Steinunn A Björnsdóttir

Guð-spjall

Religion IS ↓ 51 episodes

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

Author

Steinunn A Björnsdóttir

Category

Religion

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 5, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sálmar í stríði og Benóný á ballinu 05.07.2025

Í þessum þætti verður aðeins brugðið út af vananum og í stað þess að ræða texta næsta sunnudags tölum við um sálmabækur að fornu og nýju, deilurnar um Leirgerði, um það þegar Matthías Jochumsson var lagfærður og um sálma á arabísku. Við fjöllum líka um túlkunar- og textafræði dægurlaga - var það Benóný eða Benjamín á ballinu og hvernig tengist það fyrstu Mósebók?

Páskar enn og aftur 15.04.2022

Spjallað um atburði kyrruviku frá ýmsum sjónarhornum. 

Vatni breytt í vín í þurrum janúar 14.01.2022

Þarf alltaf að vera vín? Brúðkaupið í Kana getur verið erfitt að skilja ef áfengismagnið truflar okkur. Hvað var Jesús að fara með þessu? Og tengist þessi saga Bakkusarátrúnaði? Var Jesús dónalegur við mömmu sína? Og hvaða Guð er það sem við sjáum bara hnakkann á? Þetta og fleira og fleira til umræðu í þætti um texta 2. sunnudags eftir þrettánda. Textarnir eru hér:  Lexía: 2Mós 33.17-23 Drott...

Andar í varðhaldi og apokrýfan 09.01.2022

Fyrsta Pétursbréf hefur stutta en dularfulla setningu um að Jesús hafi predikað fyrir öndunum í varðhaldi. Tengist það etv. frásögn í apókrýfu Pétursguðspjalli? Og hvað þýðir skírnin? Hver sá dúfuna og heyrði röddina? Það eru engin einföld svör en ótal spurningar í þessu hlaðvarpi um texta fyrsta sunnudags eftir Þrettándann 2022.  Hér eru textarnir sem eru til umræðu:  Pistill: 1Pét 3.18...

Jólaþáttur 2021: ljósmæður og lítil orð 17.12.2021

Hvað er í jólagruðspjallinu og hvað er ekki. Hvað höldum við að sé þar og hvað hugsum við aldrei um? Og hversu lengi er hægt að ræða um gríska orðið και (kæ eða ke)? Hvað sögðu englarnir? Þetta og ýmislegt annað í jólaþættinum sem vísar talsvert til þáttar nr. 21 um jólagruðspjallið. Mælt með hlustun á hann líka - já og 22 og 23! Gleðileg jól.

Auðmýkt, asnar og aðventa 30.11.2021

Létt spjall um texta aðventunnar og ýmsa fleiri texta. 

Þetta er auðvitað kolrangt! Spjallað um þýðingaraðferðir og annað skemmtilegt 30.06.2021

Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson er gestur þáttarins að þessu sinni og ræðir við okkur um þýðingaraðferðir. Sérstaklega er rætt um Jesaja og þakkarsálm Hiskia konungs, sem var viðfangsefni doktorsrannsóknar hans. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós, t.d. leysir hann þýðingarvanda sem aðrir hafa verið ráðþrota yfir. En hér er textinn sem er til umræðu og það er 16 versið sem hefur valdið mestum heilabro...

Hafið, ógnin og umvöndunarháttur þátíðar 03.06.2021

Voru lærisveinarnir hræddir við smá golu? Af hverju beitti Páll umvöndunarhætti þátíðar? Og hver er þessi maður að vindur og vatn hlíða honum? Textar sjómannadags skoðaðir í stuttu spjalli um textanna, sjómennsku og sjómannadaginn. Lexía: Slm 107.1-2, 20-31 Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefur leyst...

Gestrisni er trúariðkun. Saga úr Mamre-lundi 29.05.2021

Ekki er allt sem sýnist þegar þrír menn heimsækja Abraham. Þekkt saga sem segir margt. Kunnug úr fleiri trúarhefðum, túlkuð á ýmsan hátt, meðal annars í tengslum við þrenninguna. Textar þrenningarhátíðar skoðaðir. Lexía: 1Mós 18.1-5 Abraham sat í tjalddyrum sínum í miðdegishitanum í Mamrelundi er Drottinn birtist honum. Honum varð litið upp og stóðu þá þrír menn frammi fyrir honum. Er hann sá þá h...

Eldfim tunga og erfiðar þýðingar 24.05.2021

Hvítasunnuundrið, Kinnin og Nasaret, besta veðrið til að þurrka steinbít, hið eilífa vor og mál beggja kynja - hér er komið víða við í spjalli um texta hvítasunnu.  Lexía: Jl 3.1-5 Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, gamalmenni yðar mun dreyma drauma og ungmenni yðar munu fá vitranir, jafnvel yfir þræla og ambáttir mun ég úthella anda mínum á þeim dög...

