Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir

Reykjavíkurfréttir

News IS ↓ 61 episodios

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar. Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: reykjavikurfrettir.simplecast.com

Autor

Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir

Categoría

News

Último episodio

8 de oct. de 2024

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Reykjavíkurfréttir 8. okt - Talað og tekið á málum 08.10.2024

Þriðjudagur 8. október Talað og tekið á málum Borgarstjórnarhópur Sósíalista fer yfir það helsta sem hefur átt sér stað innan borgarinnar á liðnum dögum; tillögu um mælingar á þáttum er tengjast gjaldfrjálsum máltíðum svo hægt sé að fylgjast með þróun þeirra þátta, svo sem næringargildi, gæði og magn. Við munum einnig fjalla um tillögu Sósíalista um samvinnuvettvang við stéttarfélögin sem fékk bra...

Reykjavíkurfréttir 1. okt - Samgönguleysi í Gufunesi 01.10.2024

Þriðjudagur 1. október Reykjavíkurfréttir: Samgönguleysi í Gufunesi Í þætti dagsins ræðum við um almenningssamgöngur frá sjónarhóli íbúa í Gufunesi en gestir okkar, Móberg Ordal og Rakel Glytta Brandt heilluðust af vistvænum hugmyndum um sjálfbært þorp og samvinnu íbúa en enduðu samgöngulaus og félagslega einangruð í Jöfursbás.

Reykjavíkurfréttir - Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu 24.09.2024

Þriðjudagur 24. september Reykjavíkurfréttir: Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu Ásta Dís og Sanna ræða ýmislegt úr borgarmálum síðustu viku. Samþykkt var að skoða nánar tillögu Sósíalistaflokks í borgarstjórn um næringargildi gjaldfrjálsra skólamáltíða. Ásta Dís segir frá reykköfun, óleyfisbúsetu og fleiru í heimsókn sinni til slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en aðalfundur þeirra v...

Reykjavíkurfréttir - Ójöfnuður í skólakerfinu 17.09.2024

Þriðjudagur 17. september Ójöfnuður í skólakerfinu Í þessum þætti ræðum við um ójöfnuð og birtingarmyndir þess í skólum. Þórunn Einarsdóttir kennari í framhaldsskóla kemur til okkar og ræðir við okkur um skólastarfið, falinn kostnað við skólaviðburði og misjafnar aðstæður nemenda. Þá veltum við því einnig upp hvort að framhaldskólar ættu að vera gjaldfrjálsir.

Reykjavíkurfréttir 10. sept - Hvað er málið með þessa borgarstjórn? 10.09.2024

Þriðjurdagur 10. september Reykjavíkurfréttir - Hvað er málið með þessa borgarstjórn? Í þessum þætti kynnum við Ástu Þórdísi Skjalddal Guðjónsdóttur til leiks og starfs í borgarstjórnarflokki Sósíalista. Við ræðum hvernig reynsla hennar úr grasrót fólks í fátækt nýtist inn í pólitíkina og förum yfir starf okkar sem kjörinna fulltrúa í borginni, hin ýmsu ráð og aðkomu að þeim.

Reykjavíkurfréttir 3. sept - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir 03.09.2024

Þriðjudagur 3. september Reykjavíkurfréttir - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir Í þessum fyrsta haustþætti Reykjavíkurfrétta eru gestir okkar þeir Ludvig Guðmundsson læknir og Stefán Jón Hafstein fyrrverandi formaður menntaráðs Reykjavíkur en báðir eru þeir félagar í Aldin eins og fram kemur í þættinum. Þátturinn fjallar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir sem eru jú hluti af samþykktum rí...

Andrými 14.05.2024

Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí Andrými Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar,...

Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa 30.04.2024

Reykjavíkurfréttir, 30. apríl Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa. Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu.

Metnaðarleysi í Mjódd 23.04.2024

Reykjavíkurfréttir, 23. apríl Metnaðarleysi í Mjódd Sanna Magdalena Mörtudóttur ræðir við Söru Stef Hildar um þjónustuleysið sem birtist á skiptistöðinni í Mjódd. Um er að ræða stærstu skiptistöðina í almenningssamgangnakerfi borgarinnar. Mikill þörf er á úrbótum til þess að gera svæðið aðlaðandi og laga að þörfum strætónotenda.

