Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 episodes

Hlaðvarp Heimildarinnar

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is

Author

Heimildin

Category

News

Podcast website

heimildin.is

Latest episode

Oct 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Flækjusagan: Árið 1920 #7: Sacco og Vanzetti: Morðingjar eða fórnarlömb? - Árið 1920 29.09.2021

Illugi Jökulsson heldur áfram að rifja upp atburði fyrir réttri öld og nú segir af frægu morðmáli sem vakti gríðarlega athygi í Bandaríkjunum og varð þungamiðja í miklum pólitískum deilum. Halldór Laxness var meðal þeirra sem mótmæltu örlögum tveggja ítalskra stjórnleysingja.

Flækjusagan: Árið 1920 #6: Burt með kónginn! - Árið 1920 29.09.2021

Danir hafa aldrei komist nær því að afskaffa kónginn en um páskana fyrir réttri öld þegar Kristján 10. var sakaður um valdaránstilraun.

Flækjusagan: Árið 1920 #5: Martröðin í myndinni - Árið 1920 29.09.2021

Kvikmyndin Skápur doktors Caligaris er viðurkennd sem eitt helsta snilldarverk kvikmyndasögunnar. Hún hefði getað beint kvikmyndasögunni inn á braut expressjónisma að útliti og sviðsmynd, en það fór á annan veg.

Kosningastundin 2021 #8: Guðmundur Ingi Guðbrandsson 24.09.2021

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mikilvægum málefnum í gegn. Helst sér hann eftir miðhálendisþjóðgarðinum en mun halda baráttunni áfram og segir loftslagsmálin vera stærstu verkefnin á komandi kjörtímabili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnulífinu og friða bæði hluta af landi og hafi.

Kosningastundin 2021 #7: Kristrún Frostadóttir 23.09.2021

Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafnaðarmaður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Viðskiptaráð og fjármálafyrirtæki. Hún segir að mikilvægt sé að efnamikið fólk greiði meira til samfélagsins og rökstyður stóreignaskatta sem réttlætismál og góða hagstjórn.

Kosningastundin 2021 #6: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir 22.09.2021

Píratar skilgreina frelsið með öðrum hætti en Sjálfstæðisflokkurinn og boða ekki velferðarsamfélag, eins og vinstri flokkar, heldur velsældarsamfélag. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir segir að sjálfvirknivæðing geri hægri-vinstri aðgreiningu stjórnmálanna úrelta. Þau ætla að hækka skatt á hátekjufólk og útgerðir.

Kosningastundin 2021 #5: Katrín Baldursdóttir 21.09.2021

Katrín Baldursdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík Suður, segir að Sósíalistaflokkurinn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við loforð sín og hvernig hann ætlar að nálgast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upphæðin er, það væri „fáránlegt“. Hún segir Sósíalistaflokkinn ætla að byggja upp sinn eigin fjölmiðil, leggja af styrki til fjö...

Kosningastundin 2021 #4: Inga Sæland 20.09.2021

Inga Sæland segir að Flokkur fólksins ætli að láta lífeyrissjóði greiða staðgreiðsluskatta af iðgjöldum í sjóðinn frekar en við útgreiðslu, líkt og er gert í dag. Þannig sér hún fyrir sér að færa 70 milljarða tekjur úr framtíðinni og til notkunar strax í dag.

Kosningastundin 2021 #3: Birgir Ármannsson 17.09.2021

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, svarar fyrir stefnu og feril flokksins í Kosningastundinni. Hann ver ráðherra flokksins, heitir áherslu á skattalækkanir og segir kosningaloforðin fjármagnast með hagvexti. Flokkurinn mun gera upphaflega kröfu um að formaðurinn Bjarni Benediktsson verði forsætisráðherra í stjórnarmyndunarviðræðum.

Kosningastundin 2021 #2: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 16.09.2021

Viðreisn telur að tenging krónu við evru sé besta og fljótvirkasta tækið sem hægt er að beita í hagstjórnarmálum til að bæta hag almennings og fyrirtækja. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gagnrýnir sitjandi ríkisstjórn fyrir kyrrstöðu og vörð um sérhagsmuni. Hún vill færa stjórnmálin inn á hina frjálslyndu miðju.

Kosningastundin 2021 #1: Ásmundur Einar Daðason 15.09.2021

Ráðast þarf í kerfisbreytingu í öllum velferðarmálum þar sem fjárfest verður í fólki segir Ásmundur Einar Daðason, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík norður. Hefðbundin hugmyndafræði sem byggir á að það séu málaflokkar kalli bara á útgjöld er gjaldþrota að hans mati. Hann sjálfur og Framsóknarflokkurinn séu í sókn í átt að aukinni félagshyggju.

