Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hlaðvarpið ásamt Stefáni Ingvari 17.03.2021 46:23
Þessir þáttur er aðeins í léttari kanntinum en í honum verður rætt í stóra samhenginu um hlaðvörp. Villi er í fríi en í stað fær Fjölnir til sín gest en það er enginn annar en grínistinn og listamaðurinn Stefán Ingvar. Villi er þó ekki langt í burtu enda búum við á tækniöld.
Kjötfars 10.03.2021 25:00
Kjötið mitt og kjötið þitt, kjötið okkar allra. Í þessum þætti lesa Villi og Fjölnir um ekta íslenskan mat, kjöfarsið, og rannsaka rætur þess, hvaðan kom kjötfarsið, af hverju og er það hollt? Við vitum að það er gott en er ekki bannað að borða kjötfars ef maður er á ketó? Vonum þið fílið þáttinn eins og við fílum kjötfarsbollur og kálböglar.
Íslenskar talsetningar 03.03.2021 32:44
Múlan, Konungur Ljónana, Looney Toons og...Simpsons. Ísland er mjög duglegt að talsetja erlendar teiknimyndir. En hverjir eru það sem eiga raddirnar á bakvið persónurnar? Og já auðvitað Harry Potter!
iittala, Omaggio, Moomin og við 24.02.2021 29:55
Af hverju dettum við stundum í að vilja ákveðinn hlut svona mikið? Er það því við erum lítil þjóð? Er það því við viljum vera eins og nágranninn? Er það því við eigum of mikinn pening sem við þurfum bara að eyða? Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto fara í málið, en fyrst, þarf Fjölnir að heyra smásögurnar hans Villa.
Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur 17.02.2021 39:00
Á bolludegi fer ég með bolluvönd á kreik. Mér alltaf þykir gaman að iðka þennan leik. Ég bolla og bolla á bossann á þér fast ég slæ bolla og bolla og bollu í laun ég fæ. Já bragðgóðar eru bollurnar, bollurnar, bollurnar, já bragðgóðar eru bollurnar, húllum hæ. Á sprengidegi er bumban að springa hreint á mér. Því magnið er ei smátt sem í magann á mér fer. Af salkjöti og baunum ég saðningu í magann...
Sigríður í Brattholti 10.02.2021 36:05
Í þessum þætti fara Vilhelm í Miðbæ og Fjölnir í Laugardal yfir ævi Sigríðar í Brattholti, sem var í raun og veru, upphaflega "konan sem fór í stríð" að þeirra mati. Gullfossmálið kemur mikið fyrir, og reynir Villi að útskýra fyrir Fjölni, og hlustendur, allt samningabraskið í kringum það. Það er auðvitað mikið grín í þessum þætti, en ekki hvað!
Dracco & POGs 03.02.2021 29:09
Tveir harkarar mætast í stúdíóið og ræða um verur WaccoDracco vísindamannsins og reyna að útskýra fyrirbærið. Ekki bara það heldur skoða þeir líka hvernig "milk caps", seinna kölluð Pogs tóku yfir heiminn. Simpsons Dracco og Cheetos Pogs, myndir þú segja Pogs eða Pox?
Bland í poka með Fjölni 27.01.2021 36:54
Ég ætla að fá bland í poka fyrir 100kr. Og hvað viltu? Ég vil gulan ópal, frissa fríska, piparpúka og Gosa...þessi með aspartam takk! Eitthvað fleira? Ójá svo miklu miklu meira!
Tilkynning, spjall og endurkoma. 20.01.2021 26:50
Þátturinn "Já OK!" snýr aftur! Stuttur og laggóður þáttur, strákarnir fara yfir stöðu mála og upplýsa hlustendur um hvað sé í gangi.
Áramótabumban 30.12.2020 30:22
Fjölnir og Villi mæta upp í stúdíó með fulla maga en tóma heila. Í þessum þætti verður offramboð af fróðleik, svona eins og í matarboðum í desember þar sem er offramboð af gómsætum réttum. Bertel Thorvaldsen og Edvard Eriksen, myndhöggvarar koma fyrir, því þrátt fyrir að vera Danir, eru þeir líka Íslendingar. Fjallað verður um frídaga sem hafa verið teknir af okkur Íslendingum, og spurning hvort a...
