Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto
Já OK
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hrekkjavöku bland í poka Part 1 (Spítalar á Íslandi) 23.10.2024 56:44
https://buymeacoffee.com/jaok Þegar talað er um reimleika er oftar en ekki verið að vitna í sögur sem tilheyra stöðum sem geyma mikil áföll og erfiði, þó ekki sé minnst á sjálfan dauðan. Slíkir staðir eru allt um kringum okkur, en þó eru nokkrir sem eru ríkari slíkum sögum en aðrir.
VIP Partý 16.10.2024 48:39
Kaupa köff : buymeacoffee.com/Jaok Myndu Villi og Fjölnir fá samviskubit yfir því að vera ekki boðnir í VIP Partý á Replay? Myndu þeir reyna að komast inn eftir hálf tólf? Hvaða myndi Geiri Goldfinger segja við þá? Villi og Fjölnir ræða menninguna frá 2011, en hvaða menning er það?
Kallarnir 09.10.2024 46:12
Velkomin í Metróskólann þar sem við kennum Villa og Fjölni að vera hörkufolar í áfangakerfi.
Nonni 02.10.2024 42:17
Nonni var merkilegur maður. Var þessi þáttur kannski of stór biti fyrir Villa? Vonandi ekki. Hann vonar það allavega ekki. Vonandi hefur fólk gaman að þessum þætti. Við skulum vera góð við Villa <3 Takk fyrir leynikaffið Mr. Big!
Nágrannaerjur 25.09.2024 47:24
Hver hefur lent í því að vera komin í góða íbúð eftir langa leit, allt virðist vera að ganga upp í lífinu en svo allt í einu færðu kvörtun frá nágrana "engin læti eftir kl18!" og þú fattar "ónei, ég á erfiða nágrana". Jú margir íslendingar. En leiðindin ganga þó stundum í báðar áttir og enda jafnvel með ofbeldi og dómstólum. Og já talandi um það þá fór Fjölnir smá að tala um eitthvað svona lögmann...
Forræðisdeila Sophiu og Halims 18.09.2024 43:18
Kaupið okkur kaffi : buymeacoffee.com/Jaok Í þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að skilja dómstóla Tyrklands, en fyrst og fremst eru þeir mjög kátir að sjá hvorn annan í stúdíóinu eftir langan aðskilnað.
Sailesh á Íslandi (live þáttur) 11.09.2024 1:07:49
Þú finnur hvernig augun verða þyngri og þyngri þar sem dáleiðslumáttur Já OK dregur þig dýpra og dýpra inn í dáleiðslu ástand. Þú ert villisvín VILLISVÍN! Þessi þáttur er um dávaldinn Sailesh og þegar hann kom til Íslands og tryllti líðinn bókstaflega! Minnum á Umræðugrúbbu Já OK á facebook þar sem hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni.
Allt í grænum sjó! (live þáttur) 04.09.2024 1:12:41
Þessi þáttur var tekinn upp í sumar, þegar fólk var enn vongott um að framundan væri betra veður. Það kom ekki, en læv showið kom og það var algjör stemning! Strákarnir sátu sveittir í Háskólabíóhitanum og reyndu að fræða sitt besta fólk um eina frægustu revíu Íslandssögunnar.
Fjölnismenn (Live þáttur) 26.06.2024 1:38:21
Nú vil ég ekki þetta orðlengjandi vera, heldur Yður guði bífalandi, bréfinu slúttandi og því lokandi, item utan á það skrifandi, mín stígvél upp á mig dragandi, í minn "kjól" farandi (snústóbakslitaðan verandi), mína skikkju eða yfirhöfn yfir mig látandi, minn hatt á mitt höfuð setjandi, lykilinn upp úr mínum vasa takandi, hurðinni upp ljúkandi, út úr dyrunum gangandi, hurðina síðan aftur láta...
Charles Manson í síldinni 19.06.2024 45:06
Umræðuefnið byrjar á 14:04 - Villi, Fjölnir og Tinna ræða þjóðarmálin á milli sín í þessum rammpólitíska þætti, en þar eru stóru málin rædd. Orkupakkinn, auðlindir og nýju airbnb lögin.
