RÚV Hlaðvörp

Læsi

Education IS ↓ 30 episodes

Læsi og lesskilningi barna á Íslandi hefur hrakað hratt á undanförnum árum þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til þess að sporna við þessari þróun. PISA-rannsókninn 2022 leiddi í ljós að tæplega helmingur 15 ára drengja býr ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi, sama gildir um tæplega þriðjung stúlkna. Niðurstaðan er áhyggjuefni fyrir þjóðina alla. Í þáttaröðinni Læsi er rætt við fjölbreyttan hóp fólks sem kemur að skóla- og fræðslumálum á Íslandi. Fólk sem leggur sitt af mörkum til að styðja við fjölbreytta flóru nemenda í skólum landsins. Þáttaröðin Læsi er framleidd af Rás 1. Umsjón og dagskrárgerð:...

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Education

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Jun 16, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu 16.06.2026

Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more i...

4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið? 09.06.2026

Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þ...

3. þáttur - Staðan versnar bara 02.06.2026

Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilm...

2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins 26.05.2026

Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendu...

1. þáttur - Börn og biðlistar 19.05.2026

Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast....

5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri 07.04.2026

Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kr...

4. þáttur FSu og MK 31.03.2026

Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursv...

3. þáttur Tækniskólinn 24.03.2026

Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum....

2. þáttur - Skortur á faglegri forystu 17.03.2026

Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir. Hosted on Acast. See aca...

1. þáttur Mælingar og margt fleira 10.03.2026

Mjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir af...

7. Virði íslensks stúdentsprófs 30.11.2025

Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársæls...

6. Við erum alls konar 23.11.2025

Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardót...

5. Kennaramenntun og faggreinar 16.11.2025

Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. Það vantar húsnæði 09.11.2025

Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðr...

3. Námsmat og námsefni 02.11.2025

Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason...

2. Er skólakerfið á villigötum? 26.10.2025

Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Við...

1. Samræmi lítið sem ekkert 19.10.2025

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

6. Bekkjarkerfi eða áfangakerfi 14.05.2025

Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur...

5. Samstarf á milli skólastiga 14.05.2025

Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefu...

4. Hvað ef þú passar ekki í boxið? 14.05.2025

Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið...

3. Góður kennari er gulli betri 11.05.2025

Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason,...

2. Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga 04.05.2025

Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru: Brynhildur Sigurðardóttir, Freyja Birgisdóttir, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Sigrún Blöndal, Sigurg...

1. Aðalnámskrá og hæfniviðmið 27.04.2025

Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og hæfni- og matsviðmið þeirra verið endurbætt og einfölduð. Í fyrsta þætti Kaflaskila er fjallað um aðalnámskrá og hæfni- og matsviðmið. Viðmælendur eru: Auður Bára Ólafsdóttir, Brynhildur Sig...

7. Leiðir til úrbóta 01.12.2024

Nýtt matstæki, matsferill, verður tekið í notkun í grunnskólum landsins næsta skólaár. Um er að ræða samræmd próf sem mun gefa mun betri upplýsingar en fyrri gerðir samræmdra prófa og nýtast niðurstöðurnar öllum þeim sem koma að menntakerfinu. Það er margt vel gert í skólakerfinu og annað sem mætti gera betur. Ljóst er að samfélagið allt, ekki bara skólasamfélagið, verður að taka höndum saman og s...

6. Heimilin og skólarnir 24.11.2024

Heimilin gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að skólagöngu barna en það eru ekki öll börn sem búa við þær aðstæður að þau njóti þess stuðnings sem þau þurfa á að halda. Norræn rannsókn bendir til þess að það þurfi að bæta ýmislegt sem fram fer innan veggja skólans. Viðmælendur í þætti sex eru Anna Kristín Sigurðardóttir, Dagný Hróbjartsdóttir, Harpa Reynisdóttir, Rannveig Oddsdóttir, Sigurður Si...

Listen to the Læsi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.