Bænabók Jesú og Boney M 09.05.2021

Hér er farið vítt og breytt um Sálmana, bænabókarinnar sem Jesús þekkti. Við skoðum orð og þýðingar, merkingar, hugsanarím og harma og lítum að eins á tengsl þeirra við þekkta þætti í menningu og málfari. Útgangspunkturinn er Sálmur 102 sem hér er birtur:  Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast og úthellir harmi sínum fyrir augliti Drottins. Drottinn, heyr þú bæn mína, hróp mitt berist til þín...

Guð-spjall, 39. þáttur: Andhetjan Abraham, Hagar og heimiliserjur 30.04.2021

Staðgöngumæðrun, þrælahald, afbrýðissemi, talhlýðni og grimmd eru til umræðu í þættinum, ásamt myndarlegu magni af ritskýringu. Lexían á sviðið en tæpt er á pistli og guðspjalli. Lexía: 1Mós 21.8b-21 Þann dag, er Ísak var vaninn af brjósti, gerði Abraham veislu mikla. Sá þá Sara son Hagar hinnar egypsku, sem hún hafði fætt Abraham, að leik og sagði við Abraham: „Rektu burt ambátt þessa og son henn...

Guð-spjall, 38. þáttur: Réttlæti, átök, villa og trú 24.04.2021

Textarnir bjóða upp á spjall allt frá málfræði yfir í trúfræði, þjóðfélagsmál og fleira.  Lexía: Sak 8.16-18 Þetta er það sem ykkur ber að gera: Segið sannleikann hver við annan og fellið dóma af sanngirni og velvilja í hliðum yðar. Enginn yðar ætli öðrum illt í hjarta sínu og fellið yður ekki við meinsæri. Allt slíkt hata ég, segir Drottinn. Pistill: Róm 8.9-11 En þið eruð ekki á hennar vald...

Guð-spjall, 37. þáttur: Allt um hirðinn og svolítið um dyrnar 16.04.2021

Hér er rætt um góða og slæma hirða, aðeins um sauðfjárverndina og dálítið um dyr. Guðspjallið er snúið og sumir hafa burtskýrt hluta þess en það er ekki alveg keypt í þessu spjalli.  Textar vikunnar:  Lexía: Jer 23.1-6 Vei hirðunum sem leiða sauðina afvega og tvístra hjörðinni sem ég gæti, segir Drottinn. Þess vegna segir Drottinn, Guð Ísraels, um hirðana sem gæta þjóðar minnar: Þér hafi...

Guð-spjall, 36. þáttur: Kristilegur kommúnismi og postullegt spretthlaup. 09.04.2021

Hinir fyrstu kristnu seldu eigur sínar og gáfu öllum jafnt. Hvað þýðir það fyrir okkur? Og hver vann postullega spretthlaupið að gröfinni og af hverju er sagt frá því? Stutt spjall um texta næsta sunnudags og guðspjall páskadags með viðkomu í fornöld og nútíma.  Textar 1. sun eftir páska:  Lexía: Slm 145.1-7 Lofsöngur Davíðs. Ég tigna þig, Guð minn og konungur, og lofa nafn þitt um aldur...

Guð-spjall um glænýtt Kirkjurit: Hver skráir söguna og hvaða sögu? 02.04.2021

Sérþáttur um nýútkomið Kirkjurit með fjölbreyttu efni. Blaðið sjálft má nálgast hér .  Við ræðum við sr. Arnald Mána Finnsson sem situr í ritnefnd ritsins um skráningu sögunnar - um það sem gerðist en hvergi er skráð, til dæmis varðandi samskipti fólks í Samtökunum 78 og Þjóðkirkjunni, um trúarhóp samtakanna, alnæmi og fleira sem litaði meðal annars 10. áratuginn. Kirkjan og kófið er annað um...

Guð-spjall, 35. þáttur: Óskalögin: Basans uxar og steinninn stóri 25.03.2021

Við fögnum árs afmæli Guð-spjalls þáttanna með köku og í sykurvímu ákveðum við að fjalla um einhverja texta sem við höldum upp á og tengjast dymbilviku og páskum, frekar en texta næsta sunnudags. Þetta eru eiginlega óskalögin. Við völdum Sálm 22 og upprisufrásögn Markúsar.  Sálmur 22 Guð minn, Guð minn! Hví hefur þú yfirgefið mig? Ég hrópa en hjálp mín er fjarlæg. „Guð minn!“ hrópa ég um daga...

