RÚV Hlaðvörp

Læsi

Education IS ↓ 35 episodes

Læsi og lesskilningi barna á Íslandi hefur hrakað hratt á undanförnum árum þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til þess að sporna við þessari þróun. PISA-rannsókninn 2022 leiddi í ljós að tæplega helmingur 15 ára drengja býr ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi, sama gildir um tæplega þriðjung stúlkna. Niðurstaðan er áhyggjuefni fyrir þjóðina alla. Í þáttaröðinni Læsi er rætt við fjölbreyttan hóp fólks sem kemur að skóla- og fræðslumálum á Íslandi. Fólk sem leggur sitt af mörkum til að styðja við fjölbreytta flóru nemenda í skólum landsins. Þáttaröðin Læsi er framleidd af Rás 1. Umsjón og dagskrárgerð:...

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: shows.acast.com

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Education

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Oct 27, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla 27.10.2026

Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár. Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og tæknimaður...

Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar 20.10.2026

Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sý...

Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur 13.10.2026

Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands? Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaði...

Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir 06.10.2026

Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir...

Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum 29.09.2026

Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn...

5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu 16.06.2026

Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more i...

4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið? 09.06.2026

Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þ...

3. þáttur - Staðan versnar bara 02.06.2026

Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilm...

2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins 26.05.2026

Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendu...

1. þáttur - Börn og biðlistar 19.05.2026

Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast....

5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri 07.04.2026

Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kr...

4. þáttur FSu og MK 31.03.2026

Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursv...

3. þáttur Tækniskólinn 24.03.2026

Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum....

2. þáttur - Skortur á faglegri forystu 17.03.2026

Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir. Hosted on Acast. See aca...

1. þáttur Mælingar og margt fleira 10.03.2026

Mjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir af...

7. Virði íslensks stúdentsprófs 30.11.2025

Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársæls...

6. Við erum alls konar 23.11.2025

Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardót...

5. Kennaramenntun og faggreinar 16.11.2025

Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. Það vantar húsnæði 09.11.2025

Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðr...

3. Námsmat og námsefni 02.11.2025

Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason...

2. Er skólakerfið á villigötum? 26.10.2025

Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Við...

1. Samræmi lítið sem ekkert 19.10.2025

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

6. Bekkjarkerfi eða áfangakerfi 14.05.2025

Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur...

5. Samstarf á milli skólastiga 14.05.2025

Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefu...

4. Hvað ef þú passar ekki í boxið? 14.05.2025

Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið...

Listen to the Læsi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.