Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

Business IS ↓ 52 episodes

Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is

Author

Íslenski Draumurinn

Category

Business

Podcast website

www.islenskidraumurinn.is

Latest episode

Dec 30, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við 30.12.2025

Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026. Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum. Gleðilega hátíð og takk kærleg...

50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun 16.12.2025

Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hl...

49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin 02.12.2025

Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað...

48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak 18.11.2025

Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.

47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur 04.11.2025

Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af.  Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og h...

46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital 24.06.2025

Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.

45. Sindri Már Finnbogason - TIX 10.06.2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni...

44. Litið til baka 03.06.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem sk...

43. Árið 2025 - Fyrri helmingur 27.05.2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.

42. Hjálmar Gíslason - GRID 20.05.2025

Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikin...

41. Emin Kadri - At­vinnu­maður í hnefaleikum 13.05.2025

Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands. Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa 06.05.2025

Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn...

39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið? 29.04.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, lis...

38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2 22.04.2025

Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumur...

37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1 15.04.2025

Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidr...

36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur 08.04.2025

Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva. Sölvi hefur verið áberandi í íslensku fjölmiðlalífi í yfir tvo áratugi og deilir hér ótrúlegri og fjölbreyttri vegferð sinni. Lestu meira um Sölva og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumu...

35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur 01.04.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað hárgreiðslustofu og orðið að áhrifavaldi með sitt eigið fatamerki. Í þættinum fer hann yfir ferðalagið sem liggur að baki þessu öllu – ásamt því að ræða sjálfsvinnu, sjálfsrækt og þörfina til að hjá...

34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food 25.03.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki, áræðni og sterka framtíðarsýn hefur hann skapað holla og sjálfbæra veitingamenningu á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is

33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ 18.03.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþ...

32. Ivan Svan Corvasce - Kokteilaskólinn, Reykjavík Cocktails, Spritz & Heimabarinn 11.03.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í kringum kokteilamenningu á Íslandi og hefur með elju og ástríðu breytt því hvernig fræðsla, þjónusta og upplifun tengd kokteilum er háttað hér á landi. Hann er einnig höfundur bókarinnar Heimab...

31. Georg Lúðvíksson - Meniga, Dimon & Spesía 04.03.2025

Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki eins og UpDown og Dimon, ásamt því að sitja í stjórnum stórfyrirtækja eins og Icelandair og lífeyrissjóða. Við förum meðal annars yfir hvernig hann komst í Harvard, hvernig hann nálgast fjármá...

30. Linda Pétursdóttir - LMLP 25.02.2025

Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer hún yfir hvernig það breytti lífi hennar og opnaði dyr að tækifærum um allan heim. Linda segir frá uppruna sínum, hvernig hún endaði í fegurðarsamkeppni og hvernig það leiddi hana í óvænta átt...

29. Davíð Örn Símonarson - Smitten 18.02.2025

Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten . Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í um 12 ár. Í þættinum fer hann yfir feril sinn, áskoranirnar sem hann hefur staðið frammi fyrir og hvernig hann hefur byggt sig upp í gegnum ótrúleg verkefni. Lestu meira um Davíð og skráðu...

28. Jón Óli Ómarsson - Go Car Rental 11.02.2025

Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental , frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um hvernig dugnaður, útsjónarsemi og vilji til að læra á öllum sviðum rekstrar geta leitt til stórkostlegs árangurs.

27. Valgeir Magnússon - Pipar/TBWA 04.02.2025

Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 ár og er einn stofnenda og eigenda auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem í dag hefur um 100 starfsmenn og starfstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki. Í þættinum er farið í gegn...

Listen to the Íslenski Draumurinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.