Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 600 episodes

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Author

Samstöðin

Category

News

Podcast website

samstodin.simplecast.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið - Helgi-spjall: Karl Ágúst 25.04.2026

Laugardagur 25. apríl Helgi-spjall: Karl Ágúst Ásdís Olsen ræðir við fyrrum eiginmann sinn, Spaugstofumanninn, leikskáldið og leikarann Karl Ágúst í persónulegu og einlægu viðtali.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 17 24.04.2026

Föstudagur 24. apríl Vikuskammtur: Vika 17 María Lilja tekur á móti gestum Vikuskammtsins á öðrum degi sumars, en að þessu sinni mæta að borðinu þau Katla Ásgeirsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Freyr Rögnvaldsson.

Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur - Spilling í sjávarútvegi 23.04.2026

Fimmtudagur 22. apríl Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Björn Ólafsson og Jón Baldvin Hannibalsson.

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur 22.04.2026

Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella...

Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan 22.04.2026

Miðvikudagur 22. apríl Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan Græna borðið er tileinkað grænu göngunni að þessu sinni. Fulltrúar náttúruverndarsamtaka hringinn í kring um landið ræða um hvaðan samtökin eru sprottin og hvaða viðfangsefni eru brýnust í dag. Rakel Hinriksdóttir, formaður Samtaka Um Náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) stýrir þættinum. Gestir eru Guðrún Óskarsdóttir, formaður Náttúruvern...

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar 21.04.2026

Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta. Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess...

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur 20.04.2026

Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri H...

Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir? 19.04.2026

Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir? Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og starfsmaður BSÍ ræða horfurnar fram undan í keppnisbriddsheimi Íslendinga. Úrvalsdeildina, landsliðsverkefni fram undan og úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni ber á góma. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.

Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB 19.04.2026

Sunnudagurinn 19. apríl Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Barto...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar 18.04.2026
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16 17.04.2026

Föstudagur 17. apríl Vikuskammtur: Vika 16 Gestir Björns Þorlákssonar í Vikuskammti í beinni útsendingu á Samstöðinni klukkan 16 í dag verða Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Jóhannes Óli Sveinsson, formaður ungs jafnaðarmannafólks og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd. Til umræðu verða ný fylgiskönnun í borginni, umdeildur málflutning...

Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar 16.04.2026

Fimmtudagur 16. apríl Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar Tótla I. Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir við Maríu Lilju um mál barnanna sem liggja utan kerfis, án þjónustu, eftir að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd voru færð frá sveitafélögunum yfir til ráðuneyta og undirstofnanna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórkostlegri byggð á Noðurnesinu á Á...

Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba 15.04.2026

Miðvikudagur 15. apríl Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba Vala Höskuldsdóttir listakona segir Ásdísi Olsen frá einstakri reynslu sinni af líknardauða móður sinnar í Reykjavík, sem leiddi til handtöku og vistunar í fangaklefa. Þröstur Ólafsson þjóðhagfræðingur segir í samtali við Björn Þorláks að íslenska krónan sé mikið mein og standi framförum fyrir þrifum.. Kjartan...

Rauða borðið 14. apríl - Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist 14.04.2026

Þriðjudagur 14. apríl Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist Lítill áhugi virðist meðal almennings á sveitarstjórnarkosningunum fram undan ef marka má óformlega athugun Samstöðvarinnar. Fæstir segjast þora að tjá sig um viðkvæm pólitísk deilumál. Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi ræðir réttarhöld og tímamótadóm í sakamáli gegn Smáríkinu. Ólögleg sala einnar hvítvínsbelju gæti orðið þúfa...