Jóladagatal Sjónvarpsins 23.12.2020 47:50
Í þessum þætti af Já OK! setjast Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto í fljúgandi baðker og fjalla um eitthvað sem margir muna vel eftir. Fyrir mörgum gerði þetta jólin og jafnvel er þetta byrjunin á framhaldsþáttafíkn Íslendinga. Mun Blámi komast aftur heim til plánetunnar sinnar? Finna þeir Völund? Mun Lovísa fá fluguppfinninguna í jólagjöf? Hvar eru Pú og Pa?
Íslensk kvikmyndahús 16.12.2020 48:34
Í þessum þætti af Já OK! fara Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto í enn eina gönguna í gegnum Reykjavík. Þeir standa fyrir framan Bíó Paradís og spurja sjálfa sig: “hvað ætli mörg kvikmyndahús hafi starfað á Íslandi?“ Úff yfir allt landið er það langur listi. En hvernig byrjaði kvikmyndamenningin hér á landi?
Keikó 09.12.2020 34:27
Siggi, Keiko, hvað hefði hann heitið ef hann hefði fengið að velja sjálfur? Við munum líklegast aldrei vita það. Eitt vitum við þó. Siggi/Keikó var einn frægasti Íslendingur heims á sínum tíma en þessari frægð fylgdi ekki einungis gleði og velgengni. Líf Sigga/Keiko var margbrotið, óvenjulegt og á köflum erfitt. Strákarnir mæta í galsa upp í stúdíó og reyna að tala um líf Sigga/Keikó en svo er spu...
Mamma og pabbi 02.12.2020 1:12:59
Í þessum þætti af Já OK! leita Fjölnir Gísla og Villi Neto í heimahaga og fá tvo gesti til sín sem geta svo sannalega alið þá upp. Þetta fólk hefur fylgt þeim í gegnum lífið og eru einnig harðir hlustendur þáttana. Strákarnir gera allt sem þau segja þeim að gera enda hafa þau lært sjálf mikið í gegnum lífið, hvort sem það er sem skiptinemi í Portúgal eða hafa alist upp við hliðina á hernum. Við ky...
Common misconceptions about Iceland 27.11.2020 20:57
There is nothing better than stepping out of your house, going partying, meeting a cute girl, bumping apps, marrying, and getting 5000 dollars a month just for marrying her. Yeah Iceland is amazing, but is it really like that? This episode is an English version of the previous episode: Almennur misskilningur um Ísland.
Almennur misskilningur um Ísland 25.11.2020 33:33
Það er ekkert betra en að heilsa upp á álfinn á leiðinni á djammið, hitta sæta manneskju, "bömpa öppum" saman, giftast, og fá 5000 dollara á mánuði. Já, Ísland er frábært land, en er það svona? Þessi þáttur er líka til í enskri útgáfu.
Flugsaga Íslands - Seinni hluti - Flugslysið í Colombo á Sri Lanka. 18.11.2020 1:09:57
Af eilífðarljósi bjarma ber, / sem brautina þungu greiðir. / Vort líf, sem svo stutt og stopult er, / það stefnir á æðri leiðir. / Og upphimin fegri en auga sér / mót öllum oss faðminn breiðir. Þann 15. nóvember 1978 brotlenti Flugleiðavélin Leifur Eiríksson í Colombo á Sri Lanka. Þetta er eitt mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar. Í þessum þætti þræða Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto söguna um þ...
Flugsaga Íslands - Fyrsti hluti - Loftleiðir, Geysir og Sameiningin 11.11.2020 1:12:33
Það á að fljúga suður í dag. Allir sem vettlingi geta valdið flytja niður á bakkann. Konur og karlar og börn. Því kominn er nýi tíminn er loftferðir hefjast um landið á örfáum stundum en áður dagar og vikur varði. Við snúum við örstund eina og yfir kaupstaðinn fljúgum. Fólkið er smápeð er sniglast og smýgur um götur bæjarins, bundið við hagsvon báts eða bletts af ræktuðu landi. Þrælkað og þjáð um...
