Bjargey Ingólfsdóttir

Ofurkona í orlofi

Education IS ↓ 17 episodes

Ofurkona í orlofi fær til sín skemmtilega gesti í spjall sem hafa elt ástríðuna og látið drauma sína rætast.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.frelsadukraftinn.is

Author

Bjargey Ingólfsdóttir

Category

Education

Podcast website

www.frelsadukraftinn.is

Latest episode

Mar 25, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

22. “Ég hefði aldrei sleppt þessari lífsreynslu” - Anna Sæunn Ólafsdóttir 25.03.2024

Anna Sæunn kvikmyndagerðarkona, móðir, listakona og íþróttakona kom í frábært spjall um lífið og listina. Anna Sæunn hefur verið búsett með annan fótinn í Barcelona síðustu ár og segir okkur frá lífinu í stórborginni þar sem sólin skín. Hún segir frá því hvernig hún þurfti að finna sig á nýjan leik eftir skilnað og stór áföll í lífinu og hvernig hún notaði keppnisskapið til þess að komast lengra í...

21. “Sjálfsást hefur ekkert með eigingirni að gera” - Ólöf María Brynjarsdóttir 15.03.2024

“Ég hélt að það væri hægt að læra að elska sjálfan sig en veit í dag að það er ekki hægt” segir Ólöf María sem hefur síðastliðin ár rannsakað hugtakið sjálfsást. Ólöf María er gift fjögurra barna móðir og fyrrum bóndi sem fór í háskólanám eftir þrítugt. Hún er með B.A. í nútímafræði og rannsóknartengda meistaragráðu í félagsvísindum og starfar í ráðgjöf hjá VIRK ásamt því að kenna við Háskólann á...

20. “Ég var algjörlega aftengd sjálfri mér” - Emilia Gylfadóttir 05.03.2024

Emilia Gylfadóttir ofurkona með meiru kom í einlægt spjall um hamstrahjólið og þessa eilífu leit að jafnvægi. Væri lífið einfaldara ef við þyrftum ekki að vinna eða er hægt að lifa í sátt með verkefnalistum sem engan endi ætla að taka? Emilia segir frá því þegar hún áttaði sig á því að sjálfsvirði hennar er ekki mælt í einkunnum eða prófgráðum. Hún segist hafa áttað sig á því að hún var algjörlega...

19. “ADHD heilinn er sturlaður!” - Bryndís Ottesen 16.02.2024

Bryndís Ottesen eða Dísa eins og hún er alltaf kölluð kom í einlægt spjall um lífið með ADHD. Dísa er tveggja barna móðir, starfar sem ráðgjafi og heldur úti hlaðvarpinu Bresti með Birnu Sif vinkonu sinni. Dísa segir frá ADHD greiningarferlinu og léttinum við að fá að vita að hún var ekki vandamálið heldur samfélagið og skólakerfið. Hún segir ADHD heilann vera sturlaðan og þegar við lærum á styrkl...

16. “Ég er ekki minn aldur ég er bara mín orka” - Guðmundur Birkir Pálmason 25.01.2024

Gummi kíró mætti til Ofurkonu í orlofi og úr varð þessi skemmtilegi þáttur um það hvers vegna sjálfsvinna getur verið svona drulluerfið! Gummi sagði í einlægu spjalli frá sinni reynslu af því að glíma við kvíða og þurfa að takast á við sjálfan sig sem getur verið erfitt verkefni en nauðsynlegt til þess að geta lifað lífinu til fulls. Bjargey og Gummi ræddu um karlmennsku og hvort það væri ennþá ta...

15. “Nú er ég að lifa drauminn sem mig dreymdi sem krakki” - Hjálmar Örn Jóhannsson 18.01.2024

Hjálmar Örn skemmtikraftur er alveg einstök manneskja sem hefur þann fallega hæfileika að sjá og laða fram það besta í öðru fólki. Í þessum þætti spjalla Bjargey og Hjálmar um það að synda á móti straumnum en Hjálmar segist vera sá maður sem hann er í dag af því hann tók allskonar rangar ákvarðanir. Hjálmar gerir lífið aðeins betra með því að gefa frá sér sína einstöku gleði og fallegt viðhorf til...

14. “Það er engin þriðja vakt hér - það er bara öll vaktin” - Sigríður Lena Sigurbjarnadóttir 27.12.2023

Sigríður Lena er einstök móðir, fagurkeri, þroskaþjálfi og metnaðargjörn sjálfstæð kona. Sigga Lena eins og hún er oftast kölluð ákvað að stofna sína eigin fjölskyldu án þess að eiga maka og deilir með okkur vegferðinni en í dag á hún tvö yndisleg börn. Sigga Lena segir í einlægu spjalli frá barneignarferlinu og viðurkennir að það sé enginn dans á rósum að vera ein með tvö börn. Hún þekki þó ekker...

13. Djúsí jólaþáttur með Helgu Möggu 19.12.2023

Helga Magga er matgæðingur með meiru og snillingur í eldhúsinu en hefur hún einhvern tímann klúðrað jólasteikinni? Helga Magga segir farir sínar ekki sléttar af því að undirbúa hátíðarkvöldverð fyrir fjölskylduna en það gerast allskonar dularfullir atburðir í Hlíðunum rétt fyrir jólin þar sem jólakötturinn liggur sterklega undir grun um að hafa framið hinn fullkomna glæp! Ekki missa af frábærum jó...

