Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kóngurinn sem aldrei varð 16.09.2020 31:55
Fjölnir og Villi fara ásamt þrem nafnlausum vinum og banka uppá hjá einhverjum gaur, sem er vonandi til í að vera kóngur Íslands. Hljómar það galið? Það væri ekki í fyrsta skiptið sem það væri að gerast allavega, það vitum við, en hverjir tóku upp á því? Það vitum við ekki, eða hvað? Erum svona 70% viss allavega... eða kannski bara 35% viss... Kóngurinn sem aldrei varð.
Galdrar á Íslandi 09.09.2020 37:38
Í þessum þætti af Já OK! ætla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto, ásamt gesti þáttarinns Magnúsi Rafnssyni sagnfræðing, að berja, gelda, bíta, slá, blinda, klóra flengja. Brenna, reka útlegð á, aflífa og hengja.
Íslensk lukkudýr 02.09.2020 46:41
Fjölnir og Villi andvarpa. Fjölnir er í þykkum kjúklíngabúning og Villi í þykkum eðlubúning. Þeir taka eitt andartak, og síðan setja hausana á sig, það er ælulykt inn í þeim, enda vel notaðir búningar. Dömur og herrar, íslensk lukkudýr.
Nýlendusýningin 26.08.2020 35:47
Í þetta skiptið kíkja þeir Fjölnir og Villi Neto til Danmerkur í Tívolíið í Kaupmannahöfn. Árið er 1905. Þar er ákveðin sýning sem íslenska nýlendu þjóðin er að fara taka þátt í fyrir skemmtanaglaða Dana. Það voru mótmæli. Hvert var markmið Dana með þessari sýningu? Hefðum við kannski átt að mótmæla öðruvísi?
Magni og Rock Star Supernova 19.08.2020 31:52
Fjölnir Grohl, tekur upp mækinn, Vilhelm Nicks tekur upp gítarinn og saman reyna þeir að komast í næstu rokkhljómsveit. Í þessum þætti fer þetta rokkaradúó í kringum rokk-ævintýri Íslands, Magni og hans þáttaka í Rockstar Supernova. Var hann kannski of poppaður fyrir hana? Sumir vildu meina það, en allir voru sammála um að halda sig Magnavakandi svo þeir gætu kostið í Magnavökunni.
Hvíti Dauði og Kristneshæli 12.08.2020 52:24
Sagan endurtekur sig alltaf, en þó ekki í sömu mynd og áður. Og kannski í þeirri mynd sem við spáðum. Hér á landi sem og í heimi hafa komið allskonar plágur sem og allskonar nefndir. Spænska veikin og Hvíti Dauði sem og Berklaveikisnefndin. Nokkur heilsuhæli spruttu upp fyrir berklasjúklinga en þó er eitt hæli sem hvílir mest á minningu þjóðarinnar. Í þessum þætti minnast Fjölnir Gísla og Villi Ne...
Sjálfstæðisbarátta Íslendinga 05.08.2020 32:25
Danmörk og Ísland eru eins og foreldri og barn. Nema barnið verður einn daginn 18 ára og það vill vera með í fullorðna borðinu, en fær hinsvegar fullorðna borðið með frændfólkinu sem það þekkir ekki. Svo að lokum er það fullorðið í alvöru og vill flytja út en foreldrarnir eru alltaf önnum kafin þannig Ísland flytur bara út úr húsi einn daginn meðan foreldrarnir eru í útlandaferð.
Helgi Hóseasson 29.07.2020 42:16
Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Atli Sig setja á sig sérhannaða skyrhanska og taka þaulæfð skyrskot beint í „ríkisóstjórnina“. Sá á skyrið sem á það skilið. Já, þessi þáttur fjallar um Helga Hóseason, oft kallaður mótmælandi Íslands og maðurinn sem næst hefur komið því að afskíra sig þrátt fyrir að hafa ekki fyllt út nein eyðublöð. Krosslafur, ríó og Sameinuðu þjóðirnar koma við sögu en ekki á þ...
Skyndibitakeðjur sem sárt er saknað 22.07.2020 29:54
Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto vel nærðir og saddir. Þessi þáttur er svona post-hamborgaramáltíð þáttur. Ekki póst Burger King þáttur samt, og ekki post-McDonalds heldur, þótt það væri kannski hægt. Með fullan maga er farið yfir alla staði sem hafa fyllt á manni magan í gegnum tíðina en ekki lifað af gagnrýna garnagaul Íslendinga. Stjáni Blái reyndi að selja okkur kj...
Beinin í Faxaskjóli 15.07.2020 37:41
Í þessum þætti af Já OK! ætla Fjölnir Gíslason og Villi Neto að byggja kofa. Þeir moka fyrir grunninum svo kofi fjúki nú ekki í næsta stormi. Þeir finna bein. Er þetta dýrabein? Afhverju er sokkur á endanum á beininu?
Pétur Hoffmann Salómonsson 08.07.2020 48:32
Í þessum þætti af Já OK læra Fjölnir Gísla of Villi Neto af Pétri Hoffmann, um hvernig eigi að vera með almennilegt drip, hver sé í rauninni bestur í bardaga á barnum og reyna að kaupa Selsvardal svo þeir geti keypt 1000 króna krónu. Leggið hluztir á þennan stórskemmtilegan hlaðvarpsþátt.
