Hlaðvarp Víkurfrétta

Hlaðvarp Víkurfrétta

News IS ↓ 33 episodes

Víkurfréttir eru einn elsti bæjarfjölmiðill landsins en fyrsta blaðið kom út 14. ágúst 1980. Auk vikublaðs rekur fyrirtækið nú tvo vefi, fréttavefinn vf.is sem stofnaður var 1995 og golfvefinn www.kylfingur.is sem hóf göngu sína 2005. Sjónvarp Víkurfrétta framleiðir sjónvarpsefni fyrir Hringbraut. Þar eru þættirnir „Suðurnesjamagasín“ og „Suður með sjó“ úr smiðju Víkurfrétta.

Author

Hlaðvarp Víkurfrétta

Category

News

Podcast website

www.vf.is

Latest episode

Apr 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Arnar Páll Guðmundsson / Suðurnesjamagasín 30.04.2026

Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ í kosningunum í vor. Hann boðar ferska vinda í bæjarpólitíkina og leggur áherslu á að nýta meðbyr flokksins á landsvísu til að hafa áhrif á heimavelli. Hann vill sjá skilvirkari stjórnsýslu, aukna áherslu á velferðarmál og faglega ráðinn bæjarstjóra sem starfar þvert á flokka. Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur í húð og hár. Han...

Gunnlaugur Kárason / Suðurnesjamagasín 30.04.2026

Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ, segir flokkinn mættan til leiks til að vera virkur þátttakandi í öllu pólitísku starfi bæjarins en ekki bara láta sjá sig á fjögurra ára fresti. Hann treystir sér vel til að setjast í bæjarstjórastólinn, vill loka á móttöku hælisleitenda og telur að ríkið eigi að afhenda bænum þá starfsemi sem Kadeco sinnir. Gunnlaugur, eða Gulli eins og hann...

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir / Suðurnesjamagasín 27.04.2026

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins og formaður bæjarráðs síðustu fjögur árin, segir Reykjanesbæ vera að stíga út úr áratug tiltektar og inn í tímabil framtíðarinnar. Hún kveðst hafa öðlast dýrmæta reynslu sem starfandi bæjarstjóri í ólgusjó eldgosa og innviðabresta og býður sig nú fram til að leiða sveitarfélagið á nýjum forsendum. Kjörtímabilið sem senn er á enda hefur ver...

Guðný Birna Guðmundsdóttir / Suðurnesjamagasín 25.03.2026

Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur setið í bæjarstjórn undanfarin þrjú kjörtímabil. Í ítarlegu viðtali við Víkurfréttir fer hún yfir fjárhagslega endurskipulagningu bæjarins, uppbyggingu innviða, áskoranir sem fylgja því að vera ört vaxandi ferðaþjónustubær, samstarfið í meirihlutanum og hvort hún vilji verða næsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Þuríður I. Elísdóttir / Suðurnesjamagasín 16.02.2026

Það er léttleiki og einlæg ánægja í rödd Þuríðar Ingibjargar Elísdóttur þegar hún gengur um nýja hjúkrunarheimili Hrafnistu í Reykjanesbæ með útsendurum Víkurfrétta. „Það er bara alveg dásamlegt að vera komin hingað inn. Aðstæðurnar eru frábærar, bæði fyrir íbúa og fyrir starfsfólk,“ segir Þuríður, forstöðumaður Hrafnistu í Reykjanesbæ. Nýja hjúkrunarheimilið er 80 rýma á fjórum hæðum og stendur v...

Vilhjálmur Árnason / Suðurnesjamagasín 16.02.2026

Vilhjálmur Árnason var efstur í oddvitakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fram fór 31. janúar. Vilhjálmur fékk rúmlega helming atkvæða og mun leiða flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Við fengum Vilhjálm í spjall og spurðum hann spjörunum úr. 

Elenóra Rós Georgesdóttir / Suðurnesjamagasín 23.12.2025

„Jú, það er ennþá draumur að opna bakarí heima á Íslandi og kannski bara í mínum yndislega heimabæ, Keflavík, en þetta er búið að vera viðburðaríkt líf hjá mér undanfarin ár, mjög skemmtilegt en líka áskorun oft á tíðum,“ segir Elenóra Rós Georgesdóttir, bakari eða bakarastelpa úr Keflavík, en hún hefur undanfarin þrjú ár elt ævintýrin í stórborginni London og bakað ofan í gesti og gangandi í vel...

Ástrós Skúladóttir / Suðurnesjamagasín 23.12.2025

Ástrós Skúladóttir er komin sjö mánuði á leið með sitt annað barn, nýbúin að verja doktorsritgerð í erfðafræði og hefur unnið í rúm tíu ár við rannsóknir á hreyfitruflunum og taugasjúkdómum. Hún er uppalin í Keflavík, dúxaði FS og vinnur í dag hjá Amgen deCODE Genetics, áður Íslenskri erfðagreiningu, þar sem hún leitar að lyfjatargetum og lífmerkjum sem gætu gjörbreytt greiningu og meðferð Parkins...

