Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 15.05.2026 1:34:41
Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 Vikuskammtur tekur mið af kjördegi á morgun. Við fáum fólk af listum þeirra þriggja flokka sem hafa mælst með mest fylgi til að ræða stöðuna í Reykjavík: Líf Magneudóttir er í öðru sæti á lista Vinstrisins, Heiða Björg Hilmisdóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar og Brynjar Níelsson er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þau ræða kosningaba...
Rauða borðið - Aukaþáttur: Vinstrið 14.05.2026 45:33
Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?
Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur: Fiskmarkaðir og kvóti 14.05.2026 56:53
Fimmtudagur 14. maí Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur Það eru þeir Atli Hermannsson og Kári Jónsson sem mæta til Grétars að þessu sinni að ræða fiskmarkaði og kvótamál.
Græna borðið - 13. þáttur: Ráðherra styður hugmynd um hálendisþjóðgarð 14.05.2026 1:01:45
Miðvikudagur 13. maí Græna borðið - 13. þáttur: Ráðherra styður hugmynd um hálendisþjóðgarð Páll Ásgeir Ásgeirsson og Jón Kaldal settust við Græna borðið ásamt Jóhanni Páli Jóhannssyni ráðherra umhverfis og orkumála. Þar var rætt um margt sem heyrir undir ráðuneyti hans allt frá rammaáætlun, vindorku, átökum um Hvammsvirkjun, lagareldi og kortlagningu víðerna.
Rauða borðið 13. maí - Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa 13.05.2026 5:29:12
Miðvikudagur 13. maí Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump ti...
Rauða borðið 12. maí - Viðskiptaráð, kæra Rúv, lögfræðispjall, skólakerfið, læsishrun og mjúkir menn 12.05.2026 5:17:53
Þriðjudagur 12. maí Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega augl...
Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð 11.05.2026 4:23:31
Mánudagur 11. maí Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson...
Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál 10.05.2026 2:20:10
Sunnudagurinn 10. maí Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þa...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigmundur Ernir 09.05.2026 1:33:03
Laugardagur 9. maí Helgi-spjall: Sigmundur Ernir Sigmundur Ernir Rúnarsson er skáld, blaðamaður, pabbi, eiginmaður, útvistarmaður, þingmaður og er þá ekki allt upp talið. Hann ræðir líf sitt og feril í ítarlegu helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19 08.05.2026 1:32:32
Föstudagur 8. maí Vikuskammtur: Vika 19 Eins og venja er á föstudögum kemur saman gott fólk að ræða fréttir vikunnar í Vikuskammti við Rauða borðið. Að þessu sinni mæta þau Guðmundur Auðunsson, María Hjálmtýsdóttir, Margrét Lísa Gunnarsdóttir og Unnar Þór Sæmundsson til að ræða sveitarstjórnarkosningar, mótmæli, gömul og ný þrætuepli og ýmsar furðufréttir með Laufeyju Líndal. Þátturinn er tekinn u...
Rauða borðið 7. maí - Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur 07.05.2026 4:12:24
Fimmtudagur 7. maí Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur hjá Eflingu ræðir niðursveiflu í efnahagskerfinu, skaðlega peningamálastefnu og skort á virkri hagsstjórn við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir Stefán Pálsson sagnfræðingur, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða rógsherferðir, harðnandi slag um borgin...
Rauða borðið 6. maí - Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn 06.05.2026 4:11:26
Miðvikudagur 6. maí Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn Gunnar Smári ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um kjarasamningana, verðlagsákvæði þeirra og hvað ríkisstjórnin getur gert svo samningunum verði ekki sagt upp í haust. Katrín Oddsdóttir lögmaður og náttúrusinni mætti til Sigurjóns. Saman töluðu um skuggahliðar laxeldis í sjó. Bæði...
Rauða borðið 5. maí - Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló 05.05.2026 3:58:22
Þriðjudagur 5. maí Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um stöðu heimsmála. Guðný Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ásdís Arnalds, lektor í félagsráðgjöf ræða fjölskyldustefnur á Íslandi og hverju er ábótavant í framfylgd hennar og framkvæmd við Laufeyju Líndal. Jón Óðinn Waage sem flutti til...
Rauða borðið 4. maí - Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði 04.05.2026 3:57:41
Mánudagur 4. maí Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, bregst við gagnrýni Vals Gunnarssonar sagnfræðings og rithöfundar á úthlutun ritlauna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur er heiðursborgari Reykjavíkur. Gunnar Smári ræðir við hann. Ásdís Ólsen ræðir við Pál Jakob Líndal...