Rauða borðið 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna 13.04.2026

Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfir...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynja Péturs 28.03.2026

Laugardagur 28. mars Helgi-spjall: Brynja Péturs Dansarinn og frumkvöðullinn Brynja Pétursdóttir segir Maríu Lilju frá ástríðu sinni fyrir hipp hopp tónlist og dansi, en hún hefur helgað líf sitt því að kenna ungu fólki á íslandi allt um þann dans og menninguna sem hann sprettur úr.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 13 27.03.2026

Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13 Gestir Laufeyjar Líndal eru að þessu sinni Ægir Máni Bjarnason, listarmaður og aðgerðarsinni, Davíð Sól Páls, kennari og aktivisti, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur og ráðgjafi og Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína og eftirlaunamaður.

Staða mála 27. mars 27.03.2026

Staða mála.

Rauða borðið 26. mars - Samstöðvarsigur og litróf listarinnar 26.03.2026

Fimmtudagur 26. mars Samstöðvarsigur og litróf listarinnar Þátturinn er stuttur í kvöld, en veðurofsi fyrri part dags setti dagskrána aðeins úr skorðum, svo í þessum síðasta þætti Rauða borðsins fyrir Páska bjóðum við upp á tvö viðtöl við tvo góða gesti. Fyrst fær Björn Þorláks til sín góðvin Rauða borðsins, Gísla Tryggvason. Innslagið Réttur er settur, sem þeir félagar hafa haldið úti í vetur fja...

Sjávarútvegsspjallið - 80. þáttur: Hafró 26.03.2026

Fimmtudagur 26. mars Sjávarútvegsspjallið - 80. þáttur: Hafró Grétar Mar og Ólafur Jónsson ræða við Jón Kristjánsson.

Rauða borðið 25. mars - Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál 25.03.2026

Miðvikudagur 25. mars Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál Marinó G Njálsson ráðgjafi hefur verið skipaður af ráðherra formaður stýrihóps um nýtt húsnæðislánakerfi. Marínó vill losna við verðtryggingu. Björn Þorláks ræðir við hann. Viðar Eggertsson leikari, Ólafur Arnarson blaðamaður og Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands kryfja fréttir og þjóðmál í umræðuþæ...

Græna borðið 7. þáttur - Vindorka 25.03.2026

Miðvikudagur 25. mars Græna borðið - 7. þáttur: Deilt um vindorkuver Sveitarstjórn Dalabyggðar er hætt að vinna að því að vindorkuver franska fyrirtækisins Qair rísi á Laxárdalsheiði. Sveitungum líst ekki vel á orkuver á heiðinni. Skipulagsstofnun gaf verkefninu falleinkunn en Qair er ekki af baki dottið og fer fram á nýtt mat. Sveitarstjórn kallar eftir skýrri og nákvæmri vindorkustefnu frá stjór...

Rauða borðið 24. mars - Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn 24.03.2026

Þriðjudagur 24. mars Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn Aðalsteinn Kjartansson fréttastjóri Heimildarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson komu til að ræða pólitík og helstu fréttir. Þarna voru vanir menn sem fóru vítt og breytt um fréttasviðið hér og út í hinum stóra heimi. Grímur Atlason hjá Geðhjálp ræðir könnun um fordóma, geðsjúkdóma og fíkn. Krísur ungs fólks ber á góma se...

Rauða borðið 23. mars - Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan 23.03.2026

Mánudagur 23. mars Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan Sonja Ýr Þorgeirsdóttir, BSRB og Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræða neikvætt viðhorf gegn opinberum starfsmönnum og atlögu að vernd þeirra í starfi. Inniskór koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þær. Flosi Þorgeirsson, gítarleikari í Ham með meiru, ræðir eigin kulnun og hlaðvarpið Draugar fortíð...

Bridgeþátturinn - Kvennasigur 22.03.2026

Sunnudagurinn 22. mars Bridgeþátturinn - Kvennasigur Inda Hrönn Björnsdóttir, x og x ræða við Björn Þorláks um bridds. Þær stöllur eru glóðvolgir Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni og þær ræða spilið, keppnina, kynjabaráttu og fleira.

Listen to the Samstöðin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.