Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir

Reykjavíkurfréttir

News IS ↓ 61 episodes

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar. Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: reykjavikurfrettir.simplecast.com

Author

Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir

Category

News

Latest episode

Oct 8, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Efnahagslegt óréttlæti í orkumálum 04.02.2022

Laufey Ólafsdóttir segir okkur frá starfi EAPN (European Anti Poverty Network) og nýlegum umræðufundi um aðgengi að rafmagnsorku og húshitun. Vegna fátæktar hafa ekki allir það aðgengi. EAPN eru evrópsk samtök sem berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og stóðu ásamt öðrum samtökum fyrir alþjóðlegum fundi um orkumál og aðgengi að þeim.  Í þættinum förum við yfir kröfur sem fram hafa komið va...

Fátækt í Reykjavík 01.02.2022

Peppararnir Birna Kristín Sigurjónsdóttir og Hildur Oddsdóttir segja okkur frá starfi PEPP Ísland, grasrót fólks í fátækt. Þær segja okkur frá starfsemi samtakanna, valdeflingunni sem felst í því að koma fram með því að viðurkenna stöðu stöðu sína og tala um hana. Í þættinum fjöllum við um mikilvægi þess að hitta fólk sem þekkir það að búa við fátækt og hvernig það nýtist í baráttunni gegn fátækt...

Aðstöðuleysi í grunnskólum 28.01.2022

Símon Vestarr, íslenskukennari ræðir við okkur um stöðu grunnskólana. Í þættinum skoðum við aðstöðuna sem kennarar og starfsfólk grunnskóla hefur til að taka á móti börnum, rýmið og móttökuáætlanir fyrir börn af erlendum uppruna. Í þættinum skoðum við hvað skólarnir þurfa til að veita góða aðstöðu og hvaða þættir ógni því að börn geti átt góða grunnskólagöngu. Margt utan við skólann hefur áhrif á...

Ungt fólk, vinnuálag og húsnæði 25.01.2022

Katrín Tinna Eyþórsdóttir kemur í Hina Reykjavík og segir okkur frá vegferð sinni úr foreldrahúsum í eigið húsnæði. Við munum fjalla um störf hennar í næturvinnu á spítala, aukastarfi hennar, hark og aukavaktir og áhrif þess á lífið og líkamann. Aðstæður fólks eru misjafnar og í þætti dagsins skoðum við hvað ungt fólk þurfi að gera til að útvega sér húsnæði og hvað sé hægt að gera til að létta ála...

Löng bið eftir húsnæði 21.01.2022

Anita Da Silva Bjarnadóttir segir okkur frá reynslu sinni af húsnæðiskerfi borgarinnar þar sem hún beið í næstum tólf ár eftir félagslegri íbúð án þess að biðin skilaði árangri. Hún er nýlega komin aftur á þann biðlista og við ræðum óöryggi á leigumarkaði, hátt leiguverð og ferlið að baki þess að sækja um og viðhalda umsókn um félagslegt leiguhúsnæði. Umsækjendur félagslegs leiguhúsnæðis þurfa að...

Rasismi á Íslandi 18.01.2022

Anna Sonde, Kristín Reynisdóttir, Johanna Haile og Valgerður Reynisdóttir segja okkur frá síðunni sinni Antirasistarnir á Instagram þar sem fræðsla um rasisma á Íslandi fer fram. Í þættinum ræðum við um birtingarmyndir rasisma í íslensku samfélagi og viðbrögð skólakerfisins við kynþáttafordómum. Í þættinum skoðum við hvernig hægt sé að berjast gegn rasisma og viðbrögðin sem Antirasistarnir hafa fe...

Reynsluheimur dagforeldra 14.01.2022

Sigurgyða Þrastardóttir, dagmamma segir okkur frá stöðu dagforeldra í Reykjavíkurborg, starfsskilyrðum og samskiptum við borgina. Dagforeldrum hefur fækkað á síðustu árum, börnum fjölgað og erfitt er að fá pláss fyrir börn í daggæslu. Á sama tíma bíða börn lengi eftir því að komast að í leikskóla og margir foreldrar eru í erfiðri stöðu. Dagforeldrar veita þjónustu sem foreldrar reiða sig á og er b...

Kreppa í leikskólum 11.01.2022

Signý Sigurðardóttir , starfskraftur á leikskóla, mætir í Hina Reykjavík og fræðir okkur um störf og starfsskilyrði mikilvægustu starfskrafta samfélagsins. Launakjör og starfsaðstæður leikskólastarfsfólks hafa mikið verið í umræðunni og ljóst er að margt þarf að breytast til að gera aðstæður góðar bæði fyrir starfsfólkið og börnin sem sækja skólana. Í þættinum munum við fara yfir þessi mál ásamt þ...

Skipulagsmál og borgarrými 17.12.2021

Skipulag nærumhverfisins getur gefið okkur jákvæða orku en getur einnig verið hamlandi allt eftir því hvernig það er byggt upp. Viðmælendur þáttarins eru Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Laufey Líndal Ólafsdóttir og í þættinum verður farið yfir skipulagsmál út frá sjónarhóli gangandi vegfarenda og hverfisskipulags. Sanna Magdalena Mörtudóttir ræðir við viðmælendur um græn svæði, göngustíga og gangstét...

Fátækt, fjárhagsaðstoð og áhrif á börn 10.12.2021

Í þættinum í dag ræðum við hvernig það er að lifa af upphæðum fjárhagsaðstoðar, fátækt og það sem þarf að neita sér um í slíkri stöðu. Elísabet Hauksdóttir ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttir. Í dag mun Hin Reykjavík varpa ljósi á afleiðingum fátæktar, afleiðingum þess á börn og hversu erfitt er að vinna úr áföllum í þeirri stöðu. Við kynnumst einnig valdeflandi starfsemi Peppsins (grasrót fólks...

Starfar stjórnmálafólk fyrir alþýðuna? 03.12.2021

Hvernig virka stjórnmál á Íslandi? Hvað felur nýr stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar í sér og hver verða áhrif hans á landsmenn? Sanna Magdalena Mörtudóttir og Kristbjörg Eva Andersen Ramos leitast við að skilja nútíma stjórnmál, hlutverk ráðherra og hvað núverandi stjórnarstaða þýðir fyrir okkur íbúana. Í þættinum verður leitast við að svara því hvernig almenningur getur komið sinni rödd á framf...

Listen to the Reykjavíkurfréttir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.