Synir Egils 3. maí - Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra 03.05.2026 1:41:22
Sunnudagurinn 3. maí Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það ko...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Baldvin Snær 02.05.2026 1:35:22
Laugardagur 2. maí Helgi-spjall: Baldvin Snær Baldvin Snær Hlynsson tónlistarmaður býr til stjörnur úr góðum efnivið. Hann er það sem kallað er Artist Developer og leitar nú að íslenskum vonarstjörnum sem vilja slá í gegn! Hann er kallaður til Hollywood eða London til að semja tónlist fyrir kvikmyndir eða pródúsera nýja tónlistarmenn. Ferilskráin er stjörnum prídd en núna er hann heima á Íslandi a...
Fólkið í borginni - Íþróttir eru límið í samfélaginu 01.05.2026 21:37
Fimmtudagur 30. apríl Fólkið í borginni: Íþróttir eru límið í samfélaginu Herra Fram – Daði Guðmundsson, starfsmaður Knattspyrnufélagsins Fram ræðir um störf íþróttafulltrúa borgarinnar og hvernig íþróttastarf getur gagnast til inngildingar. Hvernig var að taka þátt í uppbyggingu nýs borgarhverfis og hvernig geta íþróttafélögin okkar hjálpað til við að skapa hverfisanda? Erum við að gefa börnunum...
Fólkið í borginni - Hinsegin félagsmiðstöðin 01.05.2026 22:57
Miðvikudagur 29. apríl Fólkið í borginni: Hinsegin félagsmiðstöðin Í þessum þætti fræðir Snæ Humadóttir, framhaldsskólanemi þáttastjórnandann Ástu Þórdísi Skjalddal um hinsegin félagsmiðstöðina og hvaða máli hún skiptir unga fólkið okkar.
Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir 30.04.2026 4:47:19
Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóle...
Rauða borðið 29. apríl - Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra og rauða hverfið 29.04.2026 3:11:43
Miðvikudagur 29. apríl Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra, rauða hverfið. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna ræðir húsnæðispakka tvö við Maríu Lilju og möguleg áhrif aðgerðanna á kjör leigjenda. Hvaða áhrif skyldi sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafa á fasteignamarkaðinn að byggja 1400 íbúðir á ríkislóðum? Páll A. Pálsson fasteignasali svarar því. Björn Þorláks ræði...
Rauða borðið 28. apríl - Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir 28.04.2026 3:19:35
Þriðjudagur 28. apríl Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir Rótin hefur sent kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Sjúkratrygginga á aðgangi að upplýsingum í samningi stofnunarinnar við SÁÁ. Kristín I Pálsdóttir ræðir við Maríu Ragnheiður Þorgrímsdóttir, íbúi í Hvalfirði, segir að mengun frá stóriðjusvæðinu á Grundartanga sé orðin að dragbít sem hamli framþróun...
Fólkið í borginni - Fátækt í Reykjavík 28.04.2026 37:45
Þriðjudagur 28. apríl Fólkið í borginni: Fátækt í Reykjavík Í þessum þætti af Fólkið í borginni ræðir Finnur Ricart Andrason við þau Elísabetu Hauksdóttur íbúa í Fellahverfi og Kolbein H. Stefánsson íbúa í Laugardalnum um fátækt í Reykjavík. Umræðan þeirra á milli er afslöppuð, einlæg og jarðbundin; hún er bæði persónuleg og fræðileg og til þessa fallin að fræða áhorfendur um hinar ýmsu hliðar fát...
Fólkið í borginni - Lifir listin í borginni? 28.04.2026 32:16
Mánudagur 27. apríl Fólkið í borginni: Lifir listin í borginni? Árni Már Þórdísar Viðarsson, einn stofnenda Gallerýs Ports, segir frá menningarlífi borgarinnar og þróun listarýma á undanförnum árum. Við ræðum hvað þarf til þess að listarými geti dafnað í borgarumhverfi og hvernig rými móta upplifun okkar af list. Um leið veltum við fyrir okkur hversu miklu tómlegra borgarlífið væri án listar og hv...
Rauða borðið 27. apríl - Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins 27.04.2026 2:56:49
Mánudagur 27. apríl Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins Regína Ásvaldsdóttir, Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir af lista Samfylkingarinnar í RVK ræða við Maríu Lilju um áherslumálin. Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur leggur spilin á borðið og segir frá því hvernig það er að fá sjaldnast ritlaun, sem byggi á geðþóttaákvörðun. Björn Þorláks ræðir við Val. Matild...
Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB 26.04.2026 1:42:21
Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Áran...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.