Landsnet
Hlaðvarp Landsnets
Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Jónas Bjarnason & lífið í stjórnstöðinni 10.02.2026 29:25
Stundum leiðir tilviljun okkur á staði sem móta heila starfsævi. Í þessum þætti Landsnetshlaðvarpsins, sem tekinn var um áramótin, hittum við Jónas Bjarnason sem hefur starfað í stjórnstöð Landsnets og Landsvirkjunar í 31 ár. Hann segir frá vegferð sem var bæði krefjandi og skemmtileg, deilir minningum, sögum og innsýn í lífið í stjórnstöðinni. Jónas er nú á leið í nýjan kafla í lífinu og þetta er...
Með vindinn í fangið 12.01.2026 1:24:21
Velkomin í spjallhlaðvarp um orku, framtíð og samtalið þar á milli. Í þessum þætti fengu þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson Karen Maríu Jensdóttur, verkefnastjóra í þróun vindorku hjá Qair Íslandi, í heimsókn í Landsnetshlaðvarpið. Þau ræða vindorku á Íslandi, þróunina fram undan og hvað þarf til að ná góðum meðbyr – með vindinn inn í fangið gjörið þið svo vel. #orkuskiptaskólinn
Leggjum línurnar til framtíðar 09.12.2025 30:44
Í þætti dagsins ætlum við að skyggnast bak við tjöldin í undirbúningi stórra framkvæmda hjá Landsneti og fengum Hlín Benediktsdóttur, yfirmann undirbúnings framkvæmda, að hljóðnemanum þar sem hún leiðir okkur í gegnum ferlið, áskoranirnar, fólkið og framtíðina.
Kerfisjöfnuður, afhendingaröryggi og orkunýting 04.09.2025 40:56
Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu - og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og or...
Úr frystihúsi í friðargæslu og nú verkefnastjóri kerfisáætlunar 20.08.2025 36:52
Hvað eiga kerfisáætlun, friðargæsla, stjórnmálafræði og frystihús í Þorlákshöfn sameiginlegt? Jú – Herdís Sigurgrímsdóttir. Hún er manneskjan sem stýrði frábærum hópi sem vann nýjustu kerfisáætlunina okkar – sem hún segir svera hryggjastykkið í starfsemi Landsnets. Í þætti dagsins spjöllum við við Herdísi um hvernig hún sér kerfisáætlun fyrst og fremst sem samfélagsþróun en líka um framtíðarorkugj...
Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk? 21.07.2025 39:55
Í þessum þætti rýna þau Steinunn, Hallur og Einar í stafræna landslagið, hvernig hefur vefurinn þróast, hvaða hlutverk gegna heimasíður í dag og hvernig hafa samfélagsmiðlar breytt leiknum? Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk? Þau ræða þróunina, staðreyndirnar, möguleikana og jafnvel heimspekina. Hvort sem þú ert forritari, markaðsmaður eða einfaldlega forvitin um hvað gerist á...
" Á endanum snýst þetta bara um fólk " Hólmgrímur Elís 08.07.2025 36:33
Í þessum þætti fáum við Hólmgrím Elís Bragason að hljóðnemanum í Landsnetshlaðvarpinu. Elli, eins og hann er alltaf kallaður, er sérfræðingur á mannauðssviðinu okkar hjá Landsneti. Hann settist niður með Steinunni Þorsteinsdóttur og ræddi áherslur í mannauðsmálum, mikilvægi samskipta og hvernig menning innan fyrirtækja hefur áhrif á fólkið – og árangurinn. ...já, og líka hvort lífið sé blómabeð. Á...
Í stígvélum á vaktinni - Spói og lífið hjá Landsneti 26.06.2025 1:02:26
Sigurður Pétur Ólafsson – Spói – lagði nýverið stígvélin á hilluna eftir heil 45 ár í geiranum, þar af 20 í stjórnstöð Landsnets — eða allt frá stofnun. Hann settist niður með Margréti Evu Þórðardóttur og Steinunni Þorsteinsdóttur og sagði þeim sögur af tímanum í Sigöldu og Hrauneyjum, ræddi vatn og virkjanir — og flugið og flugvélasmíði, sem hafa verið honum hugleikin frá unga aldri.