Sunnudagsdanskan og bask-íslenska blendingsmálið 04.11.2020 35:07
Bi gissuna presenta for ju "Já OK!" Hvað þýðir þessi setning? Tjah, þú munt geta kannski fundið uppúr því þegar þú ert búin að hlusta á þáttinn. Ef þú myndir segja þetta við basknenskan veiðimann á Vestfjörðum myndi hann fatta voða lítið, en allaveg myndi hann skilja hvað þú værir að segja. Men hvis vi siger at Vilhelm og Fjölnir skal snakke om den gamle tradition om at tale dansk om sondagen, sa...
Halloween Special - Reimleikar í Reykjavík 28.10.2020 1:32:38
Það er komið að Halloween Special! Í þessum þætti af Já OK! fara Fjölnir Gísla og Villi Neto í smá göngutúr um miðborg Reykjavíkur og athuga hversu reimt er í höfuðborginni okkar. Á meðan Fjölnir spáir í hvort það sé líf eftir dauða og Villi reynir að ná utan um fjórðu víddina þá fræðumst við um Stúlkuna á Gyllta Kettinum, Steinunni í Dómskirkjunni, harmleikurinn í Menntaskóla Reykjavíkur og hálfi...
María Markan 21.10.2020 35:15
Fjölnir og Villi. Villi og Fjölnir. Saman, spjalla, um lífið, ættartré, Íslendingabók, en fyrst og fremst, tala þeir um Maríu Markan. María Markan var ein helsta söngkona Íslendinga og söng um á víð og dreif. Hún kunni nokkur tungumál, og söng á þeim tungumálum líka. Við biðjum hlustendur um þolinmæði við hlustun á þennan þátt, þar sem COVID þreyta er greinilega að hafa áhrif á íslenskuna hans Vil...
Chicken Street 14.10.2020 41:56
Aðilar takast á hendur, svo segir í sáttmála hinna Sameinuðu þjóða, að leysa hvers konar milliríkja deilumál, sem þeir kunna að lenda í, á friðsamlegan hátt? EN SVO BARA BOOM 5.grein NATO, AÐILAR ERU SAMMÁLA UM, AÐ VOPNUÐ ÁRÁS Á EINN ÞEIRRA EÐA FLEIRI Í EVRÓPU EÐA NORÐUR-AMERÍKU SKULI TALIN ÁRÁS Á ÞÁ ALLA. Þurfum við ekki þá gæslu?friðargæslu?gæsla friðinn?hvað er friðargæsla?
Hugi.is 07.10.2020 44:03
Fjölnir Gíslason (fjolnirg) og Vilhelm Neto (villineto) setja á sig VR gleraugun og stökkva inn í netheima til að gerast hugarar. Hugarar tala um allskonar, en hafa mest áhuga á Counter Strike og Háhraða. Í heimi með fullt af rifrildum lesa þeir nokkra áhugaverða þræði, tala um QAnon og þróun netsins. Strákarnir detta í eitthvað rosalegt skap á netinu. Þetta er hin alræmda síða hugi.is
Fjalla-Eyvindur 01.10.2020 53:13
Í þessum þætti af Já OK! bregða Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto sér í útileigu, þó ekki þá útilegu sem þeir hefðu kosið sér, heldur útlægð, upp til fjalla í óbyggðum. Reynið bara að ná þeim. Þeir munu alltaf ná að stinga af á handahlaupum.
Vilhelmína Lever 23.09.2020 26:04
Í þessum þætti ætla Fjöln(ý) og Vilhelm(ína) að tala um borgarinnuna. Borgarinna þessi, var stundum kölluð Handelsborgarinna, stundum kölluð Vertshús-mína, hún var maður, hún var dugnaðarforkur, hún var móðir, hún var kjósandi á undan sinni samtíð. Hún var Vilhelmína Lever
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.