Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Já OK

History IS ↓ 243 episodes

Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?

Author

Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Category

History

Latest episode

Jan 28, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

2007 aftur og aftur! 08.09.2021

Strákarnir taka tímavél og skoða 2007 aftur, þeir eru báðir þó mishressir, og þess vegna er þátturinn í styttri kantinum. Covid þynnkan heimsækir 2007 góðærið, og Covid þynnkunni er sko alls ekki skemmt.

Saga Reykjavíkur - Seinni hluti - Reykjavík sem ekki varð 01.09.2021

Hvað ef Alþingishúsið hefði ekki verið reist þar sem það er núna? Hvað ef Þjóðleikhúsið væri við endann á Bankastræti? Hvað ef Hallgrímskirkja hefði verið byggð í rómverskum stíl? Þetta er Reykjavík sem hefði geta orðið en ekki varð. Allt þetta og meira í þessum þætti.

Saga Reykjavíkur - Fyrri hluti - Miðbæjarbruninn 24.08.2021

Að þessu sinni ganga Fjölnir og Villi í slökkvuliðið og reyna komast að orsökum á einum mesta bruna sem hefur komið upp á Íslandi til þessa dags þegar mörg hús í miðbæ Reykjavíkur brunnu til kaldra kola og kallast sá bruni Miðbæjarbruninn. Þessi þáttur er fyrri hluti að skipulagssögu Reykjavíkur svo komið ykkur vel fyrir. Það er margt að grafa upp í þessu máli!

Tímahylkið og Íscola 17.08.2021

Tímahylki geyma ótal margt, eins og nokkrar dósir af Tuborg og vítamíntöflur, en hvað myndum við setja í tímahylki skyldi það vera framkvæmt í dag? Nokkrar dósir af Nocco? Lyft? Hildur Yeaoman kjól? Allavega ekki íscola, það er löngu hægt að framleiða það, væri kannski gaman einn daginn að fá að smakka það.

Íslenska olíusamráðið 10.08.2021

Í þætti vikunnar leysir Stefán Ingvar Fjölni af og segir frá samráði olíufélaganna þriggja á Íslandi, sem stóð yfir frá árinu 1993-2001

Lúkasarmálið 04.08.2021

Hver var Lúkas? Hvar var Lúkas? Hver drap Lúkas? Hver drap hann ekki? Hver laug um dauðan hans? Er Lúkasarmálið forfaðir QAnon? Af hverju myndi einhver ljúga um Lúkas? Til hvers? Við vitum ekki neitt, en við getum allavega útskýrt hvað gerðist.

Var Íslendingur þar? 28.07.2021

Að þessu sinni sest Stefán Ingvar í stólinn og leysir Villa af. Fjölnir og Stefán ræða um mjög erfiða ævi sem hann Leifur Muller átti og hans tíma í fangabúðum nasista. Sú saga er lýginni líkust.

Líf eftir þrældóminn - Annar hluti 21.07.2021

Hvernig vinnur maður sér úr þrældómi í landi þar sem maður þekkir engan? Hvað ætli fólki finnist um mann? Eru móttökurnar hlýjar í svona köldu veðri? Fjölnir og Villi halda áfram að skoða líf Hans Jónatans og hvernig líf hans var eftir að hann komst til Íslands.

Hans Jónatan fær frelsið sitt - Fyrri hluti 14.07.2021

Fjölnir og Villi fara yfir ævi Hans Jónatans. Hans var ekki bara manneskja sem frelsaðist undir fjötrum þrældóms, heldur var hann líka klár og hugrakkur maður, sem þurfti að ganga í gegnum margt áður en hann fékk að koma til Íslands. Við förum yfir það allt í þessum þætti.

Íslensk bankarán 07.07.2021

Villi og Fjölnir ætla að ræna banka! Nema hvað að það er þó spurning hvort það borgi sig? Hvað ef þeir komast upp með það með aðeins fulla vasa af klinki í laun? Er það þess virði? Þeir allavegana lofa að sama hvað gerist þá ætla þeir ekki að "snitch'a" hvorn annan. Það eru víst reglurnar á götunni.

Frjálsi Flakkarinn 29.06.2021

Sölvi Helgason var kynlegur kvistur, alveg eins og Villi og Fjölnir hefðu orðið á þessum tíma, en hefðu félagarnir þorað að vera jafn frjálsir og Sölvi Helgafóstri Sokrates Humbolt Schiller Spinoza Kant Hegel Newton Islandus? Örugglega ekki, eða hvað?

Stóra tréspíramálið 23.06.2021

Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir á þjóðhátíð klæddir pollagöllum og með heimabrukkað snaps frá Portúgal. Þessi þjóðhátíð er þó ekki árið 2021 heldur 1943 þar sem mikill harmleikur átti sér stað. Hvaða tunna er þetta? Hvaðan kom hún? Og hvað er í henni?

Vopnasalinn frá Reykjavík 16.06.2021

Villi og Fjölnir vilja selja vopn til einræðisherra, en hvernig fara þeir að því? Besta leiðin væri að fá hjálp frá Bandaríkjaher og fá síðan vopn með hjálp frá Sádí Arabíu, kannski Ungverjaland eða landi sem er ekki lengur til og svo ráða einn eða tvo vini til að hjálpa manni að flytja öll þess tonn af vopnum.

