Gunnur og Gunnlaugur

Framvindan - Tæknihlaðvarp

Technology IS ↓ 7 episodes

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi. Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

Author

Gunnur og Gunnlaugur

Category

Technology

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

May 28, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hvar eru vélmennin? Gerviástir og iðnaðurinn sem heldur áfram að lofa - Þáttur #007 28.05.2026

Við höfum beðið lengi eftir vélmennum sem geta gengið inn í okkar mannlega veruleika. Hollywood hefur lengi lofað okkur að það sé mögulegt. Á sama tíma eru milljónir manna í tilfinningatengslum við hugbúnað sem er bara texti á skjá. Í þessum þætti ræðum við um samband manneskju og vélar og hvers vegna iðnaðurinn heldur áfram að elta manngerð vélmenni. Við förum frá vélmenna draumum og vonum yfir í...

Tilfinningar og spjallbottar + Er gervigreind betri þerapisti og vinur en alvöru manneskja? - Þáttur #006 12.05.2026

Spjallbotti getur í dag verið ráðgjafi, vinur, þerapisti og jafnvel rómantískur félagi. Hún svarar samstundis, er alltaf tiltæk og virðist hlusta án þess að dæma. En hvað gerist þegar fólk fer að leita til véla eftir nánd, skilningi og tilfinningalegum stuðningi? Og hvar liggja mörkin milli gagnlegs hjálpartækis og sambands sem byrjar að taka pláss frá raunverulegum tengslum? Við ræðum hvernig fól...

Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005 05.05.2026

Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð. Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós? Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þess...

Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004 28.04.2026

Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum. Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu? Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Ha...

Hvað varð um metaverse? + VR, AI gleraugu og nýja internetið sem kom aldrei - Þáttur #003 21.04.2026

Í október 2021 breytti Mark Zuckerberg nafni Facebook í Meta. Hann lofaði okkur nýju interneti, heimsbyggð þar sem við myndum vinna, kynnast og lifa lífi okkar sem avatar í sýndarveruleika. Meta tapaði yfir 83 milljörðum króna á þessum draumi. Samt fór hlutabréfaverðið upp um 3,5% daginn sem fyrirtækið tilkynnti niðurskurð. Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvað gerðist í raun og hvert sýnda...

Framtíð kvikmynda og auglýsinga á tímum gervigreindar + Látnir leikarar snúa aftur með hjálp gervigreindar - Þáttur #002 13.04.2026

Kvikmyndaiðnaðurinn er að breytast hratt. Og fólk vill upplifa eitthvað meira en hefðbundið bíó. Við erum ekki lengur sátt við að sitja kyrr og horfa á skjá. Við viljum upplifa og vera inni í sögunni. Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvernig tæknin er að umbreyta kvikmyndagerð: Gervigreind styður framleiðsluferla, flýtir vinnu og opnar nýja möguleika. Hún getur jafnvel fært látna leikara af...

Eru íslensk fyrirtæki leiðandi í notkun gervigreindar eða bara einn maður með ChatGPT? + Gervigreindarkulnun + Uppáhalds AI tólin okkar - Þáttur #001 07.04.2026

Í fyrsta þætti Framvindu tökum við á stóru spurningunni: eru íslensk fyrirtæki virkilega leiðandi í notkun gervigreindar, eða er bara einn maður með ChatGPT á hverju skrifstofu? Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands nota 50% fyrirtækja einhvers konar gervigreindartækni, en aðeins 14% hafa mótað sér formlega stefnu. Við ræðum hvað þessar tölur þýða í raun, berum þær saman við Svíþjóð og Bandaríki...

Listen to the Framvindan - Tæknihlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.