Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Af hverju áramót? 27.12.2022 40:38
Já OK óskar hlustendum gleðilegs nýs árs og þakka innilega fyrir það liðna. En af hverju höldum við samt áramót um vetur en ekki um sumarið? Af hverju eru áramótabrennur? Hvað varð um áttunda í jólum? Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir langt til baka í tíma í leit að svörum við þessum spurningum. Bíddu bíddu bíddu...hvað eru flugeldafarþegar?
Fyrsti Idolinn 21.12.2022 30:09
Í þessum þætti fara Villi og Tinna í gegnum fyrsta Idolið (Stjörnuleit) og fyrsta Idolinn (Kalli Bjarna) í Kompunni í Borgarbókasafninu (Grófinni) Fjölnir er veðurtepptur á einhverjum flugvelli og þá kemur Tinna og bjargar Villa eins og svo oft áður
Akureyrarveikin 14.12.2022 28:42
Í þessum þætti fara strákarnir Villi og Fjölnir yfir veiki sem herjaði íbúa á Akureyri árið 1948. Er sú veiki þekkt í dag sem Akureyrarveikin eða Akureyri disease í alþjóðlegum læknaritum.
Hannes Hafstein og Alþingisferðin til Danmerkur 1906 07.12.2022 38:13
Villi og Fjölnir snúa aftur eftir margra mánaða fjarveru með tiltölulega léttan þátt! Hannes Hafstein var fyrsti ráðherra Íslands, ekki bara það, heldur var hann líka fyrsti Inspector Scholae MR. Við tölum aðeins, pinku pons, um Hannes Hafstein og síðan tölum við um alþingisferðina alræmdu.
Njáll Torfason 06.04.2022 36:01
Í þessum þætti kanna Fjölnir og Villi hinn óútskýranlega Njál Torfason, aka mennski segullinn, aka löngutangatogarinn.
Kambsránið 23.03.2022 27:38
Vilhelm Neto, fær aftur til sín Hafþór Óla, sem er farinn að vera kunnugur hlustendum Já OK! Fjölnir er á fullu að undirbúa Hetju í Tjarnarbíó, en hlustendur okkar fá afslátt með að virkja afsláttarkóðann "jaokhetja" á tix.is Í þessum þætti spjöllum við um CSI:Kambur
Draugsmál Sigurðar Breiðfjörðs 16.03.2022 39:08
Þetta er kannski þáttur um draugagang en við lofum að þetta er ekki draugalegur þáttur.
Pylsa/Pulsa - Part 2 09.03.2022 29:49
Munið þið eftir Þorskastríðinu? Þessi þáttur er ekki um það en hann er þó um annað stríð sem ríkti einu sinni á Íslandi. Munið þið þegar pylsusala var bönnuð á Íslandi?
Erpur á Eddunni, buxnalaus með byssu. 02.03.2022 51:24
Í þessum þætti tekur Vilhelm Neto viðtal við Erp, um ákveðið atvik, mjög umtalað atvik á sínum tíma. Viðtalið um atvikið fer svo út í algjört rugl, þó serstaklega að tala um Johnny Naz og íslenskt sjónvarp sem hefur ekki litið dagsins ljós í langan tíma. Ekki gleyma að kíkja á nýja laginu hans, Slaki Babarinn : https://open.spotify.com/track/1rtqbbF3ZN7KprgC2kkJE2?si=4b71593716fa4dc5 Fjölnir skila...
Pylsa/Pulsa 23.02.2022 37:53
Bæjarins Beztu. Mest sígildi pylsustaðurinn í Reykjavík. SS pylsur, þekktasti pylsuframleiðandi landsins. Vilhelm Neto og Hafþór Óli fara yfir stóru pylsumálin í þessum þætti, eða ættum við að segja stóru pulsumálin? Við ætlum allavega að tala um kjötið þarna í görnunum.
Fólkið sem gleymdist 16.02.2022 37:06
Fjölnir biðst fyrirgefningar að hafa gert enn einn þáttinn sem er um þungt málenfi, en í þetta skiptið er það Kópavogshælið, einhver barnatönn í tímanum...
Baskavígin 09.02.2022 39:58
Er það satt að við drápum fullt af Spánverjum? Já og Nei. Já, við gerðum það, en að kalla þá Spánverja væri kannski ekki alveg rétt, þetta eru Baskar. Baskar sem við drápum í síðasta skráða fjöldamorð hér á landi, en af hverju gerðist það? Förum yfir það aðeins…
Að leika nasistum ljótan grikk 02.02.2022 41:02
Við erum komnir aftur baby! Og í þetta skipti ætlum við að fjalla um hann Brynjólf Björgvin Ólafsson. En hvernig tengist hann titil þáttarins?