Álögin í Málmey 12.06.2024 41:14
Strákarnir sjá flott í hús í sínum draumum, fjölskyldur kalla á þá... "talið um okkur" segja þær, "segið okkar sögu". Villi hlustar, og svarar kallinu.
Björn "ríki" Þorleifsson 05.06.2024 41:12
Umræðuefni þáttarins byrjar á 17:32. Þessi nýr fídus er fyrir þá sem eru (skiljanlega) óþolinmóð yfir því að þátturinn byrji. Við fjöllum um alveg gammel gammel dag rifrildi og rugli.
Íslenska neftóbakið 29.05.2024 58:39
Tóbakið hreint, fæ gjörla ég greint, gjörir höfðinu létta, skerpir vel sýn, svefnbót er fín, sorg hugarins dvín. Sannprófað hefi ég þetta. Tóbak nef neyðir, náttúru eyðir, upp augun breiðir, út hrákann leiðir, minnisafl meiðir, máttleysi greiðir og yfirlit eyðir. - Hallgrímur Pétursson
S.Í.B.S kubbarnir 22.05.2024 28:57
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Legoland Billund og velta fyrir sér hvort það væri ekki skrýtið að búa til S.Í.B.S-land út á landi.
Óeirðirnar á Austurvelli 15.05.2024 39:10
Óður kommúnistaskríll eða landráð framin í skjóli ofbeldis?
Charles Thorson 08.05.2024 36:15
Villi og Fjölnir og 5 aðrir dvergar fara og rannsaka slóðir Vesturfarans Charles Thorson, hver var þessi maður, í stuttu máli? Pun not intended
Draugurinn "að sunnan" 01.05.2024 35:58
Voru ódæðisverkin eftir draug eða voru þau af mannavöldum? Við viljum benda á að í þessum þætti verður talað um gróft ofbeldi gegn dýrum.
Herfylkingin 24.04.2024 41:01
Villi og Fjölnir fá ný vopn, derru með rauðan punkt fyrir ofan derið og fara síðan á æfingu með alla fellana sína undir stjórn Kaptein Kohls. Sá maður er auðvitað danskur fýr og mjög annt um lýðheilsu okkar, og það kunna þeir vel að meta!
Þáttur 200! ft. Berglind Ósk og Kilo 17.04.2024 1:15:44
Já OK! á afmæli! Þáttur 200! Og með okkur eru skemmtilegir gestir að spjalla um daginn inn og daginn út. Förum aðeins á upprunaslóðir Villa og Fjölnis en annars bara glens og grín!
Gísli á Uppsölum 10.04.2024 52:28
Villi sagði aðeins of oft Gísli í Uppsölum því hann ruglaðist og hélt það ætti að segja það þannig, hann er smá lítill í sér yfir því þannig ekkert vera að minnast á það við hann eða í grúppuni. Hann gengst við þau mistök.
Skrítnar íslenskar mataruppskriftir 03.04.2024 48:24
Éttu mig! Uppskrift: 5 Egg, 75gr Sítróna, 250ml Rjómi, 125gr Sykur, 125ml Vatn, 24gr Matarlím. Aðferð fyrir Éttu mig! er í þættinum. Njótið! Bon Appetit!
Tónlistarbland í poka 27.03.2024 36:38
Það er of seint núna fyrir Villa og Fjölni að stofna barnahljómsveit, en það er kannski alls ekki of seint fyrir þá að taka ábreiðu af ítölsku lagi... eða hvað?
Live and Reloaded 20.03.2024 1:30:28
Fyrri live þátturinn okkar í Borgarleikhúsinu. Verði ykkur að því! Um Jörund Hundadagakonung
Klaustursmálið 13.03.2024 44:56
Í þessum þættir fara Fjölnir og Villi á bar og tala um alsskonar hluti, þeir eru í 36 tíma "blackouti" og munu ekki muna eftir neinu. Það sem þeir vita þó ekki er að það er upptökutæki þarna nálægt.
the Björk stalker 06.03.2024 28:25
Þessi þáttur er um mann sem var með mikil andleg vandamál. Við vörum við umfjöllunarefninu.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.