Jón Axelsson í Skólamat / Suðurnesjamagsín 23.12.2025

„Það er mikið að gerast, mikil þróun í gangi, ný verkefni og talsverðar breytingar hafa verið undanfarið hjá okkur í jákvæða átt, þannig að staðan í Skólamat er góð – bæði hjá okkur og á þessum markaði sem við störfum á,“ segir Jón Axelsson forstjóri Skólamatar en fyrirtækið er orðið eitt það stærsta og í hópi þeirra elstu á Suðurnesjum. Það fagnaði aldarfjórðungsafmæli í fyrra.

Súluhafinn 2025 Baldur Guðmundsson / Suðurnesjamagasín 23.12.2025

„Það eru kannski einhverjir eftir. Það eru margir sem eru komnir með Súlu. Júlli bróðir er búinn að fá, Guðný mágkona, og Geimsteinn fékk sem fyrirtæki á sínum tíma. Svo á Björgvin sonur minn Súlu sem Paddy’s fékk á sínum tíma. Þannig að það eru nokkrar í fjölskyldunni,“ segir Baldur Þórir Guðmundsson þegar hann var spurður hvort hann væri síðastur í fjölskyldunni að fá Súluna, menningarverðlaun R...

Safnarinn Ásgeir Hjálmarsson / Suðurnesjamagasín 23.12.2025

Þegar 30 ára afmæli Byggðasafnsins á Garðskaga var fagnað nýlega var Ásgeir Magnús Hjálmarsson heiðraður fyrir áratugastarf við söfnun og varðveislu minja. Hann var meðal þeirra sem börðust fyrir því að byggðasafn yrði stofnað í Garði og veitti því forstöðu um árabil. Eftir að hann lét af störfum sem safnstjóri Byggðasafnsins á Garðskaga og fór á eftirlaun hefur hann byggt upp öflugt einkasafn í B...

Tómas Knútsson og Blái herinn / Suðurnesjamagasín 23.12.2025

Blái herinn fagnar 30 ára afmæli á þessu ári, 2025. Suðurnesjamagasín fékk herforingjann Tómas J. Knútsson í viðtal á þessum tímamótum.

Birgir Guðbergsson og starfið hjá Sameinuðu þjóðunum // Video 16.04.2025

Keflvíkingurinn Birgir Guðbergsson lauk nýverið þrjátíu ára starfsferli hjá Sameinuðu þjóðunum og nýtur nú eftirlaunaáranna. Hann tekur undir það að hann sé flökkukind en á þessum árum hefur hann starfað við misjafnar aðstæður á stríðshrjáðum svæðum í Austur Evrópu og Afríku. Birgir settist niður með ritstjóra Víkurfrétta í gott spjall.

Birgir Guðbergsson og árin hjá Sameinuðu þjóðunum 16.04.2025

Keflvíkingurinn Birgir Guðbergsson lauk nýverið þrjátíu ára starfsferli hjá Sameinuðu þjóðunum og nýtur nú eftirlaunaáranna. Hann tekur undir það að hann sé flökkukind en á þessum árum hefur hann starfað við misjafnar aðstæður á stríðshrjáðum svæðum í Austur Evrópu og Afríku. Birgir settist niður með ritstjóra Víkurfrétta í gott spjall

Suður með sjó // Guðmundur Karl Brynjarsson 11.04.2024

Guðmundur Karl Brynjarsson sækist eftir kjöri til embættis biskups Íslands en biskupskjör hefst 11. apríl og því lýkur 16. apríl. Gummi Kalli er Keflvíkingur og ólst upp í Holtunum í Keflavík. Hann hlustaði á pönktónlist, féll ítrekað á mætingu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og segir í samtali við Víkurfréttir að um tíma hafi hann verið afhuga kristinni trú. Á tvítugsafmælinu kom blað frá KFUM&K...

Aðalgeir Jóhannsson - Alli á Eyri // Hlaðvarp Víkurfrétta 11.03.2024

„Ég er nýbúinn að skrifa bók sem ég nefni Grindavíkurblús,“ segir Aðalgeir Jóhannsson eða Alli á Eyri eins og hann er oft kallaður. Hann er hálfur Færeyingur, bjó ungur þar um tíma en hefur þar fyrir utan alltaf búið í Grindavík. Hugur hans til atvinnu snerist fljótt til netagerðar og eftir að hafa stofnað og rekið netagerðarfyrirtæki til langs tíma með Kristni bróður sínum, bættist við þann rekst...

Suður með sjó // Sævar Þorkell Jensson 15.02.2024

Sævar Þorkell Jensson, betur þekktur sem Keli, hefur í næstum 60 ár, frá því hann var ungur strákur, safnað úrklippum og eiginhandaráritunum tónlistarfólks í úrklippubækur. Bækurnar eru mikil tónlistarverðmæti og urðu tilefni sérstakrar sýningar í Rokksafni Íslands í Reykjanesbæ seint á síðasta ári. Keli hefur lagt á sig mikla vinnu við að safna áritunum í bækurnar sínar og segir í viðtali við Vík...

