Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson

Korter í kosningar

News IS ↓ 20 episodes

Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: maggi@maggi.is

Author

Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson

Category

News

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Áfram Ísland? 07.07.2026

Season 2 hefst með látum með tveimur fyrrverandi þingmönnum sem hvorugir vilja fara í aðildarviðræður 29. ágúst nk. Þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson fara yfir málin og færa rök fyrir þvi hvers vegna þeir ætla að kjósa nei í ágúst.

Engin risaeðlubein takk 16.06.2026

Lokaþáttur Korter í kosninga þegar við kveðjum sveitarstjórnarkosningar. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins kíktu við og fóru hressilega yfir málin. Uppáhalds moment í kosningabaráttunni. Stemmarinn í nýju borgarstjórninni. Hver er partýmálaráðherra borgarstjórnar? Hróshringur Péturs. Engin risaeðlubein og engin hjólhýsabyggð.

Gamlar sálir í nýrri borgarstjórn 09.06.2026

Nítjándu aldar mennirnir Friðjón Reynir Friðjónsson og Stefán Pálsson fóru yfir meirihlutasáttmálann, hlutverk og sjálfsmynd varaborgarfulltrúa, Bestu deildina og HM í fótbolta. Er meirihlutasáttmálinn zero-sum game eða vinna allir? Hvernig verður kjörtímabilið og tekur Miðflokkurinn stjórnarformennsku í Orkuveitunni? Hver verður aðstoðarmaður borgarstjóra og hvort verður golfvöllurinn í Viðey 9 e...

Sætasta stelpan á ballinu 02.06.2026

Sandra Hlíf Ocares og Stein Olav Romslo, nýr borgarfulltrúi mættu til leiks. Nýr meirihluti og nýir borgarfulltrúar taka formlega við völdum í dag. Hver verður í hvaða hlutverkum? Hvernig mun samgöngusáttmáli þróast? Verður  verkefnalisti.is  vinsælasta heimasíða landsins? Hvað gerðist í Hafnarfirði og er betra að ráð bæjarstjóra en að hafa hann pólitískan? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf...

Korter yfir kosningar 17.05.2026

Hróðugur Maggi og tapsár Pétur fóru yfir málin. Sjálfstæðisflokkurinn með stórsigur út um allt land. Hvaða meirihlutar verða myndaðir? Hvaða mál verða tækluð strax? Hvað klikkaði hjá Samfylkingunni í Reykjavík? Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir stjórnmálalandslagið í heild? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.

Hildur & Pétur 14.05.2026

Hildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson. Oddvitar stærstu flokkanna komu til okkar. Sammála um sumt, alls ekki allt. Hluti samgöngusáttmála þarfnast endurskoðunar að mati Hildar. Hvar byrjum við á leikskólamálunum? Pétur segir mörg mistök hafi verið gerð í núverandi meirihluta. Spennandi þáttur af Korter í kosningar, þeim síðasta korter í kosningar. Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og J...

Teppalögð Reykjavík 12.05.2026

Freyr Eyjólfsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir mættu til okkar í upphafi kosningaviku og með sterkar skoðanir á öllu. Á Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa meira? Er Samfylkingin ekki að svara nógu miklu? Ætlar Viðreisn að starfa til hægri? Mun einhver starfa með Miðflokki? Er Einar Þorsteins í meðbyr? Er Flokkur fólksins að ofnota gervigreindina? Er Vinstrið búið að toppa? Enor endurskoðun, Tryggingar...

Kosningaspámenn Íslands 05.05.2026

Bogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson - frægasta tvíeyki landsins síðan Halli og Laddi mættu í stúdíóið. Hver verður næsti borgarstjóri? Hvaða flokkar ná inn og hver græðir á því? Hversvegna má ekki telja atkvæði á meðan kjörstaðir eru ennþá opnir og af hverju geta þingmenn ekki bara breytt kosningalögum?   Korter í kosningar verða í beinni 14. maí á Ölver. Miðasala á stubb.is. Enor endurskoðun, T...

15 dagar í kosningar 01.05.2026

Svo margar spurningar í helgarþættinum. Halda Sósíalistar áfram að vinna oddvitakeppnina? Hver er stefna flokkana og fer hún saman við veruleikann? Hvaða flokkur er með besta slagorðið? Er að sjóða uppúr í Kópavogi? Vinnur Viðreisn til hægri í Reykjavík og vinstri í Kópavogi? Munu hálmstrá Framsóknar breyta einhverju? Hvað er þetta tígrisdýr sem allir eru að tala um? Er hægt að gervigreinda sig í...