Íslenski þjóðbúningurinn 09.06.2021

Að þessu sinni klæða Villi og Fjölnir sig upp í fronmannaklæði, binda ullarsokkana, spaðafaldur á höfuðið og ferðast aftur í tíman í leit að uppruna þjóðbúningsins. Þessi er rándýr!

Glæpur Glímukappans 02.06.2021

Guðmundur Sigurjónsson var svo sannarlega ótrúleg manneskja. Glímukappi, íshokkíþjálfari, íslenskukennari, góðtemplari og hermaður í fyrstu heimsstyrjöldina. Hann er líka, því miður, eina manneskjan til að fara í fangelsi fyrir að brjóta gegn 178. grein íslenskra hegningarlaga frá 1869. Kynhneigð fólks hefur oft verið umræðupunktur, oftast en ekki að óþörfu, og sést það vel í þessum þætti. Fjölnir...

Laufey Jakobsdóttir - seinni hluti - Grjótarþorpið 26.05.2021

Jú allt í einu birtist bjargvætturinn Laufey blásvört í framan krókódílamaðurinn kemst undan á flótta kerlingin finnur hann loks á útidyratröppunum lamaðan af ótta. Fjölnir og Villi vilja vara við því að sumar umræður í þessum þætti eru um kynferðislegt ofbeldi og geta verið óþægileg fyrir suma.

Laufey Jakobsdóttir - fyrri hluti - Æskuárin 19.05.2021

Laufey Jakobsdóttir hefur oft verið kölluð "amman í Grjótarþorpinu". Hún á sér merka sögu, alin upp við erfiðar aðstæður og kröpp kjör en hefur aldrei látið bugast heldur skipað sér í fremstu viglínu í réttindabaráttunni. Fjölnir og Villi vilja vara við því að sumar umræður í þessum þætti eru um kynferðislegt ofbeldi og geta verið óþægileg fyrir suma.

100! 12.05.2021

Þetta er þáttur númer 100! Af því gefnu ákváðu Fjölnir og Villi að rifja upp fyndin og skemmtileg móment. Þeir mæla með að fólk pissi áður en hlustað er á þáttinn...eða ekki. Þeir ráða ekki hvað þið gerið.

Brasilíufararnir 05.05.2021

Ef þið gætuð flutt til Brasilíu, með alla ykkar vini og vandamenn, myndu þið gera það? Minnum á að ferðin væri að minnsta kosti 5 mánuðir á báti með nokkra æðislega rétti sem innihéldu meðal annars hveitikekki, þið þyrftuð að byggja ykkar eigin hús og líka að læra kannski eitt til tvö tungumál. Já, svo er veðrið ekki einu svipað íslenska veðrinu og svo ertu næstum því eins langt frá Íslandi og þú...

Íslendingurinn í Ríó 28.04.2021

Fjölnir og Villi, fara upp á bát á Akureyri, þaðan til Kaupmannahafnar, stoppa kannski í bjór á Nörre Bodega, fara þaðan til Hollands, kíkja kannski til Amsterdams, þaðan til Malaga og kaupa karton af sígarettum til að stinga pokanum í, og þaðan til Brasilíu. Það vill svo heppilega til að Villi talar portúgölsku og getur þýtt fyrir Fjölni, en ekki var Kristján Ísfeld svo heppinn að eiga einhvern e...

Hallærisplanið 21.04.2021

Hallærisplanið. Þar sem auralausir unglingar komu til að hanga. Ekki bara nokkrir heldur mörg þúsund! Hverja helgi var þetta eins og menningarnótt. Í dag þekkist þetta torg ekki fyrir hallæri heldur góða skyndibita, hjólabretta iðkendur og skautasvell á jólunum.

Pétur Karl Guðmundsson 14.04.2021

Þessi þáttur er 3 stiga! Fjölnir og Villi ákveða að dusta af íþróttaskónum og rifja upp einn merkan kappa sem átti heldur betur stóran feril en það er enginn annar en Pétur Guðmundsson, fyrrum NBA leikmaður.

Sunnefa Jónsdóttir (ásamt Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir) 07.04.2021

Ó, vei þeim sem með órétt lög umgangast og þau tíðka mjög, sannleiknum meta sitt gagn meir, svívirðing drottni gjöra þeir.

Hollywood 31.03.2021

Nú skulum við skella okkur í diskógallann og túpera á okkur hárið. Grísirnir tveir Villi og Fjölnir hafa verið duglegir að fara í ljós þrisvar í viku og mæta reglulega í líkamsrækt. Nú ætla þeir ásamt ykkur kæru hlustendur að kíkja til Hollywood. Við skulum ekki gleyma mynd af bílnum í vasanum. Já! Það er sko enginn grís að þið skuluð hafa grísað á þennan þátt þar sem Grease ræður ríkjum og blikka...

Ljón Norðursins 24.03.2021

Ef Ljón Norðursins var Leó, þá er Villi Letidýr Norðursins og Fjölnir Ugla Norðursins. Strákarnir kafa í líf Ljón Norðursins í þetta skiptið, maðurinn sem vann við allt og gat ort ljóð um ekkert. Hver var Leó, hvað var leó, og hvað gerði leó? Margt og annað, hlustið og njótið.

Listen to the Já OK podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.