Eftirlit, sorp og mannréttindabrot 27.02.2024

Reykjavíkurfréttir, 27. febrúar, 2024 Eftirlit, sorp og mannréttindabrot Sanna, Andrea og Halldóra skoða nánar virkni eftirlitsmyndavéla en nýverið kom út skýrsla sem sýndi fram á að bæta þurfi verulega framkvæmd rafrænnar vöktunar og setja þarf fram leiðbeiningar um rafræna vöktun, t.a.m. varðandi aðgang að efni úr slíkri vöktun. Þá skoðum við hvernig söfnun á lífrænum úrgangi er háttað í öðrum s...

Mótmæli í borgarlandinu 20.02.2024

Reykjavíkurfréttir 20. febrúar Mótmæli í borgalandi Í þætti dagsins ræðum við um nýtingu almannarýmis til mótmæla og samstöðufunda og einblínum á nýlega viðburði í Reykjavík til stuðnings Palestínu. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland-Palestína kemur í þáttinn og ræðir við Sönnu Magdalenu og Halldóru um samstöðuaðgerðir og hvernig borgarrýmið nýtist til þess.

Reykjavíkurfréttir - Staðan í borginni 13.02.2024

Í þætti dagsins ræðum við fjölbreytt mál sem hafa verið á dagskrá borgarstjórnar. Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir kafa ofan í umræðu í kringum tillögu Sósíalistaflokksins um að hætta við fyrirhugaðar sumarlokanir borgarbókasafna, tillögu um umboðsmann borgarbúa. Þá fjöllum við einnig um umræður um mótmæli í borgarlandi og tekju- eignamörk til að komast í...

Almenningsbókasöfn 30.01.2024

Við ræðum fréttir vikunnar og fáum svo innsýn inn í almenningsbókasöfnin og mikilvægi þeirra. Við kíkjum í hljóðvarpsstúdíó þar sem Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá lýðræðisverkefnum. Svo kemur Barbara Guðnadóttir safnstjóri og segir okkur frá mikilvægi safnsins og félagslegu rými þess.

Útstrokun vinnuaflsins og hræddir valdhafar 12.12.2023

Í upphafi spjalla þær Andrea Helgadóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir sín á milli um það sem borið hefur á í umræðu og í borgarmálum þessa vikuna. Andrea talar að því loknu við systkinin Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Bjarka Gunnar Halldórsson arkitekt um hvort og hvernig þau sjái einkenni þess að vinnuaflið sé ósýnilegt þegar horft er á samfélagið og umhverfið. Hvort einhver hluti alm...

Fánar, fjármál og fundir 05.12.2023

Reykjavíkurfréttir, 5. des - Fánar, fjármál og fundir Í þætti dagsins fáum við kynningu á ýmsum málum borgarinnar, fjallað verður um stöðu aðgerðaráætlunar gegn rasisma í skóla- og frísundastarfi, fjárhagsáætlun, vetrarþjónustu og snjómokstur og loftslagsmálin innan borgarinnar í tengslum við óáreiðanlegar almennningssamgöngur. Þá fjöllum við um hvernig borgin geti sýnt samstöðu með stríðshrjáðum...

Fjárhagsáætlun og AirBnB 28.11.2023

Sanna Magdalena Mörtudóttir og Andrea Helgadóttir borgar- og varaborgarfulltrúi Sósíalista fara yfir helstu fréttir úr borginni. Fjárhagsáætlunargerð stendur nú yfir og munum við fara yfir breytingartillögur Sósíalista. Þá koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda og Jón Ferdínand Estherarson sem situr í stjórn samtakanna til okkar og ræða um skaðsemi Airbnb og áhrif þess á leigu...

Baslið í borginni 21.11.2023

Í dag fáum við kynningu á nýútgefinni skýrslu ÖBÍ réttindasamtaka um húsnæðismál fatlaðs fólks. Maríu Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Kjartan Þór Ingason starfsmaður ÖBÍ koma til okkar og ræða þessi mál og hvað sveitarfélögin geti gert í þeim efnum. Í lokin heyrum við sögu Gunnhildar Hlöðversdóttur um háan húsnæðiskostnað en viðtal við hana birtist á Rauða borðinu fyrir um ári síðan þega...

