Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Guðrún Á. Símonar (seinni hluti) ásamt Hönnu Ágústu 25.03.2020 47:34
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Hanna Ágústa enn og aftur um engan annan en hina víðsfrægu Guðrúnu Á. Símonar. Þessi þáttur er seinni partur af tveim þáttum, en í þetta skiptið stíga þau inn í boxhringinn þar sem Guðrún stóð á móti Guðlaugi Rósinkranz og grandskoða leikhúsgagnrýni sem skrifuð var af henni. Kannski ein frægasta leikhúsgagnrýni hér á landi?
Guðrún Á. Símonar (fyrri hluti) ásamt Hönnu Ágústu 18.03.2020 40:23
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Hanna Ágústa um engan annan en hina víðsfrægu Guðrúnu Á. Símonar. Þessi þáttur er fyrri partur af tveim þáttum, enda mikið hægt að tala um hana Guðrúnu. Og svo ekki má gleyma vinkonu hennar Þuríði Pálsdóttur, en þær tvær fóru með ljúfa söngtexta, eins og “Mjá mjá mjá mjááááá“.
Vinstri umferð á Íslandi 11.03.2020 34:26
Í þessum þætti af Já OK! spenna Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto bílbeltin og ferðast í kringum heimin á vinstrihelming vegarins á meðan þeir rifja upp hvernig bílfloti íslendinga byrjaði og þegar það þótti eðlilegt að keyra vinstra meigin á veginum. EN SVO ALLT Í EINU BREYTA ÞEIR UM VEGARHELMING! Afhverju?
Djammið 2007 04.03.2020 47:14
Í þessum þætti af Já OK! ætla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto að græða á daginn og grilla á kvöldin. Þeir ætla að halda upp á afmælið sitt í Monakó og ykkur er öllum boðið. Tina Turner mun leika fyrir dansi og 50 Cent mun slútta kvöldinu. Hver veit nema að John Cleese mæti? Þetta verður bara svona lítið afmæli, líkt og nokkrir íslendingar gerðu árið 2007?munið þið djammið 2007?
Hrekkjalómafélagið 26.02.2020 42:34
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Hrekkjalómafélagið frá Vestmannaeyjum. Og já þetta var í alvörunni félag. Það voru alveg félagsgjöld og allskonar.
Birgitta Dúkkan 19.02.2020 27:53
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um dúkku, en ekki bara hvaða dúkku sem er heldur dúkku sem margir sögðu að hún færi “EKKI INNÁ ÞETTA HEIMILI!!!“. En þessi dúkka er engin önnur en, víðfræg þó ekki uppselda, Birgitta Dúkkan.
Skaftáreldar 12.02.2020 37:01
Í þessum þætti af Já OK! fjalla jarðeðlisfræðingarnir Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um eitt mannskæðasta eldgos Íslands. Hvað er það sem veldur jarðskjálftum og eldgosum? Allt það og meira í þessum þætti. Skaftáreldar. Ps. Þeir eru ekki jarðeðlisfræðingar.
Gimli 05.02.2020 27:16
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Gimli. Þið haldið kannski að við séum að tala um fasteignasöluna Gimli eða staðurinn sem fólk fer ef það lifir af Ragnarök í norrænni goðafræði, en neeeeiiii?þeir ætla að fjalla um Gimli, sveitafélag í Manitoba-fylki í Kanada, einnig þekktur sem höfðustaður Íslands!
Íslenski fáninn 29.01.2020 39:29
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Íslenska fánann?eða sem sagt fánana?alla fjóra. Hver er þinn uppáhalds Íslenski fáni?
Baróninn á Hvítárvöllum 22.01.2020 29:31
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um ævi, sem og þann sorga endi af hinum merka Charles Gauldrée-Boilleau. Betur þekktur sem Baróninn á Hvítárvöllum eða Baróninn á Barónstíg.
Básendaflóðið 15.01.2020 43:08
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bæinn Básenda. Hvar voru Básendar og hvernig hvarf bærinn? Hver var Hinrik og hvernig komst hann og fjölskylda hans lífs af? Hvað var Villi að þvælast í Ungverjalandi? Og við hvað vann Fjölnir? Öllum þessum spurningum verðu svarað, nema einni, í þættinum um Básendaflóðið.
Bland í poka með Villa 08.01.2020 27:44
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um allskonar sem þeim hefur langað að fjalla um en ekki náð í heilan þátt. Þetta er svona eins og bland í poka fyrir 100kr.
Fyrsta Áramótaskaupið 01.01.2020 41:29
Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto þreyttir heima á nýársdegi að ræða um áramótaskaup. Sáu þið skaupið? Hvað er fyrsta skaupið sem þið munið eftir? Hvenær var fyrsta áramótaskaupið?
