Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 episodes

Hlaðvarp Heimildarinnar

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is

Author

Heimildin

Category

News

Podcast website

heimildin.is

Latest episode

Oct 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Flækjusagan #14: Flottasta fjölskylda Rómaveldis 30.11.2021

Illugi Jökulsson segir frá tignarfjölskyldu í Róm — en það fór hörmulega fyrir henni

Flækjusagan #13: Eru talibanar ein af hinum týndu ættkvíslum Ísraels? 26.11.2021

Venjulega er það merki um að söguáhugamenn séu hrokknir upp af standinum þegar þeir fara að fabúlera um „hinar týndu ættkvíslir Ísraels“. En eins og Illugi Jökulsson fjallar hér um eru jafnvel alvöru fræðimenn ekki alveg fráhverfir þeirri hugmynd að Gyðingar kunni að hafa flækst alla leið til Afganistans í árdaga.

Flækjusagan #12: Örsnauður holdsveikrasjúklingur þrælar í hlekkjum 23.11.2021

Illugi Jökulsson fjallar um sorglegan þátt í Íslandssögu

Flækjusagan #11: Blóðug saga við Rauðahaf 19.11.2021

Bæði í Súdan og Eþíópíu er nú barist innanlands. Borgarastríð kraumar enn undir niðri í Sómalíu og í Suður-Súdan. Einræðisstjórnir halda fólki niðri í Egiftalandi og Eritreu.

Flækjusagan #10: „Ilmur brennandi presta“ 16.11.2021

Illugi Jökulsson segir frá lítt þekktu Gyðingaríki syðst í Arabíu

Flækjusagan #9: Ef Hitler hefði verið myrtur 1919 12.11.2021

Illugi Jökulsson býr til sögu um hvað hefði þá gerst

Flækjusagan #8: Mjög lítið blóð 09.11.2021

Illugi Jökulsson rakst í Damaskus á mann sem leit úr nákvæmlega eins og Assad forseti

Flækjusagan #7: Tárfellt yfir þeysireið biskupssonar 05.11.2021

Illugi Jökulsson endurskoðar álit sitt á neðanmálsgrein úr Íslandssögunni

Flækjusagan #6: Geta fjöldamorðingjar verið hetjur? 02.11.2021

Illugi Jökulsson reynir að gera upp aðdáun sína á Míþridatesi Pontuskóngi

Flækjusagan #5: Hvaðan er Nóbelshöfundurinn? 29.10.2021

Er Abdulrazak Gurnah frá Tansaníu? Eða alls ekki þaðan, heldur frá Sansíbar? Eða Bretlandi? Eða Svahílí-ströndinni? Eða kannski frá Óman? Lífið er flókið eftir umrót nýlendutímans. Og hvaðan er Freddie Mercury?

Leiðarar: Stundin #4: Þegar fólk er svipt voninni 13.10.2021

„Hversu lengi þurfum við að treysta kerfi sem hefur ítrekað brotið á okkur og brugðist okkur?“

Flækjusagan: Árið 1920 #21: Þegar fjöllin gengu og fólkið dó í hrönnum - Árið 1920 29.09.2021

Fyrir 100 árum, þann 16. desember 1920, varð einn mannskæðasti jarðskjálfti sögunnar í Kína. Einmitt þá áttu sér stað ógurlegar róstur í landinu.

Flækjusagan: Árið 1920 #20: Njósnari í aðalstöðvunum: „Hvar er Litli herramaðurinn okkar?“ - Árið 1920 29.09.2021

Sjálfstæðisstríð Íra stóð sem hæst fyrir réttri öld.

Flækjusagan: Árið 1920 #19: „Ég hefði aldrei átt að enda hérna“ - Árið 1920 29.09.2021

Warren Harding má búast við að losna loksins úr sæti versta Bandaríkjaforsetans þegar farið verður að meta forsetatíð Donalds Trump.

