Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Háfjallasól 21.06.2023 36:46
Ef þú ert að lesa þetta eftir að þú hlustaðir á þáttinn, BUSTED! hahaha! En allavega þessi þáttur er um Háfjallasól og tan.
Bland í poka með Villa 2 14.06.2023 27:55
Villi reynir sóldasaður að kenna Fjölni á hitt og þetta, Þrettándaógleðin eða Þrettándalætin og líka íslenskur eigandi á Premier League liði og svo líka sjónvarpslausir fimmtudagar. Les einhver þennan texta? Má ég pliiiis fá keks.
Laddi lengi lifi 06.06.2023 30:08
Í þessum þætti fara strákarnir ekkert voða langt aftur í tímann, heldur bara til ársins 2018. En þá fékk íslenska þjóðin fyrir hjartað þegar ákveðin mynd var deilt á facebook af einum ástkærasta grínista þjóðarinnar.
Loftárásirnar á Seyðisfirði 31.05.2023 29:48
Fólk sem fer í reglulegar Wikipedia ferðir vissu kannski af þessu, en ekki vissu Villi og Fjölnir að þýskar flugvélar hefðu flogið yfir Seyðisfjörð. Vissu þið þetta? Því ekki vissum við það.
Náttfari 24.05.2023 36:49
Í þessum þætti rifja Villi og Fjölnir upp sögu Náttfara sem lét greipar sópa um eignir borgarbúa sumarið 1976. Lengi fram eftir sumri stóð lögreglan gjörsamlega ráðþrota gagnvart þessum "Skugga" næturinnar.
Iceland: The Movie 16.05.2023 38:00
Í þetta skiptið setjast Villi og Fjölnir fyrir framan skjáinn og horfa á eina góða Hollywood ræmu. "Hver er myndin?" spyrji þið. Jú auðvitað Iceland: The Movie. "En um hvað er myndin?" spyrji þið. Jú auðvitað um hermanninn James Murfin sem er ekki kunnugur íslenskum siðum. Þegar hann daðrar við Katinu, lítur íslenska fjölskyldan hennar á gjörðir hans sem hjónabandstillögu. Þetta kemur James í afar...
Fyrsta Eurovision lag Íslands 10.05.2023 33:52
Villi Neto og Fjölnir Gísla fara yfir fyrsta Eurovision-lag Íslands, Gleðibankinn, eða Bank of Fun eins og það fékk að heita á ensku. Þeir fara einnig léttilega yfir sögu Eurovisions á Íslandi og reyna að koma með réttar staðreyndir svona af og til.
Góðkunningi lögreglunnar með stóru g-i 02.05.2023 31:04
Í þessum þætti skoða Villi Neto og Fjölnir Gísla líf manns sem þeim þykir nú bara ágætlega vænt um. Hann var smáglæpamaður sem gaf með sér og fékk jafnvel samviskubit yfir glæpum sínum. "Hann gaf manni jafnvel síðustu sígarettuna sína" og "gerði aldrei flugu mein". Þetta er auðvitað hinn landsfrægi og góðkunningi lögreglunnar, Lalli Johns.
Sauðnautin á Íslandi 26.04.2023 30:38
Moskusuxar voru einu sinni heitasta dæmið á Íslandi, allir vildu moskusuxa frá Grænlandi. Kannski ekki allir en þónokkrir, alveg nógu margir til að þingið þyrfti að ræða það mál í þaular og að lokum gefa undir. Af hverju er sauðnautin ekki til á Íslandi nú til dags? Vildi hún ekki vera hér? Var leigan of há? Þekkti hún of fáa og átti erfitt með að læra tungumálið? Var það kannski útaf því Islendin...
E-pillu hátíðin - Uxi 95 19.04.2023 40:42
Nú ferðast strákarnir Villi og Fjölnir "to the top of the world: Kirkjubæjarklaustur". Í landi Geirlands og Skaftárhrepps, um kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri, fór fram tónlistarhátíð árið 1995. En fyrir hvað er hún frægust? Þessi hátíð er sögð hafa rutt brautina á vissan hátt fyrir þær komandi tónleikahátíðir á Íslandi.
Ásta Sigurðardóttir 12.04.2023 37:15
Hvernig er hægt að tala um Ástu Sigurðardóttur? Í þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að fara yfir ævi Ástu. Vorum hlustendum við viðkvæm umræðuefni.
Þegar hundar voru bannaðir í Reykjavík 04.04.2023 1:05:53
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir yfir mikla harmsögu og jafnvel eitt af mestu deilumálum sem Íslendingar hafa gengið í gegnum. Þáttur nær yfir 80 ára baráttusögu. Þetta er kannski mál sem eflaust margir vilja gleyma, enda ekki skrítið, þó svo allir voru ekki á sama máli.