Draumar, Döðlur og rafmagn 11.06.2025 29:47
Guðrún Ýr Guðmundsdóttir eða Gugga er nýjasti viðmælandi Landsnetshlaðvarpsins. Hún er sumarstarfsmaður hjá okkut, klár verkfræðingur og tónlistarkona í hljómsveitinni Dóra og Döðlurnar. Í þessum þætti segir hún frá því hvernig hún eltir bæði draumana sína í tækni og tónlist, af hverju það er ekki nauðsynlegt að velja bara eitt og auðvitað hvernig lífið hjá Landsneti er að birtast henni. Þetta er...
Samtal við samfélagið 26.05.2025 31:49
Samtalið skiptir okkur hjá Landsneti miklu máli – og í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins ræða Steinunn, Einar, Hlín og Valgerður um mikilvægi góðs samtals við fólkið í nærsamfélagi raflínanna okkar. Hvernig ætlum við að hlusta, miðla og byggja traust? Hvaða lærdóma höfum við dregið – og hvert stefnum við
Unnur Helga, framkvæmdir og flutningskerfi framtíðarinnar 05.05.2025 22:41
Það er margt í gangi hjá okkur hjá Landsneti og í nýjasta hlaðvarpsþætti Landsnetshlaðvarpsins fáum við skýra mynd af stöðunni frá Unni Helgu Kristjánsdóttur, forstöðumanni verkefnastjórnunar framkvæmda. Unnur fer yfir: 🏗️ Hvaða framkvæmdir eru í gangi núna 📍 Hvar þær fara fram og hvers vegna 📅 Hvenær hægt er að búast við að framkvæmdum ljúki 📊 Og hvernig verkefnin eru forgangsraðuð með öryggi,...
Ef lífið væri leikskóli – væri þá Landsnet staðurinn? 22.04.2025 40:05
Hvað gerist þegar sameindalíffræðingur, nútímafræðingur og sagnfræðingur setjast saman við hlaðvarpsmíkrafóninn og ræða orkumál ? Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fékk þá Hall Þór Halldórsson vefstjóra og Erlingur Fannar Jónsson verkefnastjóra í spjall þar sem óvæntar tengingar, ný sjónarhorn og samtal varð til - ekki missa af þessum þætti af Landsnetshlaðvarpinu.
Vörumerki, orkufyrirtækin og fólkið sem elskar að tala um það 09.04.2025 43:25
Í Landsnetshlaðvarpsþætti dagsins fá Steinunn Þorsteindóttir upplýsingafulltrúi og Einar S. Einarsson, forstöðumaður skrifstofu forstjóra hjá Landsneti, til sín að hljóðnemanum þær Heiðu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Orkusölunni og Birnu Lárusdóttur, upplýsingarfulltrúa hjá HS Orku – og saman ræða þau ímynd, traust og þá list að tala um rafmagn með hjartanu.
Að skapa virði fyrir samfélagið með öruggum og sjálfbærum rekstri 01.04.2025 28:02
Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrslan okkar fyrir árið 2024 veitir skýra mynd af árangri okkar á árinu. Hún sýnir hvernig við tryggjum traustan raforkuflutning, eflum afhendingaröryggi og vinnum að sjálfbærri framtíð og fengum við hjá Landsnetshlaðvarpinu þær Margréti Guðmundsdóttur verkefnastjóra og Guðnýju Björg Hauksdóttur framkvæmdastjóra í spjall um skýrsluna og allt það áhugaverða sem þar...
„Þegar þið haldið ljósunum logandi í hamförum, haldið þið einnig voninni lifandi.“ 24.03.2025 24:52
Með þessum öflugum orðum lauk Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur vorfundinum okkar í Hörpu þann 5. mars sl. Í framhaldinu settust þær Sóley og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fyrir framan hljóðnemann í Landnsetshlaðvarpinu og ræddu saman um þjóðaröryggi, rafmagn, viðbúnað og ábyrgð. Hvað merkir það í raun að halda landinu gangandi, sama hvað dynur á?
Leifur Ingimundur og leiðin til Landsnets 20.03.2025 29:57
Leiðin til Landsnets og sánuferðir til Finnlands var eitt af því sem þau Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi og Leifur Ingimundur Runólfsson einn af nýjustu liðsmönnum Landsnets spjölluðu um í þessum Hlaðvarpsþætti. Ekki missa af þessu skemmtilega spjalli – Leifur og og leiðin hans til Landsnets.
