Kristinn Theodórsson
Heimsmyndir
Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.
Author
Kristinn Theodórsson
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 15, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Heimsmyndir - Valur Arnarson 15.02.2025 57:33
Laugardagur 15. febrúar Heimsmyndir - Valur Arnarson Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.
Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir 25.10.2024 1:18:36
Föstudagur 25. október Heimsmyndir - Valgerður Þ. Pálmadóttir Valgerður Þ. Pálmadóttir doktor í hugmyndasögu kom i þáttinn að ræða breytingar á heimsskilningi fólks í gegnum tíðina. Svo tóku þau Kristinn djúpa dýfu í Frankenstein eftir Mary Shelley. Það ótrúlega margbrotna verk.
Heimsmyndir - Helga Þórey 11.10.2024 58:02
Föstudagur 11. október Heimsmyndir - Helga Þórey Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir kom í þáttinn að rýna í unglingabækur frá 8. og 9. áratug síðustu aldar. Hver var siðferðisboðskapur þessara bóka? Var hann heldur kristilegur og íhaldssamur stundum?
Heimsmyndir - Róbert Jack 27.09.2024 1:11:51
Föstudagur 27. september Heimsmyndir - Róbert Jack Róbert Jack heimspekingur kom í þáttinn að ræða upplifanir af fyrri lífum. Hvað sú þekking eða lífsskoðun gerir fyrir hans heimsmynd. Hafi maður upplifað slíkt vill maður geta rætt það við einhvern. Við erum félagsverur. En er það með góðu móti hægt?
Heimsmyndir - Nicole Keller 13.09.2024 55:05
Föstudagur 13. september Heimsmyndir - Nicole Keller Nicole Keller doktor í jarðefnafræði kom í þáttinn að ræða um reynslu vísindamanns af að finna sig í jóga og hugleiðslu. Loftslagsmál og merkingar-krísan komu einnig við sögu.
Heimsmyndir - Jóhann Björnsson 30.08.2024 1:01:39
Föstudagur 30. ágúst Heimsmyndir - Jóhann Björnsson Jóhann Björnsson heimspekingur kom í þáttinn að ræða menntaheimspeki: PISA kannanir, væntingar til árangurs og eðli náms. Hvað er hlutverk menntastofnana og hvað segir heimspekin þar um?
Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir 16.08.2024 1:00:57
Föstudagur 16. ágúst Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir Svanhildur Tinna Ólafsdóttir barnasálfræðingur kom í þáttinn að ræða heimsmynd barna á einhverfurófinu. Félagslegur veruleiki fólks sem af einhverjum ástæðum á erfitt með samskipti. Hver er hann og er það að einhverju marki spurning um viðhorf og þjálfun? Svanhildur varpaði ljósi á þær spurningar.
Heimsmyndir - Óli Stef 21.06.2024 1:02:13
Föstudagur 21. júní Heimsmyndir - Óli Stef Handboltahetjan Óli Stef kom í þáttinn að ræða heimspeki hugvíkkandi efna. Er tilveran ein vitund að máta við sig upplifanir? Eða eru hugvíkkandi efni bara grautur af bulli sem endurspeglar helst skapgerð þess sem þau tekur?
Heimsmyndir - Heiða Eiríks 14.06.2024 52:01
Föstudagur 14. júní Heimsmyndir - Heiða Eiríks Heiða Eiríksdóttir (Heiða í Unun) kom í þáttinn að ræða fyrirbærafræði. Um hvað er þessi dulúðlega grein heimspekinnar? Heiða er í doktorsnámi í heimspeki og er hafsjór af fróðleik um þetta áhugaverða svið greinarinnar.
Vísindaskáldskapur 31.05.2024 1:11:15
Föstudagur 31. maí Heimsmyndir - Vísindaskáldskapur! Vísindaskáldskapur! Nanna Hlín og Ármann komu aftur í þáttinn að ræða um bókmenntir og heimspeki. Ætti Ursula K. LeGuin að hafa fengið Nobel? Já, segjum við. Frábært spjall um sögur og heima.
Heimsmyndir - Grétar Halldór Gunnarsson 11.05.2024 1:01:04
Gestur þáttarins er Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju. Hann kom í þáttinn til að ræða við Kristin um eðli trúar, sem hægt er að skoða bæði trúarlega, sálfræðilega og heimspekilega. Er kristnin með góða nálgun við þetta óræða eitthvað sem við köllum guð? Eru trúarbrögðin viðbrögð við meðvitund um takmarkanir tungumáls og skilnings? Þetta varð flókið og skemmtilegt spjall ólíkra hug...
Heimsmyndir - Sveinn Guðmundsson 26.04.2024 57:50
Heimsmyndir, 26. apríl Sveinn Guðmundsson Gestur þáttarins er Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur við HÍ. Þeir Kristinn reyndu að rýna í heimspeki vinsæls vísindaskáldskapar: Dune, Star Trek og Star Wars. Þessir heimar eru um margt ólíkir. En hugsanlega tengjast þeir engu að síðar þegar betur er að gáð. Sveinn var afar viðræðugóður og skemmtilegur viðmælandi.
Heimsmyndir - Gustav Adolf 29.03.2024 1:22:17
Heimsmyndir 29. mars Gustav Adolf Gestur þáttarins er Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, nýdoktor í heimspeki. Gústav hefur skrifað afar áhugaverða doktorsritgerð um eðli samskipta þegar kemur að #Metoo og #BLM, um tilhneigingu okkar til að meðtaka ekki efnislega frásagnir þolenda ofbeldis og óréttlætis. Þeir Kristinn ræddu síðan allskyns tengdar vangaveltur um að segja frá og að meðtaka. Frábæ...