Upphaf andatrúar á Íslandi 25.12.2019 55:06
Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til sín gest, en það er enginn annar en Daníel G. Daníelsson, sagnfræðingur. Þeir eru búnir að slökkva ljósin inn í stúdíóinu og hann Daníel ætlar að fræða strákana um uppruna andatrúar á Íslandi. Svo jafnvel taka þeir smá borðdans?eða þeirra útgáfu sem var byggð á misskilningi.
Frostaveturinn mikli 18.12.2019 28:56
Í þessum þætti af Já OK! sækja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í sig veðrið. Þeir hafa drukkið alltof mikið kaffi og ætla nú að fara að fjalla um veður? VEÐUR!!! Drekka kaffi og fjalla um veður. Hvað gæti verið skemmtilegra en það? Og ekki bara veður, heldur veður í gamla daga?
Íslensku Jólasveinarnir 11.12.2019 30:53
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Kleinusníkir og Lummusníkir um íslensku jólasveinana og hvaða þeir koma. “Jólasveinar, 1 og 74, ofan komu af fjöllunum“. Settu örugglega ekki allir skóinn upp í gluggan í September?
Draugagangurinn á Saurum 04.12.2019 33:32
Í þessum þætti af Já OK! verður framlag Fjölnis Gíslasonar og Vilhelms Neto nokkrar skyggnilýsingar. Við vonum að þið hafið af því gagn og einnig nokkurt gaman. Hér er strax kominn ungur maður, virkilega gott samband í kvöld. Hann er eflaust látinn því hann er klæddur eins og smali, í sauðskinnskóm og ég veit ekki hvað og hvað, allt ákaflega þjóðlegt. Honum langar að segja okkur frá draugaganginum...
Tyrkjaránið 27.11.2019 28:00
Aaaarrrrgggghhhh! Ahoy! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Svartskeggur og Vilhelm Rauði um Tyrkjaránið sem átti sér stað á Íslandi um 17. öld og hvernig það er búið að “Disney-væða“ sjóræningja, aaaarrrrgggghhhh! Þjóðhátííííííííð!
Tivolí í Vatnsmýrinni 20.11.2019 44:21
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fyrsta tívolí garðinn í Reykjavík. Spá svo í hvaða tæki eru skemmtileg, hvaða tæki eru hræðileg og hvaða tæki fær þá til að verða óglatt. Einnig komast þeir að því að þeir kunna ekkert í Bingó. Við kynnum Tívolí í Vatnsmýrinni.
Rapp á Íslandi ft. Kilo 13.11.2019 47:38
Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto góðan gest til sín, engan annan en Kilo. Þeir þrír sátu í þungum þönkum inn í stúdíó hjá RÚV og ræddu um uppruna íslensku rappsenunar á mjööög alvarlegum nótum. Lag í endan: Smjörvi - SÆTARI SÆTARI
Axlar-Björn 06.11.2019 29:36
Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hræddir því í þetta sinn takast þeir á við sögu Axlar-Björns. Gisti enginn hjá Gunnbirni sem klæðin hefur góð. Ekur hann þeim í Ígultjörn. Rennur blóð eftir slóð og dilla ég þér jóð? BÚ! Efni í þættinum er ekki við hæfi barna og óttasleginna.
Leiðtogafundurinn í Höfða 30.10.2019 33:58
Í þessum þætti af Já OK! hittast Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í einvígi í Höfða og ræða um takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál. Þeir virðast ekki vera sammála. Hvor þeirra gefur undan fyrst? Hvor þeirra mun fyrstur lækka skotvopnin. Þeir blikka ekki augum! Fjölnir hvessir brýnnar. Vilhelm færi stráið úr hægra munnvikinu yfir í vinstra. Framhjá fýkur gulur bónus plastpoki. Spenna...
Rauðsokkur 23.10.2019 28:35
Í þessum þætti af Já OK! klæða Fjölnir og Villi sig í eldrautt og fjalla um róttæka hreyfingu sem spratt fram á áttunda áratug síðustu aldar. Við kynnum Rauðsokkahreyfinguna!
Geirfuglinn 16.10.2019 23:54
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hérna?ballhljómsveitina?nei sorry það er annað! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um?royal búðing?nei nei vá! Sorry nú kemur þetta! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um? Geirfuglinn! YES þarna kom það! Smá athyglisbrestur í gangi í þessum þætti.
Álfatrú 09.10.2019 38:56
Í þessum þætti af Já OK! spurja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hvorn annan hvort þeir trúi á álfasögur, fræðast svo um uppruna álfatrúarinnar og krifja til mergjar hvernig bílum álfar keyra á. Trúir þú á álfasögur?
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.