11. “Hamingjan er lífið sem þú skapar þér” - Ástrós Rut Sigurðardóttir 29.11.2023

Ástrós Rut segir í einlægu spjalli frá því hvernig hún hefur unnið með sorgina eftir að hafa misst eiginmann sinn Bjarka Má aðeins þrítugan að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Ástrós Rut tók ákvörðun um að halda áfram með lífið eftir missinn og er búsett á Selfossi með manninum sínum og fjórum börnum ásamt hundinum Ronju. Ástrós tekur einn dag í einu eftir að hafa greinst með vefjagigt o...

10. “Gerðu það fyrir þig” - Katrín Petersen 09.11.2023

Gleðisprengjan, markaðsstjórinn og ofurmamman Katrín Petersen kom í skemmtilegt spjall um lífið og tilveruna. Katrín talar um hvað það er mikill lúxus að hafa tíma til að rækta sjálfa sig en þó maður sé komin með börn og fjölskyldu þá verður maður að leyfa sér að taka tíma fyrir sig. Katrín er óhrædd við að prófa nýja hluti og elskar að ferðast. Hennar mottó er að vinnan er ekki lífið þó það sé ga...

9. “Ég vaknaði til lífsins um fertugt” - Margrét Jóna Þórhallsdóttir 05.11.2023

Margrét Jóna Þórhallsdóttir myndlistarkona í einlægu spjalli um lífið og listina. Margrét Jóna hefur einstakt auga fyrir fallegri hönnun og tók á móti okkur á glæsilegu og listrænu heimili fjölskyldunnar í Kópavogi þar sem hún sýndi okkur fallegu vinnustofuna sína. Hún segir okkur frá ADHD greiningunni sem hún fékk á fullorðinsaldri, hvernig hún hefur tekist á við örmögnun og breytingaskeiðið sem...

8. “Sjúkdómurinn offita er alvöru sjúkdómur” Sólveig Sigurðardóttir 26.10.2023

Í þætti dagsins ræða Bjargey og Sólveig um sjúkdóminn offitu, mikilvægi þess að elska sig eins og maður er og lifa í sátt við langvinna sjúkdóma. Sólveig er forseti ECPO - European Coalition for People living with Obesity og hefur unnið hörðum höndum að því að fræða um sjúkdóminn offitu um allan heim. Sólveig segir sína sögu og hvers vegna hún gefst aldrei upp.

7. “Skór og töskur eru minn veikleiki” - Þórunn Högna 19.10.2023

Þórunn Högna, glæsilegasta kona landsins - stílisti og listrænn stjórnandi í einlægu spjalli um tísku, heimili og hönnun. Þórunn segir frá ævintýrinu með sumarbústaðinn sem þau hjónin hafa verið að taka í gegn og gera að fallegu heimili fyrir fjölskylduna til að njóta samveru í sveitinni. Þórunn hefur einstakan og glæsilegan stíl og deilir með okkur leyndarmálinu hversu mörg skópör hún í fataskápn...

6. “Ég er ekki að fara neina hefðbundna leið” - Sara Odds 13.10.2023

Í þessum þætti spjalla Bjargey og Sara Odds markþjálfi og lögfræðingur um ljósið sem við konur megum láta skína, að halda í gleðina og leika okkur meira. Það má hafa gaman þó lífið sé búið að færa okkur erfið verkefni og áskoranir. Endum við allar í örmögnun og kulnun eða er hægt að lifa lífinu með því að forgangsraða okkar heilsu og vellíðan í fyrsta sæti?

5. “Ef ég fengi að ráða þá væri sófinn óþægilegri” - Hildur Gunnlaugsdóttir 06.10.2023

Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt, umhverfisfræðingur, fagurkeri og snillingur með meiru kom í frábært spjall um fjölbreytt verkefni, heimili og hönnun. Hildur er að gera upp hótel í miðbænum, starfar sem arkitekt og er búin að búa sér til fallegt heimili með fjölskyldu sinni. Hildur segir frá því hvernig hún heldur mörgum boltum á lofti samhliða því að hlúa vel að sjálfri sér meðal annars með því a...

4. “Þú situr við stýrið - þú ræður hvar þú ætlar að láta áherslurnar þínar liggja” - Dagbjört Jónsdóttir 21.09.2023

Í þessum þætti ræða Bjargey og Dagbjört um bókina Fundið fé og spennandi námskeið sem fer með fólk í fjárhagslegt ferðalag. Hverjar eru helstu áskoranir sem fólk stendur frammi fyrir þegar kemur að fjármálum? Er skemmtilegt að spara? Fullt af fróðleik og góðum ráðum í þætti dagsins ef þú vilt finna fé!

3. “Við konur þurfum að gera meira af því að peppa hvor aðra áfram” - Helga Magga 14.09.2023

Helga Margrét Gunnarsdóttir samfélagsmiðlastjarna og ofurpeppari kom í stórskemmtilegt spjall um fjölbreyttan starfsferil, að elta ástríðuna og skapa sín eigin tækifæri. Við spjölluðum mikið um næringu enda er Helga Magga mikill snillingur þegar kemur að því að töfra fram girnilegan mat og hvað hreyfing getur gert lífið miklu skemmtilegra.

Listen to the Ofurkona í orlofi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.