Blómey og Óskar 01.07.2020 43:23
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um sjálfsþurftarbúskap og hjón sem áttu heldur betur sérkennilegt líf. Að fara í heimsókn til þeirra var eins og að stíga aftur í tímann. Ekkert vatn, ekkert rafmagn, enginn sími, ekkert klósett. Þetta eru hjónin Blómey og Óskar.
Hvíta Stríðið 24.06.2020 29:48
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto um pólítíska augnsýkingu, greiða hjá forsetanum, mögulegt sóttkví, tengsl nútímans við fortíðina og að allt fari í hringi. Hvíta Stríðið eða Drengsmálið? Tjah, fer eftir hvaða sagnfræðing þú spyrð.
Íslenskt Raunveruleikasjónvarp 17.06.2020 47:02
Í þessum þætti af Já OK! stökkva laugaverðirnir Fjölnir Gísla og Villi Neto í djúpu laugina og ræða um gamalt íslenskst raunveruleikasjónvarp. Hér er allt í drasli í stúdíóinu en það er í lagi því planið er hvort sem er að fara á skútuna Ástarfleyið í smá frí. Hver veit nema að piparsveinninn Fjölnir muni fara á biðilsbuxurnar, eða þá að Villi muni stökkva úr bumbuboltanum beint í atvinnumensku?
Afmælisþáttur (og smá fræðsla...) 10.06.2020 39:25
Fjölnir og Villi fara í gegnum gamlar minningar og ferlið við að gera söguhlaðvarp. Það er mikið hlegið, mikil þakklæti og... já... vantar eitthvað meira? Já! Húsagatilskipunin! Ekki gera svona og ekki gera hitt!
Kokteilsósuís 03.06.2020 41:31
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hvað það er sem gerir íslending að íslending. Eru það skattsvik? Eða sundfíkn? Eða er það jafnvel bara að nota sólgleraugu í rigninguu? Sennilega er það margt og ekki hægt að negla það niður en þeir hafa þó á rannsóknarstofu sinni reynt að finna hver kjarninn er. Þetta er tilraun 1 af mörgum.
Silvía Nótt 27.05.2020 34:51
Í þessum þætti af Já OK! skiluru fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um eina alvöru Eurovision stjörnu Íslands OK?! Þú veist?hún bara þú veist? OMG! Þið verðið bara að hlusta á þáttinn skiluru! Miklu betri en einhver nördi að tala um eitthvað leiðinlegt stöff fattaru?
Þvottakonurnar 20.05.2020 53:36
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um þá daga þar sem þvottavélar voru ekki til og hvernig sú lúxus vara breytti lifnaðarháttum íslendinga. En hvernig fórum við að því að þvo föt og önnur klæði fyrir daga þvottavélanna? Jú, sú saga er einmitt áhugaverðari en maður heldur. Við kynnum: Þvottakonurnar.
Jörundur hundadagakonungur (seinni hluti) 13.05.2020 46:41
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um okkar fyrsta íslenska konung. Ekki? Kannski ekki. En hann var algjör hundur. Hann tók yfir Ísland í nokkrar vikur. Samt ekkert illa meint. Þetta var mjög franskt allt saman. Eða tasmanskt? Nei, breskt! Við kynnum: Jörundur hundadagakonungur.
Jörundur hundadagakonungur (fyrri hluti) 06.05.2020 35:50
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um okkar fyrsta íslenska konung. Ekki? Kannski ekki. En hann var algjör hundur. Og hann heillaðist af þeirri “tólgparadís“ sem Ísland er. Þessi þáttur er fyrsti partur af tveim. Við kynnum: Jörundur hundadagakonungur.
Íslenskir Sirkuslistamenn 29.04.2020 55:07
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fólk sem hefur náð langt í mörgu sem flestir geta ekki, eins og að glíma við skógarbjörn. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa sett Ísland á kortið á einn eða annan hátt. En þetta eru þau Ólöf, Jóhann, Baldur, Konni og Jóhannes. En hvað á allt þetta fólk sameiginlegt? Jú þau voru öll Íslenskir Sirkuslistamenn.
Braggamenning og Ástandið 22.04.2020 38:12
Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í moldina og fara í kúluvarp í braggahverfinu, meðan þeir reyna að átta sig á ástandinu og skilja hvað nákvæmlega sé í gangi þarna. Hver eru þessir hermenn? Af hverju eru þeir flottari en við? Hvaðan kemur þessi fúkalykt?
Jón Páll Sigmarsson 15.04.2020 43:00
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hin blíðlega risa sem við áttum einu sinni. Þessi manneskja var ein af þeim sem settu Ísland á kortið. Hann var heimsfrægur. Og hafa margir reynt að stíga í hans spor, eftir hans tíð. Þessi þáttur er svakalegur. En hann er samt ekkert mál, fyrir hann Jón Pál!
Björn Sv. Björnsson 08.04.2020 28:29
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um svartasta sauð Íslendinga... eða svo sögðu Danir. Þeir fíra upp hjól pressunnar og láta aróðursmaskínuna óma um allar trissur, en að þessu sinni er það SS hermaðurinn, og sonur fyrsta forseta lýðveldisins, Björn Sv. Björnsson.
Skattlausa árið 01.04.2020 43:38
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um skattlaust ár á Íslandi? Já þið heyrðuð rétt! Eitt ár þar sem enginn þurfti að borga skatt? EITT ÁR ÞAR SEM ENGINN ÞURFTI AÐ BORGA SKATT
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.