Heimsmyndir - Arngrímur Vídalín 22.03.2024 1:11:35
Heimsmyndir, 22. mars Arngrímur Vídalín Gestur þáttarins er Arngrímur Vídalín lektor í íslenskum bókmenntum. Arngrímur sagði frá afar áhugaverðri rannsókn sinni á elstu íslensku handritum, þar sem höfundar virðast hafa reynt að færa Ísland nær Evrópu til að afskrísmslavæða okkur. Þeir Kristinn létu svo gamminn geysa um ýmsar fornar hugmyndir og áhrif þeirra á heimsmynd fólks á miðöldum. Mjög fróðu...
Heimsmyndir - Eyja Margrét 15.03.2024 1:25:41
Heimsmyndir 15. mars Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki við HÍ er gestur þáttarins. Hún sagði frá frumspeki kynja og kynþátta, hvað verufræði og frumspeki eru og ræddi ýmsar bækur um feminínska heimspeki og feminískar útópíur. Þau Kristinn rifjuðu upp feminísku rökræðurnar á samfélagsmiðlum og veltu fyrir sér árekstrum og árangri í þeim um...
Heimsmyndir - Ármann Halldórsson 08.03.2024 1:35:58
Heimsmyndir 8. mars Ármann Halldórsson Gestur þáttarins er Ármann Halldórsson heimspekingur og kennari við Verzlunarskóla Íslands. Þeir Kristinn fóru um víðann völl og ræddu allt frá heimspekikennslu til mikilvægis fegurðar í ýmsu samhengi. Samtalið varð svo líflegt að það varð það lengsta til þessa. Platon, Yuval Noah Harari og Hegel gamli komu allir við sögu. Sem og möguleg hugsun skóga og svepp...
Heimsmyndir - Nanna Hlín 01.03.2024 1:12:26
Heimsmyndir 1. mars Nanna Hlín Halldórsdóttir Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktor í heimspeki, er gestur þáttarins. Þau Kristinn ræddu vestræna heimspeki og meginlandsheimspeki. En þó aðallega bókina Giving an Account of Oneself eftir Judith Butler. Judith er hán og það fornafn þurftu þau aðeins æfa sig að nota. Gekk ekki snuðrulaust
Heimsmyndir - Bjarni Randver 23.02.2024 1:20:41
Heimsmyndir 23. febrúar Bjarni Randver Sigurvinsson Gestur þáttarins er Bjarni Randver Sigurvinsson trúar- og guðfræðingur. Bjarni lenti harkalega upp á kant við herskáa guðleysingja árið 2010 og úr því spunnust miklar deilur í um tvö ár. Kristni þótti gleðilegt að fá tækifæri til að biðjast afsökunar á sínum þætti í þeim deilum. Það má deila um allt sem viðkemur réttu og röngu í þeim árekstri hug...
Heimsmyndir - Atli Harðarson 16.02.2024 1:17:00
Gestur þáttarins er Atli Harðarson heimspekingur og prófessor í Deild faggreinakennslu. Þeir Kristinn ræddu 17. aldar heimspekinginn Baruch Spinoza, frumspeki hans og tilraunir til endurbóta á trúarhugmyndum samtíma síns. Mun sannleikurinn gera okkur frjáls? Hvað er sannleikur? Atli leiðir okkur í allan... sannleikann.
Heimsmyndir - Karen Kjartansdóttir 09.02.2024 42:04
Gestur þáttarins er Karen Kjartansdóttir athafnakona og hugsjónamanneskja. Þau Kristinn ræddu hvað það merkir að vera trúlaus en finna guðdóminn í einhverju, eins og Karen hafði komið inn á í nýlegri grein. Þau ræddu auk þess samskipti við pólitíska andstæðinga og hvernig maður finnur því farveg að taka sjálfa/n sig ekki of alvarlega þótt mikið gangi á.
Heimsmyndir - Ólafur í Hvarfi 02.02.2024 1:20:06
Að þessu sinni kemur í þáttinn uppáhalds net-vinur Kristins sem hann hafði aldrei hitt. Mikill þúsundþjalasmiður og hugsuður, hann Ólafur í Hvarfi Ragnarsson. Þeir ræða ævintýrakennda sögu Ólafs, sem og ýmsar ævintýrakenndar hugmyndir um heiminn og tilveruna.
Heimsmyndir - Björn Þorsteinsson 26.01.2024 1:01:54
Gestur þáttarins er Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki við HÍ. Hann hefur skrifað bókina Verufræði um verufræði, skammtafræði og fyrirbærafræði. Sem allt eru mikil áhugamál þáttarstjórnanda. Þeir Björn reyndu í glettni að koma efnishyggju fyrir kattarnef, en raunverulega stóð aðeins til að kynna fyrir áheyrendum gráa svæðið milli efnishyggju og hughyggju, eða milli skyns og efnis.
Heimsmyndir - Rannveig Ernudóttir 19.01.2024 1:00:13
Rannveig Tenchi Ernudóttir er guðlaus guðfræðingur, Pírati, varaborgarfulltrúi í leyfi og forstöðukona öldrunarmiðstöðvar á Stykkishólmi. Hún skrifaði eitt sinn BA ritgerð um fermingu unglinga og ræddi við Kristin um hlutverk trúarhugmynda í uppeldi og í sjálfsmynd, í glettni um satanisma og um allt frá draumum til samfélagsumræðunnar um erfið málefni.
Heimsmyndir - Sindri Guðjónsson 13.01.2024 1:15:42
Sindri Guðjónsson er fyrrverandi formaður Vantrúar. Hann lögræðingur, skáksnillingur og fyrrverandi bókstafstrúarmaður. Hann tók til varna fyrir Nýja Trúleysið sem aðeins hefur verið gantast með í þáttunum. Fróður og klár strákur.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.