aron Atli Gunnarsson er tuttugu og eins árs gamall frumkvöðull sem hefur á ótrúlega skömmum tíma skapað sér nafn í heimi gervigreindar og SaaS-lausna. Hann bjó á Bali síðustu fjóra mánuði þar sem hann vann fyrir erlend fyrirtæki, þróaði gervigreindarverkfæri og hjálpaði hugbúnaðarfyrirtækjum að skala kerfin sín. Aron hóf feri...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.