Pereat! 01.12.2021 34:15
Villi og Fjölnir eru staddir fyrir utan hús rektors Menntaskóla Reykjavíkur. Árið er 1850, þann 19. janúar. Úr fjarska sést hópur pilta strunsa í áttina til þeirra á meðan þeir hrópa “Rektor Sveinbjörn Egilsson pereat!” Hvað skildu þeir vilja mótmæla?
Flökkusögur 24.11.2021 35:26
Á meðan Fjölnir tannburstar á sér afturendann setur Villi glimmerpúður á bibbann. Já OK eru komnir til að dreifa út flökkusögum!
Flatus lifir 17.11.2021 34:52
Flatus lifir enn!
Gammar, drekar, risar og griðungar 10.11.2021 31:31
Í okkar land voru alls konar vættir sem vernduðu landið. Eru þessar verur enn meðal okkar, eða höfum við fælt þær burt með ósvífni okkar gagnvart náttúrunni? Hverjir vernda landið núna? Hvernig á að reisa níðstöng? Virka níðstangir? Villi og Fjölnir rannsaka þetta allt í nýjasta Já OK.
Flóttamenn nasista 03.11.2021 28:38
Fjölnir og Villi tala um flóttamenn frá Þýskalandi á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hvernig ætli hafi verið tekið á móti fólki að flýja nasisma? Eins merkilegt og það sýnist, þá koma viðbrögðin ekkert sérstaklega á óvart. Hvað var þetta fólk? Hvað gerði það? Af hverju kom það hingað?
Slysið sem gleymdist 26.10.2021 36:15
Villi og Fjölnir stimpla sig aftur inn í rannsóknadeildina og krifja upp gamalt sjóslys sem fáir vita um. Mögulega því lítið var talað um það og er þetta slys talið gleymt í minni margra. Hvað kom fyrir á skipinu Röðull?
Ölæðistilkynningarnar 20.10.2021 38:42
Skyldu Fjölnir og Villi einhverntíman þurfa að afsaka fyrir einhverju, þá væri það líklegast að vera fyrir að hafa hleypt smá púka í sér á einhverju djammi. Íslendingar eru þekktir fyrir að kunna að djamma vel, en ef það er eitthvað sem allir Íslendingar vita líka, er það að orðstír deyr aldrei. Til hvers ráðs á maður að taka ef maður hagaði sér aðeins of dólgslega á sínu síðasta djammi? Er ekki b...
Sjónvarpsmarkaðurinn 13.10.2021 38:05
Langar þér í gladrahnífasett? Eða útdraganlegann tommustokk? Hvað með naglalakk sem virkar eins og rúðuskafa? Það er allt og meira en það til sölu í Sjónvarpsmarkaðinum!
Keflavík Music Festival 05.10.2021 40:54
Villi og Fjölnir eru ungir og til í útihátíð. Þeir hafa frétt af því að það sé eitthvað að gerast í Keflavík. Eitthvað stórt, eitthvað mikilfenglegt. Keflavík Music Festival, sæll! Sjá alla þessa artista! Vonandi mæta þau öll... eða hvað?
Herra Ísland og Svipti titilinn. 28.09.2021 42:09
Fjölnir og Villi fara í brúnku, kíkja í ræktina, mastera nokkrar pósur og keppa um titilinn. Skildu þeir vinna, væru þeir nógu góðir til að halda titlinum? Myndu þeir kunna að hegða sig eins og herramenn í hversdagslegu lífi? Hvað ef þjóðin kaus þá en ekki dómararnir? Hvað ef þeir fara til London og tapa? Sama hvað, eru strákarnir Herra Ísland fyrir mömmur þeirra.
Íslenskur matur 22.09.2021 45:45
"Bringukollar? Hvað eru bringukollar?" spurði Villi á meðan Fjölnir sat gáttaður á því að hafa aldrei heyrt orðið "bringukollur".
Slangur 15.09.2021 47:49
Göjr, Villi og Fjölli eru að fara að fá sér sveittan börra og splitta síðan. Menn eru náttúrulega bara að snakka í þessum þætti um slang og eitthvað kjaftæði, bara tveir ferskir sjomlar. Bleller!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.