Guð-spjall, 34. þáttur: Hvað er sannleikur? 19.03.2021

Þegar stórt er spurt reyna spekingar gjarnan að svara. Við  tökumst á við þessa spurningu og fleiri í þætti dagsins þar sem fyrir koma skúffaðir embættismenn, harðstjórar í heimspekisamræðum, hugtökin synd og fyrirgefning og svo hún María sem gladdist við að hitta Elísabetu, sem skildi hvað hún var að ganga í gegnum.  Textar dagsins eru bæði textar 5. su. í föstu , sem og guðspjall Boðun...

Guð-spjall, 33. þáttur: Matur, líf og gnægð 11.03.2021

Matur er miðlægt þema í textum dagsins, mettun og styrking og gnægð. Og líf. Og út frá því fer spjall okkar í ýmsar áttir, frá sögum úr sveitum yfir í frumkirkjuna og bókina Sapiens og hvort landbúnaðarbyltingin hafi veirð mannkyni böl.  Lexía: 2Kon 4.42-44 Einu sinni kom maður frá Baal Salísa og færði guðsmanninum tuttugu byggbrauð, frumgróðabrauð. Dálítið af nýju korni hafði hann einnig í p...

Guð-spjall, 32. þáttur: Jarðhræringar í textum og túlkun óláta í sviðsmynd dagsins 05.03.2021

Hér er rætt um Samúelsbækur, versin sem ekki eru inni í textum dagsins og margar sviðsmyndir dregnar upp í anda umræðu vikunnar. Páll postuli kemur einnig við sögu og glannalegar tengingar milli hans, Neró og ofsókna á hendur kristnum. Þá er þeirri spurningu velt upp hvers vegna í ósköpunum Jesús var að amast við því að hægt væri að gera það sem nauðsynlegt var í musterinu.  Lexía: 2Sam 22.2-...

Guðspjall, 31. þáttur: Tala dýrsins, drottningin af Saba og demónar 25.02.2021

Við förum vítt og breitt í þessum þætti. Opinberunarbókin og tala dýrsins, spekirit og drottningin af Saba sem hitti Salómon (og hve náin voru þau kynni), trú, vantrú og demónar.  Lexía: Okv 4.23-27 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins. Haltu munni þínum fjarri fláum orðum og vörum þínum fjarri lygamálum. Beindu augum þínum fram á við og sjónum þínum að því...

Guð-spjall, 30. þáttur: Tekið fast á föstunni og flókið guðspjall 18.02.2021

Þrjátíu þættir! Og samt eins og við höfum ekkert lært. Lexíu og pistil má tengja föstunni en guðspjallið - jahérnahérna! En við gerum okkar besta og tínum að auki til ýmislegt - deilur Páls postula við kjaftfora liðið í Korintu, þýðingar sr. Páls í Selárdal og fólkið sem telur öruggt að Guð varðveiti það þó að það sé sífellt að stíga ofan á höggorma og nöðrur.  Lexía: Slm 1 Sæll er sá sem eig...

Guð-spjall, 29. þáttur: Æ, þarf að tala um aga? 11.02.2021

Textarnir í föstuinngang eru margþættir og mann gæti grunað að einhverjir vildu helst skera þá við trog. En þó má ýmislegt um þá segja. Til dæmis hvað er sameiginlegt með skurðgoðasafni og Kibbútz samyrkjubúunum. Lexía: Jes 57.13-15 Lát skurðgoðaflokk þinn bjarga þér þegar þú hrópar á hjálp. Stormurinn ber hann burt, vindurinn tekur hann en sá sem leitar hælis hjá mér mun erfa landið og taka mitt...

Guð-spjall, 28. þáttur: Vá, það eru konur í Biblíunni! 05.02.2021

Vissir þú að fyrsti Evrópubúi sem tók kristni var kona? Veistu hvað hún hét? Biblían, konurnar og köllunin er þema þessa þáttar sem skoðar texta 2. su. í níuviknaföstu sem jafnframt er Biblíudagurinn. Textar dagsins:  Lexía: Jes 48.16-19 Komið til mín og heyrið þetta: Frá upphafi hef ég aldrei talað í leyndum og frá því þetta varð hef ég verið hér. Nú hefur Drottinn Guð sent mig og anda sinn....

Guð-spjall, 27. þáttur: Er allt hégómi? Eða bara röng þýðing? Og hver er ávinningurinn af stritinu? 28.01.2021

Predikarinn mætir með sínar þekktustu setningar. Allt er hégómi, aumasti hégómi - eða hvað? Við köfum í það og kíkjum svo á aðra texta næsta sunnudags. "Hver er ávinningurinn?" er etv. hin sameiginlegi þráður en svörin misjöfn. Já, og svo er hann Páll postuli eitthvað að tala um skít. Svona kemur margt á óvart þegar kafað er í texta.  Textar dagsins: Lexía: Préd 1.1-10 Orð prédikarans, sonar...

Listen to the Guð-spjall podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.