Flækjusagan: Árið 1920 #18: Þegar apinn drap Grikkjakóng og kostaði að minnsta kosti 250.000 mannslíf - Árið 1920 29.09.2021

… og Konstantínópel varð þess vegna ekki grísk borg að nýju

Flækjusagan: Árið 1920 #17: Eiturgas í gleymdu stríði - Árið 1920 29.09.2021

Fyrir einni öld stofnuðu Spánverjar útlendingahersveit til að kveða niður uppreisn hinna stoltu Rif-búa í Marokkó gegn yfirráðum þeirra. Spánverjar gripu til hinna hræðilegustu glæpa til að knésetja skæruliðaforingjana Abdelkrim.

Flækjusagan: Árið 1920 #16: „Go Away, Red Star!“ - Árið 1920 29.09.2021

Fyrir réttri öld var Rauði herinn að knésetja afkomendur hinna stoltu Mongóla í Mið-Asíu. Sumir muna þá atburði betur en aðrir, eins og Illugi Jökulsson leiðir í ljós.

Flækjusagan: Árið 1920 #15: Kraftaverkið við Vislu - Árið 1920 29.09.2021

Rauði herinn virtist þess albúinn að kremja frjálst Pólland í ágúst 1920. Pólverinn Felix Dsersinskí beið eftir að hefja „sverð byltingarinnar“ á loft yfir löndum sínum. En Józef Piłsudski leiðtogi Pólverja var ekki búinn að gefast upp.

Flækjusagan: Árið 1920 #14: На Запад! Í vestur! - Árið 1920 29.09.2021

Í sumarbyrjun 1920 virtist hið nýja pólska ríki standa með pálmann í höndunum gagnvart hinum Rauða her kommúnistastjórnarinnar í Rússlandi. En skjótt skipast veður í lofti og allt í einu var tilveru Póllands enn á ný ógnað.

Flækjusagan: Árið 1920 #13: Krúnunýlendan Kenía: „The master race“ eignast jörð í Afríku - Árið 1920 29.09.2021

Við lok síðari heimsstyrjaldar gafst Bretum tækifæri til að vinda ofan af kúgun og misrétti nýlendustefnu sinnar. En í Keníu tóku þeir þveröfugan pól í hæðina, sem endaði með grimmilegri uppreisn rúmum 20 árum síðar.

Flækjusagan: Árið 1920 #12: „Þeir selja póstkort af hengingunni“ - Árið 1920 29.09.2021

Bandaríkjamenn reyna nú að átta sig á að svört líf skipti máli, ekki síður en hvít. Ekki drógu þeir réttan lærdóm af skelfingu sem átti sér stað í borginni Duluth fyrir einni öld.

Flækjusagan: Árið 1920 #11: Þegar morðinginn er hetja - Árið 1920 29.09.2021

Morð sem framið var í augsýn hundraða vegfarenda framan við lúxushótel í París fyrir réttri öld átti eftir að skipta verulegu máli fyrir sögu og þróun í litlu landi í öðrum enda Evrópu.

Flækjusagan: Árið 1920 #10: Zorro kóngur og Pollyanna drottning - Árið 1920 29.09.2021

Skærustu stjörnur þöglu myndanna í Bandaríkjunum skinu skært árið 1920 en engar þó skærar en Douglas Fairbanks og Mary Pickford.

Flækjusagan: Árið 1920 #9: Þegar byltingunni lauk í for og blóði - Árið 1920 29.09.2021

Hingað til hefur Illugi Jökulsson rifjað upp í þessari þáttaröð um atburði ársins 1920 borgarastríðið í Rússlandi, uppgang Hitlers í nasistaflokknum þýska, glæpaöldu vegna bannáranna í Bandaríkjunum, réttarhöld gegn anarkistum vestanhafs og kvikmyndagerð á þvísa ári. En nú er röðin komin að Mexíkó.

Flækjusagan: Árið 1920 #8: „Vaknaðu, Saladín! Við erum komnir!“ - Árið 1920 29.09.2021

Síðari hluta apríl 1920 var haldin ráðstefna í ítalska bænum San Remo þar sem nokkrir vestrænir herramenn hlutuðust til um landamæri og landaskipun í Mið-Austurlöndum, náttúrlega án þess að spyrja íbúa sjálfa. Hinir vestrænu leiðtogar litu sumir að því er virðist á þetta sem framhald krossferðanna.

Listen to the Heimildin - Hlaðvörp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.