Sorpið og pólitíkin 07.11.2023

Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttur og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir helstu fréttir úr borginni. Teitur Atlason kemur og ræðir sorphirðu í borginni. Umræður verða síðan um stjórnmálaástandið í Reykjavík með góðum gestum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rýnir í nýjustu skoðanakönnun og fer yfir stöðuna ásamt Halldóri Auðar Svanssyni fyrrverandi borgarfulltrúa, Helgu Þórð...

Reykjavíkurfréttir - Sunnutorg og skaðaminnkun 01.11.2023

Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir málin í borginni, í Reykjavíkurfréttum. Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Ungra sósíalista kemur í stúdíóið og ræðir við okkur fréttir vikunnar. Eftir það skoðum við Sunnutorg og veltum því fyrir okkur hvað eigi að gera við þessa byggingu, sem hefur átt betri daga. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og ta...

Reykjavíkurfréttir : Húsnæðismál í Ólestri 01.11.2023

Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon ræða fréttir vikunnar í Reykjavík, heimsækja hjólhýsabyggðina við Sævarhöfða og fá gesti í stúdíóið til að ræða húsnæðiskreppuna í höfuðborginni. Gestir þáttarins eru Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda, Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins og Bjarni Þór Sigurðsson sérfræðingur í húsnæ...

Reykjavíkurfréttir 06.10.2023

Borgarfulltrúar sósíalista ræða það sem bar hæst í nýliðinnu viku. Þar á meðal er ný skýrsla um athugun á vöggustofum en þær tóku til starfa 1949. Einnig ræða þau nýtt hverfi sem á að rísa í Keldum og setja það í samhengi við stöðuna á húsnæðismarkaði. Tillaga sósíalista í borgarstjórn verður einnig rædd ásamt öðrum málum sem þar fóru fram.

Félagsbústaðir hækka leigu 29.09.2023

Sanna Reykjavík - 29. september Félagsbústaðir hækka leigu Félagsbústaðir kynntu nýverið breytingar á leigu sem leiðir til þess að stór hópur sér nú fram á að greiða hærri leigu. Breytingin mun hafa áhrif á 2.649 leigjendur hjá Félagsbústöðum, þar sem leiga hækkar hjá 1.538 leigjendum en lækkar hjá 1.111 leigjendum. Breytingin er kynnt af Félagsbústöðum sem aðferð í því að jafna leiguverð á milli...

Borgarbúi fær nóg 22.09.2023

Borgarstjórn felldi í vikunni tillögu sósíalista um 0,05% hækkun gjalda á fyrirtæki, í þá upphæð sem hún var í fyrir covid heimsfaraldurinn. Þannig hefði borgin getað fengið rúman hálfan milljarða á ári, næstu ár. Sárleg þörf er á fjármunum í grunnþjónustu borgarinnar sem hefur verið skorin niður á síðustu misserum. Meirihlutinn vildi ekki horfast í augu við þessa stöðu og felldu tillöguna. Anita...

Umhverfissálfræði og Arkítektúruppreisnin 15.09.2023

Í dag fáum við tvo gesti til að ræða borgarskipulag, arkitektur nútímans og áhrif þess á andlega líðan. Stórir verktakar hafa aukið völd sín í skipulagsmálum og stýra allri þróun. Krafan um hámarkshagnað trompar önnur sjónarmið. Þar með talið hugmyndir um fegurðargildi bygginga, áhrif hönnunar á líðan íbúa, svo ekki sé talað um húsnæðisverð. Er einsleitnin of mikil? Hvers vegna er svona margar byg...

Sanna Reykjavík - Vinnuskóli Reykjavíkur 23.06.2023

23. Júní Nýjung í dag! Í upphafi þessa þáttar verður birt stutt innslag þar sem Trausti ræðir við íbúa í Grafarvogi. Við viljum heyra frá hverfisbúum hvernig aðstæður eru og hvað megi gera betur. Með tímanum er markmiðið að búið verði að ræða við fólk úr öllum hverfum. Eftir innslagið ræðum við svo um Vinnuskóla Reykjavíkur. Hvers vegna ákvað meirihlutinn í Reykjavík að frysta laun unglinga? Á sam...

Escucha el podcast Reykjavíkurfréttir en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos