Evrópuhreyfingin

Meginlandið

Education IS ↓ 15 episodes

Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.

Author

Evrópuhreyfingin

Category

Education

Podcast website

www.evropa.is

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni 05.07.2026

Hr. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti lýðveldisins er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Sjálfstæðið og fullveldið eru helstu umræðuefni þáttarins en Guðni fer rækilega yfir sögu þjóðarinnar þegar kemur að þeim málum, í samhengi við þorskastríðin, Kalda stríðið og þátttöku Íslands í stofnunum á alþjóðavettvangi.

Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn 28.06.2026

Að þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Meginlandið XIII: Efnahagsmálin 07.06.2026

Meginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum. Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum v...

Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann 31.05.2026

Gestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.

Meginlandið XI: Evrópudagurinn 10.05.2026

Það var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu. Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess a...

Meginlandið X: Samstarf Íslands við Evrópu 03.05.2026

Evrópuumræðan er á fleygiferð og nýjar upplýsingar um Evrópusambandið birtast okkur daglega. Gestur þessa þáttar Meginlandsins er reynslubolti í stjórnmálum og jafnframt einn af virkustu greinahöfundum um Evrópumál. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætis- og fjármálaráðherra, sjávarútvegs- sem og dómsmálaráðherra fer yfir fortíð og framtíð samstarfs Íslands og Evrópu í skemmtilegu og upplýsandi spjalli.

Meginlandið IX: Allt um ESB 12.04.2026

Gestur þáttarins er Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst sem hefur stundað rannsóknir á alþjóðamálum um áratugaskeið og meðal annars skrifað bókina Frá Evróvisjón til Evru.

Meginlandið VIII: Aðildarviðræður 29.03.2026

Gestur þáttarins er Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir lektur við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti. Í umræðunni hefur borið á misskilningi um það hvernig aðildarviðræður fara fram og við hvern Ísland er að semja. Yfir þetta er rækilega farið í þættinum.

Meginlandið VII: Þjóðaratkvæði 29. ágúst 08.03.2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi. Um þetta var tilkynnt á föstudag og kemur mörgum á óvart hve skammt er til kosninga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur þáttarins og talar meðal annars um upplýsingaóreiðu, afskipti erlendra ríkja og hvað sé í húfi fyrir okkur Íslendinga.

Meginlandið VI: Aðildarviðræður 22.02.2026

Að þessu sinni ræðir Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar HR, við þau Helgu Völu og Pál Rafnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, hvernig þær gætu mögulega litið út og hvort undanþágur séu á teikniborðinu eða ekki.

Meginlandið V: Unga fólkið 08.02.2026

Gestir þáttarins eru þau María Malmquist og Sverrir Páll Einarsson en María hefur verið virk innan Ungra Evrópusinna og Sverrir er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Meginlandið að þessu sinni er helgað unga fólkinu og vangaveltum um áhugaleysi þeirra á Evrópusambandinu.

Meginlandið IV: Efnahagsmálin 25.01.2026

Í fjórða þætti Meginlandsins er sjónum beint að efnahagsmálunum og erlendum viðskiptum Íslands, sem og samkeppnisskorti á Íslandi. Gestur þeirra Helgu Völu og Páls Rafnar er Gylfi Magnússon prófessor og fyrrverandi ráðherra.

Meginlandið III: Ísland á alþjóðasviðinu 28.12.2025

Gestir þáttarins eru þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherrar. Í þessum sérstaka hátíðarþætti ætlum við að horfa til alþjóðlegs samstarfs í víðri merkingu og rödd Íslands í alþjóðakerfinu. Gestir þáttarins eru reynsluboltar í pólitík en koma einnig úr ólíkum áttum og hafa því líklega ólíka sýn á stöðu Íslands á alþjóðasviðinu.

Meginlandið II: EES-samningurinn 13.12.2025

Í þessum þætti beinum við sjónum okkar að EES samningnum, sem varð þrjátíu ára í fyrra og hefur, að margra mati, að stórum hluta skilgreint samband Íslands við Evrópusambandið. Gestur Meginlandsins er Dóra Sif Tynes lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti. Dóra hefur starfað hvort tveggja hjá Eftirlitsstofnun EFTA og starfsstöð EFTA í Brussel, auk þess sem hún hefur rekið fjölda mála fyrir EFTA dóm...

Meginlandið I: Fullveldi Íslands 30.11.2025

Í dag hefur göngu sína Meginlandið – nýtt Hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar. Hlaðvarpið er leitt af Páli Rafnar Þorsteinssyni og Helgu Völu Helgadóttur en ætlun þeirra er að halda uppi umræðu um Evrópumál – Evrópusambandið og alla anga þess hvað felst í því að halda mögulega áfram aðildarviðræðum við þetta ríkjasamband. Þau munu leitast við að takast á við Evrópumálin bæði á dýptina og breiddina - al...

Listen to the Meginlandið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.