Suður með sjó // Jóhann Smári Sævarsson 05.01.2024

Óperusöngvarinn Jóhann Smári Sævarsson hefur sungið með stærstu hljómsveitum í heimi, í stærstu tónlistarhúsunum en kom svo heim til Keflavíkur til að kenna söng og stýra karlakórum. Jóhann Smári Sævarsson er einn af sonum Keflavíkur sem hin síðari ár hefur látið mikið að sér kveða í menningarlífi Suðurnesja og ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að því að setja upp menningar...

Suður með sjó // Guðbjörg Glóð Logadóttir 08.12.2023

Keflvíkingurinn Guðbjörg Glóð Logadóttir fékk hugmynd að stofnun nýrrar sérverslunar með sjávarfang þegar hún vann í fiskverslun í Boston. Góður gangur í tuttugu ár. Sló í gegn með tilbúnum fiskréttum. Erfitt í byrjun og í hruninu. Fiskur ekki lengur bara mánudagsmatur á Íslandi. Guðbjörg hefur rekið Fylgifiska, sérverslun með sjávarfang, í rúmlega tuttugu og eitt ár. Verslunin er á Nýbýlavegi í K...

Suður með sjó // Grétar og Helgi í Rafholti 26.09.2022

Þeir félagar Grétar Magnússon, gullaldarliðsknattspyrnumaður úr Keflavík, og Helgi Rafnsson, körfuboltamaður úr Njarðvík, lærðu báðir rafvirkjun og þegar litið er til tuttugu ára aldursmunar á þeim er óhætt að segja að það hafi verið frekar óvænt að leiðir þeirra lágu saman en fljótlega eftir það stofnuðu þeir rafverktakafyrirtækið Rafholt. Keppnisskap og reynsla úr íþróttum hefur hjálpað þeim í r...

Suður með sjó // Halla og Hrannar í Kaupmannahöfn 26.09.2022

Í þáttaröðinni Suður með sjó heimsækjum við keflvísku hjónin Höllu Benediktsdóttur og Hrannar Hólm en þau hafa búið í Kaupmannahöfn síðasta áratuginn. Halla er umsjónarmaður Jónshúss sem er nokkurs konar félagsheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn og Hrannar hefur verið leiðsögumaður í borginni og farið margar ferðir með Íslendinga um hana. Jónshús í Kaupmannahöfn er nokkurs konar félagsheimili Íslen...

Suður með sjó // Logi Gunnarsson 26.09.2022

Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson er gestur þáttarins Suður með sjó hjá Sjónvarpi Víkurfrétta. Logi hefur leikið körfubolta í rúman aldarfjórðung og leikur enn körfubolta á hæsta stigi á Íslandi þó svo hann sé kominn á fimmtugsaldurinn. Logi á að baki farsælan feril í atvinnumennsku í útlöndum og hefur líka unnið stærstu titlana með UMFN hér á landi. Páll Ketilsson hitti Loga og ræddi við hann um k...

Suður með sjó // Sigrún Sævarsdóttir Griffiths 26.09.2022

Tónlistarkonan Sigrún Sævarsdóttir Griffiths er viðfangsefni Suður með sjó, sjónvarpsþáttaraðar frá Sjónvarpi Víkurfrétta. Sigrún er að gera athyglisverða hluti í tónlistinni en hún hefur búið í London í mörg ár og starfar við kunnan tónlistarskóla, þar sem hún hefur m.a. unnið með heimilislausu fólki að tónlistarsköpun. Sigrún hefur einnig síðustu misseri unnið að áhugaverðu verkefni hér á landi,...

Suður með sjó // 9. þáttur 2019 // Sigurður Ingvarsson 18.11.2019

Það er óhætt að segja þrjú stór málefni tengist Garðmanninum Sigurði Ingvarssyni. Rafmagn, bæjarpólitík og fótbolti. Hann hefur starfað sem rafvirki í 50 ár og því var fagnað nú á haustdögum. Nokkur hundruð manns sóttu okkar mann og SI fjölskylduna heim í 50 ára afmæliskaffi. Siggi segist hafa verið heppinn í gegnum tíðina, ekki síst að hafa haft eiginkonuna, Kristínu Guðmundsdóttur, sér við hlið...

Suður með sjó // 8. þáttur 2019 // Una Steinsdóttir 18.11.2019

Keflvíkingurinn Una Steinsdóttir segist vera landsbyggðartútta en hún hefur síðustu tvo áratugi verið í framlínu Íslandsbanka en bankaár hennar eru að verða þrjátíu því hún hóf störf í Íslandsbanka árið 1991 og hafði einnig starfað í Verslunarbankanum með skóla. Una er viðmælandi Sjónvarps Víkurfrétta í þættinum Suður með sjó en einnig er rætt við föður hennar og fleiri í þættinum sem var frumsýnd...

Listen to the Hlaðvarp Víkurfrétta podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.