Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.
Author
Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 16, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#24 Námsorðaforði og notkun gervigreindar - Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson 16.06.2026 37:26
Námsvarpið fékk til sín félagana (Sigurð) Fjalar Jónsson og Hjörvar Inga Haraldsson kennara í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við ræddum um kennslu þeirra í orðaforða þar sem þeir nýta gervigreindina til þess að aðstoða sig við að vinna á markvissari hátt. Þá ræddum við um skort á námsorðaforða í kennslustofunni og hvernig hann hefur áhrif á lesskilning og námsárangur og hvernig gervigreind getur...
#23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson 29.05.2026 31:01
Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan hélt íslensk málnefnd málþing um námsorðaforða og læsi þar sem frummælendur voru Dr. Ármann Jakobsson sem fjallaði um hrakandi læsi nemenda á íslensku, Dr. Elín Þöll Þórðardóttir sem fjallað...
#22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir 18.05.2026 42:34
Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi. Ítarefni https://www.harts.is/ https://www.johannabirnabjartmars.com/ https://noredreviews.org/index.php/NJSRE/article/view/6736/11285
#21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir 25.03.2026 51:22
Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef? Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almen...
#20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir 05.03.2026 50:03
Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við ge...
#19 Máltaka, málþroski og málfærni - Iris Edda Nowenstein 12.02.2026 43:47
Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi íslenskumælandi barna og fjölgun barna með íslensku sem annað mál. Ítarefni: https://pubs.asha.org/doi/10.1044/2023_JSLHR-23-00117 https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?cas...
#18 Skriftarkennsla og nýtt skriftarefni - Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir 20.01.2026 26:46
Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Ítarefni: https://skriftarvefur.mms.is/ https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/skrift_handbok/
#17 Heimalestur - Auður Soffíu Björgvinsdóttir 03.12.2025 41:17
Námsvarpið fékk til sín Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur til þess að ræða heimalestur en hún hélt fyrirlestur á Menntakviku fyrr í haust um niðurstöður rannsóknar um heimalestur.
#16 Þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda - Ásdís Jóhannesdóttir 19.11.2025 27:48
Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda. Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni: http://hdl.handle.net/1946/45566 https://hdl.handle.net/1946/49959
#15 Miðja máls og læsis - Dröfn Rafnsdóttir 01.10.2025 22:16
Námsvarpið fékk til sín Dröfn Rafnsdóttur deildarstjóra Miðju máls og læsis til þess að ræða upphaf deildarinnar, verkefni hennar og framtíð. Miðja máls og læsis var sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg en er núna staðsett hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Meira um deildina má sjá hér inni á þessari krækju: https://mml.reykjavik.is/
#14 Læsi í Hólabrekkuskóla - Sólveig Edda Ingvarsdóttir 13.08.2025 31:44
Námsvarpið fékk til sín Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur sérkennara/verkefnisstjóra í Hólabrekkuskóla og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða um læsi í Hólabrekkuskóla og hvað þau hafa verið að gera þar.
#13 Viltu vera MEMM - Fríða Bjarney Jónsdóttir 01.07.2025 32:02
Í þessum þætti ræðum við við Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem er samhæfingarstjóri MEMM verkefnisins hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um MEMM verkefnið – eða „Menntun, móttaka og menning“. Þetta er metnaðarfullt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku samfélagi, koma á samræmdu verklag...
#12 Innleiðing vel rannsakaðra aðferða til að efla hegðun og vellíðan barna í samstarfi skóla og foreldra - Margrét Sigmarsdóttir 30.05.2025 48:33
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan fékk til sín Dr. Margréti Sigmarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða rannsökuð prógrömm fyrir foreldra og skólakerfið sem stuðla að vellíðan allra barna. Einkum þeirra sem glíma við hegðunar- og tilfinningalegan vanda. Það er ekki nóg að hafa réttu leiðirnar,heldur þarf líka að standa rétt að innleiðingu. Svo þarf að skoða vel ef a...
#11 Geðrækt í skólastarfi - Bergljót Gyða Guðmundsdóttir 06.03.2025 15:06
Námsvarpið fékk til sín Dr. Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur til þess að ræða geðrækt í skólastarfi. Hér er hlekkur á skýrslu sem embætti landlæknis gaf út og nefnd er í þættinum ítarefni: https://island.is/frett/Ny-skyrsla-um-namsefni-og-heildraena-nalgun-til-ad-efla-felags-og-tilfinningafaerni-i-skolum Síðan er hér hlekkur á eina góða yfirlitsheimild um geðrækt í skólum/félags- og tilfinningafærni...