Flækjusagan: Árið 1920 #4: „Flengjum þá! Hengjum þá!“ - Árið 1920 14.09.2021

Fyrir 100 árum - Rétt öld er nú liðin frá frægum og alræmdum fundi á krá í München þar sem Adolf Hitler kom í fyrsta sinn fram sem talsmaður og leiðtogi í nýjum flokki, Nasistaflokknum þýska.

Flækjusagan: Árið 1920 #3: Vildu hvorki vera þrælar Rússa né Þjóðverja - Árið 1920 14.09.2021

Eystrasaltslöndin Eistland, Lettland og Litháen notuðu eins og fleiri lönd (til dæmis Finnland) tækifærið þegar Rússland var í greipum borgarastyrjaldar til að lýsa yfir sjálfstæði. En það kostaði mikið stríð.

Flækjusagan: Árið 1920 #2: Heill her lögbrjóta - Árið 1920 14.09.2021

Hundrað ár eru liðin frá því lög sem bönnuðu áfengi tóku gildi í Bandaríkjunum. Ætlunin var að draga úr drykkju, glæpum og félagslegum hörmungum. Það mistókst – illilega.

Flækjusagan: Árið 1920 #1: „Siðferðilegt drep“ - Árið 1920 14.09.2021

Ein öld er liðin frá því að úrslit réðust í borgarastyrjöldinni í Rússlandi, einum örlagaríkasta viðburði 20. aldar. Alexander Koltsjak virtist á tímabili þess albúinn að sigrast á kommúnistastjórn Leníns en það fór á annan veg og örlög Koltsjaks urðu hörmuleg.

Leiðarar: Stundin #124: Skömm íslensku þjóðarinnar 11.09.2020

Druslu­skömm­un er stjórn­tæki sem stýr­ir kon­um með smán­un og skömm. Leiðari 124. tölublaðs Stundarinnar.

Leiðarar: Stundin #112: Íslenskt réttlæti 2020 21.02.2020

Þrír hópar leita leiðréttingar. Frá þjóðarsáttinni hefur karl í efstu tekjutíund hækkað tekjur sínar um 475 þúsund krónur á mánuði með öllu. Týpísk Eflingarkona hefur á sama tíma hækkað launin um einn tíunda þess. Jón Trausti Reynisson les.

Flækjusagan #4: Af hverju er Tyrkland Tyrkland? 21.02.2020

Saga Tyrklands er saga stórvelda sem síðar varð veikt ríki, en virðist nú muna láta að sér kveða að nýju. Þessi Flækjusaga birtist fyrst í 12. tölublaði Stundarinnar í desember 2015.

Flækjusagan #3: „Við brenndum, drápum, lögðum allt í rúst“ 14.02.2020

Frakkar fóru fram með hrottaskap og grimmd í Alsír. Skiptir það máli á vorum dögum? Þessi Flækjusaga birtist fyrst í 11. tölublaði Stundarinnar í nóvember 2015.

Leiðarar: Stundin #111: Þegar lögreglan er upptekin 07.02.2020

Þrjár konur, þrjár sögur. Allar áttu þær það sameiginlegt að vera undir áhrifum áfengis- eða vímuefna þegar neyðarkalli þeirra var ekki svarað. Afleiðingarnar voru skelfilegar. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir les.

Undir áhrifum #5: Mr. Silla og PJ Harvey 27.08.2019

Mr. Silla, Sigurlaug Gísladóttir, hefur tekið mikið til sín frá tónlistarkonunni PJ Harvey. Hún hefur verið sískapandi í 30 ár og það hyggst Silla líka gera.

Flækjusagan #2: Konan sem vildi verða Rómarkeisari 12.07.2019

Rómaveldi var feðraveldið uppmálað. Í þúsund ára sögu þess, sem einkenndist af sífelldum hernaði, er aðeins vitað um eina konu sem stýrði her og virtist hafa metnað til að verða hæstráðandi í ríkinu. Það var Fúlvía.

Undir áhrifum #4: Jóhanna Rakel og 070 Shake 09.07.2019

070 Shake er fyrsta tónlistarkonan sem varð þess valdandi að Jóhanna Rakel varð ástfangin af hljóðinu. Hún er líka leynivopnið á plötu með Kanye West.

Flækjusagan #1: Má breyta Faðirvorinu? 28.06.2019

Frans páfi hefur látið það boð út ganga að orðin: „Eigi leið þú oss í freistni“ í bæninni, sem Jesúa frá Nasaret kenndi lærisveinum sínum, séu þýðingarvilla. En er það svo?

Undir áhrifum #3: Sóley og Joanna Newsom 18.06.2019

Sóley Stefánsdóttir lenti á vegg í FÍH þar sem hana skorti kvenfyrirmyndir. Hún varð síðan fyrir áhrifum af amerískri tónlistarkonu á svipuðum aldri, sem gaf henni leyfi til þess að gera eitthvað skrítið og kúl.

Listen to the Heimildin - Hlaðvörp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.