Guðný Björg Hauksdóttir, mannauðsmálin og framtíðar vinnustaðurinn Landsnet 04.11.2024 36:57
Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og ræddi við Steinunni Þorsteinsdóttur um mikilvægi mannauðs í umhverfi eins og okkar sem er á fleygiferð. Hún ræddi m.a. um áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hvernig Landsnet vinnur markvisst að umbótum fyrir betri framtíð. Kíktu á samtalið til að fá dýpri innsýn í mannauðsmálin hj...
Úr raforkuverkfræði yfir í upplýsingatækni - Jóhannes Þorleiksson 27.10.2024 22:58
Í þessum þætti hittum við Jóhannes Þorleiksson, nýjan framkvæmdastjóra, sem breytti um kúrs þegar hann réð sig ný verið til Landsnets. Jóhannes deilir hér í spjalli við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa áhugaverðum hugmyndum og markmiðum sem allar eiga að leiða að því að koma manni til tunglsins - kannski samt ekki alveg í orðsins fyllstu merkingu en krefjast hugrekkis, vilja og teymisv...
Fjárfestingar og framtíðin 17.10.2024 40:45
Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi ræddu um fjármál, framkvæmdir og framtíðina í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins. Stútfullur þáttur af áhugaverðu efni en Guðlaug hefur farið með Landsneti í gegnum stórar áskoranir á þeim tíma sem hún hefur verið framkvæmdastjóri fjármála og árangurs.
Holtavörðuheiðarlína 1, hlutverk, leiðir og staðan 14.10.2024 35:22
Holtavörðuheiðarlína 1, lína sem liggja mun frá Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði, var umfjöllunarefni Landsnetshlaðvarpsins nú í byrjun október. Daginn sem hlaðvarpið var tekið upp var hálft landið einmitt án rafmagns – en nýja línan hefði að öllum líkindum komið í veg fyrir það. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi, og Kristinn Magnússon, verkefnastjóri línunnar, ræddu línun...
Elma - Skipulagður og virkur viðskiptavettvangur raforku á Íslandi 27.06.2024 36:27
Að skapa betri skilyrði fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, færa orkuviðskipti landsins í samkeppnishæft og skilvirkt umhverfi sem stuðlar að verðmætasköpun og styður orkuöryggi er umfjöllunarefni þáttarins. Þau Einars Snorri Einarsson og Steinunn Þorsteinsdóttir fengu Katrínu Olgu Jóhannesdóttur að hljóðnemanum til að ræða framtíðina, Elmu og orkumarkaðinn.
Er framtíðin fyrirsjáanleg ? 11.06.2024 16:08
Þær Svandís Hlín Karlsdóttir framkvæmdarstjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi tóku fimmtán mínútu spjall um framtíðina og hvað Landsnet er að gera til að þoka okkur nær henni m.a. með virkum raforkumarkaði.
Orkuskiptin og orkugeymslur 21.05.2024 53:21
Gnýr Guðmundsson skólastjóri Orkuskiptaskólans og Magni Pálsson yfirkennari, okkar helstu sérfræðingar í orkuskiptunum á spjalli um þetta mikilvæga málefni. #þátturnúmersjö
Virkir raforkumarkaðir eru í lykilhlutverki við að ná loftslagsmarkmiðunum 06.05.2024 35:19
Við hjá Landsneti vorum að gefa út nýja skýrslu þar sem farið var yfir helstu atriði um hlutverk og ábata af virkum raforkumarkaði Í skýrslunni kemur fram að virkur raforkumarkaður er nauðsynleg forsenda þess að ná fram skilvirkara raforkukerfi og auka þannig þjóðhagslegum ábata, öllum til hagsbóta. Ábati sem mun á endanum nema tugum milljarða árlega. Við fengum þá Jón Skafta Gestsson og Svein Guð...
Er framtíðin orkuörugg ? 29.04.2024 40:51
Nils Gústavsson framkvæmdastjóri reksturs og eigna mætti Landsnetshlaðvarpið og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um flutningskerfið, orkuöryggið og leiðina að orkuskiptunum - sem sagt stútfullur þáttur af rafmagnaðri framtíð.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.