Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Já OK

History IS ↓ 243 episodes

Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?

Author

Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Category

History

Latest episode

Jan 28, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Megrunarkúrar á Íslandi 28.02.2024

Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi yfir alsskonar megrunarkúra, þeir vita ekki mikið en eitt vita þeir, þeir virka sjaldan til lengdar. Hægt að syðja Já OK hér :  https://www.buymeacoffee.com/jaok

Stripp á Íslandi: Pan-hópurinn (18+) 21.02.2024

Já OK hefur opnað hjálpartækjaverslun ástarlífsins. Hvað má ykkur? Við eigum til Ruddann, Ótemjuna, Didda hrekkjótta, Tortímandann, Kjaftakerlinguna, Þroskahjálp, Broddgöltinn, Bragðarefinn, Limakrúnuna, Frikka fljóta, Skeiðvarginn og margt margt fleira.

Frakkarnir í Surtsey 14.02.2024

Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Surtsey og reyna að detta í slag við þrjá frakka sem halda þau séu eitthvað betri en við, bara því þeir mæta með uppgjafarfánann á glænýja eyju? Frekar myndum við kalla þessa eyju Squirtey frekar en einhverntíman Frakkaey. Aldrei! Miðar fyrir Já OK Live! fást hér :  https://tix.is/is/event/16745/ja-ok-live-/

Issei Sagawa 31.01.2024

Árið er 1998 fyrir utan Næpuna í Reykjavík. "Afsakið getur þú nokkuð tekið mynd af okkur fyrir utan þetta fallega hús? Ég er nefnilega frægur og er í smá fríi á Íslandi. Fyrir hvað spyrð þú? Fyrir að borða mannakjöt!"

Lífsdjúsinn frá Kína 29.11.2023

Villi og Stefán tala um djúsinn góða frá Kína (eða hvað) sem Íslendingar voru að stúta sig þarna um aldamótin. Í gamla daga var það lífsdjús, í nútíma daga er það hvað… sykurlaus orkudrykkur?

Hringt í Bush 22.11.2023

Villi og Stefán mæta í Stúdíó Harmur og spjalla þar, Egill duglegi mætir og hjálpar þeim. Ef þeir gætu hringt í einhvern, þá myndu þeir auðvitað hringja í einhvern meistara, en annar gaur sem þau spjalla um, hringdi í Bush... næstum því.

Kynlíf með álfum 15.11.2023

Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi út í Heiðmörk og hitta álf, hann veit nákvæmlega hvað þeir vilja, hann veit líka veit hvað þeir vilja en vita ekki að þeir vilja. Heiðmörkin gefur.

Opinberun Hannesar 25.10.2023

Í þessum þætti ætla strákarnir að gera 10 milljóna króna þátt en fá síðan líka styrk uppá 22 millur og síðan styrk líka upp á 10 millur og síðan annan styrk, þannig more money in the bank, en hvaða bank? Ekki gleyma að kaupa (bara ef þið viljið) handa okkur kaffi á https://www.buymeacoffee.com/jaok 

Íslenskt hryðjuverk eða náttúruvernd? 18.10.2023

Villi og Fjölnir eru staddir í bílalest á leið í átt að Akureyri til að mótmæla Laxárvikrjun. Burt með stífluna eða það mun skapast hættuástand í héraði, sem leitt getur til óhappa, sem vér getum ekki borið ábyrgð á...djók

Eau de Portugal 11.10.2023

Í þessum þætti ætla einn portúgalinn íslendingur og einn íslenskur portúgali að tala um að vera með portúgala í vasanum, en hvað er það? Það er spurning. Það er líka spurning hvort strákarnir ættu að byrja að vera með sjóðandi heit atriði í heimahúsum.

Sundafrek íslenskra dýra 04.10.2023

Villi og Fjölnir eru mættir í boxhringinn. Fjölnir er team beljur, en Villi team rollur. Hvor þeirra mun vinna í sundafrekum dýra? Nei ég segi svona! En það er allavegana mikið talað um nautgripi í þessum þætti.

Rasmus Rask 27.09.2023

Kannast þú við nafnið Rasmus Rask? Fjölnir vill ekki kannast við nafnið en Villi kannaðist við það, hvaðan? Það veit hann ekki, en hann kannaðist við nafnið, og ef maður kannast við nafnið er vert að kanna hvaða manneskja það er sem maður kannast við.