Besta starf í heimi 28.04.2026

Það þurfti ekki að toga yfirlýsingarnar upp úr Gísla Marteini Baldurssyni og Svandísi Svavars í nýjasta þættinum en þau eru bæði fyrrverandi borgarfulltrúar. Um hvað snérist leynisamkomulagið í Moskvu? Er Gísli Marteinn með innirödd? Hvers vegna er Svandís ekki í Samfylkingunni og eiga kosningarnar að snúast um mannlíf og mannréttindi? Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styrkja Korter í kosni...

Ríða, drepa, giftast? 21.04.2026

Fyrrverandi borgarfulltrúinn Katrín Atladóttir, Katrín.is og Sorpuprinsinn Gunnar Dofri Ólafsson ræddu um regnboga, Guðmund Sæland, næsta borgarstjóra og hvort það verði tveir slíkir á næsta kjörtímabili. Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styðja við bakið á Korter í kosningar.

Baráttan um Kópavog 17.04.2026

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Korterið. Þau hittust í fyrsta sinn við upptökur á þættinum. Fram að því höfðu þau forðast hvort annað á þorrablótum. Þau lofuðu að vera skemmtileg sem tókst að einhverju leyti, eða hvað? Hvort er veltufjárhlutfallið hjá Kópavogsbæ gott eða slæm...

Gerðum það sem var rétt fyrir Reykjavík 14.04.2026

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi kíktu í Korterið. Kjörtímabilið 2006-2010 snerist í minningunni bara um marga borgarstjóra, dramatík og efnahagshrun. Það mikilvægasta á því kjörtímabili var það sem gerðist á bakvið tjöldin í skipulagsmálum þegar unga kynslóðin í borgarstjórn þvert á flokka sammæltist um að gera það se...

Tekst flokkunum að skila inn framboðum í vikunni? 07.04.2026

Korter vikunnar er tileinkað kosningastjórum um land allt. Diljá Ragnarsdóttir kosningastjóri Samfylkingarinnar og Helga Lára Haarde kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins kíktu til okkar í spjall um starf kosningastjórans og hvernig þeim líður með að vinna á bakvið tjöldin, hvort þeim takist að skila inn löglegum framboðslistum með öllum 46 frambjóðendum, því það má ekki klikka og hvort það sé búið...

Hvað er Borgarlína? 03.04.2026

Byrjendanámskeið í Borgarlínu með Davíð Þorlákssyni nýjum framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins. Hvernig lítur planið út? Er samgöngusáttmáli rofinn ef Borgarlína er sleginn af borðinu? Hvað er meira í samgöngusáttmála?  Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar 

Var Ari stunginn af Pírata? 31.03.2026

FM Belfast söngvarinn Bjössi “Borko” Kristjánsson og kosningagreinandinn Silja Rán Arnarsdóttir fara yfir stöðuna. Sameiningar sveitarfélaga, besti oddvitinn, Reykjavík, Hafnarfjörður, Drangsnes og Lars Løkke Rasmussen. Þökkum Enor endurskoðun, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.

Fyrsta kosningaspáin 24.03.2026

Fyrsta kosningaspá Korter í kosningar er kynnt í upphafi þáttar. Gestir eru Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar í Garðbæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frambjóðandi í 3. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Líflegar og skemmtilegar umræður um Garðabæ og Reykjavík og allt þar á milli.

Verður hægt að endurtaka ævintýri Besta flokksins? 17.03.2026

Sálirnar í Besta flokknum Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og S. Björn Blöndal fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra útskýrðu fyrir okkur hvernig flokkur sem bauð einu sinni fram og aldrei aftur - gjörsigruðu kosningarnar árið 2010. Ásamt því að líta um öxl spáðu þeir í spilin fyrir komandi kosningar þann 16. maí nk.  Enor endurskoðun og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosningar.

Kosningahismið 10.03.2026

Hlaðvarpskempurnar og goðsagnirnar Árni og Grétar úr Hisminu komu til okkar í stöðugreiningu. Mun stemningin ein vinna kosningarnar í vor? Hvernig var hlaðvarpsleikurinn fyrir 13 árum? Má taka úr Góða hirðis gámnum í Sorpu eins og Þór bæjarstjóri?  Samstarfsaðilar Korter í kosningar eru Enor endurskoðun og Jómfrúin.

Eru Píratar búnir að vera í Reykjavík? 06.03.2026

Magnús Már Guðmundsson fyrrverandi borgarfulltrúi og Áslaug María Friðriksdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi spjalla við þáttastjórnendur Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og Pétur Krogh Ólafsson fyrrverandi aðstoðarmann borgarstjóra um borgarstjórnarkosningarnar. Fullt af fyrrverandi í fyrsta þætti af Korter í kosningar.

Listen to the Korter í kosningar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.