#10 Ritunarramminn - Katrín Ósk Þráinsdóttir 19.02.2025 22:18
Ég fékk til mín Katrínu Ósk Þráinsdóttur læsisfræðing hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til þess að ræða ritunarrammann sem er í vinnslu hjá stofnunni.
#9 Bein kennsla - Guðrún Björg Ragnarsdóttir 18.12.2024 27:55
Ég fékk til mín Dr. Guðrúnu Björgu Ragnarsdóttur lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og ræddum við um Beina kennslu (e. Explicit Instruction). Einnig ræddum við um stýrða kennslu og fimiþjálfun. Ítarefni: Morningside Academy, einkaskóli í Seattle sem ég minntist á: https://morningsideacademy.org/ Heimasíða stofnunar fyrir Stýrða kennslu: https://www.nifdi.org/ Heimasíða um Beina kenn...
#8 Lanis skimunarlistinn - Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Þóra Másdóttir 29.11.2024 26:36
Ég fékk til mín dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði HÍ og dr. Þóru Másdóttur dósent á Heilbrigðisvísindasviði HÍ til þess að ræða Lanis skimunarlistann. Tjáskipti teljast til grundvallarmannréttinda. Erfiðleikar í tjáskiptum leikskólabarna geta haft neikvæð áhrif á síðari lestrartileinkun þeirra, námsframvindu, félagsfærni, líðan og tilfinninga...
#7 Lesfimi - Auður Soffíu Björgvinsdóttir 30.10.2024 37:56
Í þessum sjöunda þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín Auði Soffíu Björgvinsdóttur aðjúnkt og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða lesfimi. Hérna er ítarefni: Lestrarstiginn https://nancyyoung.ca/the-ladder-of-reading-writing/ Íslenska útgáfan á engan samastað enn, en hann er í viðtalinu við Jan https://skolathraedir.is/2024/06/16/vidtal-vid-dr-jan-hasbrouck/ Foreldraf...
#6 Fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi - Sigríður Ólafsdóttir 24.09.2024 33:14
Í þessum sjötta þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín dr. Sigríði Ólafsdóttur dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands með sérhæfingu í læsi og fjöltyngi ásamt orðaforða til þess að ræða um fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi Hérna er hægt að nálgast skýrsluna: Stjórnarráðið | Ný úttekt OECD um innflytjendur á Íslandi: Mikilvægt að setja inngildingu innflytjenda á dag...
#5 Endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilningur - Kristján Ketill Stefánsson 07.05.2024 59:23
Í þessum fimmta þætti Námsvarpsins fékk ég til mín Dr. Kristján Ketil Stefánsson lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og ræddum við um endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilning. Hérna er hægt að horfa á upptöku um endalok meðaltalsins: The Myth of Average: Todd Rose at TEDxSonomaCounty (youtube.com) Hér er svo krækja inn á Reading Rockets: Concept-Oriented Reading Instruction (...
#4 Nemendur með lestrarvanda í íslensku skólakerfi: Sóknarfæri - Guðbjörg Rut Þórisdóttir 10.04.2024 52:22
Ég fékk til mín Guðbjörgu Rut Þórisdóttur læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og formann Félags læsisfræðinga og við ræddum um lestrarvanda í íslensku skólakerfi og sóknarfærin. Hérna er skýrslan sem við ræddum um í þættinum: 1759.docx (live.com)
#3 Þróun málhljóða og framburðar hjá börnum - Þóra Másdóttir 02.04.2024 42:07
Í þættinum ræði ég við Dr. Þóru Másdóttur dósent í talmeinafræði við HÍ og talmeinafræðingur á stofu um þróun málhljóða og framburðar hjá börnum.
#2 Málörvun leikskólabarna - Jóhanna Thelma Einarsdóttir 25.03.2024 53:45
Námsvarpið fékk til sín Dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur og ræddi við hana um málörvun leikskólabarna.
#1 Niðurstöður PISA - læsi - Sigríður Ólafsdóttir 26.02.2024 1:01:53
Niðurstöður PISA - læsi Hérna er hægt að lesa íslensku skýrsluna um PISA 2022: https://mms.is/sites/mms.is/files/pisa_2022_helsta_island.pdf
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.