Reimleikinn á Höfða 20.09.2023

Í þessum þætti tala strákarnir um hvaðan draugagangurinn á Höfða kemur eða í öðrum orðum um Sólborgarmálið. Smá spooky, smá mistería, smá grín. Góður Já OK kokteill!

White Top ævintýrið 13.09.2023

Í þessum þætti setjast strákarnir niður og súpa á ólöglegum bjór frá Akureyri. Hann er frekar dýr, en hann er allavega góður! Samt ekki.

Fangar og fangelsi 06.09.2023

Fjölnir og Villi tala um fanga og fangelsi...þeir vilja samt ekki fara sjálfir í fangelsi...en það gæti gerst einn daginn...ef þeir prakara yfir sig...

Kynjaskepnur (seinni hluti) 30.08.2023

Umræðan um kynjaskepnur heldur áfram. Hvort segir maður fjörulalli eða fjörulalli? Hvað eru fjörulalli og eiturgedda að gera saman? 

Kynjaskepnur (fyrri hluti) 23.08.2023

Kynjaskepnur eru ekki kynæsandi skepnur. Þetta eru skepnur samt, þetta eru algjör kvikindi, sum ógeðsleg, sum krúttleg, sum steikt, en öll íslensk.

Íslenski "cult" leiðtoginn 16.08.2023

Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í gegnum viðamikla ævi manns sem lítur í fyrstu út eins og hann hafi lifað lífi sex einstaklinga. Gæti verið að hann sé að ljúga? Hvað er Fight Club for Children? Hvað er The Modern Mystery School? Hvað er eiginlega í gangi?

Skurðlæknir Oppenheimers 09.08.2023

Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi stuttlega yfir ævi merkilegs Íslendings, sem fór til New York, og varð helvíti stórt nafn þar. Hversu margir faðmar eru á milli Íslands og New York? Hversu langur tími eru 100 ár? Heimspeki og heimskspeki í þætti dagsins.

Hvalfjarðargangaganga (feat. Eygló Höskuldsdóttir Viborg) 02.08.2023

Skaginn bíður góðann daginn! Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir góðann gest, en það er enginn annar en hún Eygló Höskuldsdóttir Viborg, einnig þekkt sem Alter Eygló. Þau hefja göngu sína við norðurmunna hvalfjarðarganganna ásamt fjölda fólks sem ákváðu að ganga í gegnum göngin árið 1998.

Ávaxtasjúklingar (feat. Kolbeinn Ari Hauksson) 26.07.2023

Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir annan gest til sín, að þessu sinni er það sagnfræðingurinn, grunnskólakennarinn og æskuvinur Villa, hann Kolbeinn Ari Hauksson. Það verður talað um alsskonar ávexti, það verður talað um alsskonar pólitík, og það verður talað um alsskonar bull, enda er það hin klassíski Já OK þáttur, að fræða og bulla.

Fyrstur manna til að ganga hringinn (feat. Palli) 18.07.2023

Í þessum þætti ætlar Fjölnir að ganga hringinn í kringum Ísland, ásamt honum Palla. En þeir eru þó ekki fyrstir til að fá þá flugu í hausinn. Heldur feta þeir í fótspor Reyni Péturs, fyrsti Íslendingurinn til að ganga hringinn í kringum Ísland.

Hjálpum þeim/Help Them 12.07.2023

Í þessum þætti tala Villi og Fjölnir um góðgerðalög, hvað lætur góðgeralag hljóma eins og góðgerðalag? Fara allir peningar í eitt nákvæmt málefni eða alsskonar? Væri "Live Aid" á íslensku "Hjálp í beinni"?

Dillibossaauglýsingarnar 05.07.2023

Þessi þáttur er ekki kúluvarp, þessi þáttur er ekki andvarp, þessi þáttur er ekki æðavarp, þessi þáttur er hinsvegar hlaðvarp og algjört fever dream, líkt og "dillibossaauglýsingarnar" voru.

Jamestown strandið 28.06.2023

1881, riiiisastór tómur bátur strandar á Íslandi. Eru það góðar fréttir fyrir Íslendinga? Hverjir ættu að vera á þessum bát? Hvað gerðist? Hvað er ballasti? Hvað er einn faðmur stór?

Listen to the Já OK podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.