Blossi, Astró og óútskýranleg nostalgía 29.03.2023 38:49
Í þessum þætti kíkja Villi og Fjölnir á nokkra hluti. Hluti sem okkar kynslóð horfir á með nostalgískum augum. Hvað er það sem er að láta tiktok kynslóðina dýrka Blossa? Af hverju viljum við, þúsaldarkynslóðin, fá að djamma á Astró? Ef hlutir eru slæmir, verða þeir alltaf að vera þannig? Kíkjum aðeins á þetta!
Kynsælustu Íslendingarnir 21.03.2023 31:29
Úff! Í þessum þætti eru strákarnir smá þunnir...bara smá! Þeir lofa! En þeir láta samt ekkert stoppa sig og fara um víðan völl í þættinum, T.d skoða þeir hverjir eiga íslandsmet í að vera kynsælastir? Og hvað er Jörfagleðin og afhverju var hún bönnuð með dómi?
Flakkarar Íslands 15.03.2023 40:01
Íslenskir flakkarar hafa ekki alltaf verið heitið fyrir einhverja grunsamlega tækni sem þú getur keypt í næstu raftækjabúð. Þessir flakkarar komu til þín, og voru kallaðir ýmsum nöfnum, en þó flestir kallaðir Gvendur. Ef þið viljið vita hvað það þýði að "dúlla fyrir aðra", þá verðið þið að hlusta á þennan þátt.
Skógalín hin dauðadæmdi 08.03.2023 34:51
Skógalín, listrænn ungur maður, sem dæmdur var til dauða á sínum tíma, fyrir svo lítinn glæp að bæði Villi og Fjölnir hefðu getað verið dæmdir til dauða á þessum tíma. Hver var Schovelin? Nei, Skógalín? Nei! Schovelin! Allavega, hver var hann, og hvernig dó hann?
Myntbreytingin 01.03.2023 46:46
Hvað þýðir það að 2 núll voru tekin af krónunni? Hvernig lagaði það ástandið? Hvað er verðbólgudraugur? Í þessum þætti er Villi fjarri staddur, en örvæntið ekki því Stefán, góðvinur Já OK, stekkur inn og kennir okkur allt um myntbreytinguna á Íslandi
Agaskóli 22.02.2023 44:50
Í þessum þætti kryfja Fjölnir og Villi stóra sprengjumálið í Hagaskóla. Hverjir stóðu á bak við verknaðinn? Var það kannski kennari? Er þessi nemandi kannski lögga? Hann er allavegana full gamall til að vera í grunnskóla... jiiiiiii
Geimverur níunnar 14.02.2023 32:29
Hvað myndir þú gera ef þú myndir fara allt í einu fram í tímann 30 mínútur og ekkert hafði breyst? Nema að 30 mínútur hefðu liðið? Kannski myndir þú halda áfram með daginn þinn, eða kannski voru það geimverur. Fólk á þessum tíma var að horfa á FRIENDS, fólk var að horfa á Harrison Ford og fólk voru líka að horfa á geimverur og geimskip.
Leitin að Gullskipinu 08.02.2023 38:17
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir um víðann völl. Gellur, sprengingar, sassy sálfræðingar og fjarsjóðsleit!
Makt myrkranna (hin íslenski Drakúla) 01.02.2023 30:24
Bram Stoker er vel þekktur fyrir að hafa skrifað Drakúla, en skrifaði hann Makt Myrkranna? Það eru margar pælingar á lofti varðandi Makt Myrkranna og þessi saga er í raun og veru enn að þróast. Í þessum þætti ætla strákarnir að upplýsa hlustendur og sjálfa sig um stöðu mála í þessu stórfurðulega máli.
Flugræningjar á Íslandi 25.01.2023 37:39
Í þessum þætti ræða Villi og Fjölnir um atburð sem gerðist 11. september, en þó ekki sá atburður sem okkur minnisstæðastur.
Skítug helgi á Íslandi 18.01.2023 33:28
Fjölnir og Villi ætla sér að taka neðanjarðarlest þegar skilti frá Icelandair lætur þá stoppa og hugsa. Hvers vegna er þetta skilti þarna? Hverjum datt í hug að þetta væri sniðug hugmynd? Hvað hafa íslenskar konur að segja um þetta skilti?
Nylon 11.01.2023 35:54
Góðir hlustendur! Hin íslenska Spice Girls hljómsveitin!
Appollonia Schwartzkopf 03.01.2023 28:01
Villi og Fjölnir mæta kannski smá þreyttir eftir öllu jóla og áramótaamstrinu og reyna að tala um Appolloniu Schwartzkopf. Það rétt svo tekst, en hvað gerðist við þessa merku konu?
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.